Dagur - 20.10.1990, Blaðsíða 17
Laugardagur 20. október 1990 - DAGUR - 17
efst í huga
Barlómur og
bleyðuháttur
Morgun þann sem þetta er skrifað lá leið mín frá
höfuðstaðnum Reykjavík, sem er einhvers stað-
ar á landsbyggðinni fyrir sunnan, til Akureyrar.
Samkvæmt fréttum og umtali hér fyrir norðan
virtist ég á rangri leið og hefði helst ekkert átt að
fara. En þar sem ég hef þegar ákveðið að flytjast
leiðina Akureyri-Reykjavík, eins og allir þeir er
ætluðu sér að græða á álveri og því tilheyrandi,
sættist ég á þessi ósköp.
Álversumræðan öll hefur oftar en ekki minnt
mig á söguna um Bakkabræður en munurinn er
sá að botninn endar ekki í Borgarfirði heldur
álverið á Keilisnesi. Hijóðin sem nú heyrast úr
börkum Eyfirðinga eru ýmist gleðióp „ekkert
álver, engin mengun," eða dauðahryglur „þessir
andsk... fyrir sunnan hirða allttil sín.“ Þetta við-
kvæði „þessir fyrir sunnan" hljómar ansi oft, líkt
og að fyrir sunnan ríki kóngur sem hafi stjórn á
landinu og skipi hlutum niður eftir geðþótta.
Síðastliðið haust fór ég í eina af peningastofn-
unum bæjarins, þar sem ég fyrir aldurs sakir
hafði öðlast rétt til að draga til min allan minn
skyldusparnað, sem ég ekki hafði eytt á námsár-
um. Ég hélt þetta nú ekki vera neitt tiltökumál en
í bankanum var mér tjáð að þetta tæki tíu daga.
Ég hváði og spurði hví. „Þetta bara er svona.
Þeir ráða þessu þarna fyrir sunnan,“ var svarið.
Þar sem ég var ekki alveg tilbúinn að gleypa það
hrátt, brá ég mér hið fyrsta í símann og hringdi í
„þessa þarna fyrir sunnan". Þar var mér tjáð að
kæmi ég með öll tilskilin skilríki tæki mig tíu
mínútur að fá peningana afhenta. Ég lagði á og
bölvaði „þessum þarna fyrir sunnan".
Síðan þá hef ég oft hugsað um þetta viðkvæði
„þessir þarna fyrir sunnan ráða öllu.“ Þessi
hugsun er nefnilega stórhættuleg og sýnir vel þá
vanmáttarkennd sem margir landsbyggðarmenn
eru haldnir gagnvart höfuðborginni og þeim
stofnunum sem þar eru. Þessu þarf að breyta.
Það er ekki hundrað i hættunni þótt ekki komi
álver. Aðra hluti er hægt að fá i staðinn. Það sem
þarf til er að hætta þessum barnalega hugsunar-
hætti „af hverju fær hann þetta en ekki ég“. Full-
þroska fólk ætti að gera sér grein fyrir því aö
hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér.
Ég geri ráð fyrir að mörgum sé orðið heitt í
hamsi og hugsi „þessi andsk.. að sunnan honum
ferst að rífa kjaft er sjálfur á leiðinni burt.“ En
málið er ekki svo einfalt. Ekki dugir að standa út
við vegg og kjökra „þessir Sunnlendingar hafa
allt og fá allt.“ Það fólk sem nú er á efri árum er
ekki vant að fá allt upp í hendurnar. Þeir hlutir
sem ekki var hægt að útvega voru búnir til. Eins
er með atvinnutækifæri hér á Norðurlandi sem
og annars staðar á landsbyggðinni, það sem við
ekki fáum verðum við að skapa. Landsbyggðar-
fólk er ekki annars flokks þjóðfélagsþegnar sem
lifír líkt og sníkjudýr á skrifstofubákninu í Reykja-
vik, en meðan það gerir sér ekki grein fyrir því
sjálft gerist ekkert. Það kostar ekkert að hætta
þessum betlarahugsunargangi, opna hugann,
líta björtum augum fram á við og skoða mögu-
leikana, hvað hægt er að skapa í stað þess að
bíða eftir brauðmylsnunni sem að okkur er rétt.
Kristján Logason.
