Dagur - 16.06.1990, Síða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 16. júní 1990
spurning vikunnar
Högni Harðarson:
„Já, auðvitað geri ég það eins
og allir aðrir. Ég held að annað-
hvort Hollendingar eða Brasi-
líumenn verði heimsmeistarar.
Mitt uppáhaldslið í keppninni er
Uruguay og það getur unnið
hana eins og hvert annað lið.“
Harpa Sveinsdóttir:
„Já, en ekki mikið. Ég hef séð
nokkra leiki svona með ööru
auganu, en ég á mér ekkert
uppáhaldslið."
Lúðvík Elíasson:
„Já, ég geri það að einhverju
leyti. Það er ekkert ákveðið lið
sem ég fylgist betur með en
öðrum. Miðað við þau óvæntu
úrslit sem hafa orðið í sumum
leikjunum getur hvaða lið sem
er orðið heimsmeistari."
Anna Kristín Arnarsdóttir:
„Nei, það geri ég ekki og hef
engan áhuga á því. Ég mun
kannski horfa á eins og einn
leik ef ég verð neydd til þess.“
Elín Rós Sveinbjörnsdóttir:
„Nei, mér hefur alltaf fundist fót-
bolti svo leiðinlegur. Ég ætla
ekki að fylgjast með einum ein-
asta leik, ég mun skrúfa niður í
bæði útvarpi og sjónvarpi. Mér
finnst svo vitlaust að elta bolta-
tuðru út um allan völl.“
Fylgist þú með Heimsmeist-
arakeppninni í knattspyrnu?
(spurt á Akureyri)
l
kýrhausnum
— gamansögur, sannar og
uppdiktaðar
Hin rétta staða
David Lloyd George (1863-1945)
var breskur stjórnmálamaöur.
Hann var forsætisráðherra frá
1916-1922. Af honum eru til
margar sögur.
Það er sagt að faðir hans hafi
verið í miklum vafa um hvaða
hæfileika sonurinn hefði frama-
vænlegasta og hvaða stöðu hann
skyldi búa sig undir. Faðirinn
ákvað því að gera dálitla tilraun.
Hann afhenti Davíð, sem þá
var orðinn nokkuð stálpaður,
shilling, epli, litakassa og biblíu
og lét hann svo vera einan og
sjálfráðan í stundarfjórðung.
Hann hugsaði sem svo: Ef
drengur fer að leika sér með lit-
ina, þá verður hann listamaður.
Taki hann að leika sér að pen-
ingnum þá geri ég hann að
bankastjóra. Fáist hann eingöngu
við eplið skal hann fara í land-
búnaðinn, en sökkvi hann sér
niður í biblíuna geri ég hann að
presti.
Er stundarfjórðungurinn var
liðinn opnaði faðirinn dyrnar á
herbergi stráksins. Drengur sat
þá á biblíunni og borðaði eplið,
en hann var önnum kafinn við að
mála peninginn gulan til þess að
gera hann sem líkastan gullpen-
ingi.
Þá ákvað faðirinn að sonurinn
skyldi verða lögfræðingur!
Á kosningafundi
í kosningabaráttu nokkurri barð-
ist Lloyd George mjög fyrir
heimastjórn íra og var það mikið
hitamál. Eitt sinn á fundi er
Lloyd George var að tala kallaði
drukkinn maður fram í fyrir
honum:
Gætum við ekki líka fengið
heimastjórn fyrir helvíti?
- Jú, það er ekki ólíklegt að
við gætum það, svaraði Lloyd
myndlist
George óðara, en hvað sem um
það má segja þá gleður það mig
ákaflega að kynnast kjósanda
sem berst jafn ótrauður fyrir rétti
sínum og þér.
Hið mikla djúp
Franski forsætisráðherrann
Clemmenceau, sem almenningur
kallaði tígrisdýrið, var alls ekkert
hrifinn af þessu viðurnefni. Eitt
sinn ávarpaði Lloyd George hann
þessu nafni í samræðum og þá
sagði Clemmenceau gremjulega:
- Já, ég sé nú að það er - og
hefur alltaf verið - óbrúandi djúp
milli lærdóms og háttvísi.
