Dagur - 01.06.1991, Síða 3
Laugardagur 1. júní 1991 - DAGUR - 3
Fréttir
Sláturleyfishafar standa frammi fyrir miklum breytingum
- dregið verði úr boðum að ofan, sagði Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra
Breytt rekstrarumhverfi í land-
búnaði kallar á nýjan hugsun-
arhátt og aukna markaðstil-
finningu bæði hjá framleiðend-
um og ekki síður hjá afurða-
sölufélögum. Framtíð fram-
Ieiðenda og sláturleyfishafa
byggist í auknum mæli á því
hvernig tekst að nýta markað
sem menn sitja ekki lengur
einir að. Þetta kom meðal
annars fram í máli Hákonar
Sigurgrímssonar, fram-
kvæmdastjóra Stéttarsam-
bands bænda, á aðalfundi
Landssamtaka sláturleyfis-
hafa, sem haldinn var nýlega.
ingur verði efndur. Þá sagðist
Halldór Blöndal vilja beita sér
fyrir því að dregið verði úr boð-
um að ofan um málefni afurða-
stöðvanna.
, Verðlag í matvöruverslunum:
Obreytt á Akureyri frá janúar til aprQ
Meðalverð á um 80 vöruteg-
undum í matvöruverslunum
hélst óbreytt á Akureyri og
höfuðborgarsvæðinu á tímabil-
inu frá janúar fram í aprfl,
samkvæmt niðurstöðum úr
verðkönnun Verðlagsstofnun-
ar. Verð á 37 vörutegundum
hafði lækkað í könnuninni í
aprfl en verð á 45 vörutegund-
um hafði hækkað lítillega eða
var óbreytt.
Meðalverð á vörunum í
könnuninni sem gerð var á höfuð-
borgarsvæðinu lækkaði á bilinu
0,1-6,7% i 17 verslunum en
hækkaði á bilinu 0,1-5,9% í 37
verslunum. Þær vörur sem mest
lækkuðu í verði voru strásykur
sem lækkaði um 5,7% og kjúkl-
Raufarhafnarhreppur:
Sjö bflar skemmdust
eftir akstur á Sléttu
- stórir steinar hafa losnað úr undirlaginu
Nýlega skemmdust sjö bflar á
vikutímabili við það að þeim
var ekið eftir þjóðveginum á
Sauðárkrókur:
Klippumar á loft
- óskoðaðir bílar
úr umferð
Að sögn lögreglu á Sauðár-
króki verður farið í aðgerðir
gegn þeim sem ekki hafa látið
skoða bifreiðir sínar sam-
kvæmt reglum Bifreiðaskoð-
unar íslands. Það er því örugg-
ara fyrir ökumenn að færa bíla
sína til skoðunar því lögreglan
verður með klippurnar á lofti
eftir helgina.
Lögreglan á Blönduósi verður
með radarmælingar um helgina
en að sögn lögreglunnar er alltaf
nokkuð um glannaakstur um
helgar. Dansleikir verða víða um
Húnavatnssýslur í tilefni sjó-
mannadagsins og verður lögregla
því með nokkurn viðbúnað af
þeim sökum. kg
Melrakkasléttu. í einu tilviki
skemmdist bflvél þegar vatns-
kassastútur hristist í sundur og
kælivatnið lak niður. í hinum
tilvikunum urðu skemmdir á
dekkjum og felgum. Eftir þess-
ar hrakfarir var vegurinn
heflaður en ástand hans er þó
bágborið.
Júlíus Már Þórarinsson, sveit-
arstjóri Raufarhafnarhrepps,
sagði að niðurskurður hins opin-
bera hefði bitnað á veginum yfir
Sléttuna. Þessi vegur hefur verið
kallaður hafísvegur því hann er
eina færa samgönguleiðin ef
hafnirnar lokast vegna hafíss.
„Nú er ástandið orðið þannig
að þeir eru að hefla í púkkinu,
undirlagi vegarins. Það fæst ekki
peningur til að bera ofan í sem
þýðir að gengið er á undirbygg-
inguna og ef vegurinn eyðileggst
gæti kostað hundruð milljóna að
gera við hann,“ sagði Júlíus Már.
