Dagur - 29.11.1990, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 29. nóvember 1990
Aðventuskreytingar Verklegar framkvæmdir Akureyrarbæjar
og allt skreytingaefni
fyrir aðventuna
svör bæjarverkfræðings við fyrirspurn Kolbrúnar Þormóðsdóttur
Úrval í gjafavöru.
Akureyri
4800 og 24830
Bökunarvörur
á tilboðsverði
Jólakonfektið komið
Frábært verð
★
Kerti • Dúkar • Serviettur
Op/ð frá kl. 10.00-16.00
laugardagirm 1. desember
Verslið
hagstætt
Krónan er verðmikil hjá okkur
Kolbrún Þormóðsdóttir, bæjar-
fulltrúi, bar fram fyrirspurn í 4
liðum á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar 4. september. Spurt
var um ástæður þess að ýmsar
framkvæmdaáætlanir bæjarins
stæðust ekki og hver væri ábyrg-
ur, hvers vegna vinnu við endur-
bætur utanhúss og innan við
grunnskóla hefði ekki verið lokið
þegar skólastarf hófst sl. haust,
hvort löglegt væri að stórfram-
kvæmdir væru hafnar á lóðum
grunnskóla eftir að nemendur
fara að sækja skólana og hvort
öryggis væri gætt, í fjórða lagi
hver væri ábyrgur fyrir seinkun
á framkvæmdum á lóð Lundar-
skóla.
Vegna fyrirspurnar Kolbrúnar
Þormóðsdóttur til formanns
skólanefndar og forseta bæjar-
stjórnar á fundi bæjarstjórnar 4.
september 1990.
1. liður fyrirspurnar
Þar sem þessi liður fyrirspurnar-
innar tekur til verkframkvæmda
almennt, og ýmsar ástæður geta
legið til þess að röskun verði á
kostnaðar- og tímaáætlun verk-
framkvæmdar er tiltækast að
svara þessum lið með því að taka
eftirfarandi dæmi um verkfram-
kvæmdir og helstu ástæður þess,
að kostnaðar- og tímaáætlun
verkframkvæmdar verður í reynd
önnur en miðað var við í áætlun-
argerð, sem lögð var til grund-
vallar ákvörðun um framkvæmd-
ina og fjárveitingu í fjárhagsáætl-
un.
1. Dæmi um viðhald skólahús-
næðis.
Ef byggingadeild berast of
seint óskir frá grunnskólum
bæjarins um forgangsröðun verk-
efna í viðhaldsframkvæmdum,
sem taka þarf til áætlunargerðar
vegna gerðar fjárhagsáætlunar,
svo og ef deildin sjálf sinnir ekki
því hlutverki sínu sem skyldi að
hafa frumkvæði að því, að við-
haldsframkvæmdir í grunnskól-
unum séu teknar til áætlunar-
Nú fyrir jólin höfum við breytt til í versluninni
og bjóðum þér viðskiptavinur góður upp á
aðgengilegri og rýmri verslun.
Jólavörur teknar upp á hverjum degi.
Mikið úrval í jólasteikina:
Bayoneskinka
Hamborgarhryggur
Kambur
Kalkúnar
Hreindýrasteikur
Rjúpur
og fl. og fl.
Okkar stórglæsilega kjötborð fullt af girnilegum réttum.
Vikutilboð: Kindabjúgu 395 kr. kg
Opið alla daga til kl. 22.
Ath! Tesco leggur áherslu á að þeirra vörur séu ekki náttúruspillandi.
