Dagur - 16.06.1990, Síða 12

Dagur - 16.06.1990, Síða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 16. júní 1990 Það hefur löngum verið mikið deilt um það hvort til hafi verið menningarsamfélög fyrir árþús- undum sem jafnist á við nútíma samfélag eða hafi jafnvel verið því framar. Kenningarnar sem hafa verið uppi um það hvað varð um þessi menningarsam- félög eru misjafnar en merki- legt þykir að fornleifafræðingar virðast smátt og smátt finna fleiri og fleiri merki um að til hafi verið mun eldri menningar- samfélög en áður var haldið. Meðal flestra þjóða og þjóð- flokka finnast sagnir af náttúru- hamförum en útbreiddust er þó sögnin um flóðið mikla sem kristnir menn þekkja úr Biblí- unni sem Nóaflóðið. Bæði Azt- ekar og Mayar eiga skráðar sagnir af slíkum hamförum. Einnig skýrir Ovid frá slíkum hamförum og ekki síst Plato. Þá má ekki gleyma því sem segir í Eddukvæðunum, þar sem Fen- risúlfurinn eyðir heiminum og rífur himnana í sundur o.s.frv. Einhverjir hafa líka lesið bæk- ur um það sem Edgar Cacye sagði um vopn þau er sumar forsögulegar þjóðir réðu yfir. Hann sagði að þær hefðu búið til tæki sem hann nefndi krist- alla og voru tæki sem sendu frá sér geisla sem eyddu öllu sem fyrir þeim varð. Þessu tæki sem þar er lýst svipar mjög til leysi- geislabyssunnar sem nú er verið að vinna að. Það kann að hljóma ótrúlega að fyrir árþús- undum hafi verið til slík menn- Fomir heimar og hanil'arir ingarsamfélög og að svo miklar náttúruhamfarir hafi átt sér stað að heil menningarsamfélög hafi þurrkast út en samt sem áður renna ýmsar uppgötvanir forn- leifafræðinga stoðum undir sögnina um flóðið mikla hvort sem orðið hefur eitt flóð eða fleiri. Árið 1929 voru breskir og bandarískir fornleifafræðingar við rannsóknir í írak þar sem hin forna borg Kaldea Ur hafði verið. Hversu djúpt sem grafið var fundust sífellt fleiri forn- minjar eins og eldfornar áritað- ar leirtöflur, leirker og aðrir munir sem sýndu að menning Súmera hafði lengi verið óbreytt og staðið föstum fótum í fornum venjum og siðum. En fornleifafræðingum til mikillar undrunar komu þeir niður á leirlag úr hreinum hvít- um leir. Það var hvorki meira né minna en þriggja metra þykkt og þegar þeir höfðu graf- ið í gegnum það fundu þeir fleiri krukkur, könnur, potta og leirker og einnig rústir bygg- inga. Þeir munir sem fundust undir leirlaginu voru ekki gerðir í leirkerasmiðju og voru mun klunnalegri en hinir. En forn- leifarnar undir leirlaginu voru greinilega frá steinöld. Leirlagið mikla sem augljós- lega var af völdum flóðs að- greindi þarna steinaldarmenn- inguna frá brons- og járnaldar- menningunni. Dulspeki Umsjón: Einar Guömann. Sterkar líkur benda til að óvæntar hamfarir hafi orðið. í Norður-Síberfu fannst til dæmis heilmikið af beinum fíla, nas- hyrninga, og annarra hitabeltis- dýra. Mikill fjöldi hafði greini- lega safnast saman í einn hnapp því beinin mynduðu stóra hæð þar sem þau fundust á landi en þar sem þau fundust á hafsbotni mynduðu þau stór rif. Gadd- freðnir mammútar hafa fundist með hálftuggnar jurtir á tung- unni, jurtir sem hafa ekki vaxið á þeim slóðum í þúsundir ára. Sumir mammútarnir hafa frosið svo skyndilega að kjötið af þeim var enn neysluhæft þegar þeir fundust. Þó prófuðu menn ekki að borða það fyrr en hundar höfðu fyrst étið það. Mammút- arnir og mastodonarnir sem voru risavaxnir fílar hafa greini- lega drepist skyndilega ásamt fjölda annarra dýra. Meðal dýra sem fundust í asfaltnámu í La Brea, nálægt Los Angeles í Kaliforníu voru mörg hundruð sverðtígrisdýr, hestar, úlfaldar, vísundar og páfagaukar. Ein- hver yfirþyrmandi ósköp hafa greinilega átt sér stað því dýr af ólíklegustu tegundum höfðu safnast