Dagur - 14.09.1990, Page 9
Föstudagur 14. september 1990 - DAGUR - 9
Orlofshúsin að Hrísum:
Bjóða ókeypís gistingu
í kyrniingarskyni
Að Hrísum í Saurbæjarhreppi
eru þrjú orlofshús, og hafa þau
verið reist á tveimur árum á jörð-
inni. Feðgarnir á Hrísum, þeir
Sveinbjörn Halldórsson og synir'
hans Sigurgísli, Sveinbjörn og
Tryggvi, reka í sameiningu fyrir-
tækið Hrís sf., ásamt fjölskyldum
sínum, en það hefur með orlofs-
húsin að gera.
Fyrir tveimur árum reis fyrsta
orlofshúsið í landi Hrísa. Húsið
rúmar sex manns, og var til-
gangurinn með byggingu þess að
stofna til ferðaþjónustu árið um
kring. Reksturinn gekk það vel
að feðgarnir sáu ástæðu til að
auka við húsakostinn, og síðasta
sumar risu tvö myndarleg orlofs-
hús til viðbótar. Húsin eru öll af
sömu stærð, rúma sex fulloröna
hvert og eru búin bestu aðstöðu
og búnaði sem völ er á. I öllum
húsunum er bað, heitt og kalt
vatn, eldavél, örbylgjuofn og
margt fleira sem of langt mál yrði
að telja upp.
Sigurgísli Sveinbjörnsson hef-
ur daglega umsjón með rekstrin-
um. Hann segir að þetta framtak
þeirra Hrísamanna hafi fallið í
góðan jarðveg, og töluverð eftir-
spurn er eftir orlofshúsunum. Pó
vantar nokkuð á að Akureyring-
ar viti nægilega vel um þá mögu-
leika sem þarna bjóðast, og því
hefur verið ákveðið að bjóða
fólki ókeypis gistingu í húsunum
þegar laust er, fram til loka
nóvember.
í spjalli við Dag segist Sigur-
gísli ekki vera í vafa um að fólk
hafi áhuga á að notfæra sér þetta
sérstaka tilboð, en eins og allir
vita er ekki algengt að boðið sé
upp á ókeypis gistingu í orlofs-
húsum hér á landi, hvað þá er-
lendis.
Eldhúskrókur í orlofshúsi að Hrísum.
Náttúrufegurð er mikil á þess-
um slóðum, og margir róma þá
kyrrð og ró sem ríkir þarna, ekki
síst á kyrrlátum haustkvöldum.
Skemmtilegar gönguleiðir eru
einnig víða í nágrenninu, og allir
eiga að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi.
Hrísar eru ekki langt frá Akur-
eyri, og að vetrinum ætti. að vera
auðvelt að nota húsin fyrir skíða-
fólk sem vill fara í Hlíðarfjall.
Svo dæmi sé tekið þá er miklu
styttra að aka frá Hrísum til
Akureyrar en frá Reykjavík til
Bláfjalla.
Fjölmenn ættarmót hafa verið
haldin á Hrísum, þar af tvö síð-
asta sumar. í þau skipti voru öll
orlofshúsin lögð undir ættarmót,
en hundruð manna gistu í tjöld-
um á landareigninni.
Feðgarnir á Hrísum leggja
mikið upp úr því að rækta landið
og klæða það trjágróðri. Átján
Feðgarnir hafa lagt metnað sinn í að búa húsin sem best úr garði.
Átján þúsund trjáplöntur hafa verið gróðursettar á Hrísum. Myndir: ehb
þúsund plöntur hafa veriö
gróðursettar á jörðinni, og er
árangur af því starfi þegar kom-
inn í ljós að hluta. Um framtíðar-
áforrn er það að segja að feðgarn-
ir hyggjast bjóða upp á laxveiöi
úr tjörn og aðstöðu til golfiðkun-
ar, ásamt fleiru sem er í deigl-
unni.
Sigurgísli vildi að lokum béina
því til fólks sem áhuga hefur á að
notfæra sér orlofshúsin og tilboð-
ið um ókeypis gistingu. EHB
Villibráðarmatsedill Smiðjmmar
Villibráðarkjötseyði gratinerað með gráðosti.
★ ☆ ★
Ofnbakaðir sniglar með hvítlauksbrauði.
★ ☆ ★
Rjóinasoðinn skötuselur með humarliöliun.
★ ☆ ★
Madeirasteiktar svartíuglsbringnr með
sykurbrúnuðum kartöflum.
★ ☆ ★
Ofnsteilrt villigæs með Waldorfsalati.
★ ☆ ★
Hreindýramedalíur mcð rjómasoðnum
kartöflum.
★ ☆ ★
Bláber með vaniUurjómaís.
Þorvaldur leikur á píanóid.
Nýr villibráðamiatseðill á hveiju kvöldi
fram að jólum.
Borðapantanir í síma 21818.
í kjörbúðum
Fyrir sláturtíðina
Rúgmjögl - Kornax 2 kg
Salt - gróft 1 kg
Salt - f ínt 1 kg
Hafragrjón - Nemlí 1 kg
Eldhúsrúllur 4 í pakka kr. 180
kr. 93
kr. 40
kr. 32
kr. 87
Kjörbúðir KEA
K
Minnisblað
□ Matvælapokar 4 stærðir □
□ Saltpétur □
□ Rúllupylsukrydd □
□ Sláturgarn □
□ Rúllupylsugarn □
□ Sláturnálar □
□ Matvælabox - ál og plast □