Dagur - 14.09.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 14. september 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASIMI 22791
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Framsækið fyrirta*ki
Þrátt fyrir að nauðsyn beri til að auka fjölbreytni
íslensks atvinnulífs og finna fleiri þætti sem skilað
geta þjóðinni verðmætum verður sjávarútvegurinn
áfram undirstöðuatvinnuvegur hennar. Þrátt fyrir
ýmsa erfiðleika stendur hann föstum fótum og
hann ber einnig að miklu leyti uppi rekstur þess
velferðarþjóðfélags sem við höfum skapað okkur og
viljum síst af öllu vera án. Þótt önnur atvinnu-
starfsemi hafi fest rætur og þróast er fremur um
hliðarbúgreinar við sjávarútveginn að ræða. Af
þeim ástæðum er lífsnauðsynlegt að til séu traust
og vel rekin fyrirtæki í sjávarútvegi. Eitt af mikil-
vægustu verkefnum á íslandi í náinni framtíð er því
að skapa sjávarútveginum betri rekstrarskilyrði
miðað við þann afla sem við eigum kost á að nýta úr
hafinu kringum landið. Á þann hátt einan getum
við treyst á að lífskjör verði viðunandi á íslandi.
Akureyringar hafa átt því láni að fagna að þar
hefur eitt af best reknu sjávarútvegsfyrirtækjum
landsins starfað um langan tíma. Útgerðarfélag
Akureyringa hefur bæði sótt sjóinn með fiskiskip-
um og einnig rekið umfangsmikla framleiðslustarf-
semi í landi. Á þann hátt hefur ætíð verið unnt að
stýra samspili veiða og vinnslu með hagkvæmni
beggja þessara starfsgreina í huga. Án efa á það
sinn þátt í að tekist hefur að reka fyrirtækið með
hagnaði á undanförnum árum.
Útgerðarfélag Akureyringa er eitt stærsta útgerð-
arfyrirtæki landsins með bókfærðar eignir upp á
tæpa tvo milljarða króna. Hjá félaginu starfa að
jafnaði um 450 manns, bæði á skipum félagsins og
við framleiðsluna í landi. Nýlega keypti fyrirtækið
sjöunaa togarann með veiðiheimildir fyrir 940 tonn
af þorski, 1550 tonn af karfa og 350 tonn af grálúðu
á sóknarmarki. Er skipt verður frá sóknarmarki yfir
í aflamark um næstu áramót þýðir það um 1660
tonna þorskígildakvöta auk hugsanlegra bóta
vegna afnáms sóknarmarksins. Aukning á afla-
kvóta er kostnaðarsöm en Útgerðarfélagið er vel í
stakk búið til að auka hlutdeild sína í sjávarafla og
framleiðslu útflutningsverðmæta.
Útgerðarfélag Akureyringa hefur getað greitt
hluthöfum arð af hlutabréfum sínum á undanförn-
um árum. Hluthöfum var greiddur 5% arður árin
1987 og 1988, 2% arður árið 1989 og 3% á þessu ári.
Á síðasta aðalfundi Útgerðarfélags Akureyringa
var samþykkt að auka hlutafé félagsins um 100
milljónir króna. Helmingur þeirrar upphæðar hefur
verið boðinn út og afgangurinn verður boðinn út
seinna í haust. í útboðslýsingu segir að minnkandi
aflakvóti dragi úr hagnaði þar sem félagið verði að
kaupa viðbótarkvóta háu verði til að tryggja að
framleiðsla dragist ekki saman milli ára. Á móti því
komi hins vegar bætt rekstrarumhverfi, sem felst í
minnkandi verðbólgu, aukinni eftirspurn og hærra
söluverði afurða. Ljóst er að mikill áhugi er fyrir
kaupum á hlutabréfum í Útgerðarfélagi Akureyr-
inga. Með því móti eru menn ekki einvörðungu að
ávaxta fjármuni í formi eignar í framsæknu fyrir-
tæki. Þeir eru einnig að styrkja atvinnulíf á Akureyri
og rekstur í höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar. ÞI.
hvað er að gerast /j
„Þeir héldu dálitla heimsstyrjöld“:
Kabarett í Samkomuhúsinu
- á Akureyri á laugardagskvöld
Kabarett verður sýndur í Sam-
komuhúsinu á Akureyri næst-
komandi laugardagskvöld þann
15. september kl. 20.30.
Söngdagskráin ber yfirskriftina
„Þeir héldu dálitla heimsstyrj-
öld“ Iög og Ijóð úr stríði. Kabar-
ett þessi fékk nijög góðar undir-
tektir í Norræna húsinu, þar sem
hann var sýndur við mjög góða
aðsókn. En það er vegna sam-
vinnu Norræna hússins í Reykja-
vík og Norræna félagsins að
kabarettinn er sýndur á Akur-
eyri.
Það eru leikararnir Ása Hlín
Svavarsdóttir, Edda Heiðrún
Backman, Egill Ólafsson og Jó-
hann Sigurðarson, sem hafa tekið
saman dagskrána og eru textarnir
sótti m.a. til Steins Steinarrs,
Gunnars M. Magnúss, Elíasar
Mar o.fl.
Aðrir textahöfundar eru m.a.
Hulda, Halldór Laxness, Jón úr
Vör og Bertold Brecht. Lögin
eru m.a. eftir Cole Porter.
Einnig munu hanga uppi í and-
dyri Samkomuhússins myndir frá
stríðsárunum.
Aðgöngumiðar eru seldir við
innganginn.
Anna Richards:
Dansleikflmi og spuni
vetrarstarfið að heflast
Vetrarstarfið er að fara í gang hjá
Önnu Richards í dansleikfimi og
spuna. í dansleikfimi fyrir konur
eru bæði tímar fyrir byrjendur og
Eins og undanfarin ár, verður
boðið upp á villibráðarkvöld í
Smiðjunni á Akureyri. Sú
nýbreytni verður þó tekin upp að
þessu sinni, að boðið verður upp
á slík kvöld daglega nú í haust og
fram á vetur en áður var aðeins
um vikutíma að ræða hverju
sinni.
Á þessum villibráðarkvöldum
verður boðið upp á fjölbreyttan
matseðil, sem samanstendur m.a.
af sniglum, villijurtapate, humri,
skelfiski. svartfugli, gæs og
hreindýrakjöti og síðar bætast á
Uppinn:
Sniglabandið
og píanisti
Sniglabandið hefur verið í heim-
sókn á Uppanum og spilaði þar í
gærkvöld. Sniglarnir verða aftur
á ferðinni í kvöld, föstudags-
kvöld.
Frá laugardegi fram á miðviku-
dag mun hinn kunni píanisti K.C.
Jones skemmta á Úppanum og
verður það jafnframt í fyrsta sinn
á Islandi.
Enginn er krafinn um aðgangs-
eyri á Uppanum frekar en fyrri
daginn.
Icngra komna, einnig morgun-
tímar og teygjutímar.
Sérstakur offituhópur hefur
verið stofnaður fyrir þá sem lang-
matseðilinn rjúpur og endur.
í hverri viku verður boðið upp
á nýja rétti og verður matseðill-
inn auglýstur nánar hverju sinni.
Fyrsta villbráðarkvöldið að þessu
sinni verður í kvöld og auk þess
sem boðið verður upp á glæsileg-
an matseðil. mun Þorvaldur Hall-
grímsson leika á píanó sem fyrr
fyrir matargesti.
Bílaklúbbur Akureyrar heldur
um helgina íslandsmeistara-
keppnir í torfæruakstri og sand-
spyrnu.
Á laugardag fer fram Pepsi tor-
færukeppni á Glerárdal norðan
Glerár og er keppnin liður í
íslandsmeistaramótinu í ár.
Keppni hefst klukkan 14.00 og
eru allir helstu keppnisbílar
landsins skráðir til leiks og er von
á miklum átökum. Veðurspá er
góð og búist er við að þetta verði
einn af hápunktum sumarsins í
bílaíþróttunum.
Á sunnudag fer fram Pepsi
sandspyrnukeppni á sandeyrun-
unt fyrir neðan Hrafnagil sunnan
ar til að koma sér af stað í hreyf-
ingu en kæra sig ekki um að vera
með öðrum til að byrja með.
Þessir tímar eru á kvöídin, frá
21.30-22.30,
Spuni fyrir börn (9-12 ára)
byggir á skapandi hreyfingum,
hugmyndaflugi barnanna og leik-
rænni tjáningu, Einnig er boðið
upp á spunadans fyrir unglinga
og fullorðna. í þeim tímum lærir
fólk að hreyfa sig öðruvísi en það
er vant og fá meðvitund fyrir
h'kamanum, rytma og rými.
Samhliða dansi er gefin innsýn í
kóreógrafíu.
Tímarnir hefjast 17. september
og fer kennsla fram á Bjargi.
Sturta og gufubað fylgir hverjum
tírna. Skráning fer fram í síma
27678.
Akureyrar (gegnt Blómaskálan-
um Vín). í sandspyrnu er keppt
um það hver er fljótastur að fara
91,44 metra á sem stystum tíma
og eru þeir fljótustu ekki nema
rúmar 4 sekúndur að renna
skeiðið. Fullkominn rafeinda-
búnaður er notaður til tímamæl-
inga.
Til keppni er skráður á þriðja
tug ökutækja, jeppar, fólksbílar,
mótorhjól, vélsleðar o.fl. Hátt í
þúsund hestafla kvartmílugrind-
ur eru skráðar til leiks (m.a. ísl.
meistarinn) svo að líklegt má
telja að íslandsmet verði slegið á
sunnudaginn. Keppni hefst klukk-
an 14.00.
Bílaklúbbur Akureyrar.
Villibráðarkvöld
í Simðjumri
Torfærukeppiri á laugardag
- sandspyrna á sunnudag