Dagur - 28.12.1990, Qupperneq 19
Föstudagur 28. desember 1990 - DAGUR - 19
-j
‘1
1
$
4
I
4
4
J
í
Sjálfsmark „Grobba“ kostaði Liverpool sigur
Mikið er um leiki í ensku
knattspyrnunni um jól og ára-
mót og sá tími getur því verið
mjög mikilvægur fyrir liðin. Á
laugardaginn fyrir jól hófst
þessi hrina og voru þá leiknir
sjö leikir í 1. deild.
Sheffield Utd. sem ekki hafði
unnið leik í 1. deild og aðeins
skorað þrjú mörk á heimavelli í
vetur náði að skora þrívegis á 18
mín. kafla í síðari hálfleik og
leggja Nottingham For. að velli.
Ef til vill boðar þessi sigur bjart-
ari framtíð fyrir liðið. Markaiaust
var í leikhléi og leikurinn afar
slakur, en 4 mín. eftir að sá síðari
hófst náði Ian Bryson að ná for-
ystu fyrir Sheffield Utd. Leik-
menn liðsins voru enn að fagna
markinu þegar Roy Keane slapp
í gegn og jafnaði fyrir Forest
tæpri mín. síðar. Stuart Pearce
náði síðan forystu fyrir Forest á
52. mín. með þrumuskoti og enn
eitt tap Sheffield liðsins virtist í
uppsiglingu. En Bryson með
skalla jafnaði fyrir Sheffield og á
66. mín. munaði minnstu að
hann skoraði sitt þriðja mark, en
skot hans fór í stöng. Hann hafði
þó ekki sagt sitt síðasta orð og
mín. síðar átti hann sendingu fyr-
ir mark Forest sem Brian Deane
skallaði í netið og tryggði Sheffi-
eld sinn fyrsta sigur í 1. deild.
Leikur Tottenham gegn Luton
var viðburðaríkur og dómarinn
lét mikið að sér kveða, rak þrjá
leikmenn útaf. Pat Van Den
Hauwe og Nayim hjá Tottenham
voru báðir reknir útaf í mjög
grófum fyrri hálfleik, Nayim fyr-
ir að mótmæla dómi og Van Den
Hauwe fyrir gróft brot á Iain
Dowie sem um tíma virtist ætla
að verða til meiri átaka leik-
manna. Dowie hafði náð forystu
fyrir Luton eftir mistök í vörn
Tottenham og Nayim var farinn
út af þegar Paul Stewart náði að
jafna fyrir Tottenham með skalla
eftir sendingu Paul Gascoigne.
Aðeins níu leikmenn Tottenham
náðu síðan að knýja fram sigur er
Stewart skoraði sitt annað mark
eftir hornspyrnu Gascoigne á 15.
mín. síðari hálfleiks. En dómar-
inn var ekki hættur og rak Ceri
Hughes út af hjá Luton fyrir brot
á Gary Lineker rétt á eftir.
Líflegum leik Liverpóol gegn
Southampton var sjónvarpað þar
sem menn sáu Southampton
koma á óvart og gera meisturun-
um lífið leitt. Ray Wallace náði
óvænt forystu fyrir Southampton
á 19. mín. og það var ekki fyrr en
á 35. mín. sem Liverpool náði að
jafna. Ray Houghton skipti yfir á
John Barnes sem renndi fram
kantinn til David Burrows, hann
sendi fyrir markið og Ronnie
Rosenthal afgreiddi boltann í
netið. Á síðustu mín. fyrri hálf-
leiks náði síðan Rosenthal foryst-
unni fyrir Liverpool eftir að Tim
Flowers í marki Southampton
hafði misst frá sér skot Ian Rush
og Rosenthal setti hann í hornið
niðri. Aðeins höfðu verið leiknar
5 mín. af síðari hálfleik er
Wallace náði að jafna fyrir Sout-
hampton er hann náði boltanum
af Glenn Hysen miðverði Liver-
pool sem var að dóla með
boltann. Svo virtist sem Sout-
hampton ætlaði að halda jafntefl-
inu, en 5 mín. fyrir leikslok
þurmaði Steve Staunton boltan-
um langt fram, Rush skallaði fyrir
fætur Houghton sem skoraði
sigurmark Liverpool með glæsi-
legu skoti.
