Dagur - 14.09.1990, Side 7
Föstudagur 14. september 1990 - DAGUR - 7
„Ullarvörur frá Árbliki hafa verið meginhluti af viðskiptum mínum hér í
Noregi. Einnig höfum við flutt inn keramikvörur frá Gliti og íþróttavörur frá
Henson,“ segir Sigurður. Hann er hér fyrir utan vcrslun sína í Stryn og bend-
ir á vörumerkið ICEWARE, en undir því selur Árblik vörur sínar í Noregi.
Myndir: Andrés Pctursson
alltaf í vonina að einhvertíma
munum við flytja heim aftur. Við
höfum hins vegar byggt okkur
hér hús og staðið í öðrum fjár-
festingum þannig að við hlaupum
ekki frá því. Einnig má segja að
meðan innflutingurinn gengur vel
þá væri glapræði að flytja frá því.
En maður verður nú að láta sig
dreyma," segir hún glettin á svip
og brosir til eiginmannsins.
Sá yngri á Hóla
en sá eldri í fótboltann
Synir þeirra hjóna, Davíð 15 ára
og Jóhann 19 ára, segjast enn
ekki vera ákveðnir hvort þeir
rnúhi setjast að í Noregi eða á ís-
landi. Davíð segist þó ætla að
fara í Bændaskólann að Hólum
eftir að skyldunáminu lýkur enda
hefur hann undanfarin sumur
dvalið hjá afa sínum og ömmu á
Þrastarstöðum í Skagafirði.
Jóhann er ekki eins ákveðinn.
Hann var að ljúka stúdentsprófi
og segist ætla að láta atvinnu-
möguleikana ráða. Jóhann er
mjög liðtækur knattspyrnumaður
og er fastur maður í liði Stryn
sem leikur í norsku 3. deildinni.
Aðspurður kvaðst hann alveg
vilja prófa að spila með íslensku
liði til reynslu í einhvern tíma.
Þegar hann er beðinn að bera
saman íslenska og norska deild-
arkeppni segir hann að ætíð sé
erfitt að bera saman á milli landa.
Að öllum líkindum myndi þó
Strynliðið vera í neðri hluta 2.
deildar á íslandi.
Söknum íslenska matsins
Klukkan er orðin 16.00 er viðtal-
inu lýkur og er það vel því þá er
tími til kominn að loka búðinni.
Vinnudegi flestra Norðmanna
lýkur um það leytið og segja
þau Sigurður og Hallfríður það
vera ósköp notalegt. Kvöldmat-
urinn er yfirleitt snæddur um
fimmleytið og er blaðamannin-
um boðið til kvöldverðar með
fjölskyldunni. Á borðum er
íslenskt saltkjöt og verður gestur-
inn hálfundrandi að sjá slíkt sæl-
gæti á borðum í smáfirði í Vest-
ur-Noregi.
„Við eigum góða að heima á
Fróni," segir Hallfríður til
skýringar. „Fjölskyldur okkar
vita hvað okkur finnst góður
íslenskur matur og senda þvi
matarpakka við og við með
alvöru íslenskum mat.“ „Síðan
förum við alltaf reglulega til
íslands og þá tökum við alltaf
töluvert af mat með okkur
hingað,“ segir Sigurður. „Enda
er hangikjötið, saltfiskurinn og
harðfiskurinn það sem ég sakna
einna messt að heiman,“ bætir
hann við og strýkur makindalega
um magann á sér.
Eftir notalega heimsókn er
tími til kominn að kveðja enda
eru hjónin á leið á kóræfingu.
Þau hafa verið virk í starfsemi
samkórs Stryn undanfarin ár
„enda nauðsynlegt að halda við
gamalli hefð úr Miðgarði," segja
þau hlæjandi er þau kveðja Dags-
manninn.
Myndir og texti:
Andrés Pétursson.
Veiði í Miðfirði lokið:
Aðeins röskur helmingur af
meðalveiði síðustu 15 ára
- um 770 laxar komu á land
„Já, veiðinni er lokið hjá okk-
ur og reyndist í heild um 770-
780 fískar. í fyrra varð veiðin
1170 fískar þannig að heldur er
þetta slakar í ár,“ segir Böðvar
Sigvaldason á Barði í Miðfírði
um veiðina í Miðfjarðaránni.
Böðvar segir að meðalveiði
síðustu 10-15 ára sé um 1500 fisk-
ar á ári en veiðin í ár er önnur sú
slakasta á þessu tímabili.
„Við vissum það í fyrra að lítið
fór út af seiðum. Hefðu endur-
heimtur verið í meðallagi þá
hefði veiðin orðið þokkaleg en
svo varð ekki. Það gefur auga
leið að mikill munur er á því
hvort endurheimturnar eru 1 eða
10%,“ sagði Böðvar.
Sé reynt að horfa aðeins fram í
tímann má með nokkrum sanni
segja að útlitið sé ekki slæmt.
Böðvar segir að menn hafi vitn-
eskju um að mikið hafi gengið til
sjávar af seiðum en ekki sé hægt
að lofa neinu um endurheimtur á
þeim. „Við höfum ástæðu til að
vera bjartsýnir en spurningin er
um heimturnar því með 1%
Umsjón:
Jóhann Ólafur
Halldórsson.
