Dagur - 14.09.1990, Blaðsíða 15
Föstudagur 14. september 1990 - DAGUR - 15
F
íþróttir
EM í knattspyrnu U-18 ára:
Guðmundur og Þórður
í aðalhlutverkum
- þegar íslendingar töpuðu
naumlega fyrir Englendingum
Guðmundur Benediktsson úr
Þór og Þórður Guðjónsson úr
KA voru í aðalhlutverkum
þegar Islendingar mættu Eng-
lendingum í Evrópukeppni U-
18 ára landsliða í Mosfellsbæ í
fyrrakvöld. Leiknum lauk með
sigri Englendinga, 3:2 og skor-
aði Þórður bæði mörk Islend-
inga úr vítaspyrnum sem Guð-
mundur „fiskaði.“
Guðmundur var felldur í víta-
teig Englendinga á 18. mínútu og
Þórður kom íslendingum í 1:0.
Englendingar jöfnuðu en þeir
félagar endurtóku leikinn á 49.
mínútu og breyttu stöðunni í 2:1.
Eað dugði þó ekki til því Eng-
lendingar jöfnuðu aftur og skor-
uðu sigurmarkið í leikslok.
Guðmundur var talinn besti
maður tslenska liðsins í þessum
leik. Þess má geta að hann er
nýlega orðinn 16 ára og er enn
leikmaður með drengjalandslið-
inu.
íslandsmótið í handknattleik hefst um helgina. Erlingur Kristjánsson og
á Ítalíu til Hafnarfjarðar þar sem þeir mæta íslandsmeisturum FH kl.
lærisveinar hans í KA koma beint úr sólinni
16.30 á sunnudag.
Knattspyrna:
Mimiingarleikiir um Jósep
í dag kl. 18 fer fram leikur í 3.
flokki karla milli KA og Þórs.
Leikurinn, sem er sá síðasti í
þessum flokki á keppnistíma-
bilinu, er leikinn til minningar
um fyrrum leikmann Þórs,
Jósep Olafsson, sem varð
bráðkvaddur á heimili sínu,
Rimasíðu 11 Akureyri, 6.
janúar sl., aðeins 15 ára
gamall.
Jósep var fæddur 30. júní árið
1974, sonur Ingu Láru Bachmann
og Ólafs Haraldssonar. Jósep var
góður íþróttamaður, lék bæði
handbolta og fótbolta með Þór
og var þar í fararbroddi. Þeir sem
velja drengjalandslið okkar í
báðum þessum boltagreinum
höfðu augastað á Jósep og skynj-
uðu að þar var mikið efni á ferð.
Jósep Ólafsson.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Stefán með 10 rétta
- tekur þátt 12. vikuna í röð
Stefán Thorarensen gerði sér lítið fyrir og fékk 10 rétta í síðustu
viku. Verður það að teljast frábær árangur þar sem hann hefur
aðeins eitt merki á hvern leik. Félagi hans Eggert Ingólfsson
fékk 7 rétta og er því úr leik. Stefán tekur nú þátt í getrauna-
leiknum 12. vikuna í röð og skoraði á Pétur Inga Ragnarsson
sem er nemandi í Glerárskóla. „Ég er bjartsýnn á að mér takist
að slá met Rúnars Sigurpálssonar og stefni að því. Hins vegar
er seðillinn nú mjög erfiður, leikirnir allir tvísýnir og geta farið
hvernig sem er,“ segir Stefán.
Stefán:
Arsenal-Chelsea 1
Coventry-Wimbledon 1
C. Palace-Nott. Forest 1
Derby-Aston Villa 2
Leeds-Tottenham 2
Man. City-Norwich 1
Q.P.R.-Luton 1
Southampton-Sheff. Utd. 1
Sunderland-Everton 1
Millwall-lpswich 1
Swindon-Middlesbro X
West Ham-Wolves 1
Pétur Ingi:
Arsenal-Chelsea 1
Coventry-Wimbledon X
C. Palace-Nott. Forest 1
Derby-Aston Villa X
Leeds-Tottenham 2
Man. City-Norwich 1
Q.P.R.-Luton 1
Southampton-Sheff. Utd. X
Sunderland-Everton 1
Millwall-lpswich 1
Swindon-Middlesbro X
West Ham-Wolves 1
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Jósep var góður keppnismað-
ur. Hann var sínum jafnöldrum
góð fyrirmynd á vellinum og bar
jafnan virðingu fyrir andstæðing-
um sínum. Hann var mjög vin-
sæll af sínum félögum og átti
marga vini sem minnast hans af
heilum hug. Og nú hafa fjórir
vinir Jóseps úr Þór gefið bikar til
minningar um hann og verður
lctkurinn eins og fyrr er sagt kl.
18 í dag á Þórsvellinum. Er fólk
hvatt til að koma og sjá leik þess-
ara liða sem bæði komust í
úrslitakeppni íslandsmóts 3.
tlokks nú í sumar og um leið að
heiðra minningu Jóseps Ólafs-
sonar.
Knattspyrna helgarinnar:
Hvað gerist í Ólafsfirði?
