Dagur - 04.05.1990, Page 13
Föstudagur 4. maí 1990 - DAGUR - 13
Samkomur
HUÍTASUhtlUHIRKJAti æmmshlíd
Föstud. 4. maí kl. 20.00, æskulýös-
fundur fyrir 7-11 ára,
Laugard. 5. maí kl. 20.30,safnaðar-
samkoma (brauðsbrotning).
Sunnud. 6. maí kl. 20.00. atli.
breyttan samkomutíma.
Vakningasamkoma. Mikill og fjöl-
breyttur söngur.
Samskot tekin til kirkjubyggingar-
innar.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
SJÓNARHÆÐ
úT HAFNARSTRÆTI 63
Fundur fyrir 6-12 ára krakka kl.
13.3(1 á laugardag.
Unglingafundur sama dag kl. 20.00.
Alincnn samkoma kl. 17.00 á
sunnudag. Frjálsir vitnisburðir,
kaffi og mcðlæti á eftir.
Allir hjartanlega velkomnir.
KFUM og KFUK,
Sunnuhlíð.
Sunnudaginn 6.
almcnn samkoma
maí,
kl.
20.30.
Ræðumaður Guðmundur Ómar
Guömundsson.
Tekið á móti gjöfum í hússjóð.
Allir hjartanlega velkontnir.
Hjálpræöisherinn,
Hvannavölliim 10.
.Föstudaginn kl. 17.30.
opið hús.
20.30. æskulýður.
Sunnudaginn kl. 11.00. helgunar-
samkoma.
Kl. 13.30. sunnudagaskóli.
Kl. 19.30. bæn.
Kl. 20.30, almcnn samkoma.
Mánudaginn kl. 16.00. heimilissam-
bandið.
Þriðjudaginn kl. 17.30, yngriliðs-
mannafundur.
Allir cru hjartanlega velkomnir.
Minningarkort Heilaverndar fást í
Blómahúsinu Glerárgötu 28.
Minningarspjöld Hríseyjarkirkju
fást í Bókabúð Jónasar.
Minningarspjöld Minningarsjöðs
Kvenfélagsins Hlífar l'ást í Bókabúð
Jónasar. Möppudýrinu Sunnunlíö.
Blómabúðinni Akri og símaafgreiðslu
F.S.A.
Minningakort Hjarta- og æða-
verndarfélags Akureyrar og ná-
grcnnis, fást í Bókabúð Jónasar,
Bókvali og Möppudýrinu
Sunnuhlíð.
Minningarspjöld Styrktarsjöös
Kristnesspítala fást í Bókvali og á
skrifstofu Kristnesspítala.
Minningarkort Akureyrarkirkju fást
í Bókvali og Blómabúðinni Akri í
Kaupangi.
Minningarkort Sjálfsbjargar Akur-
eyri fást hjá eftirtöldum aðilum:
Bókabúð Jónasar, Bókvali, Akri,
Kaupangi. Blómahúsinu Glerárgötu
28 og Sjálfsbjörgu Bugðusíðu 1.
Minningarspjöld Sambands
íslenskra kristniboðsfélaga fást hjá:
Pedromyndum Hafnarstræti 98. Sig-
ríði Freysteinsdóttur Þingvallastræti
28, Hönnu Stefánsdóttur Víðilundi
24 og Guðrúnu Hörgdal Skarðshlíð
17.
Vinarhöndin, Styrktarsjóður Sól-
borgar, selur minningarspjöld til
stuðnings málefna þroskahcftra.
Spjöldin fást í: Bókvali, Bókabúð
Jónasar. Möppudýrinu í Sunnuhlíð
og Blómahúsinu við Glerárgötu.
Minningarkört Glerárkirkju fást á
eftirtöldum stöðum:
Hjá Ásrúnu Pálsdóttur Skarðshlíð
16 a, Guðrúnu Sigurðardóttur
Langholti 13 (Rammagerðinni),
Judith Sveinsdóttur Langholti 14, í
Skóbúð M.H. Lyngdal Sunnuhlíð,
versluninni Bókval, í Glerárkirkju
hjá húsverði, Blómahúsinu Glerár-
götu, Bókabúð Jónasar og Blóma-
búðinni Akri Kaupangi.
Klúbbur 17
eignast merki
- ungt fólk vill breytingar í umferðinni
Klúhbur 17, sanitök ungra
ökumanna efndi nýlega til
samkeppni um gerð merkis og
slagorða til notkunar í starfi
klúbbsins. Viðurkenningar fyr-
ir þrjár bestu tillögurnar að
mati dómnefndar voru síðan
aflientar í upphafi fundar sem
Klúbbur 17 hélt laugardaginn
7. apríl sl. Fyrstu verðlaun
hlaut Ingibjörg Eldon Loga-
dóttir úr Hafnarfirði fyrir til-
lögu að merki og slagorðið
„Hingað og ekki lengra“.
Onnur verðlaun féllu Magnúsi
Kristinssyni frá Akureyri í
skaut og þriðju verðlaun fékk
Freyr Þórðarson, Reykjavík.
Reykjavíkurborg veitti Klúbbi
17 fjárstyrk til að standa
straum af mestum hluta verð-
launafjárins og afhenti Harald-
ur Blöndal formaður umfcrð-
arnefndar borgarinnar verð-
launin.
