Dagur - 14.09.1990, Side 3
Föstudagur 14. september 1990 - DAGUR - 3
Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður, um álversmálið:
Dla komíð fyrir þjóðinm ef útlendingar
þurfa að taka ákvarðanir fyrir hana
„Miðað við þau rök sem nú eru
tilgreind fyrir staðsetningu
væntanlegs álvers á Keilisnesi
flnnst mér að mátt hefði
ákveða staðsetningu þess fyrir
löngu.“ Þetta sagði Valgerður
Sverrisdóttir, alþingismaður
samtali við Dag. Valgerður
taldi að illa sé komið fyrir
Islendingum ef þeir þurfa að
láta útlendinga taka ákvarðan-
ir fyrir sig.
Valgerður sagði að staðsetning
væntanlegs álvers sé stórmál og
hreinn kjánaskapur að ræða um
að ágóða af starfsemi þess verði
skipt jafnt niður á alla landshluta
verði af byggingu þess á Keilis-
Akureyrarhöfn:
Álagið er mikið, skip koma og fara
Að sögn Jóhanns Haukssonar
er viðhald á bryggjum á Akur-
eyri töluvert, enda umferð
skipa mikil, jafnt kaupskipa
sem fiskiskipa, en Jóhann og
tveir félagar voru að viðhalds-
störfum á Togarabryggjunni er
blaðamann bar að.
Starfsmenn Akureyrarhafnar aö störfum.
Mynd: Kl.
Vatnsból Raufarhafnarhrepps:
Hollustuvemd ríkisins
lagði áherslu á úrbætur
- vatnsnotandi sendi kærubréf
til stofnunarinnar
Raufarhafnarhreppur hyggst
byrgja vatnsból sitt fyrir vetur-
inn, eins og við greindum frá
Áfengisvandinn
á Norðurlandi:
Fjáröflun SÁÁ-N í
formi happdrættis
Samtök áhugafólks um áfeng-
isvandamálið á Norðurlandi,
SAA-N, reka öfluga göngu-
deild á Akureyri og veitir hún
íbúum á Norðurlandi öllu ráð-
gjöf og þjónustu. Starf deildar-
innar hefur þegar vakið mikla
athygli fyrir góðan árangur í
baráttunni við alkóhólisma.
Fjölmargir hafa leitað til SÁÁ-
N og til að fjármagna þessa þjón-
ustu hafa samtökin ýmsar fjár-
öflunarleiðir í pokahorninu.
Stærsta og mikilvægasta fjáröfl-
unarleið SÁÁ-N er happdrætti,
sem nú er verið að hleypa af
stokkunum.
í happdrætti SÁÁ-N er þrjú
hundruð þúsund króna vöruút-
tekt hjá Vörubæ, auk fjölda ann-
arra vinninga. Gengið verður í
öll hús á Akureyri og öðrum þétt-
býliskjörnum á Norðurlandi
helgina 15.-16. september næst-
komandi og happdrættismiðarnir
boðnir til sölu.
Hver króna sem kemur inn
vegna happdrættismiðasölunnar
verður nýtt til starfsemi samtak-
anna á Norðurlandi.
Dregið verður í happdrættinu
á fjölskylduhátíð sem haldin
verður í Lóni 30. september. SS
fyrir skömmu, en undanfarin
ár hefur ýmislegt gengið á í
sambandi við þetta vatnsból
sem ætíð hefur staðið óvarið. í
sumar fékk Hollustuvernd
ríkisins bréf frá vatnsnotanda í
hreppnum og var það stílað
sem kæra á hendur Raufar-
hafnarhreppi vegna vatnsbóls-
ins.
Hjá Hollustuvernd fengust þær
upplýsingar að þótt bréfið hafi
verið skrifað sem kæra væri hér
frekar um ábendingu að ræða.
En málið var kannað hjá Holl-
ustuvernd í framhaldi af þessu
bréfi.
„Ég held að bréfritari hafi ver-
ið að óska eftir því að Holl-
ustuvernd þrýsti á um úrbætur í
þessu máli og ég vona að okkur
hafi tekist það. Eftir að hafa tal-
að við oddvita, sveitarstjóra,
formann heilbrigðisnefndar og
landeiganda um þetta mál vonast
ég til að fyrsta skrefið í áttina að
lausn málsins verði stigið, en það
skref er að þessu vatnsbóli verði
lokað í haust," Sagði Þórhallur
Halldórsson hjá Hollustuvernd
ríkisins.
Hann sagði að Hollustuvernd
hefði lagt áherslu á að úrbætur á
vatnsbóli Raufarhafnar þyldu
ekki iengri bið og eftir viðbrögð-
um yfirvalda í hreppnum að
dæma sagðist Þórhallur ætla að
vatnsbólið yrði byrgt í haust.
Sveitarstjóri Raufarhafnar-
hrepps hefur tekið í sama streng
og því má ætla að þessum þætti
deilumálsins verði senn lokið.