Díllintátur og fótbolti
Eitt af því sem sá sem þetta ritar
þurfti að láta á móti sér þegar Akur-
eyri var kvödd, var vikuleg ferð á
völlinn. Ekki vóru þær ferðir svo sem
alltaf til að sjá okkar menn vinna eða
til að sjá glæsilega knattspyrnu. Síð-
astliðið sumar var nefnilega ekki að
öllu leyti hagstætt áhugamönnum um
knattspyrnu. Það var til dæmis sam-
mæli okkar félaganna á klöppinni að
heimsmeistarakeppnin hefði ekki
eins góð áhrif á leikmenn fyrstu
deildar eins og áhorfendur. Mér hefir
fundist að þegar heimsmeistara-
keppni er sýnd i sjónvarpi fjölgi tals-
vert vandlátum áhorfendum á vellin-
um heima. Líka verða menn ótrúlega
sérfræðingar í leikkerfum, brotum
leikmanna og síðast en ekki síst sér-
fræðingar í dómgæslu. Surnir þurfa
auðvitað ekki neina heimsmeistara-
keppni til að öðlast óbrigðult skyn á
þetta allt saman en það er nú önnur
saga. Nú fór mér eins og fleirum síð-
astliðið sumar að mér þótti oft bragð-
daufur fótbolti á vellinum - ekki síst
ef ég hafði nýlega séð Roger Milla
ellegar Armando Diego Maradona
leika listir sínar í sjónvarpinu. Það
var líka orðið næsta víst þegar ég fór
að ekki myndu mínir menn í KA
halda íslandsmeistaratitlinum og
Þórsarar áttu verulega bágt. Nú segja
mér síðustu fréttir af íslandi að Þórs-
arar leiki í annarri deild að ári og
KA-menn hafi mátt hafa sig alla við
að falla ekki líka. Ja, öðruvísi mér
áður brá.
Hér í Ameríku hugsa menn ekki
mikið urn fótbolta og hafa ekki nema
sumir hugmynd um að Bandaríkja-
menn komust á einhvers konar hund-
aheppni lengra í síðustu heimsmeist-
arakeppni en nokkur hafði búist við.
Þó er aðeins farin að róta við mönn-
um sú staðreynd að næsta heims-
meistarakeppni í fótbolta verður víst
haldin í þessu stóra landi. Sá hængur
er á, að hér eru varla nokkurs staðar
til fótboltavellir eins og til þarf. Hér í
Utah-sýslu hafa menn ágirnd á að
næla í einhverja leiki í þessari
keppni; vita sem er að slíku fylgja
miklar auglýsingar, tekjur af áhorf-
endum og margt fleira gott.
Ekki vantar svo sem að hér eru til
mannvirki sem notuð eru til knatt-
leikja. Eitt slíkt tilheyrir háskóla
Brighams Young, þar geta margir
verið í senn að horfa á það sem hér
lendir kalla fótbolta eða football.
Það er nú reyndar rangmæli því bolt-
anum er ekki sparkað nema nokkr-
um sinnum í hverjum leik - lengst af
er hann í höndum leikmanna. Eg fór
á svona leik hér á dögunum. Þar vóru
66.043 áhorfendur - auk mín og
mesti aragrúi af leikmönnum, fána-
berum, dillintátum (klappstýrum),
lúðraþeyturum og öðru tilheyrandi
fólki. Svona leikur er talsvert meira
en kappleikur tveggja fótboltaliða,
þetta er að rniklu leyti skrautsýning
eða show eins og sagt er hér á bæ. í
upphafi var beðið fyrir velferð leik-
manna og annarra, friði í heiminum
o.s.frv. og var á meðan grafarþögn á
öllum vellinum!!!
Síðan var sunginn þjóðsöngur,
flutt ávörp til fyrirmanna keppenda
og fleira sem mér fannst nú reyndar
óskylt mál. Milli atriða marseraði
lúðrasveit um völlinn og blés ógur-
lega.
