Dagur


Dagur - 20.10.1990, Qupperneq 12

Dagur - 20.10.1990, Qupperneq 12
12 - DAGUR - Laugardagur 20. október 1990 Leiðin til raunveruleikans Það er kannski við hæfi nú þeg- ar mikið er um að menn velti fyrir sér hinum ýmsu leiðum til andlegs þroska að taka til athugunar hvað það er sem er raunhæft að gera í þessum efnum. Oft eru menn að velta þessum hlutum fyrir sér af ein- skærri forvitni eða þá að þeir eru með það að markmiði að hressa upp á sjálfa sig. Menn virðast skiptast nokkurn veginn í tvo hópa. Það eru þeir sem prófa og reyna hinar ýmsu aðferðir og fyrirbæri sem upp á er boðið hjá þeim sem gefa sig út fyrir að kenna eða leiðbeina í andlegum málefnum, hvort sem um er að ræða námskeið til að læra eingöngu hugleíðsiu, eða á Tarotspil, stjörnukorta- lestur eða það að flakka á milli miðilsfunda og spákvenna í alls kyns grúski. Hinn hópurinn sem færri vita af og er vitanlega mun minni fer hina einföldu leið. Það eru þeir sem iðka einhverja andlega leið af alvöru alla sína ævi. Sú leið felst jafnan í að stunda eitthvert heilsteypt yogakerfi sem nær yfir alla þætti í mannlegum þroska og ber menn beina leið að markinu án viðkomu í einhverjum aukaatr- iðum. Pegar litið er yfir eðli þeirra atriða sem farið er í á slíkri leið er rauður þráður gegnumgangandi í gegnum flest kerfin sem fara þarf eftir til að öðlast aukinn þroska enda um að ræða sama lögmálið sem stjórnar okkur öllum. Sjálfsagt eru ekki allir með á nótunum varðandi við hvað er átt en við skulum íhuga þetta aðeins betur. Pað var skáldið Mark Twain sem sagði eitt sinn skopsögu um fanga. Skop er bara skop en stundum dylur það dýpri sannleik en hægt er að lýsa með öðru móti. Fanginn hímdi á gólfinu í skuggalegri dýflissu löng og lýjandi ár. Svo var það að lokum að dag einn fékk hann snjalla hugmynd. Hann stóð upp, gekk til dyr- anna, opnaði og fór út! Þessi litla saga er mjög góð lýsing á stöðu mannsins sam- kvæmt viðhorfi margra yoga og einnig því sem fram kemur í kenningum Búddha: Maðurinn er fangi í heimi sínum og tilveru af því að hann heldur að hann sé lokaður inni. En það er mis- skilningur. Hann er frjáls . . . ef hann áttar sig á að hann ligg- ur við opnar dyr. Hann þarf ekki að gera annað en að standa upp, ganga til dyranna, opna og fara út! Það að Iáta af þessu verða er hin göfuga áttfalda leið sem innifelur þroskaleið mannsins. En hver er hin áttfalda leið? Hún er: 1. - Rétt sjón (skiln- ingur í merkingunni að sjá), 2. - rétt ákvörðun (í þeirri merkingu að vilja það rétta), 3. - rétt tal, 4. - rétt breytni, 5. - réttir lifnaðarhættir (í þeirri merkingu að afla sér lífs- viðurværis á réttan hátt), 6. - rétt viðleitni eða áreynsla, 7. - rétt athygli, og 8. - rétt samadhi (hugljómun, stundum kallað hugkyrrð). Oft þegar talað er um yoga eða kenningar Búddha er sam- tímis talað um að þar séu á ferð- inni trúarbrögð. En það er mjög hæpinn sannleikur að kalla fræði yoganna og Búddha, trú eða jafnvel kenningar. Þar er frekar um lífsleið að ræða sem fjallar um hvernig maður eigi að fara að því að lifa. Þarna kemur aðalpunkturinn. Þetta eru ekki fræðikenningar „um“ mannlíf heldur beinlínis það að upplifa og reyna. Þess végna er bein- asta leiðin besta leiðin. Sú saga er sögð að dulspek- ingur einn hafi eitt sinn komið til að heimsækja Búddha á með- an hann starfaði á Indlandi. Dulspekingurinn gekk á vatn- inu yfir ána sem þeir voru við til þess að komast á hans fund. Búddha hrósaði honum fyrir þessa færni og spurði: - Hvað varstu lengi að kom- ast upp á lag með þetta? - Tuttugu ár, svaraði dul- spekingurinn hróðugur og lét í ljós að hann hefði lært þetta bara til að komast á fund Búddha. - Tuttugu ár, át Búddha eftir honum undrandi. Hvers vegna tókstu ekki heidur ferjuna sem er aðeins hálfa dagleið hér fyrir ofan? Þetta er það sem einkennir stefnu Búddha og yoga. Það eru engar krókaleiðir í hávegum hafðar. Þess vegna eru trúarleg- ar athafnir og heimspekivanga- veltur ekki hátt skrifaðar í þess- um stefnum þó að slíkt sé á eng- an hátt bannað. En hvort tveggja getur dregið athyglina frá því sem öllu máli skiptir en það er raunveruleikinn sjálfur og hið rétta