Dagur - 16.06.1990, Qupperneq 5
Laugardagur 16. júní 1990 - DAGUR - 5
tómstundir
„Það væru sumir sjálfsagt
orðnir geðveikir að...“
- rætt við Tómas Inga Jónsson, jeppaáhugamann á Akureyri
Hálendið heillar tugi ferðamanna á ári
hverju, jafnt innlenda sem erlenda, þegar
þeir hópast upp um fjöll og firnindi. Til
þess að komast upp á hæstu tinda og heiðar
þarf meira til en skankana tvo. Það þarf
öflugar vélar með fjórum stórum dekkjum
undir, þ.e.a.s. það þarf góðan jeppa. Það
þarf einnig góðan útbúnað og góða og var-
kára bflstjóra, því hætturnar leynast víða í
ríki Eyvindar og Höllu. Áhugi á jeppaferð-
um um hálendið, jafnt sumar sem vetur,
hefur aukist á undanförnum árum. Til að
forvitnast um þetta athyglisverða tóm-
stundagaman hitti Dagur að máli Tómas
Inga Jónsson á Akureyri, jeppaáhugamann
og „fjallafrík“.
Tómas var fyrst inntur eftir
útbúnaði til fjallaferða og sagði
hann að það þyrfti að hafa margt
annað í farteskinu en góðan
jeppa þegar farið væri í lengri
ferðir á hálendið, svo fullnægj-
andi gæti talist. Útbúnaðurinn fer
að sjálfsögðu eitthvað eftir því
hvort farið er um sumar eða vet-
ur, en að grunni til er hann sá
sami.
Mikilvægt að vera
vel búinn
J>að þarf góða svefnpoka, teppi,
nægan mat, vatnsbirgðir, fjar-
skiptatæki, lórantæki, sjúkra-
kassa, eldsneytisbirgðir, nauð-
synlegustu varahluti fyrir jepp-
ann og margt fleira. Tómas sagði
að það væri mikið atriði að
jeppamenn væru vel búnir þegar
þeir legðu í hann á hálendið.
„Það er mikilvægt að þeir vara-
hlutir sem fylgja séu í lagi og
athuga þá áður en lagt er af stað.
Minnstu hlutir eins og t.d. tappar
í dekk geta skipt máli og hindrað
för. Bráðabirgðaviðgerðir eru
varasamar og betra að gert sé‘
almennilega við hlutina," sagði
Tómas.
„Ég hef að vísu ekki lent í
mjög slæmu veðri í mínum
vetrarferðum, en það er sama
hvort þú ætlar í stutta eða langa
ferð, þú verður að vera vel
búinn. Síðan lærist það með
hverri ferð hvað þarf að hafa með
sér,“ sagði Tómas. Varðandi lór-
antækið þá sagði Tómas að það
væri mjög dýrt tæki og ef margir
jeppar væru saman á ferð væri
nóg að hafa lóran í 1-2 bílum.
Hætturnar leynast vída
- Er það algengara að menn fari
á hálendið að vetri til?
„Já, það er algengara. Þú getur
ekið meira um og þarft ekki að
hafa áhyggjur af því að valda
umhverfisspjöllum. Það er fyrst
og fremst þetta atriði sem hvetur
jeppaeigendur til vetrarferða.
Það er í fyrsta lagi í júlí eða ágúst
sem hægt er að fara á sumrin, en
þá er komin mikil umferð ferða-
manna og þú ert ekki eins frjáls.
Á sumrin eru aðeins ákveðnar
leiðir opnar en á veturna getur þú
farið hvert sem er. Persónulega
hef ég meira gaman af vetrarferð-
unum, þótt það geti líka verið
gaman á sumrin. Hætturnar leyn-
ast víða og menn þurfa að fara
varlega, sérstaklega við ár og
hraungjótur.“
Áhugi á jeppaferðum
hefur aukist
- Er þetta dýrt sport?
„Nei, það þarf ekki að vera.
En þetta er eins og í öllu öðru
sporti, það er alltaf verið að bæta
við sig. Jepparnir eru misstórir og
dýrir, t.d. eru Suzuki-jeppar ekk-
ert dýrir. Auðvitað er alltaf hægt
að hlaða utan á sig, þú getur t.d.
fengið þér jeppa upp á 4 milljón-
ir, en þá ertu kominn út í flott-
ustu gerð.“
- Er áhugi almennt að aukast
á jeppaferðum, t.d. á Akureyri?
„Já, hann er alltaf að aukast.
Það eru fleiri að fá sér stóra og
upphækkaða jeppa, t.d. er það
hálfgert tískuæði í Reykjavík.
Samt sem áður eru ekki allir sem
fara mikið í ferðir á hálendið.
