Dagur - 14.09.1990, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Föstudagur 14. september 1990
Hjartasjúklingar
og stuðningsmenn!
Stofnfundur deildar á Eyjafjarðarsvæði, sunnudag-
inn 16. september kt. 15.30 að Hótel KEA.
Landssamtök hjartasjúklinga.
Sjómenn - Útgerðarmenn
Ráðstefna um öryggismál sjómanna verður haldin
dagana 21. og 22. sept. n.k. að Borgartúni 6 Reykja-
vík.
Komið og takið þátt í umræðu og mótun framtíðar-
stefnu í öryggismálum sjómanna.
Ráðstefnan er öllum opin, þátttökugjald kr.
4.000.
Þátttaka tilkynnist til Siglingamálastofnunar
ríkisins í síma 91-25844.
Kvótaeigendur
athugið!
Erum kaupendur að varanlegum kvóta
Uppl. gefa Þráinn Gunnarsson sími 41710, Haukur
Hauksson sími 42047 Óli Austfjörð sími 41600,
Hermann Larsen sími 41388 og Einar Njálsson sími
41222.
Útgerðarfélag Húsavíkur.
AKUREYRARBÆR
Nú gefst viðskiptavinum
Rafveitu Akureyrar
kostur á að greiða rafmagnsreikningana með því að
láta SAMKORT sjá um millifærslu á gjaldinu.
Hafðu samband við innheimtuskrifstofu Rafveitunn-
ar, gefiðu upp númerið á SAMKORTINU þínu og þú
ert laus við áhyggjur af ógreiddum rafmagnsreikn-
ingum og dráttarvöxtum.
Rafveita Akureyrar.
Kennarar • Kennarar!
Lausar kennarastöður við grunnskólann í
Hrísey.
Ódýrt húsnæði.
Uppl. veittar í símum 61941, 61737 og 61709 og á
skrifstofu fræðslustjóra Norðurlandsumdæmis eystra.
Sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra á Hvammstanga er laust til
umsóknar.
Upplýsingar um starfið gefa sveitarstjóri Þórður
Skúlason í símum 95-12353 og 95-12382, og
oddviti Guðmundur Haukur Sigurðsson í símum 95-
12348 og 95-12393.
Umsóknir um starfið berist til oddvita Hvammstanga-
hrepps, Guðmundar Hauks Sigurðssonar, Kirkjuvegi
10, 530 Hvammstanga.
Umsóknarfrestur er til 25. september næstkomandi.
Hreppsnefnd Hvammstangahrepps.
Fæddur 7. desember 1925 - Dáinn 8. september 1990
Sem betur fer, þá veit enginn
fyrirfram hvenær hann tekur í
hönd vinar síns í hinsta sinni,
enda væri slík vitneskja óbærileg.
Við Baldvin Helgason kvödd-
umst fyrsta sunnudag nú í sept-
ember. Hann fylgdi mér og
tveimur sonum mínum, afabörn-
um sínum, út á hlað svo við fær-
um ekki með vitið úr bænum.
Við vorum á stuttu ferðalagi að
hitta vini og ættingja norðan
heiða og gistum tvær nætur hjá
þeim hjónum Baldvini og Sig-
rúnu Jóhannsdóttur, tengdafor-
eldrum mínum fyrrverandi. Þetta
var Ijúf og ánægjuleg heimsókn. I
sumar höfðu þau flutt í nýja
íbúð, komið sér þar þægilega fyr-
ir og voru innilega ánægð með
aðstæður. Um morguninn sátum
við í sólskála á svölunum, horfð-
um í átt til Súlna og hugleiddum
liversu mjög svona sólskálar
stytta veturna og flýta komu
vorsins í hugum manna.
Svo kvöddumst við þarna á
bílastæðinu á sunnudagsmorgni,
ég og drengirnir héldum suður en
Baldvin að búa sig til kirkju.
Þennan dag voru klukkur Glerár-
kirkju vígðar og hann söng þar í
kirkjukórnum. Kórsöngur var
hans yndi og árum saman söng
hann bæði í Karlakór Akureyrar
og í kirkjukórum.
