Dagur - 29.11.1990, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 29. nóvember 1990
Tökumá
móti pöntunum
í jólakort
með afslætti
til kl. 16 laugardaginn 1. des.
Ath. Opið laugardag 1. des. tilkl. 16.
cPedlömJ«úter,
Hafnarstræti og Hofsbót
7 tímar hjá okkar kosta
aðeins 7.400 kr.
í desember.
Sólstofan
Glerárgötu 20, II. hæð, sími 25099.
Melka kuldaúlpur
Munurinn er augljós!
Herradeild
Hjónanámskeið á Norðurlandi:
Ungt fólk með hlutverk á ferð
með norskum flölskylduráðgjafa
Eivind Frnen, norskur fjölskylduráðgjafí, leið-
beindi á þrem hjónanámskeiðum á Norðurlandi
um mánaðamótin. Námskeiðin voru haldin á
Siglufírði, Akureyri og Húsavík en í sumar hélt
Eivind námskeið á Akureyri og Húsavík. Það eru
samtökin Ungt fólk með hlutverk sem staðið hafa
fyrir námskeiðshaldinu í samvinnu við sóknar-
nefndir á hverjum stað. Tveir félagar í samtökun-
um hafa ferðast um með ráðgjafanum, þeir Friðrik
Schram formaður samtakanna sem túlkar fyrir
Eivind á námskeiðunum og Þorsteinn Kristiansen
starfsmaður samtakanna á Akureyri sem hefur
haft umsjón með námskeiðshaldinu.
Samtökin Ungt fólk með hlut-
verk voru stofnuð 6. júní 1976 en
það var fyrst fyrir þremur árum
sem þau stóðu fyrir hjónanám-
skeiði í Reykjavík og fengu
Eivind til að leiðbeina. Nám-
skeiðið var haldið til prufu, það
stóð í þrjú kvöld og tókst mjög
vel. Um 100 manns sóttu nám-
skeiðið. Síðan hefur ekki verið
haldið slíkt námskeið á vegum
samtakanna í Reykjavík en hins
vegar þrjú í Egilsstaðakirkju.
Eðlilegt að leita sér fræðslu
í fyrra fór Þorsteinn að hugsa um
að koma slíku námskeiði á hér
fyrir norðan og hafði samband
við Eivind. Þorsteinn er spurður
hvernig til hafi tekist: „Það voru
haldin námskeið hér í júnímán-
uði, það var að vísu erfiður tími
því það var glampandi sól úti og
heimsmeistarakeppnin í fótbolta
á fullu í sjónvarpinu. Við fengum
samt nokkuð góða þátttöku mið-
að við þessar aðstæður. Fólkið var
svo ánægt með þessi námskeið
og gaf þeim svo góða dóma að
við ákváðum að halda áfram. Það
kemur í ljós núna í haust að þar
sem við höfum haldið námskeið
áður, á Akureyri og Húsavík, er
þrisvar sinnum meiri þátttaka en
fyrr. Þessi ótti hjá fólki við að
fara á hjónanámskeið hverfur
þegar það finnur að það er eðli-
legt að leita sér fræðslu um þessi
mál, rétt eins og þegar ungt fólk
fer á námskeið til að læra á bíl.
Þó segjum við stundum að það sé
flóknara mál að lifa lífinu í
hjónabandi en að aka bíl. Nú
erum við að íhuga möguleika á
að halda áfram þessum nám-
skeiðum á Norðurlandi, jafnvel í
maí. Næsta haust erum við svo að
hugsa um að halda námskeið, og
ég vona að þau geti orðið fastur
liður á hverju hausti þannig að
fólk geti reiknað með þeim. Við
vildum gjarnan heyra frá bæjar-
félögum á Norðurlandi sem hafa
áhuga á að fá til sín svona nám-
skeið.“
- Hvað margir sóttu nám-
skeiðin nú í haust?
„Fjöldinn skiptir ekki alltaf
öllu máli heldur það að fólkið sé
ánægt. En á Húsavík komu 50 á
námskeiðið, 40 á Akureyri og 17
á Siglufirði.“
- Hvaða ályktun má draga af
því að fleiri koma á hjónanám-
skeið á Húsavík en Akureyri, í
mikið fámennara bæjarfélagi?
„í litlum bæ berast fréttir eins
og eldur í sinu og allir fá að vita
um hlutina en Akureyri er orðin
það stór bær að þetta fréttist ekki
á sama hátt. Ég hef trú á því að
við fáum marga á námskeið á
Siglufirði næst, ef þátttakendurn-
ir láta vel af námskeiðinu sem
haldið var þar.“
Eivind segir að á hverjum stað
sé fólk í fyrstu tregt til þátttöku í
slíkum námskeiðum, og líti svo á
að þau séu aðeins fyrir fólk með
stærri vandamál en það eigi sjálft
við að stríða.
- Hvaða fólki er ráðlagt að
sækja námskeiðin Eivind, aðeins
fólki sem á við mikil vandamál að
stríða eða jafnvel fólki með engin
vandamál?
