Dagur - 29.11.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur Akureyri, fímmtudagur 29. nóvember 1990 230. tölublað
Salmonellusýkingin á Akureyri:
Óljóst hvemig bakterían
barst í matvælm
- sjö salmonellutilfelli staðfest
Víkingur Björnsson frá Eldvarnaeftirlitinu sýndi starfsfólki FSA notkun og meðferð handslökkvitækja í gær.
Mynd: Golli
Ólafur Oddssun, héraðslæknir
á Akureyri, segir að unnið sé
að rannsókn salmonellusýking-
arinnar á Akureyri, sem stað-
fest var í vikunni, en ekki liggi
fyrir hvenær henni Ijúki. Að
rannsókninni vinna læknar á
Akureyri í samvinnu við Karl
Kristinsson, sýklafræðing í
Reykjavík.
Ólafur segir að þó að fyrir liggi
að þarna hafi verið á ferðinni
salmonella, þá sé alls ekki Ijóst
livaðan salmonellubakterían,
sent ber heitið „cnteritidis", barst
í matvælin. „Þetta gcrðist í sam-
kvæmi hér á Akureyri og sá far-
aldur sem þarna kom upp virðist
vera genginn yfir." sagði Ólafur.
Hann sagði að staðfest hafi
verið sjó tilfelli af umræddri
salmonellubakertíu. óþh
Aflabrögð togara léleg um land allt:
Togarar ÚA ná varla að klára kvótann
Fyrirsjáanlegt er að þeir togar-
ar Útgerðarfélags Akureyringa
sem eru á aflamarki ná varla
að veiða upp kvóta sinn á
þessu ári. Orsökin er treg veiði
allar götur frá því í haust. Þeir
togarar sem eru á sóknar-
marki hjá félaginu hætta veið-
íþróttaskemman:
„Alltaf tjaldað
til einnar nætur
segir Hreinn Óskarsson, forstöðumaður
64
„Þakið hefur aldrei verið lekt,
en hins vegar er það talið
ótraust. Mat bygginga- og
tæknimanna er að skipta þarf
um þakviði hússins. íþrótta-
skemman er orðin 25 ára, reist
sem vélaverkstæði fyrir Akur-
eyrarbæ. I raun hefur alltaf
verið tjaldað til einnar nætur í
þessu húsi sé litið til íþrótta-
mála. Húsið hefur verið sem
björgunarbátur og er enn,“
sagði Hreinn Óskarsson, for-
stöðumaöur.
tónleika. Tónlistarskólinn hefur
fengið hér inni, t.d. síðastliðið
vor. í íþróttaskemmunni hefur
ætíð verið líf og fjör og húsið hef-
ur sannað sig fyrir löngu,“ sagði
Hreinn Óskarsson. ój
um um miðjan desember eða
fyrr.
Nýi Sólbakur og Hrímbakur
eiga eftir urn það bil 14 daga af
sóknarkvóta sínum. Gamli Sól-
bakur á ekki eftir nema þrjá eða
fjóra daga þar til hann stoppar.
Ásgeir Arngrímsson, útgerðar-
tæknir hjá Ú.A., segir að aðrir
togarar félagsins haldi veiðum
áfram óslitið, því þeir eiga nægi-
legan kvóta eftir. Togurunum
verður því ekki lagt snemma eins
og í fyrra. Skylt er að gefa áhöfn-
um togara frí um jól og áramót
og dagana milli hátíða, og þá
daga verða því allir Ú.A. togarar
í heimahöfn. Þetta er breyting frá
því sem var, en áður þurftu stóru
togararnir að vera inni annaðhvort
um jól eða áramót. Harðbakur er
í slipp á Akureyri þessa dagana,
og slippur mun vera framundan
hjá fleiri skipum félagsins.
Sú sérstæða staða er komin
upp hjá Ú. A. að varla cr útlit fyr-
ir að togararnir nái að veiða all-
an þann kvóta sem þeir hafa, en
aflabrögð hafa verið ákaflega
treg undanfarið hjá togurum um
allt land. Aðrar útgerðir hafa
sömu sögu að segja, Guöbjörgin
ÍS 46, frægt aflaskip, kom t.d. inn
til ísafjarðar með 60 tonn eftir 12
daga veiðferð í síðustu viku.
„Togararnir munu líklega ekki
klára kvótann ef sama treg-
fiskiríið verður áfram. Þetta er
ekki gott, haustið er búið að vera
dauft, og afli hefur verið lélegur
undanfarið þótt tíðin hafi verið
góð og ekkert að veðri. Sólbakur
gamli hefur verið með einna best-
an afla og komið vel út upp á síð-
kastið, en það stendur til að
leggja honum eins og menn vita,“
segir Ásgeir Arngrímsson. EHB
EyjaQarðarsýsla:
Þrjár stöður
hreppstjóra
auglýstar
Sýslumaðurinn í Eyjaljarð-
arsýslu hefur auglýst þrjár
stöður hreppstjóra í sýsl-
unni, í Svarfaðardal, Hrísey
og Öxnadal, lausar til um-
sóknar. IJmsóknarfrestur er
til 10. desember nk., en ráð-
ið er í stööurnar frá og með
næstu áramótum.
