Dagur - 01.06.1991, Side 19
Laugardagur 1. júní 1991 - DAGUR - 19
Popp
Magnús Geir Guðmundsson
Stone Roses laus
frá Silvertone
- Hljómsveitin komin á samning
Hæstaréttarmáli hljómsveitarinn-
ar Stone Roses gegn útgáfufyrir-
tæki sínu Silvertone er nú loks
lokið. Lyktir þess urðu á þá leið
að hljómsveitin var leyst frá
samningi sínum við Silvertone
og tryggðar á bilinu 10-50 millj-
ónir króna í bætur vegna kostn-
aðar við málareksturinn. Þá var
hljómsveitinni gefin heimild til að
halda áfram málarekstri á hendur
Silvertone vegna skaða sem
hljómsveitin varð fyrir af völdum
banns, sem fékkst sett á hana
varðandi útgáfu fyrir aðra en
Silvertone.
í dómsorðinu segir að samn-
ingurinn sem Silvertone gerði við
Stone Roses árið 1988 hafi á all-
an hátt verið „ranglátur og órétt-
lætanlegur" gagnvart hljómsveit-
inni og sömuleiðis ósanngjarn í
viðskiptalegu tilliti. Nánar tiltekið
segir í dómnum að útgáfufyrir-
hjá Geffen
tækið hafi vísvitandi notað sér
einfeldni og þekkingarskort með-
lima Stone Roses og umboðs-
manns þeirra við samningsgerð-
ina og niðurstaðan sé sú að slík-
ur einhliða samningur geti ekki
talist löglegur, enda hefðu engir
sæmilega uþplýstir tónlistar-
menn skrifað undir hann.
Það þarf vart að fara mörgum
orðum um að þetta er mikill sigur
fyrir Stone Roses, en barátta
Stone Roses lausir úr prísundinni hjá Silvertone.
Mynd að komast á Reading
tónlistarhátíðina
Fyrir allnokkru fjallaði Poppsíðan
um nokkrar tónlistarhátíðir sem
verða í Bretlandi í sumar. Meðal
annars fjallaði greinin um Don-
ingtonhátíðina, sem fram fer
laugardaginn 17. ágúst, en þar
munu koma fram fimm hljóm-
sveitir, AC/DC, Metallica, Motley
Crue, Queensryche og Black
Crowes.
Helgina eftir hefst svo önnur
hátíð, sem sennilega er ein sú
elsta og frægasta tónlistarhátíð
Bretlands, Readinghátíðin. Á
hana hafa löngum margir íslend-
ingar lagt leið sína líkt og á Don-
ington og sumir hafa farið í langa
ferð til að geta verið á báðum.
Á þessa merku hátíð sem jafn-
an stendur í þrjá daga, er nú að
komast nokkuð skýr mynd fyrir
þetta ár. Á föstudeginum 23.
verður það gamla rokkhetjan,
Iggy Pop, sem skipar heiðurs-
sess, en auk hans koma fram
þanna daginn, Sonic Youth, Poþ
will eat it self, Dinosour Jr. og
Chapterhese.
James, sveitin efnilega frá
Manchester, verður í aðalhlut-
verki á laugardeginum, en auk
hennar koma fram, Carter the
unstopable sex machine, The
Fall De La Soul og Blur.
Á sunnudeginum verða það
svo Andrew Eldrich og félagar í
Sisters of Mercy sem verða aðal-
hljómsveitin, en ásamt þeim
stiga á svið, Ned’s atomic
dustbin. Fleiri nöfn eiga svo enn
eftir að birtast yfir flytjendur á
hátíðinni.
Auk allra hljómsveitanna, sem
fram munu koma þessa þrjá
daga, mun fara fram einhvers-
konar hæfileikakeppni, þar sem
hvorki fleiri né færri en fjögur
þúsund einstaklingar taka þátt.
(Væntanlega í söng eða hljóð-
færaleik.)
Vegna hörmulegra slysa, sem
orðið hafa á hinum ýmsu tónleik-
um undanfarin misseri, verður
öryggisgæsla mikil á hátíðinni og
fjöldi gesta er takmarkaður við
30 þúsund.
Andrew Eldrich og félagar í Sisters
of Mercy verða á Readinghátíðinni í
sumar.
Kraftwerk
Nýju lífi hefur nú verið blásið í
glæður tölvuþoppsveitarinnar
Kraftwerk frá Þýskalandi. Skip-
aði hljómsveitin veglegan sess í
tölvupoppsbylgjunni, sem hátt
reis um og eftir 1980, en þó ligg-
ur uppruni hennar mun lengra
aftur, eða til ársins 1971, en þá
stofnuðu þeir Ralf Hutter og
Florian Schneider hana.
Nú síðustu árin hefur verið
hljótt um hljómsveitina, en í kjöl-
far uppgangs House tónlistarinn-
ar svokölluðu, hafa vinsældir
hennar vaknað á ný.