Tilviljanir lífsins eru einkenni-
legar. Alla næstu viku var Baldvin
oft í huga mér, því er suður kom
tók ég til við að breyta gömlu
handverki okkar, litlu herbergi er
við höfðum gert á sínum tíma, en
þurfti nú að stækka. Það þurfti
því að flytja til gamla vegginn. í
huga mér komu þær mörgu
stundir sem Baldvin hafði lagt
okkur fjölskyldunni lið með
handlagni sinni og útsjónarsemi,
bæði er við bjuggum hér í
Reykjavík og þó einkum meðan
við bjuggum á Húsavík og stóð-
um í stórræðum við að gera
upp gamalt hús. Aldrei voru nein
vandamál sem ekki var hægt að
leysa, það þurfti bara að skoða
málið vandlega, þá fannst lausn-
in. Þannig var Baldvin, hann var
alltaf boðinn og búinn til hjálpar
og nutu börn hans og fjölskyldur
þeirra verklagni hans í ríkum
mæli hvenær sem þau þurftu á að
halda hvort heldur það var við
húsbyggingar, lagfæringar eða
sitthvað smálegt. Slík hjálpsemi
krefst ekki endurgjalds, okkur
sem nutum hennar ber að láta
hana ganga áfram til þeirra sem
nú eru að vaxa úr grasi.
Baldvin og Sigrún eignuðust
fjögur börn, þau Aðalheiði,
Astu, Jóhann og Helga, sem í
fyllingu tímans stofnuðu sín
heimili og fjölskyldur. Öll hafa
börnin dvalið erlendis um lengri
eða skemmri tíma og þá var það
Baldvin sem var tengiliður fjöl-
skyldnanna við íslenska kerfið,
lánasjóð námsmanna og annað
þess háttar. Þau hjónin voru dug-
leg við að sækja heim börnin sem
dvöldu í útlöndum, hvort heldur
sem fara þurfti til meginlands
Evrópu eða vestur um haf. Það
lýsir vel kjarki Baldvins og þeirra
hjóna að leggja í slík ferðalög
ein síns liðs, þótt hvorugt talaði
erlendar tungur. Mér er enn í
fersku minni er við tókum á móti
þeim á flugvellinum við New
Orleans eftir að ferðalag þeirra
varð fyrir óvæntri töf í New
York. „Ekkert mál“, sagði
Baldvin og brosti að öllu saman.
En nú eru öll börnin komin heim,
sum búsett norðan heiða, önnur
sunnan.
Er við komum til Akureyrar í
ágústlok var það okkar fyrsta
verk, sem svo oft áður, að fara út
í Krossanes til fundar við
Baldvin. Þar hafði hann undan-
farin ár haft umsjón með birgða-
stöðu Olís og Shell, án efa hefur
áreiðanleiki og samviskusemi
Baldvins átt sinn þátt í því að
hann fékk þetta starf. Reyndar
hafði hann lengi unnið hjá Olíu-
verslun íslands sem bílstjóri.
Þarna var Baldvin og fagnaði
okkur og undraðist hvað strák-
arnir hans voru orðnir stórir.
Eins og ævinlega var hann prúður
í orðum og æði en kátur í fasi.
Svo hringdi síminn að morgni
sunnudags, það var vika síðan
við kvöddumst á Akureyri. Ég
horfði á vegginn okkar gamla þar
sem hann stendur á nýjum stað,
Baldvin Helgason var látinn. Eft-
ir situr söknuður, en umfram allt
þakklæti fyrir að lífshlaup okkar
skyldi liggja saman þennan tíma.
Hann var traustur vinur sem flík-
aði ekki tilfinningum sínum í
orðum, en sýndi þær í verki.
Handtak hans var þétt og hlýtt.
Jónbjörn Pálsson.
Margs er að minnast,
margt er að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Vald. Briem.)