Engan bilbug er að finna á
Crystal Palace þessa dagana og
liðið vann góðan sigur á útivelli
gegn Man. City. City lék þó bet-
ur í fyrri hálfleik og bakvörður
þeirra Neil Pointon hefði getað
skorað þrjú mörk með glæsileg-
um langskotum ef heppnin hefði
verið með honum. Hann skoraði
þó eitt mark undir lok hálfleiks-
ins, en það var því miður fyrir
hann sjálfsmark. Ian Wright
gerði síðan út um leikinn seint í
síðari hálfleik með síðara marki
Palace úr glæsilegu langskoti.
Chelsea vann sinn fimmta sigur
í röð er liðið lagði Coventry að
velli með tveim mörkum á þrem
mín. undir lok leiksins. Kevin
Gallacher náði forystu fyrir
Coventry á 57. mín. með hjól-
hestaspyrnu, en 11 mín. fyrir
leikslok tók Andy Townsend til
sinna ráða hjá Chelsea. Hann
jafnaði fyrir Chelsea með góðu
skoti og sendi síðan boltann til
Dennis Wise sem skoraði sigur-
mark Chelsea af stuttu færi.
Man. Utd. náði að vinna góð-
an sigur á útivelli gegn Wimble-
don er liðið skoraði þrívegis á
síðustu 20 mín. leiksins. Tvö
markanna voru úr vítaspyrnu og
Keith Curle varnarmaður
Wimbledon var rekinn út af er
síðari spyrnan var dæpid. John
Fashanu hafði náð forystu fyrir
Wimblendon í fyrri hálfleik og
liðið hélt þeirri forystu í um
klukkutíma. En lokamínúturnar
voru liðinu erfiðar, Steve Bruce
jafnaði fyrir Utd. úr vítaspyrnu.
Mark Hughes náði forystu fyrir
Utd. og lokaorðið átti síðan
Bruce með sinni annarri víta-
spyrnu.
Norwich sigraði Everton í slök-
um leik, en leikmenn Everton
fengu þó færi til að skora þrjú til
fjögur mörk í leiknum. Norwich
lék undir getu og tækifæri þeirra
voru færri, en þeir náðu þó að
nýta eitt þeirra og það dugði til
sigurs í leiknum. Dale Gordon
átti skot í stöng í fyrri hálfleik,
boltinn barst út til John Polston
sem skoraði af stuttu færi sigur-
mark Norwich.
Þorláksmessa
Arsenal átti tækifæri á að
minnka forskot Liverpool í leik
sínum gegn Aston Villa, en liðið
varð að sætta sig við markalaust
jafntefli. Arsenal átti þó að vinna
leikinn, Villa lék ekki vel og þeir
David Platt og Gordon Cowans
bestu menn Villa léku undirgetu.
Arsenal stjórnaði leiknum, en
liðið lék án fyrirliðans Tony
Adams sem nú situr í fangelsi og
varamaður hans Andy Linighan
var óöruggur í vörninni, en hann
slapp með skrekkinn því aðeins
Tony Cascarino lék frammi hjá
Villa. Alan Smith fékk besta
tækifæri Arsenal í upphafi síðari
hálfleiks, en hann skallaði
framhjá eftir góða sendingu
Perry Groves. Stuttu síðar fékk
Smith annað færi, en laust skot
hans af stuttu færi var varið af
Nigel Spink besta manni Villa í
leiknum. Það munaði síðan
minnstu að Villa stæli sigrinum 3
mín. fyrir leikslok, en David
Seaman í marki Arsenal varði vel
frá Platt.
Leeds Utd. heldur áfram að
koma á óvart og náði góðum sigri
á útivelli gegn Sunderland 1:0.
Leikmenn Leeds Utd. fögnuðu
marki Mel Sterland eins og það
væri sigurmark í bikarúrslitaleik.
John Kay leikmaður Sunderland
var rekinn út af snemma í síðari
hálfleik fyrir harkalegt brot á
Peter Haddock sem var borinn út
af og Sunderland átti undir högg
að sækja eftir það. Leikurinn var
harður og ekkert gefið eftir, en
Sunderland fékk þó betri færi í
leiknum. Strax á 1. mín. komst
Marco Gabbiadini cinn í gegn,
en John Lukic markvörður Leeds
Utd. sá við honum og á 24. mín.
var Gabbiadini óheppinn er hann
skaut í þverslá af stuttu færi. En
eftir að Kay var rekinn út af náði
Leeds Utd. undirtökunum og
sótti stíft sem endaði með hörku-
skoti Sterland fyrir utan vítateig
sem Tony Norman náði ekki að
stöðva þrátt fyrir að hann næði
að koma við boltann og þetta
eina mark seint í síðari hálfleik
nægði Leeds Utd. til sigurs í
leiknum.
Eftir níu tapleiki í röð var
Q.P.R. mjög óheppið að missa
leik sinn gegn Derby niður í jafn-
tefli er liðið fékk á sig mark á síð-
ustu mín. Q.P.R. Iiafði ráðið
gangi leiksins eftir að hafa náð
forystu á 33. mín. Aukaspyrna
var þá dæmd á Derby og Mark
Wright miðvörður liðsins náði
ekki að hreinsa frá. Roy Wegerle
náði boltanum og þrumaði hon-
um í þverslá og inn. Derby sótti
nokkuð í síðari hálfleik, en vörn
Q.P.R. var þétt þar til Dean
Saunders náði að pota boltanum
í markið hjá þeim af stuttu færi á
síðustu mín. og stela þannig af
þeim sigrinum.
• Þrír leikmenn voru reknir útaf
í markalausum jafnteflisleik
Leicester og Watford í 2. deild
sem einnig var leikinn á sunnu-
dag. Tveir leikmenn Watford og
einn frá Leicester fengu að fara
snemma í bað.
Annar í jólum
Lið Q.P.R. virðist nú vera að
ná áttum eftir mjög slæman kafla
og náði jafntefli gegn meisturum
Liverpool, en það þurfti þó
sjálfsmark Bruce Grobbelaar til.
Liverpool náði forystu snemma í
síðari hálfleik er John Barnes lék
í gegnum vörn Q.P.R. og renndi
boltanum framhjá Jan Stejskal
markverði Q.P.R. sem kom á
móti honum. Um miðjan síðari
hálfleik náði Q.P.R. síðan að
jafna leikinn, Andy Sinton sendi
fyrir mark Liverpool, Mark Falco
náði að skalla í stöngina og það-
an fór boltinn í fætur Grobbelaar
og inn. Q.P.R. átti markið skilið
en leikmenn Liverpool áttu þó
betri færi og Ronnie Rosenthal
hefði átt að skora er hann slapp
einn í gegn, en Stejskal sá við
honum. Tvö dýrmæt stig fóru því
í súginn hjá Liverpool, en liðið
heldur þó enn öruggri forystu í I.
deild.
Arsenal náði að þrengja að
Liverpool með góðum sigri á
heimavelli gegn Derby 3:0. Alan
Smith skoraði tvö af mörkum
Arsenal og Paul Merson bætti því
þriðja við. Síðara mark Smith, 11
mín fyrir leikslok, var sérstakt,
David Seaman í marki Arsenal
þrumaði frá marki sínu og bolt-
inn barst til Martin Taylor í
marki Derby sem sló hann í
þverslá og Smith tók við boltan-
um og sendi í netið. Derby fékk
fjögur góð færi í leiknum, en mis-
notaði þau öll, Arsenal fékk sjö
færi og nýtti þrjú.
Sheffield Utd. náði óvæntum
sigri á gervigrasinu í Luton og
liðið eygir nú von um að bjarga
sér frá falli. Eftir daufan fyrri
hálfleik náði Sheffield Utd. tök-
um á leinum í þeim síðari. Carl
Bradshaw skaut yfir úr góðu færi
og síðan bjargaði John Dreyer á
línu fyrir Luton eftir skot
Bradshaw. Sigurmark Sheffield
kom á 71. min. Brian Deane
slapp í gegnum vörn Luton og
skoraði framhjá Alec Chamb-
erlain í marki Luton.
Crystal Palace náði að merja
sigur á Sunderland, en er hálftími
var til leiksloka benti þó fátt til
sigurs liðsins. Síðari hálfleikur
Brian McClair skoraði tvö af mörk-
uni Man. Utd. gegn Norwich.
var mjög góður, leikmenn Palace
fóru illa með færin í upphafi og
varamaður Sunderland, David
Rush, klippti inn sendingu Gary
Owcrs á 61. mín. og Sunderland
var komið yfir. Palace lagði allt í
sóknina og náði að jafna 12 mtn.
fyrir leikslok með þrumuskoti
John Salako úr teignum. Fjórum
mín. fyrir leikslok náði Mark
Bright forystunni fyrir Palace
með góðum skalla aftur fyrir sig
og það reyndist sigurmarkið, en
Sunderland hefði átt að fá víta-
spyrnu 8 mín. fyrir leikslok, en
dómarinn lokaði augunum.
Leeds Utd. náði góðum sigri
heima gegn Chelsea í leik þar
sem veðrið og völlurinn komu í
veg fyrir góða knattspyrnu. en
sigur heimaliðsins verðskuldað-
ur. Miðjan var orðin að svaöi í
síðari hálfleik, en sem betur fór
fyrir Leeds Utd. var hægri kant-
urinn þar sem Gordon Strachan
lcikur í lagi og þaðan lagði
Strachan upp tvö af fjórum
mörkum liðsins. Scint í síðari
hálfleik lagði hann upp mark fyr-
ir Mel Sterland og á fyrstu mín.
þess síðari skoraði Lee Chapman
eftir sendingu Strachan. Chap-
man bætti öðru marki sínu við
skömmu síðar eítir slæma send-
ingu aftur frá Andy Townsend og
þó að Kerry Dixon lagaði stöð-
una fyrir Chelsea innsiglaði vara-
maðurinn Mike Whitlow sigur
Leeds Utd. með fjórða markinu,
2 mín. fyrir leikslok hafnaði
þrumuskot hans í marki Chelsea.
Covcntry vann góðan sigur
gegn Tottcnham og var það fyrsti
sigur liðsins síðan Terry Butcher
tók viö stjórninni þar. Coventry
lék vel í síðari hálfleik og sigur
liðsins var verðskuldaður, leik-
menn Tottenham virtust þreyttir
og áttu aldrei möguleika. Mörk
frá Kevin Gallacher á fyrstu mín.
síðari hálfleiks og annað frá
Micky Gynn komu bæði eftir
góðan undirbúning útherjans
David Smith sem vörn Totten-
ham réð ekkert við í leiknum.
Everton og Aston Villa áttust
við í hnífjöfnum og vel leiknum
leik þar sem ekki mátti á milli sjá
hvort liðið væri sterkara. Sigur-
markið kom 12 mín. fyrir leiks-
lok, bakvörðurinnn Eddie Youds
braust þá upp kantinn og sendi
glæsilega sendingu fyrir mark
Aston Villa scm Graeme Sharp
skallaði inn. Leikmenn Villa
sóttu mjög í lokin og skalli frá
Ian Ormondroyd var á leið í
mark Everton er David Platt ætl-
aði að bæta um betur, en tókst
ekki betur til en svo að hann
skallaði boltann yfir mark Ever-
ton. En leikmönnum Everton
tókst að halda út og sigra í leikn-
um með þessu eina marki Sharp.
