Dagur - 29.11.1990, Page 16
Nóvembertil Hljómtæki, hljóöfæri, örbylgjuofnar, geislaspilarar, sjónvörp og fleira boð | JAPISS °
ak™ ,i
/Kllt a lækkuöu verði skipagötu 1 • «asr 25611 w5|
Héraðssamband S.-Þingeyinga:
Spurmngakeppni með
þátttöku 10 sveita
Héraðssamband Suður-Þing-
eyinga ætlar að standa fyrir
spurningakeppni í vetur, en
unnið hefur verið að undirbún-
ingi þcssarar keppni síðustu
vikurnar. Ákveðið var að
keppnin skyldi vera milli sveita
og því var haft samband við
sveitarstjórana og þeir beðnir
að útvega þriggja manna lið til
þátttöku. Þessari málaleitan
var vel tekið og tíu lið verða
með í keppninni.
Utanl^ndsferðir um
jól og áramót:
Flestír fara tíl
vina og ættíngja
á Norðurlöndum
„íslendingar ferðast mikið
og svo verður um þessi jól
og áramót sem endranær.
Töluverður fjöldi Norðlend-
inga hyggst heiinsækja vini
og kunningja á Norður-
löndunum og halda jólin
þar. Minna er um bókanir til
sólarlanda,“ sagði talsmað-
ur Ferðaskrifstofu Akureyr-
ar.
Að sögn talsmanns Feröa-
skrifstofu Akureyrar er boðið
upp á ferðir til Flórída og
Kanaríeyja. Nokkrir Norð-
lendingar eru bókaðir í þessar
feröir, en flestir fara til
Norðurlandanna til vina og
ættingja. Hinsvegar liggur
straumurinn til Islands um
þessi jól, sem alltaf, því flestir
kjósa að vera heima á íslandi.
Námsmenn og aðrir sem vinna
erlendis nota hátíðarnar til að
heimsækja fólkiö sitt.
„Við bjóðum ferðir vítt og
breitt um heiminn um þessi
jól. Alltaf er eitthvað um að
fólk vilji halda jólin á sólar-
ströndu og í ár eru 20 bókaðir
til Benidorm. Aðrir fara til
Kanaríeyja og nokkrir til
Thailands í 21 dags ferð,“
sagði Inga Eydal hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn á
Akureyri._ ój
Fyrsti hluti keppninnar fer
fram nk. sunnudag í Skjólbrekku
í Mývatnssveit. Þar leiða saman
hesta sína Mývetningar og Reyk-
dælingar annars vegar og Húsvík-
ingar og Reykhverfingar hins
vegar.
Síðari hluti undanrása verður
viku síðar, þ.e. 9. desember, í
Stórutjarnaskóla en þar mætast
lið úr Grýtubakkahreppi og
Fnjóskadal, Tjörnesi og Ljósa-
vatnshreppi, Bárðardal og
Aðaldal. Urslit keppninnar verða
síðan í janúar.
Auk spurningakeppninnar
verða önnur skemmtiatriði og
það er von aðstandenda keppn-
innar að sem flestir mæti og geti
átt góða kvöldstund. ój
Á röngum stað á röngum tíma.
Mynd: Golli
Málefni Völsungs rædd á félagsfundi á Húsavík:
Steftit aö aöalftmdi í næstu viku
- enn vantar fólk í aðalstjórn, knattspyrnuráð og skíðaráð
Stjórn íþróttafélagsins Völs-
ungs á Húsavík, gekkst fyrir
almennum félagsfundi sl. þriðju-
dagskvöld, þar sem staða
félagsins og framtíð var rædd
og einnig samningur félagsins
við Húsavíkurkaupstað. Hlífar
Karlsson mjólkursamlagsstjóri
var fundarstjóri á fundinum og
að sögn hans sóttu um 40-50
félagar fundinn.
„Ég hefði viljað sjá mun fleiri
félaga á fundinum, ekki sís'
vegna þeirrar miklu umræðu sem
H-1 heilsugæsluumdæmi:
Enn leitað lausnar í kerfinu
- læknir frá Reykjavík verður á
Þórshöfn til 15. desember
Boðað hefur verið til fundar í
dag í Reykjavík þar sem full-
trúar heilbrigðisráðuneytisins,
fjármálaráðuneytisins og
Læknafélagsins reyna að leita
leiða til að ráða bót á læknis-
leysi á sumum svokölluðum H-
1 heilsugæslustöðvum, þ.á m.
Þórshöfn.
Eins og fram hefur komið
hafnaði samninganefnd ríkisins
sameiginlegum tillögum heil-
brigðisráðuneytisins og Lækna-
félags íslands um bætt starfskjör
lækna í H-1 umdæmum. í Ijósi
þess er málið nú aftur til skoðun-
ar í viðkomandi ráðuneytum og
er alira leiða leitað til að finna
viðhlítandi lausn.
Tillögur þær sem samninga-
nefndin hafnaði gengu í stórum
dráttum út á að H-1 læknar færu
á föst laun og vaktir og nytu
vaktaleyfa. Þetta hefði tryggt
þeim umtalsverðar kjarabætur.