líf. Við skúlum taka dæmi um dyrnar til að átta okkur betur á þessu. Trúarathafnir eru tignun þess sem er fyrir utan fangaklef- ann. En lausn vandans felst ekki í að sitja kyrr og tigna það sem fyrir utan er. Það skiptir heldur engu þó að þú hafir ein- hverjar heimspekilegar kenn- ingar um dyr. Þú veist ekki fyrr en þú tekur um snerilinn og opnar hvort þú kemst út og hvað er fyrir utan. Það má segja að hinu rétta lífi sé lýst í hinni áttföldu leið. Hún er leiðin brott frá þjáningu og hörmum og er öllum fær. Það ber að hafa í huga þegar hugsað er um hina áttföldu leið að hún er ekki í átta áföngum eða þrepum. Fyrsta atriðið kemur ekki endilega á undan áttunda atriðinu. í fræðunum er ekkert sem segir í hvaða röð þessi atriði koma og sennilega er best að taka þau öll fyrir í einu til að ekkert vanti frá upphafi. Eins er Umsjón: Einar Guömann. Dulspeki Jp 'L ekki um að ræða hvort hin átt- falda leið taki langan eða stutt- an tíma. En hvað er hin áttfalda leið? Þessi átta atriði eru misgreinileg og hafa verður í huga að í mörg- um atriðunum er grundvöllur- inn fyrir árangri iðkun og aftur iðkun. Hér á eftir fara tilraunir til skýringa. 1. Sjón . . . er hér í þeirri merkingu að sjá bæði með lík- amlegum augum og hugrænum og að sjá en ekki bara horfa. Nauðsynlegt er að upplifa „beint“ það sem er séð. 2. Ákvörðun ... er hér í merkingunni ætlan eða tilgang- ur. Hvað það er sem þú raun- verulega vilt og það stefnir að því að þú hættir að eltast við einskisverða hluti. 3. Tal . . . þarf varla skýringar við. Það lýtur að því að þú eigir ekki að tala nema rétt og rétt er ekki satt heldur líka gagnlegt og laust við að valda öðrum sársauka. 4. Athöfn . . . hér er um að ræða athöfn sem hefur engar neikvæðar afleiðingar og athöfn sem skapar ekki skuld og er unnin eins eðlilega og að draga andann. 5. Lifnaðarhættir . . . hér er átt við það sem haft er fyrir starfi og hvernig þú aflar þér lífsviðurværis. Það þýðir að þú eigir fremur að láta aðra ganga fyrir og lifa ekki á þann hátt að það auki þjáninguna í heimin- um. í þessu atriði felst líka í hverju vert er að sækjast eftir yfirleitt. 6. Viðleitni . . . Andleg við- leitni. Það að hefjast handa og byrja að reyna. Það sjónarmið réði í huga fangans þegar hann reis upp og reyndi að opna dyrnar. 7. Athygli . . . vakandi athygli og að kunna að veita athygli og virða fyrir sér og fylgjast með öllu sem fram fer hið ytra og innra. Þar er eitt stærsta atriðið og það byggist að stærstum hluta á iðkun. 8. Samadhi eða hugar- kyrrð . . . Það er hljóður og glaðvakandi hugur sem er hand- an við ys og þyt hugsananna. Það er langsótt að ætla sér að útskýra hinn áttfalda veg í smá- atriðum. Til þess eru orð einskis megnug. Ef við hins vegar hugs- um um fyrsta atriðið sem er sjón, (innsæi) þá erum við kom- in að því atriði sem aðskilur þessa leið frá öðrum stefnum. Það er strax stefnt út í hið óþekkta. Þú átt að leitast við að sjá betur en þú ert vanur að sjá. Þar gildir samspil sjöunda atriðsins, athyglinnar þar sem tilgangurinn er að sjá það sem raunverulega er. Ekki að horfa án þess að sjá eins og svo algengt er í hugarástandi fólks. Atriðin eru mismikilvæg en segja má að sjöunda atriðið sé mikilvægast og á því er allt byggt. Það er meira að segja erfitt að gefa leiðbeiningar um þessa leið. Þú verður að ganga leiðina sjálfur. Það er vegna þess að leiðin er alsett uppgötv- unum. Blindur maður sér ekki sólarlagið þó að þú lýsir því fyr- ir honum. Hann verður að öðl- ast sjónina til að sjá rétt eins og þekking sem fengin er með lestri bóka um andleg málefni er einungis vitsmunaleg þekking. Raunveruleg þekking fæst einungis með iðkun og athygli. Kristinn G. Jóhannsson skrifar Bakþankar eða skrifa undir án þess Tft / í undir án þess að vita undir ■ ■■ hvað er skrifað eða skrifa undir tft kflíí „10 IJ^T.. . án þess aðrir viti undir hvað eða ! JB 8 BHL J8 w skrifa undir með vitlausan hatt JJ111 w" 1 “w * IU iJU Okkur er flest til lista lagt, fram- sóknarmönnum, og eiginlega er opinber málflutningur sjaldan svo torskilinn að við ekki ráðum fram úr með okkar hætti. Þó bar svo við um daginn að við horfð- um