Dagur - 04.05.1990, Blaðsíða 16
Akureyri, föstudagur 4. maí 1990
Haldið veisluna eða fundinn
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Hádegisverður með hettumávum.
Mynd: KL
Tveggja ára júgurbólguverkefni í Eyjafirði á lokastigi:
Júgurbólgan kostar bændur
rúman hálfan milijarð á ári
- hefur Ólafur Jónsson, dýralæknir, reiknað út
Ólafur Jónsson, dýralæknir,
hefur reiknað út að júgurbólga
í mjólkurkúm kosti bændur í
landinu 535 milljónir króna á
ári. Þetta kom m.a. frani í máli
hans á aðalfundi Félags ey-
firskra nautgriparæktenda í
Hlíðarbæ sl. miðvikudags-
kvöld.
Ólafur liefur á undanförnum
tveim árum unnið að athugun á
júgurbólgu í mjólkurkúm í Eyja-
firði. Um er að ræða samstarfs-
verkefni Mjólkursamlags KEA,
Rannsóknastofu mjólkuriðnað-
arins og embættis yfirdýralæknis.
Fimmtán býli hafa tekið þátt í
verkefninu, sem nú er á lokastigi.
Ólafur sagði í samtali við Dag að
hann myndi skila af sér niður-
stöðum þessa verkefnis í byrjun
júlí. „Frumniðurstöður benda til
þess að nú hafi menn í höndum
vinnulíkan, sem ætti að geta nýst
dýralæknum og bændum í fram-
tíðinni til að vinna skipulega að
júgurbólguvörnum," sagði Ólaf-
ur.
Verkefni hans var víðtækt. Til
að sem marktækastar niðurstöð-
ur næðust út úr rannsókninni
voru í úrtakinu fjós af öllum
stærðum og gerðum. Horft var
m.a. til þátta eins og umhverfis,
mjaltatækni, umhirðu sýnatöku
og meðhöndlunar.
Ólafur segir að fyrstu niður-
stöður staðfesti það sem hann
hafi áður slegið fram að hinar
h.efðbundnu aðgerðir gegn júgur-
bólgu, sem aðallega býggist á
meðhöndlun með fúkkalyfjum
séu komnar í strand og huga
verði að öðrum leiðum til að slá á
þetta algenga mein.
Ólafur hefur reiknað út að
afurðatap vegna dulinnar júgur-
bólgu nemi 174 milljónum króna,
afurðatap vegna sjáanlegrar klín-
ískrar júgurbólgu 163 milljónum,
103 milljóna tap verði vegna
mjólkur sem fer til spillis sökum
meðhöndlunar með fúkkalyfjum,
29 milljónir vegna lyfjakostnaðar
og 66 milljónir vegna endurnýj-
unar gripa.
Ólafur tekur fram að þetta séu
lágmarkstölur og hér sé t.d. ckki
tekið tillit til vinnu bíenda og
dýralækna vegna meðhöndlunar
kúa með júgurbólgu. Þá sé ekki
tekið tillit til taps úrvinnslustöðva
vegna lakara hráefnis.
„Ég tel ekki unnt að útrýma
júgurhólgu. en liins vegar er hægt
að ná betri árangri með skipu-
legri vinnu. Frumniðurstöður
verkefnisins benda til að þær
forsendur sem menn gáfu sér í
byrjun um árangur hafi staðist,"
sagði Ólafur. Hann sagði enn-
fremur að sumir teldu að hægt
væri að vinna á júgurbólgu með
því að farga gripum. en það væri
engin lausn til frambúðar. „Sem
hugmynd um kostnað vegna
endurnýjunar má geta þess að
verð á kúm til Iífs í Eyjafirði er
nú 100 þúsund krónur stað-
greiddar, en innleggsverö í slát-
urhús er um 46 þúsund, sem
greiðist í næsta mánuði." óþh
Evrópusöngvakeppnin í Júgóslavíu:
Sigga og Grétar
kjörin vinsælust í gær
Sigríður Beinteinsdóttir, Grét-
ar Örvarsson og hljómsveitin
Stjórnin voru kosin vinsælustu
flytjendurnir í Evrópusöngva-
keppninni í Zagreb í Júgósla-
víu í gærkvöld. Að þessu kjöri
stóð fjólmiðlafólk sem fylgist
með undirbúningi keppninnar.
„Eitt lag enn" hefur vakið
mesta athygli þeirra laga sem
Island hefur sent í þessa keppni
hingað til. í gær höfðu þrjár er-
lendar hijómsveitir samið um ;iö
fá að hljóðrita lagið og auk þess
hafa útgefendur í fjölmörgum
Evrópulöndum keypt útgáfurétt
að laginu.
Undirbúningur er í fullum
gangi í Zagreb og verður keppn-
inni rennt tvisvar í gegn í dag. í
samtali við blaðið sagði Hörður
Ólafsson, höfundur lagsins, að í
kvöld yröi mögulegt að spá raun-
hæft um hver færi með sigur af
hólmi. „Mörg af þessum eru
þrælgóð og það er útilokað að
segja til um hver vinnur," sagði
Hörður. JOH
Steinullarverksmiðj an:
Tilvonandi starfsmenn í Síberíu
í starfsþjáJfim á Króknum
- Partek reisir verksmiðju í Krasnovorskj
Steinullarverksmiðjan á Sauð-
árkróki er þessa dagana með
átta sovétmenn í starfsþjálfun.