Manchester Utd. vann verð-
skuldaðan sigur gegn Norwich
með þrem mörkum í síðari hálf-
leik. Fyrsta markið kom á 53.
mín. er Gary Pallister sendi langa
sendingu fram sern Mark Hughes
afgreiddi í netið. Á 67. mín.
bætti Brian McClair öðru marki
við eftir sendingu frá Neil Webb
og Webb lagði einnig upp þriðja
markið fyrir McClair á síðustu
mín. leiksins, glæsilegt mark með
þrumuskoti í þverslá og inn.
Southampton náði sigri gegn
Manchester City eftir að City
hafði komist yfir í leiknum. Á 35.
mín. náði City forystu með góðu
marki. Niall Quinn skallaði inn
eftir sendingu frá David White.
Aðeins þrem mín. síðar jafnaði
Barry Horne fyrir Southampton
er hann slapp í gegnum vörn
City. Sigurmark Southampton
kom óvænt er 10 mín. voru til
leiksloka, Matthew Le Tissier
náði boltanum af vörn City og
skoraði með góðu skoti.
Nottingham For. fékk Wimble-
don í heimsókn og Stuart Pearce
náði forystu fyrir Forest á 12.
mín. eftir að markvörður Wimble-
don, Hans Segers, hafði reynt að
spyrna frá marki, en boltinn lenti
í Pearce og af honum í netið.
John Fashanu jafnaði fyrir
Wimbledon með skalla á síðustu
mín. fyrri hálfleiks, en rétt í þann
mund cr dómarinn flautaði til
hlés náði Roy Kcane aftur foryst-
unni fyrir Forest. Wimbledon átti
mun meira í síðari hálfleiknum
og tvívegis átti liðiö skot í stöng,
en inn vildi boltinn ekki og For-
est náði að hanga á sigrinum.
Þ.L.A.
Úrslit
1. deild
Chelsea-Coventry 2:1
Liverpool-Southampton 3:2
Manchester City-Crystal Palace 0:2
Norwich-Everton 1:0
Sheftield Uld.-Nottingham For. 3:2
Tottenham-Luton 2:1
Wimblcdon-Machester Utd. 1:3
Aston Villa-Arsenal 0:0
Derby-Q.P.R. 1:1
Sunderland-Leeds Utd. 0:1
2. deild
Oldham-Plymouth 5:3
Portsmouth-lpswich 1:1
Barnsley-West Hain 1:0
Bristol Rovers-Newcastle 1:1
Charlton-Hull City 2:1
Middlesbrough-Blackburn 0:1
Notts Countv-Bristo) Citv 3:2
Oxford-SheíTield Wed. ' 2:2
Port Vale-Brighton 0:1
Swindon-W.B.A 2:1
Wolves-Millwall 4:1
Leicester-Watford 0:0
Úrslit á annan í jólum.
1. deild
Arsenal-Derbv 3:0
Coventry-Tottenham 2:0
Crystal Palace-Sunderland 2:1
Everton-Aston Villa 1:0
Leeds Utd.-Chelsea 4:1
Luton-Sheffield Utd. 0:1
Manchester Utd.-Norwich 3:0
Nottingham For.-Wimbledon 2:1
Q.P.R.-Liverpool 1:1
Southampton-Manchcstcr City 2:1
2. deild
Blackburn-Notts County 0:1
Brighton-Bristol Rovers 0:1
Bristol City-Portsmouth 4:1
Hull City-Öxford 3:3
Ipswich-Middlesbrough 0:1
Millwall-Leicester 2:1
Newcastle-Swindon 1:1
Plymouth-Barnsley 1:1
Sheffield Wed.-Wolves 2:2
Watford-Port Vale 2:1
W.B.A.-Charlton 1:0
West Ham-Oldham 2:0