Dagur - 29.11.1990, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 29. nóvember 1990 - DAGUR - 11
Síðasta orðið
- eftir Steinunni
Sigurðardóttur
IÐUNN hefur gefið út nýja
skáldsögu eftir Steinunni Sigurð-
ardóttur rithöfund. Nefnist hún
Síðasta orðið og er viðamikið og
frumlegt skáldverk þar sem höf-
undurinn leikur sér listlega að
máli og stíl.
í kynningu útgefanda á efni
sögunnar segir: „Að landlæknis-
dótturinni glæsiiegu, Öldu ívar-
sen, standa sterkir stofnar val-
menna og kvenskörunga. Hér
stíga ættmenni hennar fram á
sjónarsviðið, eitt af öðru, séð
með augum samferðarmanna
sinna. Þetta er mikill ættbogi,
„þrútinn af lítillæti, manngæsku
og stórhug," en byrgir bresti sína
og leyndarmál bak við luktar dyr.
í þessari margslungnu og
áleitnu skáldsögu Steinunnar Sig-
urðardóttur er saga þessa fólks
sögð í eftirmælum, greinum og
sendibréfum héðan og að
handan. Öll er saga ofin ísmeygi-
legri kímni, nöpru háði og ein-
lægri samúð. Og eins og oft gerist
í eftirmælum segir það sem ósagt
er látið einatt hálfa söguna.“
íslenska
kynlífsbókin
Almenna bókafélagið hefur sent
frá sér íslensku kynlífsbókina eft-
ir Óttar Guðmundsson lækni.
íslenska kynlífsbókin fjallar á
hispurslausan hátt um alla helstu
þætti kynlífsins. Nöfn meginkafl-
anna gefa góða hugmynd um upp-
byggingu bókarinnar. Kaflarnir
nefnast: Kynlífssagan, Fyrsta
kynþróunin, Kynfærin, Kynhegð-
un, Samskipti kynjanna, Kynlíf-
ið, Klám og vændi, Kynlífsvanda-
mál, Getnaðarvarnir, Samkyn-
hneigð, Afbrigðilegt kynlíf og
Kynsjúkdómar.
Höfundurinn, Óttar Guð-
mundsson iæknir, lauk doktors-
prófi frá Gautaborgarháskóla
1984. Hann hefur síðan unnið
sem heilsugæslulæknir í Kefla-
vík, verið læknir hjá SÁÁ og
starfar nú á geðdeild Landspítal-
ans. Hann hefur um árabil skrif-
að ýmsar greinar í blöð um
læknisfræði og fleira. Óttar nálg-
ast viðfangsefni sitt af fag-
mennsku og laus við allan tepru-
skap. Hann vísar í bókinni til
þekktra dæma úr Biblíunni,
mannkynssögunni og íslendinga-
sögum, greinir vandamál forn-
kappa jafnt sem samtímamanna.
Myndskreytingar eru margvís-
legar, meðal annars eru notuð
þekkt listaverk til að útskýra það
sem um er rætt.
íslenska kynlífsbókin er 256
bls. að stærð og í stóru broti.
Ssell*era Ábætisréttir í miklu úrvali:
bord:
T.d. banana-blus, appelsínu-blus, engisprettu ostakaka, ananas-
fromage, súkkulaði-músse, laxapate, sjávarréttapate, pepperoni.
KJ
grænar baunir
1/l dós
89 kr.
Armona
blandaðir ávextir
1/i dós
v121 kr. j
V
AGRA
ferskjur
1/i dós
95 kr.
V
Tilboð
Krakus
jarðarber
Vi dós
114 kr.
Sykur
2 kg
V118kr-.
Bökunar-
egg
294 kr.
V
Hveiti
2 kg
66 kr.
OPIÐ
laugardag
frákl. 10-16
j
ftmmtudag, föstudag, laugardag
4 kátirþrestir og 1 lóa
ATH.FRÍTTINNTILKL. 12LAUGARDAG
Frítt inn fyrir matargesti
Frí heimsendingarþjónusta Sími 24199
J