MATVORUMARKAÐURINN
I yV KAUPAHGI yv
MIA MMiMiaihMI AI !i ■
gerðar í tæka tíð fyrir gerð fjár-
hagsáætlunar þá er hætta á því,
að ekki gefist nægur tími til að
ljúka gerð fullnaðaráætlunar fyrir
gerð fjárhagsáætlunar, þannig að
kostnaðaráætlun verður ónákvæm
og hönnunarforsendur kunna að
breytast síðar við nánari endur-
skoðun sem leitt getur til þess að
kostnaðaráætlun í reynd verði
önnur, en gengið var út frá við
gerð fjárhagsáætlunar. Rétt er og
að geta þess að oft reynist erfitt
að áætla kostnað við viðhalds-
framkvæmdir, þar sem eitt og
annað vill koma í ljós, þegar far-
ið er að vinna verkið, sem ekki
var séð fyrir, en verður til hækk-
unar á framkvæmdinni. Þegar
fjárveiting til viðhaldsfram-
kvæmda í grunnskólum liggur
fyrir í fjárhagsáætlun, þá þarf
byggingadeildin að gera tíma-
áætlun um framkvæmd viðhalds-
verkefnanna, miðað við að þau
séu unnin á meðan grunnskólarn-
ir eru ekki starfræktir. Ákveða
þarf hvaða viðhaldsverkefni
byggingadeildin geti sjálf annast
og hvaða viðhaldsverkefni verði
falin verktökum. Tímaáætlun
framkvæmda getur því raskast, ef
ekki er búið að semja við verk-
taka í tíma um þær framkvæmdir
sem þeim er ætlað að vinna.
Það verður ennfremur til að
raska tímaáætluninni, ef í ljós
kemur að ákveðin viðhaldsfram-
kvæmd reynist kostnaðarsamari
og tímafrekari, en áætlað var,
vegna ófyrirséðrar aukningar á
framkvæmdinni, sem leitt getur
til þess að röskun verði á tíma-
áætlun annarra viðhaldsverk-
efna.
2. Dæmi um gatnagerð.
Kostnaðaráætlun við gerð fjár-
hagsáætlunar, vegna endurbygg-
ingar götu, er miðuð við ákveðn-
ar kostnaðarforsendur, einingar-
verð og aðstæður. Ef um er að
ræða endurbyggingu götu á Mið-
bæjarsvæðinu geta jarðvegsskipti
reynst meiri en áætlað var og
endurnýjun holræsalagna reynst
tímafrekari og kostnaðarsamari
en ráð var fyrir gert, m.a. vegna
þess að aðstæður reynast erfiðari
og vinna þarf að holræsalögnum
á fjöru.
Þetta getur leitt til þess að
röskun verði bæði á kostnaðar-
áætlun og tímaáætlun.
Þegar um er að ræða nýbygg-
ingar götu er kostnaðaráætlun
við gerð fjárhagsáætlunar miðuð
við ákveðnar kostnaðarforsend-
ur, einingarverð og aðstæður.
Tímaáætlun framkvæmda miðast
við að lóðir verði byggingarhæfar
á ákveðnum tíma vegna lóðar-
úthlutunar. Ef deiliskipulag er
hins vegar of seint á ferðinni, þá
getur það orðið til þess að seinka
allri áætlunargerð hjá tæknideild
og veitustofnunum, þannig að
ólokið sé gerð mæliblaða, hönn-
un götu og stofnlagnar holrassis,
þegar kostnaðaráætlun þarf að
liggja fyrir við gerð fjárhagsáætl-
unar. Þegar svona stendur á
verða allar kostnaðaráætlanir
mjög ónákvæmar og ágiskana-
kenndar og líklegar til að breyt-
ast við gerð fullnaðaráætlunar,
sem verður allt of seint á ferð-
inni. Æskileg tímasetning fram-
kvæmda raskast og lóðarúthlutun
seinkar til óhagræðis fyrir vænt-
anlega verktaka og húsbyggjend-
ur. Síðbúin áætlunargerð við
kringumstæður sem þessar getur
jafnvel komið í veg fyrir að raun-
hæft sé að bjóða út verkið til
verktaka, þótt það kynni að vera
æskilegur kostur við eðlilegar
aðstæður.
3. Dæmi um nýbyggingu dag-
vistar.