- Fyrir okkur Englendinga
hefur það nú aðeins verið Erma-
sund, svaraði Lloyd George.
Járnvörubúð
Enski leikarinn E.H. Southern
gekk eitt sinn fram hjá járn-
vörubúð og sá að innan við búð-
arborðið stóð afgreiðslumaður,
kjánalegur á svip. Ein af aðal-
skemmtunum Southerns var að
hrekkja og gera at og hann stóðst
ekki freistinguna, fór inn í búð-
ina og sagði:
- Eigið þér til aðra útgáfu af
Englandssögu eftir Macaulay?
- Nei, herra minn. Þetta er
járnvörubúð.
- Hún má vera óbundin, það
gerir ekkert til.
- Já, en við seljum ekki bækur
hér, herra minn.
- Jú, þér megið pakka henni
inn í hvað sem er.
- Já, en heyrið þér, við seljum
ekki bækur!
Afgreiðslumaðurinn beygði sig
yfir búðarborðið og öskraði í eyr-
að á Southern:
- Engar bækur! Járnvörubúð!
- Þakka yður kærlega fyrir,
sagði Southern brosandi og sett-
ist niður. Ég bíð þá.
Nú var afgreiðslumaðurinn
kominn gjörsamlega úr jafnvægi,
hann æddi inn í herbergið á bak
við og sótt kaupmanninn sjálfan
sem spurði ákveðnum rómi:
- Hvað er það fyrir yður,
herra minn?
- Ég þarf að fá þjöl, svona
langa, sagði Southern hinn róleg-
asti.
- Nú, já, sagði kaupmaðurinn
og horfði grimmdarlega á aum-
ingja afgreiðslumanninn.
Þá var öllu óhætt
Danskur ferðamaður var nýflutt-
ur inn á hótel í Kaupmannahöfn.
Um kvöldið fór hann fram á
gang, gekk að lyftudyrunum og
beið. Kom þá ljóshærð og glæsi-
leg stúlka út úr einu herberginu
og starði lengi á hann rannsókn-
araugum. Loks spurði hún:
- Eruð þér kvæntur?
Maðurinn hikaði sem
snöggvast, en svo komst hann að
þeirri niðurstöðu að best væri að
segja sannleikann. Jú, sagði
hann, ég er það.
Stúlkan sneri strax við honum
bakinu og sagði:
- Viljið þér þá gjöra svo vel að
renna upp lásnum fyrir mig.
Kaup og starf
Einn duglegasti verkfræðingur-
inn við fyrirtæki nokkurt fór til
forstjórans og bað um launa-
hækkun. Forstjórinn sagði:
- Þér hafið þegar hærri laun
en sá sem næst yður gengur og
Itann á 5 börn.
- Já, sagði verkfræðingurinn.
það er hverju orði sannara. En ég
hélt að kaup okkar færi eftir því
sem við vinnum hér, en ekki því
sem við gerum heima í frístund-
um okkar.
Hann fékk launahækkun.
SS tók saman.
Fjör og fjölbreytni
- Sýning Þorvaldar Þorsteinssonar í Möðruvallakjallara
Það er ómaksins vert að leggja
leið sína í Möðruvallakjallarann
þessi kvöldin. Þar opnaði Þor-
valdur Þorsteinsson 14. júní sýn-
ingu á þrjátíu og sjö myndverk-
um og ellefu stuttum sjónvarps-
leikritum, sem flutt eru af
myndbandi. Sýningunni lýkur 17.
júní.
Þorvaldur Þorsteinsson er ung-
ur maður og greinilega enn að
leita þeirrar myndtjáningar, sem
hæfir honum. Slíkt er í engu
furðulegt né heldur ámælisvert.
Hver sannur listmaður og hver
einlægur leitandi á sviði listanna
er sífellt að þreifa fyrir sér um stíl
og táknun. Sú er leiðin til þroska
og framfara og því fjölbreyttari
en jafnframt ákveðnari sem leitin
er, því meiri ánægja er af því að
fylgjast með henni.