Heilsugæslulæknar á Akureyri
skiptust á um að sinna læknis-
þjónustu á Þórshöfn fram til 1.
nóvember sl., en nú er þar læknir
frá Rcykjavik og mun verða til
15. desember nk. óþh
átt hefur sér stað í bænum um
stöðu félagsins og framtíðarhorf-
ur,“ sagði Hlífar í samtali við
Dag.
Eins og komið hefur fram í
Degi, hefur Einar Njálsson
bæjarstjóri kynnt tillögu í bæjar-
stjórn til lausnar fjárhagsvanda
Völsungs. Skuldir félagsins eru
miklar og því talið nauðsynlegt
að bærinn aðstoði við að rétta af
fjárhagstöðuna. Tillaga bæjar-
stjóra var rædd ítarlega á fundin-
um sl. þriðjudagskvöld og að
sögn Hlífars, hafði meginþorri
fundarmanna sitthvað við hana
að athuga.
„Það er stefnt að því að halda
aðalfund félagsins í næstu viku og
því vorum við að kynna tillögu
bæjarins fyrir fundarmönnum og
eins að leita eftir því hvort ein-
hverjir fundarmanna hefðu
áhuga á því að taka þátt í því
verkefni að stýra íþróttafélaginu
Völsungi. Á þessu stigi hefur lítið
komið út úr því en menn hafa
tíma fram að aðalfundi til þess að
gera upp hug sinn. Tillaga bæjar-
stjóra verður áfram til umræðu
og síðan verður það verkefni
nýrrar stjórnar félagsins að ganga
frá samningum við bæjaryfirvöld
í einhvcrri mynd.“
Formaður og gjaldkeri félags-
ins sögðu af sér eftir sveitar-
stjórnarkosningarnar í vor og
varaformaður félagsins flutti úr
bænum í haust. Félagið hefur því
verið án formanns urn tíma og
hafa aðrir stjórnarmenn séð um
rekstur félagsins frá degi til dags.
Einnig hefur vantað stjórnar-
menn til að starfa í knattspyrnu-
og skíðaráði Völsungs. Að sögn
Hlífars hafa einhverjir lýst yfir
vilja til að starfa í skíðaráði en
sér vitanlega hafi enginn komið
fram ennþá sem er tilbúinn í
knattspyrnuráð. -KK
Skagafjörður:
Veiði hjá
togurunum
að glæðast
að nýju
Sauðárkrókskirkja:
Endurgerð og stækkun að ljúka
- endurvígsla þann 9. desember
Endurgerð og stækkun Sauð-
árkrókskirkju er senn lokið, en
byrjað var á því verki sl. vor.
Kirkjan verður endurvígð
þann 9. desember nk. af
biskupi íslands, herra Ólafi
Skúlasyni. Eftir framkvæmd-
ina getur kirkjan rúmað allt að
þriðjungi fleira fólk í sæti en
áður.
Áður en hafist var handa í vor
var búið að kanna tvo möguleika
fyrir auknu húsrými fyrir Sauðár-
krókssöfnuð í næstu framtíð.
Kannað var hvort bygging nýrrar
kirkju væri hagsíæðari en stækk-
un Sauðárkrókskirkju og sýnt
þótti að heppilegra væri að ráðast í
stækkunina. Tillaga þess efnis var
síðan samþykkt á aðalsafnaðar-
fundi og að fengnum tilskildum
leyfum var hafist handa við verk-
ið í vor.
Kirkjan er að mestu leyti smíð-
uð að nýju og af upphaflegu efni
stendur aðeins eftir hluti af burð-
argrind og þakviðum og nokkuð
af innviðum. Nýjar dyr eru á
kirkjunni sunnanverðri, sem
m.a. auðvelda fötluðum
aðkomu. Altari og predikunar-
stóll er hvort tveggja viðgert svo
og altaristaflan.
Kostnaðaráætlun hönnuða
nemur 50 milljónum króna og er
allt útlit fyrir að sú áætlun muni
vera nærri lagi.
Sérstök fjáröflunarnefnd var
skipuð af sóknarnefndinni í
sambandi við framkvæmdina og
ákveðið hefur verið að standa
fyrir safnaðarátaki og óska eftir
frjálsum framlögum sóknar-
barna. Aðaltekjuliður kirkjunnar
er nú lögbundin sóknargjöld, en
ýmislegt annað hefur greitt fyrir
verkinu.
Þegar Sauðárkrókskirkja verð-
ur tekin aftur í notkun með
endurvígslu verður aðeins eftir
að ljúka við að mála hana að utan
og ganga frá umhverfi hennar og
mun það bíða næsta vors. SBG
Skagfirsku togararnir hafa
ekki veitt mikið að undan-
förnu og voru allir í höfn
samtímis fyrir helgina vegna
stoppdagannu. Nú virðist
vciðin vera að glæðast að
nýju að sögn Gíslu Svans
Einarssonar, útgerðarstjóra
hjá Fiskiðjunni, og togar-
arnir að tínast til veiða.
Drangey fór út á sunnudag-
inn var og er ásamt Hegranes-
inu að veiðum fyrir vestan.
Hegranesið er að afla í sigl-
ingu, cn það á söludag þann
13. des í Þýskalandi. Skafti fór
út í fyrradag til þorskveiða fyr-
ir heimamarkað. Skagfirðing-
ur fór síðan til veiða í gær til
að afla í sölutúr, en honum
áskotnaðist söludagur í Þýska-
landi þann 19. desember fyrir
skómmu. SBG