saman í skelfingu sinni. Víða um heim hafa sams konar dýrakirkjugarðar með leifum ólíklegustu dýra fundist. Próf- essor Albert Gaudry sagði varð- andi þetta að það væri óhugs- andi að svona ólík dýr hafi get- að lifað saman á sama stað. Það bendir til að sameiginleg hætta vegna náttúruhamfara hafi þjappað dýrunum saman, bæði rándýrunum og dýrunum sem þau veiddu. í Kína hefur það sama gerst. Dýrin drápust skyndilega í hrönnum. Kínverjar skáru listi- lega út í fílabein um þúsundir ára en hvar fengu þeir fílabein- ið? Jú, úr fílabeinsnámum sem sýnir að þar drápust samtímis fjöldi fíla og mammúta. Prófessor Frank Hibber sem rannsakaði bein þúsunda dýra í Alaska sem löngu eru útdauð benti á hve ragnarökin og ham- farirnar hafa verið æðisgengnar. Hann segir: „Þúsundir dýra á besta aldri drápust... dýr rifn- uðu sundur og leifar þeirra dreifðust yfir landið jafnvel þótt dýrin hafi vegið nokkur tonn... Skýringin á því hvers vegna slíkur aragrúi dýra tróðst inn í hella og sprungur kann að vera sú að ofsafenginn stormur hafi geisað..." Einnig hafa fundist bein úr hvölum í 150 til 200 metra hæð yfir sjávarmáli í hæðunum í New Hampshire og í Michigan. Charles Darwin sagði í frá- sögnum af ferðum sínum um Suður-Ameríku að eftir að hann hafi fundið leifar af löngu útdauðum dýrum innan um sjávarskeljar inni á landi: „Manni flýgur fyrst í hug miklar hamfarir. En til þess að eyða dýrum, bæði stórum og smáum í Suður-Patagóníu, Brasilíu, Perú og Norður-Ameríku allt að Beringssundi þá hlýtur öll jörðin að hafa skolfið.“ Jörðin hefur svo sannarlega breyst. Þar sem Sahara eyði- mörkin er núna var eitt sinn haf, skógar voru þar sem Norðursjórinn er núna og hæstu fjöll í heimi, Himalayafjöllin voru eitt sinn undir sjó. Skelja-i og lindýralög sem þar fundust benda til þess. Þó að geysilegar hamfarir hafi átt sér stað tortímdist ekki allt mannkynið frekar en öll dýrin. Menn kunna að hafa leitað skjóls upp til fjalla eða í hellum eða farið um borð í skip eins og Nói gamli. Þeir sem lifðu af hafa miðlað þekkingu sinni til næstu kynslóðar en fyrst í stað hefur þekkingarmiðlunin senni- lega verið munnleg og með tímanum verið skráð. Merki um meiriháttar ham- farir eins og að ofan er lýst eru í flestum trúarbrögðum og í sögnum margra landa. Ekki er þó ljóst hvað olli hinum ógur- legu hamförum sem sagt er frá. Sumir telja að halastjarna hafi komið svo nálægt jörðu að hún hafi ef til vill valdið loftslags- breytingum, flóðum og jafnvel eldgosum. En hvað svo sem gerðist þá stendur mannkynið frammi fyrir því að forðast að eyða og tortíma vistkerfi jarðar- innar. Fornar sagnir greina ekki einungis frá því að mannkynið hafi sokkið svo djúpt ofan í fen illsku og spillingar að guðirnir hafi ákveðið að eyða stórum hluta þess, heldur segja sagnirn- ar einnig að mannkynið hafi leyst úr læðingi öfl sem það réði ekki við og bitnuðu harðast á því sjálfu. Kannski hafa þeir sem snúa bökum saman í bar- áttunni gegn mengun jarðarinn- ar hvort sem það er í formi. kjarnorku, eiturefna eða víg- búnaðarkapphlaups, séð hvert stefnir og að hugsanlega sé jörðin ekki eins eilíf og menn vilja halda. Kristinn G. Jóhannsson skrifar Bakbankar Um lýðræði í kartöflugarði með arfa og málsvara lýðræðisins Kosningadagar eru til margra hluta nytsamlegir fyrir kjósend- ur. Fyrst er auðvitað að kjósa sem er fjarska skemmtilegt og síðan er að þreyja daginn til kvölds þangað til talningin hefst og leikurinn æsist. Næst því að horfa á ensku knattsþyrnuna veit ég enga skemmtun betri en vel heppnaða atkvæðatalningu. Einkum finnst mér gaman að fylgjast með höfuðborgunum Fteykjavík og Ólafsfirði þar sem kjósendur vita nokkurn veginn hvað þeir fá eftir kosningar. f