Mennirnir eru tilvonandi
starfsmenn í verksmiðju sem
verið er að reisa í Krasno-
vorskj í Síberíu. Finnska fyrir-
tækið Partek reisir verksmiðj-
una fyrir sovétmenn en Partek
Steinullarverksmiðjan
króki.
á Sauðár-
er stór hluthafi í Steinullar-
verksmiðjunni á Sauðárkróki.
Verksmiðjan sem rís í Síberíu
er sú fyrsta í Sovét sem notar
rafbræðsluofn við framlciðslu á
steinull. Megin kostur við raf-
bræðsluna er minni mengun en
þcgar notað er hefðbundið elds-
neyti.
„Við erum með mjög fullkom-
inn búnað til mengunarvarna hér
í verksmiðjunni, hvort sem menn
trúa því eða ekki. Ástæðan fyrir
því að Partek kemur með þessa
menn til þjálfunar hér er að verk-
smiðjan er talin sú hentugasta til
þjálfunar starfsmanna nýu verk-
smiðjunnar," sagði Einar Einars-
son framkvæmdastjóri Steinullar-
verksmiðjunnar á Sauðárkróki.
Sovétmennirnir dvelja í hálfan
mánuð í starfsþjálfun í verk-
smiðjunni og halda síðan til
Eyja^arðarferjan Sæfari:
í athugun að byggja nvjan
sal fyrir 80 farþega
Nú þegar hafa fyrstu útlending-
arnir farið með ferjunni til
Grímseyjar en búast má við að
ásóknin í eyjaferöitnar fari vax-
andi þegar á mánuðinn líður. Nú
má Sæfari taka 12 farþcga.
Sæfari hefur nú verið f sigling-
um um þriggja vikna skeið og
segir Örlygur reynsluna af skip-
inu mjög góða. „Við erum allir
hæstánægðir með skipið. Þetta er
gott sjóskip og úthúnaður þess til
vöruflutninga hefur reynst góður.
Flutningarnir í þessum fyrstu
ferðum hafa jafnvel verið mciri
en menn áttu von á,“ sagði Ör-
lygur. JÓH
Snjóflóð féll
í Vesturdal
Snjóflóð féll á Skagafjarðarveg
í Vesturdal. Flóðið féll til nióts
við bæinn Hof í Vesturdal.
Flóðið sem koni ofan frá fjalls-
brún var mjög öflugt og stöðv-
aðist ekki fyrr en úti í Hofsá.
Vegurinn lokaðist algjörlega
og seinlega gekk að hreinsa
snjó og stórgrýti af honum.
Flóðið var einn og hálfur metri
á dýpt og um tuttugu mctrar á
breidd og féll í tveimur megin
straumum. Vegagerðarmönnum
gekk seinlega að hreinsa veginn
og lauk verkinu ekki fyrr en um
miðjan dag í gær. ' kg
Þessa dagana er verið aö
kanna með hvaða hætti verða
gerðar breytingar á nýju
Eyjafjaröarferjunni Sæfara
þannig að hún geti tekiö fleiri
farþega. Til greina hefur kom-
ið að breyta vistarverum skip-
verja í farþegasal en nú er lík-
l^gra að bætt verði við yfir-
byggingu skipsins og í viðbót-
inni komi salur fyrir um 80
farþega.
Áð sögn Örlygs Ingólfssonar,
skipstjóra á Sæfara, þykir þessi
kostur góður og auk þess ódýrari
en ef breyting yrði gerða á núver-
andi innréttingum. Örlygur sagði
líklegast að þessi viðbótarbygg-
ing verði smíðuö í Slippstööinni á
Akureyri, ef af verði, og hún sett
á Sæfara um næstu mánaðamót.
Ljóst er að útbúa verður ferj-
una þannig að hún taki fleiri far-
þega enda er eftirspurn eftir ferð-
um út í Hrísey og Grímsey mikil.
starfa í sovésku yerksmiðjunni
sem tckur til starfa í haust. kg
Skagaflörður:
Tvær hreppsnefiidir klárar
Fngar kosningar verða 26.
maí nk. í tvcimur hreppum í
Skagaflrði, Hofshreppi og
Rípurhreppi. Finn listi kom
fram í hreppuntim og tcljast
þeir sjálfkjörnir og timm
efstu inenn þeirra veröa aðal-
menn í hrcppsnefndum næstu
ijögur ár.
í hinum nýsameinaða Hofs-
hreppi verða eftirtaldir aðal-
menn í hreppsnefnd: Anna
Steingrímsdótir, Hofsósi, Jón
Guðmundsson, Óslandi, Gísli
Kristjánsson, Hofsósi, Stefán
Gestsson Arnarstöðum og
Jöhannes Sigmundsson Brckku-
koti.
í Rípurhreppi kom fram einn
listi óháðra. Réttkjörnir tiðal-
mcnn í hreppsnefnd eru Árni
Gíslason, Eyiiildarholti, Sævar
Einarsson, Hamri, Leifur Þór-
arinsson, Keldudal, Símon
Traustason. Kitu. og Birgir
Þórðarson, Ríp II. Nánar um
sveitarstjórnarkosningar á
Norðurlandi vestra á síðu 2.
Óþll