Dagur - 29.11.1990, Page 9
Fimmtudagur 29. nóvember 1990 - DAGUR - 9
Friðrik Schram, formaður samtakanna Ungt fólk með hlutverk, Þorsteinn Kristiansen starfsmaður samtakanna á
Akureyri og Eivind Fröen norskur fjölskylduráðgjafi sem haldið hefur námskeið á Norðurlandi að undanförnu.
Mynd: 1M
BÓKABÚÐ JÓNASAR
Jólakort
Úrvalið okkar er frábœrt
og aðgengilegt
Komdu og sjáðu
B0KABÚÐ
JONASAR
Hafnarstræti 108 • Sími 96-22685
er áhugavert og fólkið gleymi
strax, þá mundi ég hætta þessu.“
Friðrik sagði að ljóst væri að
efnið sem Eivind kenndi hefði
áhrif, það væri nytsamt og einfalt
en verkaði. Námskeiðin nýttust
vel fólki þó það væri ekki kirkju-
rækið.
Eivind sagði að hann héldi að
vandamálið í dag sé að fólk telji
kristindóm eitthvað sem ekki hafi
neina þýðingu í lífinu, eitthvað
gamaldags sem svífi langt utan
þess seilingar. En í biblíunni eru
kenningar sem hæfa einmitt beint
í mark í dag, þær mættu ekki
gleymast og fólki dygði ekki ann-
að en taka markvisst á sínum
málum. Vandamál margra presta
og predikara í dag er að svara
spurningum sem aldrei fyrr hafa
komið upp og það er orsökin fyr-
ir því að fólk sækir hjónanám-
skeiðin, því þar er leitast við að
svara þessum spurningum og
finna lausnir á vandamálum.
Einnig geta góð hjónabönd orðið
enn betri eftir að hjónin hafa sótt
námskeið.
Hræðsla við að tala um
kynlíf og ýmsa hluti
Friðrik sagði að þeir sem störf-
uðu við kirkjuna hefðu oft verið
hræddir að tala um ýmsa hluti,
t.d. kynlíf og samskipti karla og
kvenna. En það yrði að taka
hlutunum eins og þeir eru og tala
út um þá innan kirkjunnar, því
kristin trú væri besti grundvöllur-
inn til að fjalla um málin. Krist-
indómurinn ætti ekki aðeins að
taka til lítils afmarkaðs þáttar í
lífi hvers manns, hann væri meira
en bara að fara í kirkju, máttugt
afl til hjálpar í hinu daglega lífi.
- Nú hefur barnauppeldi verið
mjög til umræðu á Húsavík í
haust, í framhaldi af óvenju-
mörgum skemmdarverkum og
skammarstrikum unglinga.
Kanntu að gefa foreldrum ráð
um hvernig tjónka skuli við ungl-
ingana?
„Ég held að við ættum að líta á
hlutina í sögulegu samhengi.
Megnið af þessari öld hefur ríkt
sú heimspeki í barnauppeldi að
ef við veitum barninu frjálsræði
vaxi það upp og verði góð mann-
eskja og samkvæm sjálfri sér. Við
höfum gleymt að setja börnunum
mörk og gleymt að frelsi krefst
reglna. Ég hef talað við mann í
heilbrigðiskerfinu norska sem
segir að við höfum eyðilagt hálfa
aðra kynslóð með því að gleyma
að setja börnunum mörk. Hann
sagði mér dæmi frá sjúkrastofnun
í Osló þar sem fimmtán ára gam-
all drengur sem foreldrarnir réðu
ekki við var lagður inn. Hjúkrun-
arfræðingarnir settu honum mörk
sem hann vildi ekki sætta sig við,
og það þurfti þrjá fullorðna menn
til að ráða við hann og hann
barðist á móti þeim þar til hann
Hólmfríður S. Benediktsdóttir sópran og Juliet Faulkner píanóleikari á
æfingu fyrír tónleikana á Húsavík. Mynd: im
neyddist til að lúta í lægra haldi.
Hjúkrunarfæðingur sagði að
þetta væri kannski í fyrsta sinn í
lífi þessa drengs sem hann þyrfti
að láta undan og fylgja þeim regl-
um sem honum væru settar.
Grundvallarregluna fyrir
barnauppeldi finnum við í biblí-
unni þar sem stendur: Heiðra
skalt þú föður þinn og móður
þína.“ IM
Ljósin í lagi
- lundin góö
Slík áhrif hafa
rétt stillt Ijós
í umferðinni.
|0WgFEROAR
OPIÐ HÚS!
Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins veröa til viðtals
á skrifstofu flokksins, Hafnarstræti 90, fimmtudaginn
29. nóvember frá klukkan 20-22.
Heitt á könnunni!
Framsóknarfélag Akureyrar.
Matvöruverslunin
Kimart
Hafnarstræti 20
Hagstætt verð
á bökunarvörum
Súkkulaðidagatöl á mjög góðu verði
Úr nýja kjötborðinu:
Nauta- og svínakjöt af nýslátruðu, þítt lambakjöt C4-5 dagar í kaeli),
hrossakjöt, folaldakjöt og fjöldi tilbúinna rétta
Erum farin að taka pantanir í laufabrauð og rjúpur
Bændur munið bláu nótumar
Kiman vænn kostur í verslun - sími 25655
Opið virka daga kl. 9-22 laugardaga og sunnudaga kl. 10-22