Eftir svo sem 20 mínútna atriði af
áðurnefndu tagi var farið að hyggja
að boltanum sjálfum. Alls er ætlað
að boltinn sé í leik í klukkutíma,
4x15 mínútur, en ýmsar tafir bættust
þar við. Með því allra skringilegasta
var þegar h.u.b. 3 mínútur vóru af
leik. Þá skyldu mínir menn (frá BYU
eða háskóla Brigham Young) hefja
sókn en ekkert gerðist. Fór svo fram
um hríð að leikmenn og dómarar
(a.nt.k. 5 talsins) gengu um gólf á
vellinum án þess að hafast nokkuð
að. Ég spurði félaga minn skýringa á
þessu - hann sagði að nú væri hlé fyr-
ir auglýsingar í sjónvarpinu. Leikur-
inn var sumsé sýndur jafnharðan í
sjónvarpi og fékkst ærið fé.fyrir. En
þá varð líka sjónvarpsstöðin að fá
eitthvað fyrir sinn snúð; hlé vóru
gerð á leiknum af og til svo að hægt
væri að skjóta inn auglýsingum í
ábataskyni fyrir sjónvarpsstöðina.
Auk þess er klukkan jafnan stöðvuð
þegar hverju upphlaupi lýkur enda
fór svo að þegar leik var lokið vóru
liðnir tæpir fjórir klukkutímar frá því
að athöfnin hófst.
Glaðasólskin var allan þennan
tíma og meir en 20 stiga hiti, enda
var íslendingurinn orðinn sveittur og
sólbrúnn annars vegar eftir þessa
ferð.
Ekki jafnaðist nú svona leikur á
við það þegar mínum mönnum tókst
vel upp, t.d. að vinna Fram eða Val
en hér verður maður að segja eins og
flakkarinn í sögunni: Hafa skal það
sem er hendi næst og hugsa ekki um
það sem ekki fæst.
Með fótboltakveðju,
Valdimar Gunnarsson.
Tilboð óskast
í eftirtaiin ökutæki, sem skemmst hafa í
umferðaróhöppum:
MMC Colt 1300 GL ................. árgerð 1991.
MMC Lancer GLX ................... árgerð 1988.
MMC Space Wagon .................. árgerð 1988.
Range Rover ...................... árgerð 1985.
Peugeot 205 GTi .................. árgerð 1985.
Ford Sierra Ghia ................. árgerð 1983.
Kawazaki Z 1000 .................. árgerð 1978.
Ökutækin verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð
V.Í.S. að Furuvöllum 11, Akureyri, mánudaginn
22. október n.k. frá kl. 09.00 til 16.00.
Svæðisskrifstofa Akureyri.
Akureyri-Dalvík-Ólafsfjörður
Sérleyfishafi: Ævar Klemensson
VETRARÁÆTLUN 1990-1991
1. október-14. maí: S M Þ M F F
Frá Ólafsfirði til Akureyrar 19.30 08.30 08.30 08.30
Frá Dalvík til Akureyrar 20.00 13.00 09.00 09.00 09.00 09.00
Frá Dalvik til Akureyrar 06.30 15.00
Frá Árskógssandi til Akureyrar 20.15 13.15 09.15 09.15
Frá Akureyri til Dalvíkur 21.00 15.30 08.00 12.30 12.30
Frá Akureyri til Dalvíkur og 12.30 12.30
Ólafsfjarðar 17.00
15. maí-30. júní:
Frá Ólafsfirði
Frá Dalvík
Frá Árskógsströnd
Frá Akureyri
Frá Akureyri
08.30
09.00
09.15
12.30
08.30
09.00
12.30
08.00x
08.30
09.00
09.15
12.30
08.30
09.00
12.30
08.30
09.00
09.15
12.30
Afgreiðsla á Akureyri: I Umferðamiðstöðinni Hafnarstræti 82.
Upplýsingar um ferðir í sima 24442. Vörumóttaka í síma 24729.
Opin alla virka daga frá kl. 09.00 til 17.00 á vörum til Hríseyjar,
Grímseyjar, Dalvíkur og Ólafsfjarðar.
Ferðir til Ólafsfjarðar breytast eftir að göngin opnast.
Afgreiðsla á Dalvík:
Ævarog Bóas sf. Sandskeiði 14.
Sími vöruafgreiðslu 61597.
Sérleyfis- og hópferðir
símar 61124 og 61654.
x Aðeins ekið til Dalvíkur.
Afgreiðsla Óslafsfirði:
Söluskálinn við Ægisgötu
sími 62272.
Ólafsfirðingar þurfa að
panta far i ferðina kl. 19.30.
Á sunnudag fyrir kl. 18.00.
Munurinn er
Herradeild
Melka