Dagur


Dagur - 20.10.1990, Qupperneq 3

Dagur - 20.10.1990, Qupperneq 3
Laugardagur 20. október 1990 - DAGUR - 3 fréttir 1 Mývatnssveit: „Þegar þeir hafa upp í Mvirðisréttiim er þeim sama hvað verður um kindur á afréttiimi“ - segir Hjörleifur Sigurðsson, bóndi á Grænavatni „Samkvæmt fjallskilareglu- gerð Suður-Þingeyjarsýslu, þá er hægt að sækja um undan- þágu til sýslumanns fyrir frest- un á göngum og hann getur veitt slíkan frest, þar sem um sérstök hólf eða afmörkuð svæði er að ræða. Sé litið til þessa, hefði verið hægt að fá frestun gangna í austurafrétt, en hreppsnefnd Skútustaða- hrepps sótti ekki um þetta leyfi,“ sagði bóndi í Mývatns- sveit, þegar spurst var fyrir um heimtur fjár af austurafrétt- inni. Bændur í Mývatnssveit hafa miklar áhyggjur af hve illa tókst til með smölun á afrétt- inni upp úr miðjum september, en síðan hefur vart gefið til ieitar vegua veðurs. Trúlega hefur fjölda fjár fennt og tjárskaði er mikill. „Af austurafréttinni vantar hundruð fjár. Lögskipuðum göngum var frestað til 20. sept- ember og þá var kominn snjór. Einstaka bændur töldu sér hag í að fresta göngunum, vildu ekki fá féð heim strax. Síðan hefur tíð verið slæm og ekki gefið vel til ieita," sagði Árni Halldórsson, bóndi í Garði. Að sögn Hjörleifs Sigurðsson ar, bónda á Grænavatni, þá hefur þann snjó sem setti niður um miðjan september ekki tekið upp. „Búið er að fara tvisvar í skítaveðri en mikið vantar, jafn- vel hundruð. Vafalítið hefur töluvert af fé fennt. Það sorglega er, að hugsunarháttur manna er víða svo breyttur. Þegar þeir hafa upp í fullvirðisréttinn, þá er þeim sama hvað verður um hitt. Þetta heyrir maður víða. Skylda sveit- arfélagsins er að sjá um að farið sé til fjalla og smalað enn á ný. Ég skil ekki í öðru en svo verði gert, þetta er ekki gott mál,“ sagði Hjörleifur. Harðorð ályktun trúnaðarmannaráðs Einingar um atvinnumál: Krafa á ríkisvaldið um ákveðna steftiumótiin í atvinnuuppbyggingu Fundur trúnaðarmannaráðs Verkalýðsfélagsins Einingar sl. fimmtudagskvöld samþykkti mjög harðorða ályktun um atvinnumál sem birt er hér i heild. in að standa vörð um þau fyrir- tæki sem fyrir eru. Fundurinn skorar á hin ýmsu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki að vinna enn betur en þegar hef- ur verið gert, a,ð meiri og fjöl- breyttari vinnslu þess afla sem á land berst. Höfuðatriði er, að allir reyni að gera enn betur en áður, en láti ekki undan síga, þótt við nokkra erfiðleika sé að etja. Þau vanda- mál, sem við blasa, eru þess eðlis, að á þeim ber að sigrast en ekki flýja þau. Sameiginlegt markmið hlýtur að vera: Blóm- legar og vaxandi byggðir við Eyjafjörð.“ „Fundur trúnaðarmannaráðs Verkalýðsfélagsins Einingar, haldinn á Akureyri 18. október 1990, lýsir áhyggjum sínum vegna atvinnuástandsins á félags- svæðinu, ekki síst á Akureyri, þar sem verulegt atvinnuleysi hefur að undanförnu verið alla mánuði ársins, og í vetrarbyrjun mun það fara vaxandi. Afleiðing- ar þessa eru farnar að endur- speglast í ört vaxandi brottflutn- jngi bæjarbúa og verði ekki snögg breyting til hins betra hvað atvinnustarfsemi snertir, er ljóst, að fólk flytur af svæðinu þegar framkvæmdir hefjast við Fljóts- dalsvirkjun og byggingu álvers á Keilisnesi. Ljóst er að brottflutningur