Dagur - 14.09.1990, Side 13
Föstudagur 14. september 1990 - DAGUR - 13
Minning:
Ý Brynja Riis Jensen
fædd Margrét Brynja Kristjánsdóttir
Briissel Belgíu
Fædd 20. júlí 1952 - Dáin 3. september 1990
í dag er til moldar borin viö hlið
móöur sinnar, móöurafa og
ömmu, frænka mín og vinkona
Brynja Riis Jensen. Brynja fædd-
ist á Akureyri 20. júlí 1952, dóttir
Huldu Pálsdóttur Vigfússonar af
Hákonarstaðaætt á Jökuldal og
Kristjáns Ingólfssonar frá Vfði-
hóli á Fjöllum.
Pað var sem dagurinn sortnaði
fyrir mér þegar mér barst sorgar-
fregnin um að Brynja væri látin,
langt um aldur fram í blóma
lífsins, frá eiginmanni sínum
Börge, Huldu nýfermdri og Tóm-
asi litla 7 ára. Er skammt stórra
högga á milli því móðir Brynju,
Hulda Pálsdóttir, lést í Kaup-
mannahöfn fyrir þremur árum
aðeins 55 ára gömul, mikil heið-
urskona.
Nú þegar Brynja er öll þá
vakna minningarnar um sam-
verustundir okkar gegnum árin
og þá sérstaklega er ég bjó hjá
henni í Reykjavík í íbúð móður
hennar sem þá var flutt til Dan-
merkur. Þær minningar eru sem
aðrar er ég á uin hana, ntinningar
um vináttu, hlýju og gleði.
Brynja vann í þá daga sem flug-
freyja en ég var í skóla og áttum
við að skipta með okkur kostnaði
við heimilishaldið. En einhvern
veginn var það svo að þegar kom
að mér að borga eitthvað voru
reikningarnir undarlega lágir og
hentuðu rnér auralitlum skóla-
strák furðu vel. Og margt kvöldið
sátum við saman og töluðum unt
svo margt milli himins og jarðar,
glettumst og hlógum. Brynja var
vel að sér í svo mörgu, hún var
heimskona.
Leiðir okkar Brynju fjarlægð-
ust þegar hún flutti til Kaup-
mannahafnar þar sem móðir
hennar rak verslun í Kristjáns-
höfn um árabil. f Danntörku
kynntist Brynja eftirlifandi eigin-
manni sínum Börge Riis Jensen
rafmagnsverkfræðingi frá Silki-
borg. Síðustu 10 árin hafa Brynja
og Börge ásamt börnunum
tveimur, Huldu nýfermdri og
Tómasi litla 7 ára, búið í Belgíu
og mega þau þrjú nú í sorg sinni
fylgja kærri eiginkonu og móður
heim yfir hafið hingað til Akur-
eyrar í hinsta sinn þar sent scýlin
brosti við Brynju nýfæddri fyrir
38 árunt þar sem hún mun nú
hvíla meðal ástvina sinna í fæð-
ingarbæ sínum.
Fjölskylda mín og móðir voru
svo lánsamar að fá að heimsækja
Brynju og fjölskyldu hennar síð-
astliðið vor og dvelja á rausnar-
heintili þeirra rúmlega hálfan
ntánuð. Eins og Brynju var líkt
bar hún okkur á höndum sér með
ástúð og höfðingsskap sem henni
og fjölskyldu hennar er í blóð
borið, þannig að erfitt var að fara
heint að fríi loknu. Glaðlyndi,
alúð og rausnarskapur þcirra var
slíkur að Inga konan mín heillað-
ist strax af þeim öllum, þótt luin
kynntist þeim þá í fyrsta sinn.
Hún og Brynja urðu góðvinir á
þeint skamma tíma er við dvöld-
um á heimili hennar og þegar við'
kvöddum þau var þegar farið að
undirbúa aðra heimsókn.
Brynja mín, nú þegar þú hefur
gengið á enda götu þessa lífs og
ert komin til betri heima. sem þú
efaðist aldrei um að tækju við að
leið okkar lokinni, þá sitjum við
eftir hnípin og ráðvillt en þær
góðu minningar sent þú skilur
eftir þig eru sá bautasteinn sem
þú reistir sjálfri þér með gæsku
þinni í lífinu og verður okkar
huggun.