Hópferðir á hálendið hafa aukist,
enda er miklu meira öryggi fólgið
í því að sem flestir fari saman. Þú
ferð ekkert einn að þvælast upp
um fjöll og firnindi, það getur
alltaf eitthvað komið fyrir.“
Það þarf tilfínningu
fyrir akstri í snjó
Það kom fram í máli Tómasar
Inga að dagsferðir um nágrenni
Akureyrar yfir veturinn hafi auk-
ist hjá jeppamönnum, t.d. ferðir
upp í Súiur og upp á Vaðlaheiði.
„Það er ekki nema fyrir það eitt
að æfa sig í snjónum að fara í
svona stuttar ferðir. Það þarf til-
finningu fyrir akstri í snjó. Því
mýkra sem átakið er, þeim mun
lengra kemstu. Tveir eins bílar
geta farið mislangt í snjó, það fer
allt eftir akstrinum. Æfingin
skapar meistarann í þessu eins og
öðru.“
Tuttugu kflómetrar
á ellefu klukkutímum
- Hvað er það sem heillar og
dregur menn upp á fjöll, stund-
um í brjáluðu veðri að berjast
áfram?
„Þetta er spennandi. Ég segi
ekki að við viljum ólmir komast í
brjálað veður, þó að það geti
skollið fyrirvaralaust á. í kring-
um páskana, mars til apríl, ertu
nokkuð öruggur með gott veður.
Fjallaferðirnar geta reynt ótrú-
lega á mann. Ég get nefnt sem
dæmi ferð þar sem við fórum 20
kílómetra á 11 klukkutímum!
Ferðirnar reyna á mann, bæði
andlega og líkamlega. Það væru
sumir sjálfsagt orðnir geðveikir
fómas Ingi horfir dreyminn til fjalla og er orðinn óþreyjufullur að komast á jeppanum upp á holt og heiðar. Mynd: kl
að hjakkast í snjósköflum tímun-
um saman. Náttúrufegurðin
heillar menn svo ég tali nú ekki
um veður þegar þú hefur útsýni
út um allt. Það er alveg meiri-
háttar.“
„Auðvitað er þetta
viss ævintýraþrá“
Tómas Ingi tók ekki undir þá
skoðun undirritaðs að jeppa-
menn þyrftu að vera léttgeggjað-
ir. „Auðvitað er þetta viss ævin-
týraþrá, en það eru til menn sem
eiga þokkalega vel útbúna jeppa
en fara aldrei neitt. Ef menn vilja
leika sér þurfa þeir ekkert að fara
Iengst upp á fjöll. Það getur verið
gaman að leika sér t.d. uppi í
Fálkafelli eða innanbæjar í brjál-
uðu veðri,“ sagði Tómas.
Tómas var að lokum spurður
um holl ráð handa jeppaeigend-
um sem hefðu í hyggju að leggja
í hálendisferðir og sagði hann að
númer citt væri að fara varlega.
„Það er ekkert atriði að fara í
sem lengstar ferðir. Við höfum
alltaf haft þann háttinn á að ráð-
færa okkur við vana menn sem
gjörþekkja hálendið eins og lóf-
Jeppabifreið Tómasar stödd á vegamótum á hálendinu. Eins og sjá má aka
jeppamenn ofan á miklu snjóalagi aö vetri til.
ann á sér, sérstaklega ef á að fara
á ókunnar slóðir. Það er betra að
vita hvað maður er að gera. Þú
æðir ekkert af stað, einn, tveir og
þrír.“
Stofnun jeppaklúbbs
í bígerð á Ákureyri
Af framansögðu má sjá að það er
meira en að segja það að fá sér
jeppa og ætla upp á hæstu heiðar.
Að mörgu þarf að hyggja og viss-
ara að fara að öllu með gát. Þessa
dagana er ekki mælst til þess að
jeppaeigendur þyrpist upp um
fjöll og firnindi en síðar í sumar
má búast við að svo verði, þegar
helstu leiðir opnast fyrir umferð.
Ljóst er að áhugi fyrir jeppa-
ferðum fer vaxandi á Akureyri og
það kom fram í spjallinu við
Tómas Inga að í bígerð er að
stofna jeppaklúbb í ætt við þann
sem er í Reykjavík. Sá klúbbur,
„4x4“, hefur staðið fyrir fjöl-
mennum og skipulögðum jeppa-
ferðum yfir hálendið, sem hafa
tekist mjög vel. -bjb
Margt getur farið úrskeiöis í jeppaferðum og hér hefur annað framdekkið affelgast hjá Sigurkarli Aöalsteinssyni,
öðru nafni Sidda rakara. Það er Siddi sem cr undir jeppanum.