Dagur - 16.06.1990, Blaðsíða 20

Dagur - 16.06.1990, Blaðsíða 20
Filmumóttaka Kjörbúð KEA Byggðavegi Kjörmarkaður KEA Hrísalundi. BÚmn Sunnuhlíð Drífa á Hvammstanga: Nóg að gera í Norðurlandapeisum - þriggja vikna stopp 20. júlí „Það er heldur að lifna yfir þessu hérna og lítur ekki út fyrir neinar uppsagnir,“ sagði Guðlaug Sigurðardóttir verk- stjóri hjá Saumastofunni Drífu á Hvammstanga þegar Dagur hringdi þangað í gær. Hjá Saumastofunni Drífu vinna nú tólf manns og er fram- leiðslan eingöngu orðin peisur. Hér áður framleiddi saumastofan líka jakka og fleira, en að sögn Guðlaugar eru það peisurnar sem ganga best í sölu. Árblik hf. (Ice- wear) sér um dreifingu á peisun- um og fara þær bæði á erlendan og innlendan markað. Aðallega fara þær til Norðurlandanna og Þýskalands. Guðlaug sagði að saumastof- unni yrði lokað í þrjár vikur um 20. júlí vegna sumarfría, en í fyrra var engin lokun svo starfs- fólkið er farið að þrá að komast í frí. Tíu konur vinna þarna og síð- an eru tveir karlar sem sjá um að prjóna, en prjónastofa er einnig hjá Drífu. Þó að ástandið sé gott hjá Drífu, þá sá Guðlaug þó ekki fram á það að starfsfólki yrði fjölgað, að minnsta kosti ekki í bili. SBG Ilin árlega bflasýning Bflaklúbbs Akureyrar við Oddeyrarskóla 17. júní verður óvenju vegieg að þessu sinni. Aldrei áður liefur meðalaldur bíla sem sýndir eru verið jafnhár, elsti bíllinn er frá 1917. Þjóðminjasafn fslands lánar tvo Ford T bíla, hina mestu kjörgripi, til sýningarinnar. Voru þeir fluttir með Mánafossi til Akureyrar ásamt tveimur bílum í eigu Rúdolfs Kristjánssonar, Ford A árg. 1929, sem myndin hér að ofan sýnir, og Overland frá 1926. Margt verður um að vera fyrir börn á sýningarsvæðinu; go-cart bílar, rafmagnsbílar, mótorhjólatúr um svæðið fyrir krakka sem áhuga hafa og margt fleira. Aðstandendur sýningarinnar segja hana þá langstærstu sinnar tegundar frá upphafi á Akureyri. Sjá nánar í dagskrá þjóðhátíðardagsins á bls. 2. Mynd: ehb „Viljum „Þetta er óplægður akur og mál sem Siglfírðingar hafa ekki sinnt undanfarin ár. Við ætlum að reyna að ná í stærri bita af Ferðaþjónusta í bígerð á Siglufirði: stærrí bita af kökunni segir Kristján Möller, forseti bæjarstjórnar ferðamannakökunni,“ sagði Kristján Möller, forseti bæjar- stjórnar Siglufjarðar, aðspurð- ur um nýjan málefnasamning Sauðárkrókur: Harkalegur árekstur engin slys á fólki Hörkuárekstur varð á Sauðár- króki sl. fímmtudag þegar tveir bílar rákust saman og annar þeirra lenti síðan á þeim þriðja sem var kyrrstæður. Meiðsli á fólki urðu engin, en bílarnir sem skullu saman eru taldir ónýtir og sá kyrrstæði einnig illa farinn. Áreksturinn varð á gatnamót- um Hólavegs og Bárustígs hjá Versluninni Tindastól. Annar bílinn, Volvo, var að koma vest- ur Bárustíginn, en hinn sem var af gerðinni Mitshubishi Colt, kom Hólaveginn að norðan og skullu bílarnir saman þarna á gatnamótunum með þeim afleið- ingum að Coltinn kastaðist á kyrrstæðan bíl við verslunina. Mesta mildi þykir að enginn slas- aðist því að bílarnir eru mjög illa farnir. Á þessum gatnamótum gildir hægri réttur og virðist hann stundum gleymast hjá ökumönn- um sem þarna eiga leið um og það virðist einmitt hafa gerst í þessu tilfelli. SBG Grímsstaðir á Fjöllum: Það voraði vel Það voraði vel á Grímsstöðum á Fjöllum og í samtali við blað- ið sagði Gunnlaugur Ólafsson, bóndi þar, að gróður væri mun fyrr á ferðinni en í fyrra. Veg- urinn hjá Grímsstöðum var opnaður í maíbyrjun og síðan þá hefur umferð verið mikil. Straumur ferðamanna í gegn- um Grímsstaði hefur aukist mjög síðustu daga og sagði Gunnlaug- ur að sá straumur myndi enn auk- ast síðar í sumar þegar vegir á hálendinu verða opnaðir. Búið er að sleppa sauðfé á afrétt og sagði Gunnlaugur að sauðburður hafi gengið mjög vel. -bjb bæjarstjórnarinnar þar sem segir að unnið verði að því að fjölga atvinnutækifærum og sérstaklega kannaðir mögu- leikar á að byggja upp ferða- mannaþjónustu á Siglufírði. Kristján sagði að áhersla yrði lögð á að auka nýtingu á skíðaað- stöðunni