fólks leysir aldrei þann vanda sem atvinnuleysi er. Átvinnuleys- ið vex vegna samdráttar í við- skiptum, hverskonar þjónustu, byggingastarfsemi og á fleiri sviðum. Þannig skapar brott- flutningur vítahring, sem sífellt verður erfiðara að komast út úr eftir því sem lengra líður. Því ber að rjúfa þennan vítahring áður en hann verður illa eða ekki við- ráðanlegur. Knýjandi nauðsyn er á, að allir þeir aðilar, sem áhrif hafa í atvinnulífinu á þessu svæði, sam- eini krafta sína til aukinnar atvinnustarfsemi. Fundurinn ger- ir kröfu til ríkisvaldsins um að það komi með ákveðna stefnu- mótun í atvinnuuppbyggingu hér við Eyjafjörð þar sem það hefur nú óbeint forgöngu um mikla atvinnuuppbyggingu í öðrum landshlutum, sem sogar til sín vinnuafl héðan og því enn meiri nauðsyn að leita nýrra leiða til atvinnuuppbyggingar en kannski virtist um skeið. En atvinnuupp- bygging við Eyjafjörð þarf m.a. að taka til þeirra fyrirtækja, sem ríkið á stóran hlut í hér á svæð- inu, auk þess sem nýjar greinar þurfa að koma til. Sveitarfélögin verða einnig að koma myndarlega inn í nýsköpun atvinnulífs, enda veltur afkoma þeirra algerlega á því, að íbúar þeirra hafi næga atvinnu og góðar tekjur. Einnig verða sveitarfélög- Atvinnuleysi í september: Atviraiuleysi hjá körlran er mest á Norðralandi eystra - en ástandið hjá konum er verst á Vesturlandi Á þriðja ársfjórðungi þessa árs voru skráðir 115 þúsund atvinnuleysisdagar á landinu öllu og eru þá skráðir atvinnu- leysisdagar það sem af er árinu 472 þúsund talsins. Fjöldi skráðra atvinnuleysisdaga jafngildir því að 2400 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá fyrstu 9 mán- uði ársins sem svarar til 1,9% af mannafla. Á sama tíma í fyrra voru skráðir 407 þúsund atvinnuleysisdagar og hefur þeim samkvæmt því fjölgað um 16% milli ára. í septembermánuði sl. voru skráðir 28 þúsund atvinnuleysis- dagar á landinu öllu sem jafngild- ir því að 1300 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá að meðaltali í mánuðinum eða sem svarar 1,0% af áætluðum mannafla samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar. Þetta er minnsta atvinnuleysi sem skráðst hefur í einum mánuði til þessa á yfirstandandi ári og 14 þúsund dögum færra en í mánuðinum á undan. Þess má í þessu sambandi geta að septembermánuður hefur jafnan verið sá mánuður ársins sem atvinnuleysi hefur mælst minnst. Sl. 5 ár hafa að meðaltali skráðst tæplega 13 þúsund atvinnuleysisdagar í septcm- bermánuði. Af einstökum landshlutum var mest atvinnuleysi í september á Vesturlandi, eða 1,8% og þar af var skráð atvinnuleysi hjá konum á Vesturlandi 3,6%, tæplega 1% meira en á Austurlandi, þar sem skráð atvinnuleysi kvenna var næstmest. Á Norðurlandi eystra mældist atvinnuleysi 1,7% og þar af 1,2% hjá körlum. Þetta var jafnframt eina svæðið þar sem atvinnuleysi karla mældist meira en 1% af áætluðum mannafla. Hjá konum mældist atvinnuleysi hins vegar 2,3% Á Norðurlandi vestra mældist 1,2% atvinnuleysi, 2,0% hjá konum og 0,7% hjá körlum. -KK Fiskifélag Islands: Smábátarnir veiða meira en í fvrra Þótt ekki hafi blásið byrlega hjá smábátunum undanfarnar vikur var afli þeirra mun meiri fyrstu 9 mánuði þessa árs mið- að við sama tímabil í fyrra. í Uppskeruhátíð Knattspyrnu- ráðs Akureyrar fer fram í Dyn- heimum í dag og hefst kl. 13.30. Þar verður m.a. kunn- gert hver hlýtur nafnbótina „Knattspyrnumaður Akureyr- ar 1990“. septemberlok höfðu þeir kom- ið með 46.485 tonn að landi á móti 36.217 í lok september 1989. Auk þess verða veitt verðlaun fyrir sigur í mótum á vegum KRA í sumar og þá verður markakóngur KRA heiðraður. Knatispyrnuáhugamenn er hvatt- ir til þess að mæta í Dynheima í dag og taka þátt í uppskeruhátíð- inni. arnir 7.607 tonn á þessu tímabili en frá.janúar til septemberloka í fyrra veiddu þeir 5.986 tonn. Þetta er veruleg aukning en athygli vekur að mesta aukningin var á Reykjanesi, þar stekkur afl- inn úr ríflega 6 þúsund tonnum í 12 þúsund tonn. Bátar á Norðurlandi veiddu 170.608 tonn fyrstu níu mánuði ársins á móti 104.352 tonnum í fyrra. Skýringin er auðvitað fólg- in í meiri loðnuafla og þá hefur rækjan sótt í sig veðrið. Hjá togurunum á Norðurlandi hefur hins vegar orðið samdrátt- ur, 78.026 tonn á móti 80.068. Þar af hefur grálúðuaflinn dregist saman um 3.000 tonn og þorsk- aflinn um 2.000 tonn. Ufsinn er aftur á móti gjöfulli en í fyrra, miðað við þessar bráðabirgðatöl- ur Fiskifélags íslands. SS Á Norðurlandi veiddu smábát- Uppskeruhátíð KRA í dag: Hver verður útneMur „Knatt- spymumaður Akureyrar“? Arnljótur Sigurðsson á Arnar- vatni hafði þetta um málið að segja: „Hér er gjörsamlega jarð- laust fyrir kindur og hefur verið lengi. Vandræðaástand hefur skapast með austurafréttina. Það er vitað að á henni er enn fjöld- inn allur af kindum. Ófærðin hamlar að gengið sé. Að vísu er hægt að komast um á vélsleðum, en veðráttan hefur komið í veg fyrir slíkt að mestu. Þoka hefur legið yfir afréttinni dag eftir dag og ekkert smölunarveður gefist. Reynt hefur verið að stökkva í þetta þegar birt hefur, en lítið að gagni." „Ég held að menn séu ekki búnir að rannsaka hjá sér að fullu hvað vantar. Ég hef að vísu heyrt töluna 5-7%. Það er tiltölulega lítið fyrir ofan það sem eðlilegt getur talist. Minna en ég bjóst við. Ég hef ekki heyrt um neinn bónda sem ekki hefur fyllt kvóta sinn í sláturhúsinu, þannig að það er spurning um hvað má kalla fjárskaða. Vissulega hafa bændur farið í aukaleitir, en af sveitarfélagsins hálfu hefur ekki verið rætt um að gera sérstakar ráðstafanir á austurafréttinni,": sagði Sigurður Rúnar Ragnars- son, sveitarstjóri Skútustaða- hrepps. Böðvar Jónsson, bóndi á Gaut- löndum, telur að ekki sé hægt að leyna að bændur vantar óvana- lega mikið fé. „í venjulegum góðum árum, þegar ekki gerir áfelli, þá skilar austurafréttin fénu, það ferst lítið þar. Ég get ekki sagt um hve mikið vantar. Að tala um hundruð var ekki fjarstæðukennt, en bændur eru stöðugt að heimta og tölurnar lækka dag frá degi,“ sagði Böövar. „Ég hafði samband við sýslu- mann og taldi gangnafrestunina ólöglega. Jafnframt tjáði ég sveit- arstjóra, að ég myndi ekki greiða aukakostnað vegna aukagangna, sem væru afleiðingar ólöglegrar frestunar og einnig ef sannaðist fjárskaði gæti farið svo að skaðabótamál hlytist af,“ sagði Árni Halldórsson í Garði. ój í BÆNDATRYGGINGU SJOVA-ALMENNRA SAMEINAST EINKATRYGGINGAR FJÖLSKYLDUNNAR 0G VÁTRYGGINGAR SNIÐNAR AÐ ÞÖRFUM LANOBÚNAÐARINS SJQVAulluAlMENNAR

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.