Dagur - 14.09.1990, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 14. september 1990
Höldum uppi gamalli Miðgarðsstemmnmgu
- rætt við Sigurð Þorvaldsson, Hallfríði Friðriksdóttur og syni í Stryn í Noregi
„Petta átti bara að vera eitt ár en
nú 10 árum síðar erum við enn
hér. Hvort við snúum heim til
íslands er erfitt að segja um en
því er ekki að leyna að eftir því
sem lengri tími líður þá verður
erfiðara að hreyfa sig.“ Svo mæla
hjónin Sigurður Þorvaldsson og
Hallfríður Friðriksdóttir frá
Sauðárkróki en þau búa, ásamt
sonum sínum tveim, í Stryn í
Noregi.
Fjölskyldan stóð á krossgötunv
árið 1980. Þau höfðu þá selt tísku-
vöruverslun sem þau höfðu rekið
á Sauðárkróki. „Við vorum að
velta ýmsu fyrir okkur en létum
slag standa og fluttum hingað til
Noregs,“ sagði Hallfríður.
Reyndar var það ekki flutningur
út í óvissuna því bæði höfðu
hjónin dvaiið í Noregi áður,
Sigurður í 'A ár í Drammen að
læra minkarækt þegar hann var
17 ára og Hallfríður hafði gengið
í lýðháskóla einn vetur árið 1969.
„Þar eignaðist ég mjög góða vin-
konu sem hvatti okkur til að
koma. Ef hennar hvatning hefði
ekki komið til þá hefðum við
varla lagt í þetta með tvo unga
stráka,“ sagði Hallfríður hugsi á
svip.
Fjölskyldan á góðum degi í Stryn. Frá vinstri Jóhann Sigurðsson, Sigurður Þorvaldsson, Hallfríður Friðriksdóttir og
Davíð Sigurðsson.
Byrjaði í byggingarvinnu
Eftir að til Noregs kom fór heim-
ilisfaðirinn að vinna fyrir fjöl-
skyldunni með almennri bygging-
arvinnu og síðar sem barþjónn á
hóteli í bænum. En verslunar-'
mennskan var alltaf ofarlega í
huga og fljótlega eftir að fjöl-
skyldan fluttist búferlum setti
Sigurður á stofn heildverslun.
Síðan setti hann auglýsingu í
Morgunblaðið þar sem hann lýsti
yfir áhuga á að komast í samband
við íslensk fyrirtæki sem hefðu
hug á útflutningi til Noregs.
„Vinnan á hótelinu hentaði
mér vel því hún var alltaf á
kvöldin og þá gat ég dundað við
verslunina á daginn. Umsvifin
jukust jafnt og þétt og árð 1983
sneri ég mér alfarið að innflutn-
ingnum," segir Sigurður. „í gegn-
um auglýsinguna í Morgunblað-
inu komst ég í kynni við fyrirtæk-
ið Árblik sem Ólafur Ólafsson
núverandi forstjóri Álafoss var
aðalmaðurinn í. Ullarvörur frá
því fyrirtæki hafa síðan þá verið
meginhluti af viðskiptum mínum
hér í Noregi. Einnig höfum við
flutt inn keramikvörur frá Glit og
íþróttavörur frá Henson," bætir
hann við.
Jóhann, eldri sonur þeirra hjóna, er liðtækur knattspyrnumaður og leikur
með þriðjudeildarliði Stryn í Noregi. Jóhann, sem er 19 ára gamall, hefur
nýlega lokið stúdentsprófi og hyggst láta atvinnumöguleikana með fram-
haldið. Hann er hér ■ fullum skrúða Stryn-liðsins með Hallfríði móður sinni.
Sauðkrækingarnir Sigurður og Hallfríður umvaFin íslenskum ullarpeysum frá Árbliki í versluninni í Stryn.
✓
Icewear en ekki Alafoss
út um allt
Viðskiptin gengu vel og tvöföld-
uðust umsvif fyrirtækisins frá ári
til árs allt fram til 1987. Þá varð
mikil kollsteypa í norsku efna-
hagslífi og varð Sigurður illilega
var við þann samdrátt. Mörg
fyrirtæki fóru á hausinn og tapaði
Sigurður töluverðum peningum í
því bakslagi. En ýmis teikn eru
nú á lofti að bjartara sé framund-
an í norskum efnahag og segist
Sigurður því vera bjartsýnn á
framtíöina.
Álafoss hefur löngum verið í
fararbroddi í útflutningi á
íslenskum ullarfatnaði og það
vekur því athygli að í verslunum í
Noregi sjást varla vörur frá því
fyrirtæki. Hins vegar eru vörur
frá Árbliki, undir vörumerkinu
Icewear, víða í ferðamannaversl-
unum. Hefur Sigurði tekist að
bola „risanum" af norska mark-
aðinum? Hann brosir við og seg-
ist nú síður vilja ræða um sam-
keppnisaðila í þessu viðtali. Þeg-
ar gamli Álafoss og Sambandið
hafi sameinast hafi sú stefna ver-
ið tekin að selja einungis beint til
neytenda. Þar hafi myndast
tómarúm sem hafi hentað Icewe-
ar mjög vel. Ástæðuna fyrir því
að Álafoss hætti að selja í búðir
segist Sigurður ekki vita en þeir
hljóti að vera sáttir við þennan
heimamarkað.