Nú tekur bæjarstjórn ákvörð-
un um byggingu nýrrar dagvistar
við gerð fjárhagsáætlunar. Ef
fjárveiting í fjárhagsáætlun til
framkvæmdarinnar er miðuð við
kostnaðaráætlun, sem byggð er á
fullnaðaráætlun um verkfram-
kvæmdina, þá má vænta þess að
kostnaðaráætlun og tímasetning
framkvæmda standist og að unnt
verði að bjóða verkið út á réttum
tíma.
Ef hins vegar fjárveiting til
verksins er miðuð við áætlaðan
kostnað, sem byggður er á frum-
áætlun og hönnunarforsendum
sem eiga eftir að breytast, áður
en fullnaðarhönnun og fullnaðar-
áætlun um verkframkvæmdina
liggur fyrir, þá má alveg eins
búast við því að kostnaðaráætl-
unin reynist hærri en áætlað var
við gerð fjárhagsáætlunar.
Ef fullnaðaráætlun dregst
meira en ætlað er, getur það leitt
til þess að ekki verði hægt að
bjóða út verkið á réttum tíma og
verkinu seinki.
Niðurstaða getur því orðið sú,
að kostnaður við framkvæmdina
verði allmiklu hærri en áætlað var
í fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og að
hin nýja dagvist komist mun síð-
ar í rekstur en áætlað hafði verið.
Varðandi fyrirspurnina undir
þessum lið, hver beri ábyrgð á
því að kostnaðar- og tímaáætlan-
ir standist ekki, þá má sjá af fram-
angreindum dæmum að margvís-
legar aðstæður geta legið til þess
að kostnaðar- og tímaáætlun verk-
framkvæmdar raskist.
En almennt er því til að svara,
að deildarstjórar bera ábyrgð á
rekstri og starfsemi sinna deilda
og stjórnunaraðgerðum gagnvart
hlutaðeigandi nefndum og fram-
kvæmdastjórum sviða samkvæmt
starfslýsingu.
Framkvæmdastjórar sviða bera
ábyrgð á starfsemi þeirra deilda
sem tilheyra þeirra sviði og bera
ábyrgð á stjórnunaraðgerðum
gagnvart bæjarstjóra samkvæmt
starfslýsingu. Að öðru leyti fer
um ábyrgð starfsmanna í starfi
samkvæmt reglum um réttindi og
skyldur starfsmanna Akureyrar-
bæjar.
Bæjarstjórn ber svo að sínum
hluta ábyrgð á störfum starfs-
manna bæjarins og samþykktum
og ákvörðunum um verklegar
framkvæmdir.
2. liður fyrirspurnar
Á þessu ári voru verkfram-
kvæmdir við grunnskólana þessar
helstar:
1. Framkvæmdir við lausar
kennslustofur við Síðuskóla.
Framkvæmdum var lokið við
upphaf skólaárs.
2. Framkvæmdir við stjórnun-
arálmu Gagnfræðaskólans. Fram-
kvæmdum var lokið fyrir upphaf
skólaárs, sem og öðrum fram-
kvæmdum, ef undan er skilinn
frágangur á vöskum í eðlisfræði-
stofu sem enn er ólokið. Það staf-
ar m.a. af því að þegar unnið var
við framkvæmdir við stjórnunar-
álmuna samkvæmt áætlun og for-
gangsröðun verkefna, komu fram
kröfur um að útbúa söluaðstöðu
fyrir nesti til nemenda, sem talin
var forsenda samfellds skóladags.
Þetta raskaði kostnaðar- og tíma-
áætlun verksins.
3. Framkvæmdir vegna íþrótta-
aðstöðu í íþróttahúsi Sjálfsbjarg-
ar. Framkvæmdum var lokið um
mánaðamótin september-októ-
ber. Ákvörðun um framkvæmd-
ina var tekin allt of seint og
hönnunarforsendur og skilgrein-
ing verkefnisins óljós við gerð
fjárhagsáætlunar. Kostnaðar-
áætlun við verkframkvæmdina
var þar af leiðandi ónákvæm og
I
«
«
t
4