í júlí næstkomandi hyggst
hljómsveitin halda í tónleikaferð
til Bretlands, en þangað hefur
hún ekki komið í tíu ár. Verður
ferðin farin í kjölfar útgáfu á nýrri
safnplötu, sem geyma mun ellefu
af frægari lögum Kraftwerk í
endurhljóðblönduðum útgáfum.
Til að fylgja útgáfu plötunnar úr
hlaði, mun smáskífa með laginu
The robots, sem er að finna á
plötunni Man Machine árið 1978,
koma út nokkru áður. Meðal ann-
arra laga sem verða á safnplöt-
þeirra við Silvertone stóð í um ár,
þar af hafa nær þrír mánuðir farið
í málareksturinn fyrir hæstarétti.
Þeir fjórmenningar í Stone Ros-
es voru ekki viðstaddir dómsúr-
skurðinn, en að sögn umboðs-
manns hljómsveitarinnar eru þeir
að vonum ánægðir.
Talsmenn Silvertone hafa ver-
ið þögulir sem gröfin um niður-
stöðu málsins, en Ijóst er að fyrir-
tækið hefur orðið fyrir töluverðum
álitshnekki auk fjárhagslegs
tjóns. Það er þó ekki talið líklegt
að fyrirtækið fari á hausinn
vecjna þessa.
I kjölfar dómsúrskurðarins hef-
ur Stone Roses gert samning við
Geffen um útgáfu á sex plötum
og er samningurinn metinn á
hvorki meira né minna en tvo
milljarða króna. (20 milljónir
punda.)
Aðdáendur hljómsveitarinnar
geta svo farið að hlakka til að
heyra nýtt efni frá henni, því
áætlað er að hún sendi frá sér
smáskífu einhvern tíma á næstu
tveimur mánuðum.
snýr aftur
Kraftwerk ætlar til Bretlands eftir tíu
ára hlé.
unni má nefna, Computer love,
Pocket calculator og Music none
stop. Að venju var platan unnin í
heimaborg hljómsveitarinnar,
Dusseldorf, í hljóðveri sem hún á
sjálf. Svo er bara að sjá hvort vel
tekst til og von sé á nýju efni frá
Kraftwerk í náinni framtíð.
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------"N
AKUREYRARBÆR
Brekkukot
Foreldrar athugið!
Frá og meö 1. júní verður tekið á móti umsóknum
barna á skóladagheimilið Brekkukot fyrir skólaár-
ið 1991-1992.
Umsóknareyðublöð fást á Dagvistadeild, Eiðs-
vallagötu 18, eða í síma 24600 milli kl. 10.00-
12.00 virka daga.
Dagvistadeild.
Aðalfundur
SAMBANDS ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
verður haldinn dagana 6. og 7. júní 1991
í Sambandshúsinu, Kirkjusandi.
Fundurinn hefst kl. 9 árdegis.
©SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
\
AKUREYRARB/íR
ÚTBOÐ
Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í frágang
útisvæðis við Sundiaug við Glerárskóla.
Byggja skal útibúningsklefa og vaðlaug, setja upp
tvo plastpotta og tilheyrandi kerfi. Hellulagt svæði
með snjóbræðslulögn og niðurföllum er um 280
m2. Þá skal malbika stíg og girða, tyrfa og sá í
kring. Verkinu skal Ijúka eigi síðar en 2. ágúst
1991.
Útboðsgögn verða afhent á Byggingardeild Akur-
eyrarbæjar, Kaupangi v/Mýrarveg, Akureyri frá
kl. 13.00 mánudaginn 3. júní gegn skilatryggingu
kr. 10.000,-.
Tilboð skulu hafa borist Byggingardeild Akureyr-
arbæjar, Kaupangi við Mýrarveg, 600 Akureyri
eigi síðar en kl. 13.15 föstudaginn 7. júní 1991,
en þá verða þau opnuð þar í viðurvist bjóðenda.
it’
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
SIGURGEIR SIGURÐSSON,
bifreiðastjóri,
Hjallalundi 15 b, Akureyri,
sem lést 26. maí s.l. verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 3. júní nk. kl. 13.30.
Margrét Tryggvadóttir,
Anna María Sigurgeirsdóttir, Svavar B. Magnússon,
Katrín Sigurgeirsdóttir, Sigurgeir Magnússon,
Margrét Sigurgeirsdóttir, Sigurður Björnsson,
Tryggvi Karlesson, Berþora Bergkvistsdóttir.
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför,
MAGNEU DANIELSDÓTTUR,
Heigamagrastræti 38, Akureyri.
Valgerður Vilhjálmsdóttir, Björn Þ. Jóhannesson,
Jón Kr. Vilhjálmsson,
Sverrir Viihjálmsson.