Dagur - 01.12.1990, Síða 15
Laugardagur 1. desember 1990 - DAGUR - 15
Þrír peningaseðlar úr safni Páls. Þessir seðlar eru allir gallaðir en hafa engu
að síður komist í umferð. Á 10 kr. seðlinum eru bæði númerin uppi í vinstra
horninu og ekki nóg með það því auk heldur eru númerin mismunandi.
Neðri 100 kr. scðillinn hefur farið í gegnum prentvélina með broti þannig að
hann varð Iengri en hann á að vera. Svipaða sögu er að segja um 500 kr. seð-
ilinn en hann hefur nokkuð einkennilega lögun eins og sjá má.
dagskrá fjölmiðla
Á laugardag kl. 20.40 sýnir Sjónvarpið Líf í tuskunum, 5. þátt. í aðalhlut-
verkum eru Þóra Friðriksdóttir og Herdís Þorvaldsdóttir, en Jón Sigur-
björnsson og Þór Tuliníus koma einnig við sögu.
greiðslukortum sínum. Eurokort
eru þó eldri eða frá um 1981.
Margir gallaðir seðlar
í umferð
Seðlasafn Páls er ekki bara
merkilegt fyrir þær sakir að þarna
er að finna á einum stað sögulega
heimild um seðlaprentun hér á
landi heldur er líka í þessu safni
að finna allmarga peningaseðla
sem eitthvað er athugavert við.
Sem dæmi má nefna seðil sem
hefur algerlega auða bakhlið,
einn seðil án nafna og númera,
seðla með númerum á vitlausum
stöðum, seðla sem einhverra
hluta vegna hafa orðið talsvert of
stórir, seðla með aukahornum
o.s. frv. Páll segir að stundum
hafi seðlar sem þessir komið í
hendur hans úti í verslunum en í
öðrum tilfellum hafi fólk fært sér
þetta.
Þessir seðlar hafa komið sér
vel fyrir Seðlabankann en Páll
segir að hann hafi ljósritað
nokkra af þessum seðlum sínum
þannig að bankinn geti gert
athugasemdir við seðlaprent-
smiðju og sannað þannig að gall-
aðir seðlar hafi komist í umferð.
Myndavélasafnið
Þótt of langt mál væri að tíunda
alla þá hluti sem til eru í safni
Páls ljósmyndara þá er ekki hægt
að skilja við hann án þess að
forvitnast um myndavélasafnið.
Nú eru í því um 80-90 myndavél-
ar en sem sannur safnari hlustar
Páll alltaf þegar hann fréttir af
vél sem kunni að vera fáanleg.
„Með þetta eins og allt annað
gildir að það má engu henda
vegna þess að einhvers staðar
leynist einhver sem safnar
nákvæmlega því sem þú ætlar að
fara að henda. Vandamálið er að
finna hann. Sem dæmi get ég
nefnt að hér kom einn daginn inn
maður og spurði mig hvort ég
safnaði myndavélum. Ég varekki
frá því og þá sagðist hann eiga
gamla myndavél heima hjá sér
sem hann þyrfti að losna við. Af
því að ég þekkt' manninn þá
grunaði mig strax ið hvaða vél
hann átti enda kom ;' daginn að
þarna var á ferðinni gömul vél frá
foreldrum mínum og sú vél sem
ég hafði tekið mína fyrstu ntynd
á. Það var líka góð tilfinning að
fá þessa vél aftur í hendurnar
enda er ég að reyna að ná í allar
þær vélar sem ég hef átt, eða í
það minnsta öllurn þeim gerðum
sem ég hef átt.“
„Fæ aldrei leið á
söfnuninni“
Páll segir það mjög misjafnt hve
miklum tíma hann verji yfir safn-
inu. „Á þessum árstíma snertir
maður ekki á þessu því vinnan
tekur allan tíma frá manni. En
það kemur fyrir að ég sest nið-
ur við þetta á kvöldin og byrja
að skoða, breyta, raða upp á
nýtt og þess háttar. Maður er allt-
af að reyna að finna út hvort ekki
megi betrumbæta á einhvern
hátt.“
- Og er þetta alltaf jafn
gaman?
„Já, maður fær aldrei leið á
þessu. Það er einhvern veginn
svo að rnaður verður endurnærð-
ur af því að setjast niður við safn-
ið sitt eftir vinnudaginn. Þetta
eru svo gjörólíkir heiínar að
maður gleymir sér og endurnýj-
ast við að skipta svona algerlega
um svið,“ svarar Páll að bragði.
JÓH
Sjónvarpið
Laugardagur 1. desember
14.30 íþróttaþátturinn.
14.30 Úr einu í annað.
14.55 Enska knattspyrnan.
Bein útsending frá leik Everton og Man-
chester Utd..
16.45 Hrikaleg átök 1990: Fjórði þáttur.
17.15 Bikarkeppni í sundi.
17.40 Úrslit dagsins.
17.50 Jóladagatal Sjónvarpsins.
Á baðkari til Betlehem.
Hér segir frá tveimur íslenskum börnum,
Hafliða og Stínu, sem ákveða að fara til
Betlehem og færa Jesúbarninu afmælis-
gjafir.
Fyrsti þáttur: Engill í sama húsi.
Hafliði og Stína eru nýkomin úr barna-
messu. Stína heldur því staðfastlega fram
að engillinn á biblíumyndinni, sem þau
fengu við messuna, líkist konunni sem er
nýflutt inn í íbúðina á móti. Þau ákveða
að njósna um ferðir hennar.
18.00 Alfreð önd (7).
18.25 Kisuleikhúsið (7).
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Poppkorn.
19.25 Háskaslóðir (6).
(Danger Bay.)
19.50 Jóladagatal Sjónvarpsins.
Fyrsti þáttur endursýndur.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Líf í tuskunum (5).
Eitt blað í hefti.
21.00 Fyrirmyndarfaðir (10).
(The Cosby Show.)
21.25 Alþingishúsið, Kirkjustræti 14.
í þessum þætti er saga Alþingishússins
rakin og fjallað um ýmsa gripi þar innan
veggja, sem hafa sögulegt eða listrænt
gildi. Einnig er starfsháttum Alþingis lýst
og forvitnast um viðhorf almennings til
hússins sögufræga við Kirkjustræti 14.
22.00 Stjörnurán.
(Shooting Stars.)
Bresk sjónvarpsmynd frá 1990.
Myndin fjallar um knattspyrnukappa en
líf hans tekur óvænta stefnu þegar hann
lendir í höndunum á mannræningjum.
Aðalhlutverk: Gary McDonald, Sharon
Duce, Keith Allen og Helmut Grien.
23.30 Hrafninn flýgur.
íslensk bíómynd frá 1984.
Myndin gerist á miðöldum og segir frá
ungum íra sem kemur til íslands að hefna
foreldra sinna og leysa systur sína úr
ánauð.
Aðalhlutverk: Helgi Skúlason, Jakob Þór
Einarsson og Egill Ólafsson.
01.15 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Sunnudagur 2. desember
14.00 Meistaragolf.
15.00 Rannveig Bragadóttir óperusöng-
kona.
Rætt við Rannveigu Bragadóttur söng-
konu sem einnig syngur nokkur lög við
undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
15.50 Af litlum neista.
Þáttur um raflagnir í gömlum húsum, en
þær geta valdið miklu tjóni ef ekki er að
gáð.
16.05 í leikfangalandi.
(Babes in Toyland.)
Bandarísk kvikmynd í léttum dúr frá
1986.
Aðalhlutverk: Drew Barrymore, Richard
Mulligan og EUeen Brennan.
17.40 Sunnudagshugvekja.
17.50 Jóladagatal Sjónvarpsins.
Annar þáttur: Fljúgandi furðuhlutur.
Við skildum við Hafhða og Stínu þar sem
þau hurfu inn um dyrnar hjá konunni sem
líktist engU. Það er dulmagnað andrúms-
loft í íbúð hennar.
18.00 Stundin okkar (6).
18.30 Evrópsku kvikmyndaverðlaunin.
Bein útsending frá Glasgow þar sem
afhending evrópsku kvikmyndaverðlaun-
anna fer fram.
20.30 Jóladagatal Sjónvarpsins.
Annar þáttur endursýndur.
20.40 Fréttir, veður og Kastljós.
21.20 Ófriður og örlög (8).
(War and Remembrance.)
22.15 í 60 ár (7).
Sjónvarp á líðandi stund.
22.25 Litast um á Langanesi.
Norðlenskir sjónvarpsmenn brugðu undir
sig betri fætinum og lituðust um á Langa-
nesi.
23.00 Einþykki maðurinn.
(A Matter of Principal.)
Bandarísk sjónvarpsmynd sem segir frá
hjónum með 11 börn. Faðirinn er andvíg-
ur jólahaldi og stjórnar heimilinu með
harðri hendi en þó kemur að því að hann
þarf að brjóta odd af oflæti sínu.
Aðalhlutverk: Alan Arkin og Ada Purdy.
00.00 Listaalmanakið.
(Konstalmanackan.)
00.05 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Mánudagur 3. desember
17.40 Jóladagatal Sjónvarpsins.
Á baðkari til Betlehem.
Þriöji þáttur: Illfyglið.
Baðkerið hennar Dagbjartar er komið á
loft með Hafliða og Stínu innanborðs.
Nú kemur undarlegur fugl til sögunnar.
Hvað skyldi hann vilja?
17.50 Töfraglugginn (5).
18.45 Táknmálsfréttir.
18.50 Fjölskyldulíf (14).
(Families.)
19.20 Úrskurður kviðdóms (26).
19.50 Jóladagatal Sjónvarpsins.
Þriðji þáttur endursýndur.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Svarta naðran (5).
(Blackadder Goes Forth.)
21.95 Litróf (6).
í þættinum verður litið inn á sýningu
feðginanna Steinþórs Marinós Gunnars-
sonar málara og Sigrúnar Steinþórsdóttur
vefara í Hafnarborg í Hafnarfirði. Sýnt
verður brot úr spunaverki Leiksmiðjunn-
ar og þjóðlegur gjörningur nemenda í fjöl-
tæknideild MHÍ. Þá verður rætt við Friðrik
Hauk Hallsson um nýútkomna bók hans
um menningarleg áhrif herstöðvarinnar,
Einar Má Guðmundsson um skáldsöguna
Rauðir dagar og Sigurður Pálsson les ljóð
úr bók sinni Ljóð námu völd.
21.30 íþróttir.
Fjallað um íþróttaviðburði helgarinnar og
sýndar svipmyndir úr knattspyrnuleikj-
um í Evrópu.
21.55 Boðorðin (1).
(Decalogue.)
Fyrsti þáttur.
Pólskur myndaflokkur frá 1989.
í þáttunum er frjálslega lagt út af boðorð-
unum tíu en hver þáttur er sjálfstæð
saga.
23.00 Ellefufréttir.
23.10 Þingsjá.
23.25 Dagskrárlok.
Stöð 2
Laugardagur 1. desember
09.00 Með Afa.
10.30 Biblíusögur.
10.55 Saga jólasveinsins.
11.15 Herra Maggú.
11.20 Teiknimyndir.
11.30 Tinna.
12.00 í dýraleit.
(Search for the Worlds Most Secret
Animals.)
12.30 Guli kafbáturinn
(Yeollow Submarine).
Frábær mynd sem fjórmenningarnir í Bítl-
unum gerðu árið 1968. Reyndar gerðu
þeir nokkrar kvikmyndir en þetta er sú
eina sem er teiknimynd og hún er alveg
frábærlega vel gerð enda fær hún fullt
hús í kvikmyndahandbók Maltins eða
fjórar stjörnur.
14.00 Eðaltónar.
15.00 Skilnaður.
(Interiors).
Lífsmynstri þriggja systra er skyndilega
ógnað þega foreldrar þeirra ákveða að
skilja. Skilnaðurinn fær mikið á móðurina,
en dæturnar, sem eru mótfallnar skilnað-
inum, bera hitann og þungann af sorg
hennar. Faðirinn, sem hefur fundið sér
nýja konu, getur ekki sætt sig við skiln-
ingarleysi fjölskyldunnar og brúðkaups-
dagur hans snýst upp í allsherjar harm-
leik.
Aðalhlutverk: Diane Keaton, Richard
Jordan og Christine Griffith.
16.30 Bubbi Morthens á Púlsinum.
17.00 Falcon Crest.
18.00 Popp og kók.
18.30 Hvað viltu verða?
Endurtekinn þáttur þar sem fjallað er um
störf innan Rafiðnaðarsambandsins.
19.19 19.19.
20.00 Morðgáta.
(Murder She Wrote.)
20.55 Fyndnar fjölskyldumyndir.
(America’s Funniest Home Videos).
21.25 Tvídrangar.
(Twin Peaks.)
22.20 Tvíburar.
(Twins).
Frábær gamanmynd fyrir alla fjölskyld-
una. Þeir Danny DeVito og Arnold
Schwarzenegger eru hér í hlutverkum
tvíbura sem voru aðskildir stuttu eftir
fæðingu. Nú hafa þeir fundið hvor annan
en gamanið er «rétt að byrja því þeir
hyggjast finna móður sína sem þeir hafa
aldreif séð.
Aðalhlutverk: Danny DeVito og Amold
Schwarzenegger.
00.10 Hamborgarahæðin.
(Hamburger Hill).
Spennandi og sannsöguleg mynd um af-
drif og örlög bandarískrar hersveitar í
Víetnam. Gagnrýnendur vestan hafs lof-
uðu kvikmyndina í heild sinni en tóku að
öllu jöfnu sérstaklega fram að bardaga-
senur myndarinnar væru frábærlega vel
úr garði gerðar.