A sýningu Þorvaldar eru tólf
vatnslitamyndir, sem margar
hverjar bera þess allglögg merki,
að listamaðurinn hefur náð veru-
legu valdi á tækni vatnslitunarinn-
ar. Víða nær hann fram þeirri
sérkennilegu áferð, sem einkenn-
ir þessa tækni. Til þessa má nefna
myndir svo sem Lampi (nr. 9),
Egg (nr. 3) og Blóm (nr. 2). Þá
gerir Þorvaldur í nokkrum vatns-
litamyndanna athyglisverðar til-
raunir til þess að brjótast út úr
ramma hefðarinnar svo sem í
myndunum Hnattlíkan (nr. 5) og
Palletta (nr. 7).
Teikningarnar sextán, sem
Þorvaldur sýnir í Möðruvalla-
kjallara, bera vott hagri hönci og
glöggu auga ásamt - í flestum til-
fellum - agaðri notkun línunnar.
Listamaðurinn hefur greinilega
gaman af að tefla saman ósam-
stæðum, sem fela gjarnan í sér
tákn. Hér má benda á myndirnar
Fugl og gleraugu (nr. 23), Sláttu-
vél og Svanur (nr. 25) og Hendi
og vindmylla (nr. 26). Enn aðrar
teikninganna eru beinlínis tákn-
rænar og jaðra á stundum við
brandara. Hér má sérstaklega
geta myndarinnar Tvær ferðir til
Parísar (nr. 17).
Þorvaldur sýnir þrjár lágmynd-
ir, sem unnar eru með fjöl-
breyttri tækni. Svo fáar myndir
gefa ekki víðtæka mynd af verk-
um listamannsins á þessu sviði og
eru tæplega viðhlítandi grund-
völlur umsagnar. Það lítið, sem
er að sjá af þessum flokki mynda
vekur samt forvitni en jafnframt
spurn um það, hvort hér skorti
ekki þrótt og ferskleika.
Skemmtilegur hluti sýningar
Þorvaldar Þorsteinssonar er ljós-
myndir, sem listamaðurinn hefur
handfjatlað og breytt með yfirlit-
un. Hér er um einfalt form að
ræða, sem í höndum Þorvaldar
virðist vera tilraun til þess að
gæða ljósmyndirnar nýrri merk-
ingu og draga fram áhersluatriði.
Forvitnilegt hefði verið að hafa
til hliðsjónar myndirnar óbreytt-
ar til þess að geta betur metið
ætlun listamannsins með verki
sínu.
Sjónvarpsleikritin ellefu eru
áhugaverður þáttur í sýningu
Þorvaldar. Myndatakan er hrá og
textaflutningurinn, sem er allur á
íslensku, oftast lítt leikrænn. Því
sterkari verða ýmis áhrif verk-
anna; til dæmis hið skoplega, það
djúp, sem oft er á milli viðmæl-
enda, og Ijóðrænan, sem allvíða
einkennir textann. Svo forvitni-
leg sem þessi sjónvarpsverk eru,
eru þau jafnframt þau verkanna á
sýningunni í Möðruvallakjallar-
anum, sem eru hvað frumstæð-
ust. Ekki vegna skorts á tækni-
brellum, sem er kostur, heldur
vegna þess, að í þeim mætti vera
meiri marksækni og festa.
Auk þess, sem þegar hefur ver-
ið rætt, eru á sýningu Þorvaldar
Þorsteinssonar í Möðruvalla-
kjallaranum bækur og bæklingar,
sem sýna enn fjölbreytta hæfi-
leika hans. Sérlega skemmtileg er
hin fagurlega lýsta barnabók Þor-
valdar Skilaboðaskjóðan, þar
sem fram kemur ljúf og hlý hlið
listamannsins í hefðbundnum
ramma.
Það er gaman að skoða sýn-
ingu Þorvaldar. í henni er leikur,
lífsfjör og fjölbreytni. Það er
ljóst, að enn á Þorvaldur tals-
verða leið ógengna til þroska í
stfl og efnistökum, en jafnljóst
er, að hann er kominn vel á veg.
Haukur Ágústsson.