Annar þáttur lýtur að deilu
hreppsins og landeigenda. SS
„Sumarið er mikill annatími og
nú eru þrír menn á vegum hafn-
arinnar að störfum við viðgerðir
á hafnarmannvirkjum og alltaf
koma verktakar inn til stærri
verka. Nokkurhluti hafnarmann-
virkja er kominn til ára sinna og
þarfnast mikils viðhalds því
álagið er mikið, skip koma og
fara," sagði Jóhann. ój
nesi. Til að slíkt geti raunveru-
lega orðið að veruleika þurfi að
koma til sérstök lagasetning um
ráðstöfun á tekjum af álveri og
yrðu slík lög að fást samþykkt
jafnframt setningu laga um
álbræðslu.
Valge'-ður sagði að fyrir löngu
hefði átt að láta reyna á það
hvort staðsetning stóriðju utan
suðvesturhornsins væri möguleg
og hvort ríkisstjórnin gæti í raun
haft einhver áhrif á staðarval því
ef um slík áhrif hafi aldrei verið
að ræða hefði verið langtum
betra að ákveða staðsetninguna
strax. Hefði staðarva! stóriðju á
Reykjanesi legið fyrirstrax í upp-
hafi viðræðna hefði verið unnt að
vinna á allt annan hátt og huga
strax að ráðstöfunum sem óhjá-
kvæmilega verður að vinna að í
hyggðamálum verði stóriðja á
annáð borð reist á Suðvestur-
landi.
Línuspilið frá DNG:
„Kostirnir eru
ótvíræðir“
„Línuspilið frá DNG er afar
vinsælt og hefur reynst mjög
vel og er góð lausn fyrir
smærri báta,“ sagði Kristján
E. Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri.
Að sögn Kristjáns hófst
smíði á nýju línuspiii hjá
DNG s.i. vetur eftir þróunar-
vinnu starfsmanna fyrirtækis-
ins.
Spilið hefur reynst mjög vel
og þeir sjóntenn sem hafa
reynt það eru sammála um að
þarna sé kornin mjög góð
lausn fyrir smærri báta.
„Línuspilið er drifið áfram
af DNG tölvuvindu og því
losna menn við að fjárfesta í
vökvakerfi sem kostar umtals-
verða peninga. Spilið er á
mjög viðráðaniegu verði og
hvetjum við alla sjómenn
smábáta sem hafa hug á að
geta lagt línu að hafa samband
við okkur og fræðast um kosti
spilsins sem cru ótvíræðir,"
sagði Kristján, framkvæmda-
stjóri DNG. ój
Leikfélag Húsavfloir sýnir á íslandskynningu í Áiaborg
- verður með fjórar sýningar í ferðinni og
tekur þátt í samsýningu
Sjö félagar úr Leikfélagi Húsa-
víkur halda í vikuferð til Dan-
merkur á morgun. Leikhópur-
inn verður með fjórar sýningar
í ferðinni og tekur auk þess
þátt í þrem sýningum ásamt
öðrum leikhópum.
Focus pá Island nefnist
Islandskynning sem stendur yfir í
Álaborg í september. Að kynn-
ingunni er staðið með samvinnu
margra aðila og glæsilega, að
sögn Húsvíkinga sem hana hafa
sótt, m.a. eru sýningar á íslenskri
list og kynningar á landi og þjóð í
menningarmiðstöð sem nefnist
Huset.
Leikhópurinn frá Húsavík
mun fyrst heimsækja leikfélag í
úthverfi Kaupmannahafnar, en
félögin eru saman í norrænum
áhugaleikfélagahring. Dvalið
verður hjá vinaleikfélaginu fram
á þriöjudag og verða Húsvík-
ingarnir með sýningu á sunnu-
dagskvöld. Á þriðjudag veröur
haldið til Álaborgar, sem er vina-
bær Húsavíkur. Sýningin sem
Húsvíkingarnir eru með nefnist
Maí 1940 og brugðið er upp
myndum frá þeim tíma á íslandi.
Sögumaður í sýningunni cr Ingi-
mundur Jónsson og er textinn
fluttur á dönsku. í sýningunni eru
flutt lög úr Land míns föður eftir
Kjartan Ragnarsson og leikur
Aðalheiður Þorsteinsdóttir undir
á píanó. Þetta verk verður flutt
fjórum sinnum í menningarmið-
stöðinni og verður frumsýningin
á þriðjudagskvöld.
Leikhópurinn mun einnig taka
þátt í útileiksýningu með öðrum
leikhópum þar sem flutt verða 10
íslensk lög og spunnið út frá
þeim. Lagið sem Lcikfélagi
Húsavíkur var úthlutað til að
vinna með er Ó, blessuð vertu
sumarsól. María Axfjörð, utan-
ríkisráðherra LH, sagði að hin
fyrirhugaða Danmerkurferð væri
mjög spennandi en án efa yrði
mjög erfitt að vera með í svo
mörgum sýningum á svo skömm-
um tíma. IM
Innritun er
hafin í alla flokka
10 tíma nómskeið
1 x í viku
Kennslustaður
Grónufélagsgata 49
efri hœð
Kennsla hefst
24. september
Námskeið í barnadönsum
yngst 3 ára • samkvœmisdönsum
gömlu dönsunum • Rokk og Tjútt
Vouge • Hipp Hopp • Námskeið
fyrir hópa, félagasamtök og
einstaklinga
Innritun og allar nánari
upplýsingar í síma 26624 milli
kl. 10.00 og 18.00
Léttir og skemmtilegir tímar
með góða skapið í fyrirrúmi
H
raðgreiðslur
DANSSKOLI
SMí