Aðalhlutverk: Anthony Barrile, Michael
Patrick Boatman og Don Cheadle.
02.00 Carmen Jones.
(Carmen Jones).
Þessi kvikmynd var gerð eftir óperunni
Carmen eftir Bizet. Það er Dorothy Dand-
ridge sem fer með hlutverk hinnar ögr-
andi Carmen og Harry Belafonte sem fer
með hlutverk ástamanns hennar. Söng-
raddirnar 1 myndinni em ekki raddir
leikaranna, en Marilyn Home syndur
Carmen.
Aðalhlutverk: Dorothy Dandridge, Harry
Belafonte, Roy Glenn.
03.40 Dagskrárlok.
Stöð 2
Sunnudagur 2. desember
09.00 Geimálfarnir.
09.25 Naggarnir.
09.50 Sannir draugabanar.
10.15 Saga jólasveinsins.
10.35 Hlauptu Rebekka, hlauptu!
(Run, Rebecca Run).
Mynd þessi var útnefnd sem besta barna-
kvikmyndin árið 1981 og ekki að undra
því að hana prúðir allt sem þarf í góða
barnamynd; ævintýraleit, æsispennandi
söguþráður, fyndni og glaðvær, talandi
páfagaukur.
11.55 Popp og kók.
12.25 Lögmál Murphy’s.
Léttur og spennandi bandarískur saka-
málaþáttur.
13.25 ítalski boltinn.
Bein útsending frá leik i fyrstu deild
ítalska fótboltans.
15.15 NBA karfan.
16.30 Gullna gyðjan.
(Blonde Venus).
Marlene Dietrich er hér í hlutverki þýskr-
ar kaffihúsasöngkonu sem giftist enskum
lyfjafræðingi. Það er í þessari mynd sem
Marlene birtist í apabúningi og syngur
Hot Voodoo.
Myndin þótti á sínum tíma mjög djörf.
Aðahlutverk: Marlene Dietrich, Gary
Grant og Herbert Marshall.
18.00 Leikur að ljósi.
(Six Kinds of Light.)
18.30 Frakkland nútímans.
(Aujourd'hui.)
18.45 Viðskipti í Evrópu.
(Financial Times Business Weekly.)
19.19 19.19.
20.00 Bernskubrek.
(Wonder Years.)
20.35 Með sól í hjar^.
í þessum þætti koma m.a. fram Stjórnin,
Síðan skein sól, Rúnar Þór, Sléttuúlfarn-
ir og Laddi. Þáttur þessi er unnin í sam-
vinnu við Skífuna.
21.40 Inn við beinið.
22.30 Lagakrókar.
(L.A. Law).
23.20 Spennandi smygl.
(Lucky Lady).
Spennumynd með gamansömu ívafi um
ævintýrið tveggja sprúttsala á bannárun-
um. Þeir þurfa ekki eingöngu að forðast
hinn langa arm laganna heldur einnig
samkeppnisaðila sem trúa ekki á lögmál
frjálsrar samkeppni.
Aðalhlutverk: Gene Hackman, Liza Min-
elli og Burt Reynolds.
01.15 Dagskrárlok.
Stöð 2
Mánudagur 3. desember
16.45 Nágrannar.
(Neighbours.)
17.30 Saga jólasveinsins.
17.55 Depill.
18.00 í dýraleit.
18.30 Kjallarinn.
19.19 19.19.
20.15 Dallas.
21.15 Sjónaukinn.
21.50 Á dagskrá.
22.05 Öryggisþjónustan.
(Saracen).
Spennandi breskir framhaldsþættir um
öryggisþjónustufyrirtæki.
23.00 Tony Campise og félagar.
Saxafónleikarinn Tony Campise leikur
hér jass af fingrum fram ásamt þeim Bill
Ginn á píanó, Evan Arredondo á bassa og
Al'Buff'Mannion á trommur. Þetta er fyrri
hluti. Seinni hluti verður á dagskrá mánu-
daginn 17. desember.
23.30 Fjalakötturinn.
Scarface; Shame of the Nation.
Það er ekki oft sem kvikmyndahandbók
Halhwells spanderar stjörnu á myndir,
hvað þá fjórum. Scarface er ein af örfáum
vútvöldum sem hefur náð þessu marki.
Hér er um að ræða afbragðsgóða bar-
dagamynd sem gerist í Chigago. Glæpa-
gengi undir forustu mafiuforingja veður
uppi, en foringinn sjálfur, sem hefur verið
likt við A1 Capone.
Aðalhlutverk: Pau) Muni, Ann Dvorak,
George Raft, Boris Karloff, Osgood Perk-
ins og Karen Morley.
01.05 Dagskrárlok.