dálítið í kross þegar Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra skrifaði nafnið sitt. Við leituðum víða ráða hvernig átti að skilja nafnið hans Jóns á þessum löggilta skjalapappír. Þar voru líka útlend nöfn á þessum sama papplr og vildu kaupa raf- magn og búa til álúmíníum. Mér skilst það sé eins konar grár máimur sem allir vilja búa til nema þeir sem eru kvenkyns. Ég er það ekki. Ég las i blöðum víða og hlustaði á sjónvarp og útvarp til að vita hver væri að skrifa undir hvað en er jafnnær. Ríkisstjórnin undir forsæti okk- ar ástæia foringja skildi undir- skriftina með mismunandi hætti eftir því hvort talað var fyrir eða eftir kvöldmat. Alþýðubanda- lagsráðherrarnir voru sammála undirskriftinni þangað til þeir skildu að úr henni mætti gera ágreining innanflokks og berja á formanninum sem var með- mæltur undirskriftinni enda vissi hann ekki fremur en þeir undir hvað var skrifað og Páll minn á Höllustöðum var á móti henni af því að hann vissi ekki hvort hinn maðurinn sem skrifaði undir, Jóhannes, hefði verið undir borðinu eða oná því þeg- ar hann skrifaði. Lögfræðipró- fessorar segja okkur að undir- skriftin Jóns sé Jóns og Jón skrifi ekki undir fyrir ríkisstjómina af því að hann er í ríkisstjórninni sem er sammála því að Jón skrifi ekki undir þaö sem hann er búinn að skrifa undir. Það er óþarfi að taka fram að Jón skrif- ar undir vegna þess að hann er að semja fyrir ríkisstjórnina sem hann er í en vill ekki kann- ast við að hann skrifi undir neitt í sínu nafni. Þegar hér var komið sögu í tilraunum mínum til að skilja blekið I penna Jóns ákvað ég að íslensk stjórnmál væru jafn- vel enn flóknari en við væri að búast. Ég leyfi mér að efast um að aðrir kjósendur Framsóknar- flokksins hafi á þessu betri skilning en ég sem er langþjálf- aður í þessu hringferli rök- hyggjunnar sem flokkur okkar er þekktur fyrir og lýsir sér í því að hafa eina skoðun áður en vellingurinn er etinn og hina skoðunina á eftir án þess að hafa skoðun. Við skulum því hugsa þetta svona til að auðvelda okkur vor- kosningarnar: Mönnum finnst þrátt fyrir Hjörleif að ráðlegt sé að selja rafmagn og byggja virkjanir án þess að skrifa undir. Til öryggis eru flestir ráðherr- ar í rikisstjórninni á móti þessu. Þeir samþykkja þetta þess vegna. Allir í ríkisstjórninni eru sam- mála um að svona álver sem þeir eru á móti skuli rísa á landsbyggðinni utan höfuð- borgarsvæðisins. Þaö er þess vegna ákveðið að byggja það á höfuðborgarsvæðinu. Allir i ríkisstjórninni eru sam- mála um að á svona iðnver skuli koma fullkominn vot- hreinsibúnaður. Það er þess vegna ákveðið að slfkur búnað- ur sé óþarfur. Öll ríkisstjórnin er sammála um að efla skuli atvinnu á landsbyggðinni. Þess vegna er að því stuðlað að sem flestir flytji þaðan. Enginn í rikisstjórninni vill vita undir hvað Jón skrifaði, það eru ýmist sendibréf, minnisblöð eða fundargerð. Ríkisstjórnin er ákveðin í að blekið í penna Jóns sé svoleiðis að enginn taki mark á því. Þess vegna er þessi undirskrift bind- andi fyrir alla ríkisstjórnina án þess hún vilji það og án þess að hún vilji vita að hún vill það sem gert er en hún segist ekki vilja. Ef undanfarinn texti er ill- skiljanlegur venjulegu fólki þá er það ekki mér að kenna þar sem ég er aðeins að útskýra stefnu stjórnarinnar okkar sem segist þó ekki vita hverju hún stjórnar né vitum við hverju hún stjórnar ekki eða hverju hún segist stjórna án þess að gera það. Ég verð að vísu að játa að þegar hér er komið við sögu er ég ekki alveg viss sjálfur um hvað þessi pistil fjallar en treysti því að þó að hann sé í fullu samræmi við þá stjórnarstefnu sem við búum við án þess að búa við hana enda vitum við ekki hvernig hún er vegna þess að okkur hefur verið kynnt hún svo rækilega án þess að nokkur vissi hvað væri verið að kynna. Ég vona samt að allt liggi þetta nú Ijóst fyrir með undir- skriftina hans Jóns og það eina sem vantar er svarið við þessari fánýtu spurningu: Undir hvað skrifaði Jón og var hann þá að skrifa fyrir ríkisstjórnina eða bara fyrir sig prívat til að vera kurteis við gesti sína? Kr. G. Jóh.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.