á Hóli yfir veturinn og auglýsa þann stað betur upp. „Þar erum við með glæsilega íþróttamiðstöð með mörgum góðum gistiherbergjum, bún- ingaaðstöðu, sauna, matsal, eld- húsi og öllu tilheyrandi. Þarna er hægt að auka mjög reksturinn og ná meira í hópa á vorin þegar enn er nægur snjór á Hóli,“ sagði Kristján. Síðustu ár hefur verið gert átak til að byggja upp tjaldstæði á Siglufirði og sagði Kristján að auka þyrfti straum ferðamanna þangað á sumrin. „Við höfum upp á margt að bjóða yfir sumar- ið, sérstaklega ferðamanna- hópa,“ sagði Kristján. En það verða fjármál bæjarins sem siglfirskir bæjarfulltrúar munu sitja yfir með sveittan skallann næstu mánuði. Á meðan verður lítið um framkvæmdir á Siglufirði. í málefnasamningnum segir að meirihlutinn sé sammála um brýnustu stórframkvæmdir þegar fjárhagsstaðan leyfir, s.s. byggingu barnaheimilis, verklok við dvalarheimilið og gerð gang- stétta. En hvenær verður farið í þessar framkvæmdir? Því svarar Kristján: „Það er vonlaust að tímasetja það, það fer allt eftir því hvernig fjárhagsleg endurskipulagning gengur. Það er ljóst að engar nýj- ar framkvæmdir hefjast fyrr en fer að rofa til.“ -bjb Áhugamenn um „go-cart“ bíla á Akureyri: Horfa til betri tíma - eftir mikið stapp við kerfíð Björn Sigurðsson á Akur- eyri hefur ásamt fleirum staðið í stappi við bæjaryfír- völd á Akureyri um nokkurt skeið við að koma upp braut fyrir „go-cart“ bíla. Birni hefur nokkrum sinnum ver- ið synjað um lóðir á Akur- eyri undir brautina en á endanum fékk hann úthlut- að svæði á Hrafnagili. Búið var að gera teikningu að brautinni en ný hreppsnefnd Hrafnagilshrcpps skrúfaði fyrir málið vegna ótta við hávaðamengun. Nokkrar fjölskyldur á Akureyri hafa lagt mikið fé og fyrirhöfn í undirbúning „go- cart“ brautar og sagði Björn í samtali við blaðið aö kostnað- urinn væri kominn yfir eina milljón króna. Keyptir voru 5 bílar frá tívolíinu í Hveragerði og gerði Björn þá upp. Þar sem hvorki gekk né rak að fá braut vár ákveðið nýlega að selja bílana. En liðsinni barst frá nokkrum aðilum á Akureyri, m.a. Dynheimum og Bílaklúbbi Akureyrar, og nú horfa áhugamenn um „go- cart“ bíla til betri tíma með nýjurn herrunt við völd á Akureyri. Byrjunin er að á morgun verða tveir bílar á planinu við Oddeyrarskóla til notkunar og heyrst hefur að nýr bæjarstjóri og bæjarfógeti reyni með sér í „go-cart“ bíla- akstri. -bjb Kópasker: Útnes komið á söluskrá Saltfiskverkunin Útnes á Kópaskeri var á dögunum aug- lýst til sölu. Fyrirtækið er í eigu Auðuns Benediktssonar og fjölskyldu og segir Auðun að enn hafí lítið gerst í sölu- málum. Um er að ræða nýlegt 430 fm hús með öllum búnaði og tækj- um. Vinnslugeta fyrirtækisins er 400-500 tonn af saltfiski á ári. Útnes er nokkuð stór vinnustað- ur á Kópaskeri því þegar best lætur eru um og yfir 20 manns þar í vinnu. Auðun segir að vissulega sé reksturinn þungur líkt og víðast annars staðar. „Hins vegar er ekkert gjaldþrot eða neitt slíkt framundan. Það er ekki ástæð- an fyrir því að fyrirtækið er til sölu,“ sagði Auðun. „Ég tel að þetta fyrirtæki eigi þokkalega rekstrarmöguleika ef rétt er að því staðið og ekki gert upp á milli aðila í félagslegum rekstri og einka- rekstri. En það á ekki framtíð fyrir sér ef á að vinna á þann veg.“ JÓH 17. júní veður Veðrið ætti ekki að hamla þjóðhátíðarhaldi á Norður- landi í dag og á morgun. Veðurstol'an spáir áfram svip- uðu blíðviðri og verið hefur undanfarna daga, sunnanátt og hlýindum. Að líkindum sér til sólar, einkum á morgun, 17. júní. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu íslands verður áfram- haldandi suðaustan átt á landinu. Úrkoma verður um sunnanvert landið en á landinu norðanverðu, einkum í Skagafirði og Eyja- fjarðarsvæðinu, verður hnúka- þeyr með tilheyrandi hlýindum. í dag er gert ráð fyrir töluverðum vindi en það ætti að lægja með morgninum og verða gott þjóð- hátíðarveður á morgun. Sólar- geislarnir ættu að ná fram úr skýjaþykkninu á morgun. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.