Tveir hreppstjóranna,
Hjörtur E. Þórarinsspn á
Tjörn í Svarfaðardal og Björn
Björnsson í Hríscy, láta af
störfum fyrir aldurs sakir en
Árni Brynjóifsson, hreppstjóri
í Öxnadal, hefur flutt sig um
sct til Akureyrar og því losnar
hreppstjórastaðan þar.
Áð sögn Elíasar Elíassonar,
sýslumanns, cru ekki sett upp
nein ákveðin skilyrði fyrir
umsóknum og því er öllum
viðkomandi hreppsbúunt heim-
ilt að sækja um.
Elías segir að starfssviö
hreppstjóra hafi minnkað í
tínians rás. Þeir eru fyrst og
fremst umboðsmenn sýslu-
manns og hafa með höndum
löggæslustörf, lögskráningar,
útgáfu vottorða o.fl.
Fyrir liggur, að sögn-Elías-
ar, að auglýsa stöðu hrepp-
stjóra í hinni nýju sameinuðu
Eyjafjarðarsveit. óþh
Starfshópur um sorpeyðingu á Eyjafjarðarsvæðinu:
Telur sorpurðun vænlegasta í framtíðinni
- til greina kemur að urða allt sorp í Eyjafirði á einum stað
Að sögn Hreins er íþrótta-
skemman í notkun alla daga
vetrarins, jafnt á virkum dögum
sem um helgar. Oddeyrarskól-
inn, Þelamerkurskólinn og
Háskólinn eru þar með ieikfimi-
kennslu sína. Þór og KA æfa
boltaíþróttir í húsinu og fleiri
íþróttafélög eiga athvarf í
Skemmunni. „Já, aðsóknin er
mikil á tímum íþrótta og heilsu-
ræktar. Einstaklingar og hópar
sækja hingað, þegar skólarnir og
íþróttafélögin eru ekki hér. Við
reynum að halda húsinu snyrti-
legu og lagfæra allt eftir bestu
getu. Skemman hefur staðið sig
vel ef svo má segja. Nýtingin er
góð yfir vetrartímann og yfir
sumartímann hefur húsið verið
notað til myndlistarsýninga og
Það er sameiginlegt álit starfs-
hóps um sorpeyðingu á Eyja-
fjarðarsvæðinu að ef horft er
til framtíðar sé urðun sorps
vænlegasti kosturinn. Til
greina kemur að sameinast um
einn sorpurðunarstað fyrir allt
Eyjafjarðarsvæðið, en umræð-
ur um þessi mál eru á frumstigi
og starfshópurinn, sem í eiga
sæti fulltrúar sveitarfélaga við
Eyjafjörð og Heilbrigðiseftir-
lits Eyjafjarðar, hefur aðeins
komið saman til eins fundar og
því á eftir að skoða þetta mál
nánar áður en ákvörðun verð-
ur tekin.
Þessum starfshópi var komið á
að frumkvæði heilbrigðisnefndar
Akureyrar, en hún taldi að stefna
bæri að sameiginlegum lausnum
sveitarfélaganna á Eyjafjarðar-
svæðinu um framtíðarskipan
sorpeyðingar á svæðinu.
Héraðsráð fjallaði um málið og
skipaði heilbrigðisfulltrúa Heil-
brigðiseftirlitsins og fulltrúa
stærstu sveitarfélaga við Eyja-
fjörð í starfshóp til að fjalla um
málið og gera frumtillögur. Þegar
tillögurnar líta dagsins Ijós munu
þær verða lagðar fyrir sveitar-
stjórnir á svæðinu til umfjöllun-
ar.
Valdimar Brynjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Eyjafjarðar, segir að menn telji
að sorpbrennsla sé ekki framtíð-
arlausn fyrir svæðið, því hún
krefjist geysilega kostnaðarsamra
mengunarvarnatækja.
Valdimar segir að í raun sé það
reikningsdæmi hvort sveitarfélög
sameinist um einn sorpurðunar-
stað í nágrenni Akureyrar, eða
hvort sorp verði urðað á þrem
stöðum, við Akureyri og sitt
hvorum megin við utanverðan
Eyjafjörð.
Valdimar segir það álit manna
að sorpurðun á ruslahaugum
Akureyrar á Glerárdal sé ekki
hættuleg, en hins vegar vilji merih'
koma í veg fyrir urðun hættu-
legra efna þar. „Mengunarvarna-
reglugerðin kveður á um að sveit-
arfélög eigi að koma upp mót-
tökustöð fyrir hættuleg efni, og
það er eitt af því sem við erum að
skoða.
Miðað við nýju mengunar-
varnareglugerðina er aðkallandi
að koma upp móttökustöð fyrir
eiturefni og hættuleg efni,“ sagði
Valdimar.
Hann sagði að kostnaður við
móttökustöð fyrir hættuleg efni
þyrfti ekki að vera mikill, en
augljóslega yrði dýrast að eyða
þessum efnum, hvort sem er hjá
Sorpeyðingu höfuðborgarsvæðis-
ins eða erlendis. „Þetta er ekkert
farið að skoða,“ sagði Valdimar.
Samkvæmt athugun sem Heil-
brigðiseftirlit Eyjafjarðar gerði á
síðastliðnu ári má ætla að fremur
litlu magni svokallaðra hættulegra
efna sé hent á sorphauga á svæð-
inu. Erfitt er þó að henda
nákvæmlega reiður á þessu. óþh