Klúbbur 17, samtök ungra
ökumanna efndi til fundar laug-
ardaginn 7. apríl síðastliðinn. Á
fundinum var m.a. rætt um
málefni ungra ökumanna. Fyrst
voru haldin nokkur stutt erindi,
en að þeim loknum fóru fram
umræður í liópum. Þar var rætt
um framtíð Klúbbs 17, málefni
tengd ökukennslu og ökuprófum.
Unga fólkið gagnrýndi ýmislegt
varðándi ökukennsluna, sérstak-
lega var það óánægt með öku-
skólann. Pá taldi það kennsluna
miðast unt of við að nemendur
stæðust próf, en ekki nóg viö að
gera þá að traustum og öruggum
ökumönnum. Meðal annars var
rætt að mikilvægt væri að tillögur
nefndar um skipan ökukennslu
kæmust í framkvæmd, en þar er
gert ráð fyrir róttækri breytingu í
þeim efnum.
Ökuprófin voru ekki talin upp-
fylla nógu vel það skilyrði að
meta hæfni ökumanna. Einnig
var talið að skortur væri á sant-
ræmingu og að of mikið væt i lagt
upp úr persónulegu mati próf-
dómara, sem gæti í raun ráðið
niðurstöðum prófanna.
Fundurinn var vel sóttur, bæði
af ungu fólki og einnig öðrum
þeim sem starfa að málum sem
tengjast ökukennslu og umferð-
armálum.
Klúbbur 17 er opinn öllum
ungum ökumönnum sem áhuga
hafa á aö taka virkan þátt í að
auka umferðaröryggi hér á landi.
Hægt er að tilkynna aðild í stma
91-27666 á skrifstofutíma.
Sumardvöl á
Vestmaimsvatni fyrii'
unga sem aldna
Um 25 ára skeið hefur Æsku-
lýðssamband kirkjunnar í Hóla-
stifti, Æ.S.K., starfrækt sum-
arbúðir við Vestmannsvatn í
Aðaldal fyrir unga og aldna.
I sumar veröur þar boðið upp á
þrjá flokka fyrir börn. 8.-15.
júní, 18.-25. júní og 26. júní - 3.
júlí. Sr. Jón Helgi Þórarinsson á
Dalvík mun hafa umsjón meö
þessum flokkum og ráðskona
verður Steinunn Þórhallsdóttir á
I Iúsavík.
Öldruöum veröur einnig boðin
dvöl í sumarbúðum kirkjunnar
viö Vestmannsvatn. Sr. Björn
Jónsson á Húsavík hefur umsjón
með dvöl fyrir aldraða 19.-26.
júlí og svo verður einnig flokkur
fyrir aldraða og blinda 28. júlí -
4. ágúst, sem sr. Pétur Þórarins-
son prestur í Glerárkirkju ntun
hafa umsjón með.
Innritun fer frant í Glerár-
kirkju virka daga í síma 96-27575
kl. 17.00-18.30. Á öðrum tímum
eru vcittar upplýsingar og tekið
við skráningum í síma 96-61685
(Jón Helgi), 96-43511 (Kristján
Valur) og 96-41668 (Steinunn).
Fræðsluskrifstofa Norðurlandsumdæmis eystra
Furuvöllum 13 ■ símar (96) 24655 & 23403 • Akureyri
Lausar stöður við
Norðurlandsumdæmi eystra:
Kennarastöður við Þjálfunarskólann Hvammshlíð 6.
Umsóknarfrestur til 2. júní.
Fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis eystra.
HOTEL KEA
Hinir frábæru
Miðaldamenn
laugardagskvöld
★
SUNNUDAGSVEISLA
Á SÚLNABERGI
Sjávarréttasúpa, Londonlamb og/eða fyllt svínalæri
ásamt desserthlaðborði.
Allt þetta fyrir aðeins 890.-
Frítt fyrir börn 0-6 ára, Vi gjald fyrir börn 7-12 ára.
Hótel KEA 0
fyrir vel heppnaba veislu
Samtök sykursjúkra á Akureyri og nágrenni 20 ára
Aðatfundur
félagsins veröur haldinn laugardaginn 5. niaí nk. kl.
2.30 e.h. á venjuleguni fundarstaö í Hafnarstræti 91
(efstu hæð).
Ingvar Teitsson, læknir, ræðir um sykursýki og tengd
málefni.
Afmæliskaffi.
Stjórnin.
Hvers vegna er nágranni
þinn áskrifandi a&
Heima er bezt
Vegna þess að það er staðreynd að „Heima er
bezt“ er eitt af vinsælustu tímaritum hérlendis.
Þú ættir að hugleiða hvort ekki væri skynsamlegt að slást
í þennan stóra áskrifendahóp, og eignast þar með gott
og þjóðlegt íslenskt tímarit við vægu gjaldi, sem þú fengir
sent heim til þín í hverjum mánuði. Utfylltu þess vegna
strax í dag áskriftarseðilinn hér fyrir neðan og sendu hann
til ,,Heima er bezt“, pósthólf 558, 602 Akureyri, og þú munt
um leið öðlast rétt til að njóta þeirra hlunninda sem eru
því samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt".
Nýir áskrifendur fá eldri árgang í kaupbæti.
x----------------------------------------------------
Til „Heima er bezt, pósthólf 558,602 Akureyri.
Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að tímaritinu
„Heimaerbezt“.
□ Árgjald kr. 2.000,00.
□ Sendið mér blaðið frá 1. janúar 1990.
Nafn:
Heimili: