Dagur - 14.09.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Föstudagur 14. september 1990
ÁRLAND
myndasögur dags
ANDRÉS ÖND
ÆÆÆÆÆ! Sá Þetta er
stóri hefur náö þari, fífl-
mér... Þetta er mitt ið þitt.
HERSIR
BJARGVÆTTIRNIR
# Hjólbarða
raunir
Bíleigendur þurfa flestir að
skipta við hjólbarðaverk-
stæði tvisvar á ári, þ.e. vor og
haust, þvi ekkí dugar að aka
á negldum hjólbörðum um
sumarið, þaðan af síður á
sumarhjólbörðum í hálkunni,
enda bannað með lögum.
Það var einmitt i tengslum
við slíka . árstíðabundna
umfelgun að maður einn kom
á hjólbarðaverkstæði. Hann
var frekar að flýta sér, og
samdi um það við dekkja-
manninn að fá að skilja bílinn
eftir meðan sumardekkin
væru sett undir. Á meðan brá
hann sér i bæinn. Klukku-
stund síðar kom hann aftur,
sótti bílinn og greiddi sinn
reikning. Að þvl búnu hélt
hann heimleiðis, en áður en
hann fór af verkstæðinu var
honum sagt að vetrardekkin
væru í skottinu. Maðurinn
lagði bílnum á sinn stað við
hús sitt, tók vetrardekkin og
setti þau upp við bílskúr
ásamt slöngunum.
# Dekkin hverfa
Daginn eftir var söguhetja
okkar snemma á fótum, og
hugðist aka til vinnu eins og
venjulega. Hann settist undir
stýri, en fannst bíllinn reyndar
vera frekar lágur á götunni,
og undarlegt hljóð heyréi
hann þegar reynt var að aka
af stað. Fór hann út, og skipti
þá engum togum að maður-
inn uppgötvar að bíllinn er
alveg hjólalaus. Hafði greini-
lega einhver sótt að honum
um nóttina og hirt dekkin
góðu. Maðurlnn snarast að
bílskúrnum og aðgætir
vetrardekkin. Þau voru líka
horfin, en fjórar slöngur hafði
þjófurinn skilið eftir á jörð-
inni. Hjá þeim lá pappaspjald,
og hafði verið krotað á það
„Takk fyrir lánið.“
# En sagan var
ekki öll...
Nokkru seinna uppgötvaði
bíleigandinn sem varð fyrir
þessum sérstæða þjófnaði
hver sökudólgurinn var.
Hann hugsaði sig um í
nokkra daga hvað væri tii
ráða, en þar sem hann var
seinþreyttur til vandræða
greip hann til þess ráðs að
skilja slöngurnar eftir við úti-
dyr þess óheiðarlega, og á
miða sem hann festi við skrif-
aði hann: „Þú gleymdir að
taka þetta.“ Undir þessu var
nafn og heimilisfang. Daginn
eftir var búið að skila dekkj-
unum aftur til rétts eiganda.
dagskrá fjölmiðla
kvöld kl. 22.30 er á dagskrá Sjónvarpsins bíómyndin Borgarasfríð, sem
fjallar um baráttu Kontra-skæruliðanna við sandinistastjórnina í Níkaragva.
Sjónvarpið
Föstudagur 14. september
17.50 Fjörkálfar (21).
(Alvin and the Chipmunks.)
18.20 Hraðboðar (4).
(Streetwise.)
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Poppkorn.
19.20 Leyniskjöl Piglets.
19.50 Dick Tracy.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Eddie Skoller (6).
Skemmtidagskrá með þessum fræga háð-
fugli.
Gestur hans í þessum þætti er Victor
Borge.
21.40 Bergerac (2).
22.30 Borgarastríð.
(Latino.)
Bandarísk bíómynd frá árinu 1985.
Myndin segir frá hernaðarráðgjafa hjá
kontraskæruliðum í Níkaragva en hann
fær efasemdir um réttmæti þeirra aðferða
sem honum er ætlað að beita í baráttunni
við sandínista.
Aðalhlutverk: Robert Beltran, Annette
Cordona og Tony Plana.
00.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Stöð 2
Föstudagur 14. september
16.45 Nágrannar.
(Neighbours.)
17.30 Túni og Tella.
17.35 Skófólkið.
17.40 Hetjur himingeimsins.
18.05 Hendersonkrakkarnir.
18.30 Bylmingur.
19.19 19.19
20.10 Kæri Jón.
(Dear John.)
20.35 Ferðast um tímann.
(Quantum Leap.)
21.25 Beinn í baki.#
(Walk Like a Man.)
Skemmtilegt tilbrigði við ævintýrið um
frumskógardrenginn.
Aðalhlutverk: Howie Mandel, Christopher
Lloyd og Cloris Leachman.
22.50 í ljósaskiptunum.
(Twilight Zone.)
23.15 Glæpaheimar.#
(Glitz.)
Sagan greinir fra Iögreglumanni sem er
að rannsaka morðið á vinstúlku sinni.
Aðalhlutverk: Jimmy Smits, Markie Post
og John Diehl.
Bönnuð börnum.
00.50 Brestir.
(Shattered Spirits.)
Myndin fjallar á átakanlegan hátt um þau
vandamál sem koma upp hjá fjölskyldu
þegar annað foreldrið er áfengissjúkling-
ur.
Aðalhlutverk: Martin Sheen, Melinda
Dillon, Matthew Laborteaux og Lukas
Haas.
Bönnuð börnum.
02.20 Dagskrárlok.
Rás 1
Föstudagur 14. september
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15.
Auglýsingar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30
og 9.00.
9.00 Fróttir.
9.03 Litli barnatíminn: „Á Saltkráku"
eftir Astrid Lindgren.
Silja Aðalsteinsdóttir les þýðingu sína
(30).
9.20 Morgunleikfimi - Trimm og teygjur.
9.30 Innlit.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfrepnir.
10.30 Á ferð - I Vonarskarði og Nýjadal.
11.00 Fróttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Á dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug-
fýsingar.
13.00 í dagsins önn - Borgarholt og
Öskjuhlíð.
13.30 Miðdegissagan: „Ake“ eftir Wole
Soyinka.
Þorsteinn Helgason les (10).
14.00 Fróttir.
14.03 Ljúflingslög.
15.00 Fréttir.
15.03 í fréttum var þetta helst.
16.00 Fréttir.
16.03 Að utan.
16.10 Dagbókin.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi.
18.00 Fréttir.
18.03 Sumaraftann.
18.30 Tónlist • Auglýsingar • Dánarfregnir.
18.45 Veðurfregnir ■ Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Hljómplöturabb.
20.40 í Múlaþingi.
21.30 Sumarsagan: „Sendiferð" smásaga
eftir Raymond Carver.
Rúnar Helgi Vignisson þýðir og les.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins.
22.30 Danslög.
23.00 Kvöldgestir.
24.00 Fróttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Föstudagur 14. september
7.03 Morgunútvarpið - Vaknið tii lífsins.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur áfram.
9.03 Morgunsyrpa.
11.03 Sóiarsumar
með Jóhönnu Harðardóttur.
- Þarfaþing kl. 11.30.
12.00 Fréttayfirlit.
12.20 Hádegisfréttir.
- Sólarsumar heldur áfram.
14.10 Brot úr degi.
16.03 Dagskrá.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, sími 91-686090.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Söðlað um.
20.30 Gullskífan.
21.00 Á djasstónleikum.
22.07 Nætursól.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12,
12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
Næturútvarpið
1.00 Nóttin er ung.
2.00 Fréttir.
2.05 Gramm á fóninn.
3.00 Áfram ísland.
4.00 Fróttir.
4.05 Næturtónar.
4.30 Veðurfregnir.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
5.01 Á djasstónleikum.
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
6.01 Næturtónar.
7.00 Áfram ísland.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Föstudagur 14. september
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.35-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Föstudagur 14. september
07.00 Eirikur Jónsson.
09.00 Fréttir.
09.10 Páll Þorsteinsson.
12.00 Haraldur Gíslason.
14.00 Snorri Sturluson.
17.00 Síðdegisfréttir.
17.15 Reykjavík síðdegis.
18.30 Kvöldstemmning í Reykjavík.
22.00 Á næturvaktinni.
03.00 Freymóður T. Sigurðsson.
Hljóðbylgjan
Föstudagur 14. september
17.00-19.00 Axel Axelsson.