Dagur - 01.06.1991, Síða 13
Laugardagur 1. júní 1991 - DAGUR - 13
Ljóðasamkeppni Dags og Menor:
Fjögur viðurkenningarljóð
Úrslit í Ijóðasamkeppni Dags og Menningarsamtaka Norðlendinga ættu að vera öllum kunn. Við
höfum þegar greint frá úrslitunum og helstu atriðum í tengslum við samkeppnina og í síðasta helg-
arblaði birtum við Ijóðin sem fengu fyrstu og önnur verðlaun í hvorum flokki. En fjögur Ijóð til við-
bótar fengu sérstaka viðurkenningu.
Það er ekki úr vegi að birta einnig þessi tvö ljóð úr hvorum flokki sem hlutu viðurkenningu dómnefndar.
Þetta eru ljóðin Uggur eftir Jón Erlendsson, Akureyri, og Þrjú áföll - sem gera konur að vitsmunaverum
eftir Helgu Þorsteinsdóttur, Njálsbúðarskóla í Vestur-Landeyjum, Rangárvallasýslu, í flokki óbundinna
ljóða og Krystall eftir Braga Magnússon, Siglufirði, og Fánalitir eftir Hjört Pálsson, Kópavogi, í flokki
hefðbundinna ljóða.
Þetta eru allt vel gerð ljóð og þótt önnur hafi verið valin í verðlaunasæti sá dómnefnd ástæðu til að veita
höfundum þessara ljóða sérstaka viðurkenningu. SS
Bragi Magnússon:
Krystall
Lítill krystall
um koldimma nótt
kaldri birtu sló.
Ég sá hann óðfluga
vaxa og verða
að vetrarins fyrsta snjó.
Þetta var seint
hina sömu nótt
og sumarið dó.
Hjörtur Pálsson:
Fánalitir
Hver rúða var hvítum rósum skreytt
í rökkurhöll frosts og þagnar.
En allt er í skyndi orðið breytt
og augað birtunni fagnar.
I fjöruborðinu báran svaf
hjá bláum skeljum og þangi.
Og inn um gluggann steig opið haf
með eldrauða sól í fangi.
Jón Erlendsson:
Uggur
í nótt munu uggvænleg skip koma af hafi
og varpa akkerum í víkinni.
í skjóli myrkurs mun land verða tekið
og læðst að okkur sofandi
þar sem við liggjum í stuttum lokrekkjum
upp við blámáluð þil lítilla herbergja
undir súð vinalegra timburhúsa.
Gisinni hurð höfum við lokað
með hespu og keng.
Við skemmudyr skildum við hrífuna eftir
og annarhver tindur að eilífu horfinn
ofan í safaríkt grasið.
Ó, þessi mynd!
Hún mun byltast og brotna!
Skelfumst þó ekki,
því á hillunni höfum við bækur
og í höfðinu tungu
og nýtt líf fylgir framandi gestum.
Helga Þorsteinsdóttir:
Þrjú áföll
Áfall I.
- sem gera konur að vitsmunaverum
Áfall II. Áfall III.
Sjávarútvegsdeildin
Dalvík
Við Sjávarútvegsdeildina á Dalvík er kennt til 1. og
2. stigs stýrimannaprófs og til prófs fiskiðnaðar-
manna.
Umsóknarfrestur um skólavist er til 15. júní nk.
Inntökuskilyrði um nám í stýrimannadeild sam-
kvæmt nýútgefinni og eldri reglugerðum um stýri-
mannaskóla.
Inntökuskilyrði um nám i fiskvinnsludeild samkvæmt
reglugerð um fiskiðnaðarnám.
Ódýr heimavist og mötuneyti á staðnum
Upplýsingar í símum 61383, 61085, 61380 og
61162.
SUAAAR
SÝNINGIN
1991
Jólasveinn
er ekki vera
með gjafir
sem veit hvað við erum góð
og út um skeggið hlær,
heldur bóndi
úr sveitinni
eða bifvélavirki í bænum
sem finnst skemmtilegt
að fara í skrýtin föt.
Guð
er ekki vera
sitjandi á hvítu skýi
súr á svip
þegar við gleymum
að falla fram
og tilbiðja hann,
heldur utan seilingar
og skilnings manneskjunnar
sbr. gyðingana
í fangabúðum nasista.
Akureyri:
Fyrirlestur um Martinus
og táknmyndir hans
Svíinn Bertil Ekström er væntan-
legur til Akureyrar en hann mun
halda fyrirlestur um heimsfræði
Martinusar í Glerárskóla kl.
14.00 í dag, laugardag. Efni fyrir-
lestursins er kenningar danska
sjáandans og heimspekingsins
Martinusar, sem mörgum íslend-
ingum er vel kunnur, en hann lést
árið 1981. Kenningar og tákn-
myndir Martinusar hafa vakið
mikla athygli, og bækur hans ver-
ið þýddar á mörg tungumál.
Táknmyndirnar verða sýndar og
útskýrðar á fyrirlestrinum,
umræður og fyrirspurnir eru á
eftir. Aðgangur er ókeypis, allir
velkomnir.
Hringur í GaJlerí Koti
Gallerí Kot er nýtt og óvenjulegt
gallerí, sem staðsett er í Verslun-
inni Kot, sérkennilegri heimilis-
og gjafavöruverslun í Borgar-
kringlunni. Þetta nýja verslunar-
hús, Borgarkringlan, verður opn-
að sama dag og fyrsta sýningin í
galleríinu, laugardaginn 1. júní
ki. 13.30.
Fyrstur til að sýna í Gallerí
Koti er Hringur Jóhannesson. Á
þessari 16. einkasýningu Hrings
eru 22 olíumálverk og hafa fæst
þeirra komið fyrir sjónir almenn-
ings.
Sýningar Hrings Jóhannesson-
ar þykja ávallt mikill viðburður í
íslensku lista- og menningarlífi
og það sama gildir um þessa sýn-
ingu í hinu óvenjulega galleríi.
Karlmaður
er ekki vera
sem getur allt
veit allt
og skilur allt,
heldur lítill
berrassaður strákur
leitandi
að mömmu sinni.
7. - 9. júní.
bila& buveiaviogeroir^
FJOLNISGOTU 2A - AKUREYRI - SÍMI 22466
Nútímagirðing með mikla möguleika..
SILVARAF
• Hámarks virkni • Otrúleg ending • Auðveld i uppsetningu • Mjög sterk • Stendur vel af sér snjó •
Hentar vel við flestar aðstæður.
.rr-r-f ‘