moðkosningum eins og á Akur- eyri er þetta lakara vegna þess að enginn veit hvernig meirihluti verður eftir kosningar og er ég þá kominn að nytsemi kosn- ingadagsins. Eftir að ég nú hafði sinnt skyldum mínum í Oddeyrar- skólanum ályktaði ég sem svo að ekki væri illa til fundið aö nota daginn til að setja niður kartöflurnar. Garðholan mín er afar sakleysisleg svona fyrst á vorin og ég þóttist vera búinn að gleyma arfanum frá í fyrra sem óx kartöflugrösunum yfir höfuð á miðju sumri svo að þau sáu ekki til sólar framar. Upp- skeran varð þess vegna ekki margföld í það sinnið. Nú var hins vegar kosningavor sem hlaut að vera gott til kartöflu- ræktunar. Ég fór því út á akur- inn að stinga upp og undirbúa jarðveginn, hreinsaði úr skækla og njóla og verðandi fífla. Ég var þarna rétt eins og frambjóð- andi að búast til kosninga. Ég var að vísu með stungusþaða en hinir sem vilja í bæjarstjórn nota önnur vopn til að tryggja uppskeruna sem hjá þeim mæl- ist í atkvæðum uþp úr kjör- kassa en hjá mér í gullaugum í potti. Þeir sá orðum og athöfn- um en ég spíruðu útsæði. Hjá báðum er tvísýnt um árangur- inn. Það fer dálítið eftir jarðveg- | inum skilst mér, og stundum finnst manni að dálítið skítkast sé notadrjúgt í báðum þessum tilfellum. Þá er dálitlum slatta hreytt yfir beðin. Þegar uppskeran kemur í Ijós er ég nokkurn veginn viss um að ég fæ kartöflugrös fyrst upp úr moldinni eins og til var sáð en svo má ég búast við alls konar óæðri gróðri sem spillir fyrir, fletur út eða jafnvel kæfir það sem upphaflega var sáð til. Það er eins með það sem ég set niður í kjörkassann, ómeng- að atkvæði mitt, og ætlast til að einmitt sá krossaði flokkur komi nú fram stefnumálum sínum og ekkert hefti framgang þeirra og þroska. En ekki aldeilis. Þá er nefnilega seinni hálfleikur og framlengingin eftir og stundum eins konar vítasþyrnukeþpni. Það heitir meirihlutamyndun. Fyrir okkur framsóknarmenn á Akureyri varð þetta svipað og að setja niður voða margar kartöflur með spírum og fá svo ekkert nema illgresi upp úr moldinni. Fengum bara ekki að vera með. Ekki einu sinni þreif- að á okkur. Við erum hálf leiðir yfir þessu og finnst þetta sér- kennilegt lýðræði og höfum reyndar komið okkur uþp þeirri kenningu vegna þess að við fengum ekki að vera með í meirihlutanum að það séu heimasitjandi kjósendur, auöir og ógildir sem stjórni bænum okkar nú um sinn enda fékk listi þeirra um 30% atkvæða. Þetta er ekki björgulegt finnst okkur. Við ætlum samt ekki að gera mikinn hávaða út af þessu að sinni vegna þess að það stend- ur svoleiðis á hjá okkur að við erum öflugir stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar hans Stein- gríms sem er þó með þeim ósköpum ger að í henni er einn ráðherra sem ekki var einu sinni kjörinn á þing og svo tók- um við nýlega inn til okkar til að styrkja stjórnina og lýöræðið f landinu tvo ráðherra sem eru svo flokkslausir að fylgi þeirra mælist ekki einu sinni í prós- entubroti. Þótt við viljum auðvit- að hafa sem virkast lýðræði í landinu má náttúrlega ekki ganga svo langt að það bitni á okkur sjálfum og Steingrími. Um þetta er ég nú aö hugsa meðan ég horfi á kartöflugrösin mín koma upp í skipulegum fylkingum upp úr beðunum eins og glaðbeitt framsóknaratkvæði en veit þó að allt þetta pot þeirra er til einskis þar sem meirihlutaarfaflækja kemur óðara að kæfa þau og ég fæ ekki það undan þeim sem til stóð í ítarlegri baráttu minni við að koma þeim á legg. Ég og við framsóknarmenn yfirleitt segjum því eins og kvennalistakonurnar hér í bæn- um að loknum kosningunum: „Eigi skal gráta kartöflugrösin meðan nóg er af kálhausun- um.“ Kr. G. Jóh.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.