Dagur - 14.09.1990, Síða 11
Föstudagur 14. september 1990 - DAGUR - 11
67 ára gamall
og enn knapi
á stærstu kappreiða-
völlum Bandankjanna
Elsti knapi heims er án efa Willie
Clark sem nýlega átti 67 ára
afmæli. Hann er enn knapi á öll-
um stærstu kappreiðum sem
haldnar eru í Bandaríkjunum, og
oftar en ekki stendur hann uppi
sem sigurvegari !
Aðspurður hvort hann væri að
hætta sem knapi sagði sá gamli:
„Hætta? Þú hlýtur að vera að
gera að gamni þínu." Hann hefur
tekið þátt í um 10.500 kappreið-
um og hlotið verðlaun í um
3.500, en hann segist líka hafa
brotið nánast hvert bein í skrokkn-
um, þó ekki hægri handlegg.
Þrátt fyrir gömul meiðsli fer
Willie á hverjum morgni kl. 7 til
æfingasvæðisins Charles Town í
Virginíu til æfinga, og á kvöldin
tekur hann þátt í allt að fernum
kappreiðum. „Það er ekki hægt
að halda mér frá hestamennsku
og kappreiðum, en auðvitað fæ
ég verki í gömul bein sem hafa
brotnað, en mér hefur aldrei orð-
ið misdægurt og líður bara vel.
Ég sé fyrir mér gamalt fólk sitj-
andi í ruggustól við að horfa á
sjónvarp, og mér er ómögulegt
að skilja þetta fólk. Ég mundi
frekar skjóta mig en þurfa að
sitja í ruggustól!
Willie er aðeins 1,65 m að hæð
og 49 kg að þyngd, en hann borð-
ar mjög mikið. Hann vaknar oft
kl. 3 að nóttu og fær sér þá beikon
og egg, ristað brauð og kaffi. Kl.
6 fær hann sér kaffi og kleinu-
hringi áður en haldið er á æfinga-
svæðið. Þar fær hann hádeg-
isverð, og fær sér oft kaffi og
ostaköku í eftirmat. Á heimleið
kemur hann við á McDonald’s
skyndibitastað og fær sér „léttan"
skyndirétt. í kvöldmat er svo
kjötbúðingur, kjúklingar og
grænmeti áður en kvöldkappreið-
ar hefjast.
Hann segist þó ekki vera laus
við lesti því hann reyki pakka af
sígarettum á dag, en hann hann
drekki ekki - og hann veðjar
aldrei á hesta!!
Hvað gera Kanar á morgnana?
84% þrífa sig á einhvem hátt
- fáir fara á salernið
f nútímaþjóðfélagi þykir vissara
að kanna allt milli himins og
jarðar. íslendingar eru duglegir
við þetta eins og svo margt annað
en sennilega eru Bandaríkja-
menn þó fremstir allra. Nýlega
var gerð könnun á því hvað er
það fyrsta sem Bandaríkjamenn
gera eftir að þeir hafa skreiðst
fram úr rúminu á morgnana.
Menn geta nú sér til gamans
kannað listann. í könnuninni gat
hver maður nefnt nokkur atriði
sem hann eða hún tók sér fyrir
hendur snemma morguns. At-
hygli vekur að enginn virðist hafa
nefnt þá sjálfsögðu athöfn að fara
á salernið. En hér kemur banda-
ríski listinn:
- 84% bursta tennur, þvo sér í
framan og fara í sturtu.
- 55% hlusta á útvarp.
- 53% drekka kaffi.
- 53% búa um rúmin. Þetta gera
hins vegar aðeins 32% karla en
71% kvenna!
- 50% búa til morgunmat. Aftur
hafa konurnar vinninginn en
60% þeirra útbúa dögurðinn á
móti 40% karla.
- 49% kyssa makann.
- 35% lesa dagblað.
- 30% horfa á sjónvarp.
- 11% strauja.
- 7% hafa kynmök.
Pepsi torfæran 90!
Pepsi sanduriim 90!
Pepsi Cola og
Bílaklúbbur Akureyrar kynna!
Torfærukeppni á Glerárdal
laugardag kl. 14.00.
Tuttugu trylltustu torfærutryllitækin tætast um
dalinn í einni af villtustu torfærukeppni ársins.
Mætiö tímanlega til að forðast biðraðir, miða-
verð kr. 500,-
Sandspymukeppni viðHrafnagil
sunnudag kl. 14.00.
Ótrúlega fjölbreytileg og öflug tæki spyrna með
ísl.meistarann í broddi fylkingar á hátt í þúsund
hestafla grindinni sinni.
Verið vitni að ógurlegum átökum.
Miðaverð kr. 500,-
Báðar keppnirnar gefa stig til (slandsmeistara.
HÓTEL KEA
Hin jrábœra hljómsveit
Styrming
heldur uppi jjörinu
laugardagskvöld
Glœsilegur matseðill
Ingimar Eydal leikur fyrir matargesti
föstudags- og laugardagskvöld
Fjölskyldutilboð
ásunnudag
Sjávarréttasúpa og lambalœri „Bearnaise"
- Verð aðeins kr. 890, -
og að sjálfsögðu er ís fyrir þau börn
sem Ijúka við matinn sinn
Frítt fyrir börn 0-6 ára
V2 gjald fyrir börn 7-12 ára
Borðapantanir
fyrir matargesti
í síma 22200.
Hótel KEA
fyrir vel heppnada veislu
$