Elsku Börge, Hulda ogTómas,
Kristján og synir, ég og fjöl-
skylda mín vottum ykkur dýpstu
samúð. Við höfum misst mikið,
en við eigum þó sjóð ntinninga
um góða konu sem við kveöjum
nú að sinni.
Baldvin H. Sigurðsson.
Sá sorglegi atburður gerðist þann
3. sept 1990, frænka mín og
nafna, Brynja Riis Jensen, lést á
heimili sínu í Belgíu aðeins 38
ára að aldri.
Þessi atburður sló okkur öll
hér heima. Að hún Brynja okkar
væri látin, eins og hún var
lífsglöð, hún var alltaf hlæjandi
og kát en þannig minnist ég
hcnnar.
Þó að ég hafi ekki haft mikið
samband viö hana síðustu árin,
þá fréttum við alltaf af henni og
börnum hennar þeint Huldu Ósk
og Thomasi.
Ég minnist þess, þegar ég var
barn, að það voru með skemmti-
legustu stundunum þegar hún
kom í heintsókn og dvaldist á
heimili foreldra ntinna í nokkra
daga. Þá datt henni margt
skemmtilegt í hug og við systkin-
in og foreldrar okkar áttum
margar góðar og skemmtilegar
stundir saman. Viö munum
geyma þessar góðu stundir í huga
okkar og sakna þess að fá ekki að
heyra hlátur hennar framar.
Megi þú hvíla í friði nafna
ntín. Brynja frænka.
O.A. Samtökin.
Fundir alla mánudaga kl. 20.30 í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
Nú hefst vetrarstarfið um þessa
helgi.
Laugardagur: Laugardagsfundur á
Sjónarhæð kl. 13.30. Allir krakkar
velkomnir. Unglingafundur sama
dag kl. 20.00. Allir unglingar vel-
komnir.
Sunnudagur: sunnudagaskóli í
Lundarskóla kl. 13.30, yngri og
eldri deild. Allirkrakkarvelkomnir.
Almenn samkoma á Sjónarhæð kl.
17.00. Allir velkomnir.
Föstudagur 14. sept.
æskulýður kl. 20.30.
Sunnudagur 16. sept. kl.
11.00 helgunarsamkoma,
kl. 13.30 sunnudagaskóli, kl. 17.30
hermannasamkoma, kl. 19.30 bæn,
kl. 20.00 almenn samkoma.
Mánudagur 17. sept. kl. 16.00 heim-
ilasamband.
Þriðjudagur 18. sept. kl. 17.30
yngriliðsmannafundur og kl. 20.30
hjálparflokkur.
Fimmtudagur 20. sept. kl. 20.30
Biblía og bæn.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
75 ára er í dag Jón Gíslason,
byggingameistari, Fjólugötu 14,
Akureyri.
HVÍTASUtinUKIRKJAN v/smwshlío
Sunnudagur 16. sept. kl.
20.00.vakningasamkoma.
Ræðumaður Vörður L. Traustason.
Mikill og fjölbreyttur söngur. Sam-
skot tekin til kristniboðsins.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Messur
Akureyrarprestakall:
Messað verður í kapellu Akureyrar-
kirkju n.k. sunnudag kl. 11.00.
Séra Ingólfur Guðmundsson prédik-
ar. Hann mun annast þjónustu fyrir
séra Þórhall Höskuldsson fram til
15. desember. Séra Ingólfur byrjar
starf sitt í Akureyrarprestakalli 15.
september, og er hann boðinn
hjartanlega velkomninn.
Sálmar í messunni eru þessir: 455,
193, 192, 348, 524.
B.S.
Minningarspjöld Landssamtaka
Hjartasjúklinga fæst í öllum bóka-
búðum á Akureyri.
Minningarspjöld Hjálparsveitar
Skáta Akureyri fást í Bókval og
Blómabúðinni Akur Kaupangi.
Minningarkort Hjarta- og æðavemd-
arfélagsins eru seld í Bókvali og
Bókabúð Jónasar.
Minningarspjöld Minningarsjóðs
Kvcnfélagsins Hlífar fást í Bókabúð
Jónasar, Möppudýrinu Sunnuhlíð,
Blómabúðinni Akri og símaafgreiðslu
F.S.A.
Minningarkort Líknarsjóðs Arnar-
neshrepps fást á eftirtöldum stöð-
um:
Brynhildur Hermannsdóttir, Hofi,
sími 21950. Berta Bruwik, Hjalteyr-
arskóla, sími 25095.
Jósafína Stefánsdóttir, Grundar-
gerði 8a, sími 24963.
Nauðungaruppboð
Laugardaginn 22. september 1990 verður haldið
nauðungaruppboð á lausafé og hefst það við Lög-
reglustöðina v/Þórunnarstræti á Akureyri kl. 14.00
og verður framhaldið annars staðar eftir ákvörðun
uppboðshaldara, sem kynnt verður á uppboðsstað.
Selt verður, væntanlega, eftir kröfu innheimtumanns
ríkissjóðs, skiptaréttar Akureyrar og ýmissa lög-
manna, lausafé, sem hér greinir:
Bifreiðarnar: A-820, A-1180, A-1183, A-1322, A-1425,
A-1596, A-1838, A-1953, A-2014, A-2746, A-2852, A-2974,
A-3746, A-3982, A-4103, A-4446, A-4956, A-5111, A-5403,
A-5536, A-5563, A-6061, A-6199, A-7129, A-7378, A-7501,
A-8663, A-8732, A-9044, A-9307, A-9417, A-9540, A-9786,
A-9937, A-10007, A-10265, A-10502, A-10596, A-10611,
A-10877, A-10919, A-11020, A-11257, A-11374, A-11542,
A-11563, A-11697, A-11748, A-11964, A-11996, A-12266,
A-12270, A-12309, A-12335, A-12343, A-12389, A-12596,
A-12620, A-12791, A-12841, A-12955, A-13053, A-13063,
A-13112, A-13158, B-699, E-2946, F-243, F-705, F-974,
G-221, G-4217, G-23333, G-24761, G-25517, G-26326,
í-3204, K-1777, Ó-203, R-19010, R-27112, R-58754,
R-63585, R-63684, R-69059, S-1655, S-2679, U-2251,
U-4780, X-5937, Y-1840, Y-10115, Y-16425, Y-17078,
Þ-417, Þ-1240, Þ-2521, Þ-3110, Þ-3357, Þ-4408, Þ-4503,
Þ-4676, Ö-5008, Ö-8930, DN-231, FÞ-425, KS-772,
LD-557, LD-841, LF-380, OA-246.
Ýmislegt lausafé m.a.: Sjónvörp, myndbandstæki, mynd-
lykill, hljómflutningstæki, sófasett, hillusamstæöur, ísskáp-
ar, frystikistur, þvottavélar og tauþurrkari.
Dráttarvélar af gerðunum, Massey Ferguson og Case,
festivagn AT-120, 11 stk. löndunarspil af geröinni Partek,
trésmíðavél af Sicma gerð, Tandon tölva, Honday tölva
með lyklaborði og prentara, Ijósritunarvél Konica U-Bix
120, farsími Mobira Takman.
U.þ.b. 1450 áteknar myndbandsspólur með kvikmyndum
og framhaldsþáttum og tveir videóafspilarar. Ýmiss konar
rafljós.
Einnig ótollafgreiddur varningur, þar á meðal pappírs-
þurrkur, salernispappír, statív fyrir handþurrkur og einnig
skíðavörur, óskilamunir o.fl.
Ávísanir eru ekki teknar gildar sem greiðsla, nema með
samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis hjá uppboðshaldara.
Bæjarfógetinn á Akureyri og
Dalvík, sýslumaður Eyjafjarðarsýslu.
12. september 1990.
Arnar Sigfusson, fulltrúi.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
IÐUNN JÓNSDÓTTIR,
Miðgarði 1, Húsvik,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Húsavíkur sunnudaginn 9. sept-
ember verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 15.
september kl. 14.00.
Sigurður Jakobsson,
dætur, tengdasynir og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
elskulegrareiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og systur,
GÍGJU VILHJÁLMSDÓTTUR,
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingvar Sigmarsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi
BALDVIN HELGASON
Víðilundi 20, Akureyri,
lést 8. september síðastliöinn.
Útförin fer fram frá Glerárkirkju í dag kl. 14.00.
Þeirn sem vildu minnast hans er bent á Glerárkirkju eða Hjálp-
arsveitir skáta og Flugbjörgunarsveitina.
Sigrún Jóhannsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.