ísland eyja úti fyrir
ströndum Noregs
Helstu viðskiptaaðilar heildsöl-
unnar eru ferðamannaverslanir
og segir Sigurður að Japanir séu
orðnir stærstu kaupendur að
íslensku peysunum. Ekki virðist
það skipta ferðamennina máli
þótt flíkin sé ekki framleidd í
Noregi, enda eru Norðurlöndin
að mestu leyti ein heild í þeirra
augum. „Besta röksemdin fyrir
því að kaupa íslenska peysu kem-
ur þó frá eiganda einnar stærstu
ferðamannaverslunarinnar í
Osló. Hún segir ætíð við
japönsku ferðamennina að Island
sé eyja skammt frá ströndum
Noregs sem byggst hafi af norsk-
um útlögum fyrir um 1000 árum
síðan. Þetta finnst Japönunum
voðalega spennandi og kaupa
jafnvel enn meira fyrir vikið,"
segir Sigurður hlæjandi.
Spurningunni um hvort Noreg-
ur sé fýsilegur markaður fyrir
íslenskar vörur svarar Sauð-
krækingurinn hiklaust játandi.
„Það er stór óplægður akur fyrir
íslenskar iðnaðarvörur hér í
landi,“ segir hann. „Það virðist
hins vegar vanta þor og frum-
kvæði hjá' mörgum íslenskum
fyrirtækjum að flytja út. Ég hef
skrifað mörgum fyrirtækjum
heima á Fróni og beðið um sýnis-
horn af framleiðslu þeirra en lítil
viðbrögð fengið. Mörg þessara
fyrirtækja eru að vísu smá að
vexti og láta sér því innlendan
markað nægja. Það er því spurn-
ing hvort Útflutningsráð geti ekki
hjálpað þessum fyrirtækjum
meira að markaðssetja vörur sín-
ar á t.d. Noregsmarkaði. Nú þeg-
ar sameiginlegur Evrópumarkað-
ur er að verða að veruleika og
nýir möguleikar að opnast í A,-
Evrópu þá er nauðsynlegt fyrir
Islendinga að nýta sér þau tæki-
færi sem þar gefast,“ segir
Sigurður.
íslendingar ekki líkir
Norðmönnum
Nú sigldu forfeður okkar frá Nor-
egi fyrir rúmum 1000 árum. Ætli
íslendingar í dag eigi mikið sam-
eiginlegt með frændum okkar í
hinu forna ríki Haraldar hár-
fagra? Hallfríður hugsaði sig um
en svaraði svo:
„Fyrstu árin fannst mér flest
vera öðruvísi hér í Noregi. Nú
þegar við erum búin að vera hér
svona lengi þá er ég ekki eins
viss.“ Sigurður er hins vegar ekki
í vafa með samanburðinn. „Við
erum ekki líkir Norðmönnum.
Hér ganga hlutirnir hægar fyrir
sig en hins vegar finnst mér betra
að treysta Norðmönnum. Þar á
ég aðallega við í viðskiptum.
íslendingar eru of oft að lofa ein-
hverju upp í ermina á sér sem
þeir geta engan veginn staðið við.
Norðmennirnir lofa aftur á móti
ekki neinu nema að þeir treysti
sér til að standa við það. Einnig
finnst mér áberandi hve íslend-
ingar eru miklu meira uppteknir
af veraldlegum gæöum. Norð-
menn eru ekkert að stressa sig á
því að keyra um á sem dýrustum
bílum eða eiga sem flottust borð-
stofuhúsgögn. Af þessu gætum
við íslendingar margt lært,“ segir
hann.
Mælum ekki með að flytja
til útlanda
Þegar harðnar á dalnum heima á
Fróni leita margir ísiendingar til
Norðurlandanna í leit að betra
lífi. Það er því ekki úr vegi að
spyrja hjón sem búið hafa erlend-
is í 10 ár hvort þau ráðleggi fólki
að flytjast búferlum. Það er
Sigurður sem hefur orðið:
„Þó það hljómi frekar sér-
kennilega þá mæli ég ekki með
því fyrir neinn að flytja erlendis,
sérstaklega ekki fjölskyldufólk.
Við höfum að vísu verið heppin
og verið fljót að aðlagast aðstæð-
um. Einnig gekk það ótrúlega vel
fyrir strákana að finna sig hér í
Noregi en það eru oft krakkarnir
sem eiga í erfiðleikum og það
skapar spennu hjá mörgum fjöl-
skyldum. Það er hægara sagt en
gert að rífa sig upp með rótum og
flytja í nýtt umhverfi, jafnvel
þótt það sé ekki lengra en hingað
til Norðurlandanna," segir fjöl-
skyldufaðirinn.
Hallfríður tekur í sama streng
og segir að það hafi tekið sig
langan tíma að sætta sig við að
vera flutt. „Það er svo margt sem
maður saknar; fjölskyldunnar,
vina og umhverfisins. Ég held