„Ég held að allir eigi við ein-
hver vandamál að stríða. Sumir
koma á slíkt námskeið sem loka-
tilraun til að koma málunum í lag
þegar liggur við skilnaði, en aðrir
koma með minni vandamál. Ég
held því að námskeiðin henti
öllum.“
Góð hjónabönd verða betri
Eivind og kona hans hafa í sam-
vinnu samið efnið fyrir hjóna-
námskeiðin og unnið að þróun
þeirra í nokkur ár. Aðalstarf
Eivinds er þó að annast kennslu
ýmsra ráðgjafa og presta og ferð-
ast hann víða um heim þeirra
erinda.
Eivind segir að það sem hann
kenni á hjónanámskeiðunum sé
byggt á kenningum biblíunnar en
þó vitnar hann ekki oft í hana á
námskeiðunum sjálfum. Hann
segir að viðhorf séu mismunandi
frá landi til lands en hann velji þá
leið þegar hann kenni fólki að
benda því á hlutina, leyfa því að
uppgötva sannleikann í orðum
sínum og vísa síðan til biblíunn-
ar. Hann segir bakgrunn fólks
sem sæki námskeiðin ákaflega
mismunandi, sumir hafi kynnt
sér kenningar biblíunnar vel en
aðrir ekki.
Aðspurður segir Eivind að
honum finnist mjög létt að kenna
á íslandi og vili alls ekki meina að
íslendingar séu lokaðir, þó fólk í
sumum öðrum löndum virki opn-
ara sé það aðeins á yfirborðinu.
Hann segir að margir sem komi á
námskeið séu í fyrstu svolítið föl-
ir og taugaóstyrkir en það lagist
þegar á líður.
- Nú hafa þegar milli 60-70
manns á Húsavík, 2500 manna
bæ, sótt námskeið hjá þér. Eftir
nokkur námskeið í viðbót má
reikna með að þú hafir náð að
tala yfir verulegum hluta þeirra
bæjarbúa sem í sambúð eru. Áttu
von á að það breyti bæjarbragn-
um?
„Það vona ég. Ég vona að það
sem ég er að kenna hafi varanleg
áhrif. Ef ég héldi að efni þessara
námskeiða sé eitthvað sem ekki
Tónleikar í Húsavíkurkirkju:
Hólmfríður syngur í heimabæ sínum
- Juliet Faulkner við píanóið
Á sunnudaginn 2. des. verða
haldnir tónleikar á vegum
Húsavíkurkirkju og hefjast
þeir kl. 17 í kirkjunni. Það eru
Hólmfríður S. Benediktsdótt-
ir, sópran og Juliet Faulkner,
píanóleikari sem fram koma á
tónleikunum. Þetta eru fyrstu
tónleikar Hólmfríðar á Húsa-
vík eftir að hún lauk masters-
námi í einsöng frá Indiana
University í Bloomington sl.
sumar.
Efnisskráin er mjög fjölbreytt.
Flutt verða verk eftir íslensk
alþýðutónskáld; Gylfa Þ. Gísla-
son og Eyþór Stefánsson. Einnig
verða flutt lög eftir Atla Heimi
Sveinsson og lög frá Þýskalandi,
Frakklandi, Ítalíu og Bandaríkj-
unum.
Hólmfríður starfar sem söng-
kennari við Tónlistarskólann á
Akureyri en býr á Húsavík þar
sem hún er fædd og uppalin. „Ég
lít á þessa tónleika sem lokatón-
leika hér heima. í sumar þurfti ég
að ljúka mastersnáminu með tón-
leikum úti, en mér finnst í raun-
inni ég ekki vera búin að ljúka
þessu námi fyrr en ég er búin að
halda tónleika hér heima.
Undanfarin þrjú sumur hefur
kennarinn minn verið Klara
Barlow. Hún hefur gefið mér
mikið og ég er mun meðvitaðri
sem söngvari. Að mínu mati hafa
gæði söngsins mikið aukist við
námið hjá Klöru. Við Juliet höf-
um unnið að undirbúningi tón-
leikanna frá því í haust. Það hef-
ur þó gengið á ýmsu hjá okkur
eins og verða vill hjá fólki með
fjölskyldur, æfingum þarf að
fresta því börnin fá pestar og við
vinnum báðar mikið og svo hafa
æfingar fallið niður vegna veðurs
og færðar og af ýmsum orsökum.
Juliet er þannig undirleikari sem
alla söngvara dreymir um að
vinna með og nú erum við tilbún-
ar, og þetta brestur á á sunnudag-
inn,“ sagði Hólmfríður, aðspurð
um tónleikana.
Juliet Faulkner er kennari við
tónlistardeild Hafralækjarskóla.
Hún stundaði nám í píanóleik,
bæði sem einleikari og undirleik-
ari, við Royal Academy of music.
Hún lærði einnig hjá stjórnanda
Royal Opera House Covent
Garden. Juliet starfaði sem
undirleikari við Royal Academy
of Music og hún hefur haldið tón-
leika víða um England, m.a. í
The Queen Elizabeth Hall.
Juliet sagði að efnisskrá tón-
leikanna væri mjög skemmtileg.
Hún sagði að þær Hólmfríður
hefðu unnið saman áður, fyrir
fjórum árum, og þá æft allt annað
prógramm. Juliet sagði að mjög
þægilegt væri að vinna með
Hólmfríði og þær þekktust mjög
vel. IM