Hann sagði að búið væri að
keyra á púkkinu í langan tíma og
stórir steinar farnir að losna upp
úr því. Hann taldi því brýnt að
fjárveiting fengist til ofaníburð-
ar, til að bjarga veginum og bíl-
unum. SS
Eyjafiarðarsveit:
Sláttur innan hálfs mánaðar
„Það getur ekki annað en
sprottið þegar tíðin er svona,“
sagði Guðmundur Guðmunds-
son, bóndi í Holtsseli í Eyja-
fjarðarsveit, þegar grennslast
var fyrir um grassprettu nú
fyrir helgina.
Guðmundur sagði að á stöku
stað beri á að tún séu að þorna
eftir hitann sfðustu daga en bætti
við að óvenju mikið hafi rignt í
maí og að því búi túnin.
„Sláttur verður byrjaður eftir
hálfan mánuð. Þar sem friðuð
eru tún verður hægt að slá svo
snemma en það sem áberandi er
núna er hve tún eru jöfn yfir í
sveitinni,“ sagði Guðmundur.
JÓH
Húsavík:
Sigmundur ráðinn til áramóta
Sigmundur Þorgrímsson hefur
verið ráðinn bæjarverkstjóri
hjá Húsavíkurkaupstað til
næstu áramóta, og mun hann
taka við stöðunni í dag.
Sigmundur hefur starfað hjá
Húsavíkurbæ um árabil og gegnt
stöðu bæjarverkstjóra í leyfum
hans.
Fjórar umsóknir bárust um
starfið. Ráðningin gildir til ára-
móta vegna þess að fyrir þann
tíma á að vera lokið endurskoð-
un fyrirkomulags og starfsskipu-
lags áhalda-og tækjadeildar. IM
ingar að meðaltali um 5,4% á
þessu þriggja mánaða tímabili.
Þær vörur sem helst hafa hækkað
í verði eru ýmsar niðursuðuvörur
og hreinlætisvörur.
í fréttatilkynningu frá Verð-
lagsstofnun kemur fram að sams
konar kannanir hafi verið gerðar
á Norðurlandi vestra, Akureyri
og Austfjörðum. Þróun verðlags
á Akureyri virðist vera sú sama
og á höfuðborgarsvæðinu, en
meðalverð á Norðurlandi vestra
og Austfjörðum hefur hækkað
um 1% á fyrrgreindu tímabili.
SS
í máli Hákonar kom einnig
fram að verðábyrgð ríkissjóðs á
kindakjöti fellur niður, er núver-
andi búvörusamningur fellur úr
gildi, og útflutningsbætur verða
lagðar af frá sama tíma. Þá er
gert ráð fyrir að viðskipti með
framleiðslurétt verði heimiluð og
einnig verður öllum heimilt að
selja og flytja kindakjöt úr landi.
Þá kom fram í máli Hákonar að
vaxta- og geymslugjald verður
greitt fyrir allt að 500 tonn í
birgðum 1. september ár hvert.
í ávarpi Halldórs Blöndal,
landbúnaðarráðherra, á fundin-
um kom meðal annars fram að
ákveðið væri að Sjömannanefnd-
in héldi starfi sínu áfram og
einnig að nýgerður búvörusamn-
Hreiðar Karlsson, formaður
Landssamtaka sláturleyfishafa,
sagði meðal annars að samvinna
Landssamtakanna við bændur og
Sjömannanefnd hefði verið með
ágætum. Sláturleyfishafar standi
nú frammi fyrir miklum breyting-
um með nýjum búvörusamningi
og fyrirsjáanlegri fækkun bænda.
Þá þyrftu Landssamtök slátur-
leyfishafa að taka virkan þátt í
og hafa frumkvæði að áframhald-
andi hagræðingu í vöruþróun,
sölu- og markaðsstarfi.
í stjórn Landssamtaka slátur-
leyfishafa eiga sæti Steinþór
Skúlason, Hermann Hansson,
Pétur Hjaltason og Hreiðar
Karlsson, sem jafnframt er for-
maður stjórnarinnar. ÞI
Nú er TVÖFALDUR
1. vinningur
Vertu með
draumurinn gæti orðið að veruleika!