Mig langar til að minnast í örfá-
um fátæklegum orðum, góðs vin-
ar míns, Baldvins Helgasonar,
sem nú er horfinn yfir móðuna
miklu svo sviplega og óvænt.
Leiðir okkar lágu fyrst saman á
haustdögum 1984, í kapellu
Akureyrarkirkju. Var ég þar að
stíga mín fyrstu spor á sviði söng-
listarinnar. Allt kom mér mjög
framandi fyrir sjónir, bæði menn
og umhverfi. Ég gleymi því aldrei
með hvaða orðum Baldvin tók á
móti mér: „Anna María, það eru
falleg nöfn og eiga vel saman“.
Hlýjan og innileikinn voru slík í
þessari litlu setningu, að það
gleymist mér aldrei.
Við Baldvin áttum eftir að
starfa dálítið saman í kórnum.
Við sáum á tímabili um það verk,
að skrásetja nöfn þeirra er mættu í
messur og á kóræfingar. Svo þeg-
ar leið að áramótum voru bornar
saman bækur. Rétt skyldi vera
rétt. Hver kórfélagi varð að fá
greitt það sem honum bar. A
þessu tímabili áttum við þó
nokkrar góðar samverustundir,
bæði í kirkjunni og á heimili
mínu, og á þær mun aldrei neinn
skuggi falla.
Svo yfirgaf Baldvin gamla kór-
inn sinn og hóf að syngja með
kirkjukór Glerárkirkju þegar
sonur hans, Jóhann, tók þar við
organistastarfi. Fundum okkar
fækkaði. Þó hafði ég alltaf reglu-
lega samband við hann einu sinni
á ári, en það var þegar leið að
árshátíð kórs Akureyrarkirkju.
Var erindið þá að bjóða honum
að taka þátt í gleðinni með
okkur. Oftar en ekki bað hann
um umhugsunarfrest. Hann sagði:
„Mér þykir svo leiðinlegt að neita
þér, en ég er bara svo lítið gefinn
fyrir svona skemmtanir.“ Einu
sinni kom hann þó og skemmti
sér með okkur, og það þótti mér
innilega vænt um.
Baldvin var vinur vina sinna.
Hann var ekki mikið fyrir það að
láta á sér bera. Hann var rólegur
og stilltur maður, sem ég er af
alhug þakklát fyrir að hafa fengið
að kynnast.
Ég sendi öllum ástvinum
Baldvins mínar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með guði,
guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Anna María Hákonard.
Blöndal
KA-heimilið:
Eigendur óskila-
fatnaðar sæki
eigur sínar strax
í KA-heimilinu á Akureyri er
töluvert magn af óskilafatnaöi
eftir sumarið og vilja þeir sem
þar ráða, endilega að eigendur
fatnaðarins komi og sæki hann
sem fyrst.
í Degi í vor var sagt frá mikl-
um stafla af fatnaði í KA-heimil-
inu og eftir að sú frétt birtist,
lækkaði staflinn en eftir sumarið
hefur hann hækkað á ný. Mikið
af þessum fatnaði er lítið sem
ekkert notað, bæði yfirhafnir
og fleira og því hljóta eigendurn-
ir að sakna hans.
Hægt að nálgast fatnaðinn í
KA-heimilinu fram að mánaða-
mótum en eftir það er óvíst hvað
við hann verður gert. KA-heimil-
ið er opið á virkum dögum frá kl.
14-22 og frá kl. 10-18 um helgar.
Fulltrúakjör
Kjör fulltrúa Sjómannafélags Eyjafjaröar á 17. þing
Sjómannasabands íslands fer fram að viðhaföri alls-
herjar atkvæðagreiðslu.
Framboðslistum með nöfnum 4 aðalfulltrúa og 4 var-
afulltrúa skal skilað til skrifstofu félagsins, Skipagötu
14, Akureyri, eigi síðar en kl. 16.00 mánudaginn 1.
október 1990.
Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 35 full-
trúa gildra félaga.
Akureyri 14. september 1990.
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar.