Dagur - 14.09.1990, Page 5
Föstudagur 14. september 1990 - DAGUR - 5
Sýning 1 Gamla Lundi:
Hreinn og óskemmdur myndlistarmaður
Augnaveisla nefnist sýning sem
Ríkarður III frá Húsavík opnar í
Gamla Lundi nk laugardag 15.
sept. kl. 14. Sýningin verðuropin
til sunnudagsins 24. sept. frá kl.
18-22 virka daga og frá kl. 14-18
um helgar.
A sýningunni verða 25 verk;
krítar- og pennateikningar og
myndir unnar með blandaðri
tækni. Augnaveisla er önnur
einkasýning Ríkarðs III en hann
hefur einnig tekið þátt í samsýn-
ingu.
Aðspurður um nafn sýningar-
innar sagði Ríkarður III að það
væri einfaldlega staðreynd. Hann
- segir Ríkarður III.
sagðist orðið vinna mikið út frá
reglum æðsta prests súrrealista,
André Breton, um súrreaiistíska
ljóðið, einnig eftir reglum Salva-
dors Dali og Max Ernst um
hvernig eigi að mála súrrealiskt
málverk. „Til að gera langa sögu
stutta er ég bara súrrealisti. Mér
er meinilla við að fara að læra
myndlist en er að flytja suður og
ætla að sækja námskeið. Ég vil
meina að ég sé hreinn og
óskemmdur myndlistarmaður en
að nám mundi breyta því. Ég
ætla á námskeið til að læra
aðferðir en ekki í langan skóla til
að læra að vera annað en ég er,“
sagði Ríkarður III.
VÁTRYGGINGAIÉLAG íslands hf W
Tilboð óskast í eftirtalin ökutæki, sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum.
Peugeot 309 GTi .. árg. 1989
MMC Lancer GL .. árg. 1989
Toyota Corolla 1300 HB .. árg. 1988
Subaru 1800 st .. árg. 1988
MMC Pajero Turbo D .. árg. 1987
Polonez 1500 .. árg. 1988
Ford Escort 1300 LX .. árg. 1984
Daihatsu Charm. LGX .. árg. 1982
Volvo 245 DL .. árg. 1978
Ökutækin verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð VÍS
að Furuvöllum 11, Akureyri, mánudaginn 17. sept.
nk. frá kl. 8.00 til 16.00.
Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 16.00.
Vátryggingafélag íslands hf.
Svæðisskrifstofa Akureyri.
Norðanpiltar
skemmta
í Hrísey
á sunnudag
Næstkomandi sunnudag kl.
16.00, skemmta Norðanpiltar
Hríseyingum í Sæborg.
Hljómsveitina Norðanpilta
skipa þeir Guðbrandur Siglaugs-
son, Jón Laxdal Halldórsson og
Kristján Pétur Sigurðsson. Peir
piltar hafa allir starfað í öðrum
hljómsveitum áður og auk þess
getið sér gott orð á sviði bók-
mennta og lista.
Dagskrá sveitarinnar er blönd-
uð tali og tónum; rytma-blús og
dansi sem flestum fellur vel í geð.
Umboðsmaður Norðanpilta er
Halldór G. Pétursson og sími
hans er 96-22983.
Skákfélag Akureyrar:
Haustmótið
að hefjast
Haustmót Skákfélags Akureyrar
hefst sunnudaginn 16. september
næstkomandi kl. 14.00 í skák-
heimilinu við Þingvallastræti.
Pátttöku skal tilkynna til stjórn-
armanna í síðasta lagi fyrir
hádegi laugardaginn 15. sept-
ember.
Tímamörk í Haustmótinu eru
40 leikir á 2 klukkustundum og
síðan 1/2 klukkustund til að ljúka
skákinni. Teflt verður í riðlum ef
næg þátttaka fæst.
Haustmótið mun standa yfir til
9. október og verður jafnan teflt
á þriðjudögum og föstudögum.