Keppni í 1. og 2. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu lýkur á
morgun. Þórsarar mæta Vík-
ingum á Akureyrarvelli og
KA-menn KR-ingum á KR-
vellinum en seinni leikurinn
gæti haft áhrif á hvaöa lið
verður íslandsmeistari í knatt-
spyrnu. í 2. deildinni er fall-
baráttan í algleymingi og í
Olafsfirði verður stórleikur
þegar Leiftursmenn fá KS-inga
Þorvaldur Jónsson hefur náð sér
eftir meiðslin og verður með gegn
KS.
Fjallahlaupi HSÞ
frestað um eina viku
Fjallahlaup HSÞ fer fram laug-
ardaginn 22. september nk. í
Mývatnssveit. Upphaflega átti
hlaupið að vera nú um helgina
en fresta varð því um viku af
óviðráðanlegum ástæðum.
Þetta verður í annað sinn sem
slíkt hlaup er þreytt. Fyrra hlaup-
ið var 1988 en ekki tókst að halda
það í fyrra. Von ntanna er að hér
eftir verði þetta árviss viðburður,
þ.e.a.s. ef þátttaka verður góð og
áhugi virðist vera fyrir hendi.
Hlaupið hefst kl. 14 við Sund-
laug Reykjahlíðar. Tvær vega-
lengdir eru í boði, 8 kílómetrar
og 4 kílómetrar. Eins og nafnið á
hlaupinu bendir til er ekki bein-
línis fylgt vegum á leiðinni heldur
miklu fremur hlaupið um móa og
mela, svona mismunandi lárétta.
Skráning og frekari upplýsing-
ar fást hjá óunnari í síma 96-
43107/43116 og Jóni í síma 96-
44223/44298.
Sundfélagið Óðinn:
Vetrarstarfið af stað
Vetrarstarf Sundfélagsins
Óðins er nú að komast í fullan
gang. Eldri flokkarnir eru þeg-
ar byrjaðir að æfa og í næstu
viku verður byrjað með tvo
nýja byrjendahópa, annan í
sundlaug Glerárskóla og hinn í
sundlaug Akureyrar.
Fjórir þjálfarar starfa hjá Óðni
í vetur og sjá þeir um fimm hópa.
Nýju hóparnir eru ætlaðir fyrir
byrjendur á aldrinum 8-13 ára.
Æfingatímar í sundlaug Glerár-
skóla verða á mánudögum og
miðvikudögum kl. 17-18 og á
föstudögum kl. 16-17. Æfingarn-
ar í sundlaug Akureyrar verða á
sömu dögum kl. 18-19. í þessum
tímum verður farið í leikni í vatni
og aðeins í sundaðferðir.
Næsta mót sem Óðinsmenn
taka þátt í er Sundmeistaramót
Akureyrar sem haldið verður 30.
september. Þá mun félagið taka
þátt í Bikarkeppninni sem fram
fer 2.-4. nóvember en enn hefur
, ekki verið ákveðið hvar.
í heimsókn.
Sigur nægir hugsanlega öðru
liðinu til að halda sæti sínu í
deildinni. Grindvíkingar mæta
Fylkismönnum og verður síðar-
nefnda liðið að teljast sigur-
stranglegra. Um úrslit í Ólafsfirði
er vonlaust að spá en víst er að
þar verður ekkert gefið eftir.
Mark Duffield hefur leikið frábær-
lega fyrir KS í sumar.
íþróttir
KNATTSPYRNA
llörpudeild: 18. og síðiista urnfcrd fcr
fram á morgun kl 14. f*ú leika l’ór og
Vfkingur á Akureyrarvelli. KR og
KA á KR-vclli, Franr og Vulur á
L.augardalsvelli, (B\' og Stjarnan i
Vcstmannacyjum og FH og ÍA 1
Hafnarfirði.
2. deild: Keppni lýkur einnig í 2
deild mcð fimm leikjuni kl. 14. Þá
loika Leiftur og KS í Úlafsfirði,
Breiðablik og Tindastóll í Kópavogi.
Viðir og ÍBK í Ciarðinum, Grindavfk
og Fylkir i Grindavik og 1R og Selfoss
í Reykjavík.
IVIinningurleikur um Jósep Olufssmi
fer fram á Þórsvclli i tlag. ÞaÖ eru liö
Þors og KA í 3. flokki sem maetast og
hefst lciktirinn kl. 18.
HANDKNATTLEIKUR
Keppni i 1. deild hefst um hclgina.
KA-menn ma:ta FH-ingum i Hafnar-
firði á sunnudag kl. 16.30.
GOLF
Opna Jaðars- og ininningarmótið
fcr fram á Jaðarsvelli á Akureyri
laugardag og sunnudag. Leiknar
verða 36 holur, með og án for-
gjafar, í karla-, kvenna- og
unglingaflokki.
Blönduós: Tvö mót verða um
helgina. Á laugardag verður 9
holu punktamót scm hefst kl. 13
og daginn eftir 18 holu haustmót,
með forgjöf, sem hefst kl. 10.
Borgarbikurinn fer fratn á Sauð-
árkröki. Leiknar verða 36 holur
á laugardag og sunnudag.