Dagur - 04.05.1990, Qupperneq 11
Föstudagur 4. maí 1990 - DAGUR - 11
hér & þar
Skemmtiklúbburinn
Sex algengustu mistökin -
sem fólk endurtekur sí og æ
Þessi gæti hugsanlega hafa eignast fjölda óvina ef hún hefur veriö að monta
sig, eins og þessi niynd gæti gefíð til kynna aö hún hafí verið aö gera.
Sérfræðingar segja að allir geri
einhvern tíma mistök, en sex
ákveðin mistök munu vera þau
algengustu. Dr. Fredrick Koen-
ing, prófessor í Háskólanum í
Tulane í Bandaríkjunum segir að
auðvelt sé að koma í veg fyrir
þessi mistök, ef fólk gerir sér
grein fyrir hættunni á þeim. Og
hér koma þessi sex algengustu
mistök sem fólki verður á.
1. Að opna sig of fljótt. Getur
verið mjög skaðvænlegt fyrir þig.
sérstaklega ef þú blaðrar of mikið
um sjálfan þig við yfirmann þinn
eða samstarfsmenn sem þú þekk-
ir ekki mikið. Petta eru mistök
sem auðveldlega eru endurtekin
því sá sem á þig hlustar lætur þig
yfirleitt mala áfram.
Að samtali loknu er hann hins
vegar líklegur til að segja næsta
manni að þú talir allt of mikið og
að ekki borgi sig að treysta þér
fyrir neinu. Því er best að gera
það að reglu að halda persónu-
legum málum fyrir sig, nema um
sé að ræða verulega góðan vin.
2. Aö upphefja sig á kostnað
annarra. Ekki eigna sjálfum þér
heiðurinn eftir samvinnu við
aðra. Mjög líklegt er að þessi
mistök endurtaki sig hjá þér, þvf
í fyrsta skipti sem þú gerir þetta
er líklegt að hinn eða hinir aðil-
arnir láti þetta afskiptalaust. En
ef þú endurtekur þetta er líklegt
að þú verðir þér úti um óvini,
sem líklega reyna að finna leið til
að endurgjalda þér „greiðann".
3. Aö falla fyrir sömu niann-
gerðinni aftur. Þetta gerist æði
oft því ástin gétur sannarlega ver-
ið blind. Ef samband rennur út í
sandinn vill fólk gjarnan gleyma
þeim mistökum sem fyrst, en
skyndilega stendur það í sömu
sporum aftur. Kominn í samband
við manneskju og þið horfist í
augu við samskonar vandamál og
þú gerðir áður með fyrri félaga.
Ef þér finnst þú dragast sífellt
að sömu manngerðinni, skaltu
stoppa við og spyrja sjálfan þig
hvort þú sért ekki betur settur án
þessara vandamála. Lærðu af
mistökunum.
4. Að takast of mikið á
hendur. Þú ætlar þér allt of mikið
og lendir sífellt í því sama, því þú
gerir þér ekki grein fyrir tíman-
um sem þessi verk taka. Því er
best að líta raunsæisaugum á
málin og gera sér grein fyrir því
hvað á að hafa forgang. Gott er
að halda dagbók og skipuleggja
þannig fram í tímann hvenær
verkin skulu unnin og þannig get-
ur þú betur gert þér grein fyrir
hvenær og hvort þú gctur tekið
að þér fleiri verkcfni.
,5. Að safna sífellt ineiri
skuldum. Auðvelt er að gera
þessi mistök á tímum greiðslu-
korta. Til þess að koma í veg fyr-
ir þessi mistök er einfaldlega að
ná í skæri, klippa kortin og
greiða fyrir viðskiptin með pen-
ingum.
6. Að reyna of mikið að auka
álit annarra á þér. Líklegt að þessi
mistök endurtaki sig, því það er
mjög ólíklegt að manneskjan
sem þú ert að tala við komi til
með að stoppa þig og segja að
montið í þér sé óþolandi. Þú
munt frekar stíga í áliti hjá öðr-
um ef þú ert hæverskur.
Áfengisvarnarráð:
Niðurstöður bandarískrar
rannsóknar birtar
í fréttatilkynningu frá Áfeng-
isvarnaráði kcniur fram að
niðurstöður 25 ára rannsókna
bandarískra vísindanianna á
áfengissölu í 48 fylkjuni hafi
nýlega verið birtar.
í fyrsta lagi er staðfest að ríkis-
cinkasala á áfcngi dragi úr
neyslu. „Einkahagsmunir í sam-
bandi við dreifinguna valda því
hins vegar að meira er gert til að
hvetja til drykkju cn ella. Þaö
stafar af því að opinberir aðilar
verða að greiða það tjón sem
áfengisneyslan veldur. Þar hafa
einkaaðilar engar skyldur."
í öðru lagi er leitt í ljós að
fjöldi dreifingarstaða hefur að
öðru jöfnu áhrif á neysluna, og
ætti það ekki að koma á óvart.
Aldursmörk skipta máli. Því
lægri sem lögaldur til áfengis-
kaupa er þeim mun yngri byrja
unglingar eða börn aö neyta
áfengis.
Vcrðlagning hefur mikil áhrif á
ncysluna. „Ef rætt er um að hafa
áhrif á áfengisneysluna verður að
taka tillit til þess hvað verðlagn-
ing hefur mikið að segja," segir í
skýrslunni. EHB
Líf og fjör
DANSSKEMMTUN
verður í Allanum, Skipagötu 14, laugardaginn
5. maf kl. 22.00-03.00.
Húsið opnað kl. 21.30.
Hljómsveit Bigga Mar sér um fjörið.
MætiÖ vel og stundvíslega.
Takið með ykkur gesti.
Sjáumst hress.
Stjórnin.
Fornbíla
áhugamenn
Kynningarfundur á starfsemi klúbbanna verður í
Dynheimum laugardaginn 5. maí kl. 14.00.
Myndasýning.
Allir velkomnir.
Fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar.
Fornbílaklúbbur íslands.
BS-nám í búvísindum
a -A- ö
Viö Hvanneyrarskóla í
Borgarfirði er boöiö
upp á 3 ára (90
eininga) nám í
búfræöi á háskólastigi.
Námlö: Miöast viö þarfir þeirra kvenna og karla, er
vilja búa sig undir aö stunda ráögjöf, kennslu og
rannsóknir í ýmsum greinum landbúnaöar, eöa annast
önnur ábyrgöar- og stjórnunarstörf í þágu hans.
Inntökuskllyröl: Stúdentspróf eöa sambærilegt
framhaldsnám, svo og búfræöipróf, er stúdentar geta
lokiö á einu ári.
Viöfangsefnl: Undirstööunám í líf- og efnafræöi
landbúnaöar, hagfræöi og aöferöafræöum. Fræöilegt
og hagnýtt nám í jaröyrkju, gróöurrækt og land-
nýtingu, fóöurfræöi og fóöuröflun, landbúnaöartækni
og hinum ýmsu greinum búfjárræktar, svo sem
nautgripa-, sauöfjár- og hrossarækt, fisk- og
loödýrarækt, alifugla- og svínarækt. Rekstrarfræöi,
markaösfræöi og bústjórn.
Fjóröaársnám: Nemendum gefst kostur á
viöbótarnámi; sérhæföu 30 eininga námi og
rannsóknarþjálfun, sem skipulagt er viö búvísindadeild
(BS 120).
Aöstaöa: Nemendagaröar og heimavist, fjölbreyttur
búrekstur og tilraunir í jarörækt og búfjárrækt, nábýli
viö aörar búfræöistofnanir, rannsóknastofur,
gróöurhús og bókasafn. Leikskóli og grunnskóli er á
staönum; 14 km í næsta kaupstaö.
Umsóknlr: Sendist til skólastjóra Hvanneyrarskóla.
Þeir sem hyggjast hefja nám viö deildina nú í haust
(15. sept.) skulu senda skriflegar umsóknir sínar fyrir
10. júní nk. studdar nauösynlegum prófskírteinum.
Allar nánari upplýsingar um búvísindanámiö em
veittar á Hvanneyri.
Bændaskóllnn á Hvanneyri - búvísfndadeild
311 - Borgarnes - síml 93 - 70 000