Adðiklóin
heimtum er enginn glæsileiki á
ferðinni en allt önnur staða uppil
ef 10% gengju til baka í ána. Nú
er að heyra sem ástand í sjónum
sé talsvert betra en það hefur ver-
ið að undanförnu en þá þarf ekki
annað en einhverjar aðrar slæm-
ar aóstæður breyti myndinni,"
segir Böðvar.
Veiðinni lauk þann 10. sept-
ember. Lengstum tímabilsins var
lítið vatn í ánni en undir lok
ágústmánaðar rigndi mikið og
segir Böðvar að eftir það hafi
veiðin veriö mjög erfið. Stærsti
fiskur sumarsins var 23 pund,
veiddur af Einari Tryggvasyni í
Austurá. JÓH
Árnar við Eyjaíjörð:
Enn veiðivon á
síðustu veiðidögunum
- gott veiðitímabil í Hörgá og Eyjaijarðará
Aðspuröur um veiðina í ánum
við Eyjafjörð segir Einar Long
í versluninni Eyfjörð á Akur-
eyri að nú sé farið að líöa að
lokum veiðitímabilsins en enn
sé ágæt veiðivon. Ohætt er að
segja að tímabilið í Eyjafjarð-
ará og Hörgá hefur verið gott
Laxá í Aðaldal:
Margir „hákarlar“
Þeir voru nokkrir stórlaxarnir
sem létu gabbast af ögnum
veiðimanna við Laxá á síð-
ustu dögum veiðitímabilsins.
Eins og fram kom í blaðinu
fyrr í vikunni landaöi Margrét
Kristinsdóttir 22ja punda laxi
á síðasta veiðideginum og
krækti þar með í stærsta físk
sumarsins á svæðum Laxár-
félagsins og veiddan af félags-
manni. Stærsti fískurinn í
sumar var hins vegar veiddur
af Bandaríkjamanni á Nes-
svæðinu en laxinn vó 26
pund.
Veiðinni lauk í Laxá síðast-
liöið sunnudagskvöld og þá
höfðu komiö 1510 fiskar á land
á sumrinu. Af þessu veiddust
um 1100 fiskar á svæðum Laxár-
íélagsins. Heildarveiðin í ánni á
suntrinu er um 100 löxum minni
en i fyrrasumar.
Meðalþyngd laxanna úr ánni
rnun vera ágæt þetta árið enda
nokkuð mikið urn stórlaxa.
Þannig munu hafa komiö um
eða yfir 30 laxar á land sem
reyndust 20 pund eða meira.
JÓH
og laxveiðin í Fnjóská stefnir í
aö verða svipuð og í fyrra.
Hörgá og Eyjafjarðará verður
lokað þann 20. september. Mikil
bleikjuveiði var í Eyjafjarðar-
ánni í sumar og þar komu á tíma-
bili um 100 bleikjur á land dag-
lega sem er með þvi' besta sem
gerist í ánni. „Já, ég hefði haldið
að þctta sé með betri sumrum í
Eyjafjarðaránni og sömu sögu er
að segja um Hörgá,“ segir Einar.
Síðasti veiðidagur í Fnjóska er
17. september og síðast þegar
fréttist voru komnir 110 laxar á
land. í fyrra urðu þeir 120 í hcild-
ina þannig að veiðin er nánast sú
sama þessi tvö sumur.
Um 140 hafbeitarlöxum var
sleppt í Þorvaldsdalsá á Árskógs-
strönd í sumar og þar eru 80 laxar
komnir á land. Af þessum löxum
eru 6 á neðsta svæðinu í ánni og
er þar um að ræða göngufisk.
Stærsti laxinn í ánni var 20 pund
en hann var veiddur á opnunar-
degi í ánni af Heiðari lnga
Ágústssyni. Bleikjuveiðin í Þor-
valdsdalsánni hefur einnig verið
góð því komnar eru 520 bleikjur
á eina stöng. JÓH
Bílasala • Bílaskipti
Toyota Landcruser langur, turbo, disel, Mazda 626 2000 GLX,
árg. '88, ek. 61 þús., verö 2.950.000,- þús., verð 1.060.000,-
mmmmmmmm^^a jh ......
'88, ék. 42 Saab 9001, árg. '87, ek. 50 þús., verð xovota Camry XL station, árg. '87, ek. 47
1.050.000,- ---------
þús„ verð 890.000,
CH Monza SLE, árg. '87, ek. 35 þús" verð
550.000,-
‘Suzukí SJ-410, árg.
720.000,-
B, ek. 27 þús., verð MMC Space Wagon 4x4, 7 manna,
'88, ek. 38 þús., verð 1.150.000,-
Toyota Corolla Twin Cam, árg. '87, ek. 41
þús„ verð 870.000,-
Vegna mikillar sölu
vantar bíla
á staðinn.
nílASALINN
Möldursf.
bíiasaia
við Hvannavelii.
Simar 24119 og 24170.