Dagur - 27.07.1991, Page 13

Dagur - 27.07.1991, Page 13
Laugardagur 27. júlí 1991 - DAGUR - 13 Gagnrýnendur í Þýskalandi tóku Lissý opnum örmum - umsagnir Die Rheinpfalz og Neustadter Rundschau í íslenskri þýðingu Kvennakórinn Lissý fór í frægðarför til Þýskalands og Frakklands eins og lesendur Dags gátu séð í skemmtilegri frásögn Aðalbjargar Páls- dóttur sl. föstudag og laugar- dag. Kórinn fékk afar góðar viðtökur áheyrenda og gagn- rýnenda og til að staðfesta þessar viðtökur birtum við hér úrklippur úr umsögnum tveggja þýskra blaða í íslenskri þýðingu. Lissý, Margrét Bóasdóttir, stjórn- andi og einsöngvari, og org- anistinn Björn Steinar Sól- bergsson fá þar sannarlega lofsamlega dóma. Fróðlegt er að sjá hvernig þýðversk- um gagnrýnendum líst á „lif- andi raddlist frá norðrinu kalda“, svo vitnað sé í aðra greinina. Kvennakórinn „Lissý“ frá íslandi í St. Georgskirkjunni Lifandi raddlist frá norðrinu kalda Aðalstyrkur margra áhuga- mannakóra felst í náðargáfu útgeislunarinnar, sem lætur gagn- rýnið eyra leiða hjá sér hverskyns smámunasemi gagnvart ýmiss- konar tæknilegri ónákvæmni, vegna þess að hún hverfur fyrir því sem er miklu mikilvægara. Islenski kvennakórinn „Lissý“ ...náði miklum árangri síðastliðið laugardagskvöld: honum tókst að miðla hluta þjóðmenningarlegrar sjálfsvitundar á hrífandi hátt. Stjórnandi hinna 60 norðís- lensku söngkvenna síðan 1987 er söngkennarinn og söngkonan Margrét Bóasdóttir, lærð í Þýskalandi. Hún lætur syngja utanað, og sj^lf.nqtar hún ekki nótnapúlt, en hvoru tveggja styrkir einbeitnina og skapar spennu „samtals" milli stjórnanda og kórs. Og óðara nemur eyrað hversu hún hefur mótað hópinn sinn með vönduð- um „verkfærum“ raddbeitingar- innar. Hrein tónmyndun, nákvæmar innkomur og mjög öguð notkun styrkbreytinga mynda traustan grundvöll fyrir lifandi og gríðarlega áhrifamikinn heildar- hljóm, sem minnir með blæ sín- um á dýpt og stálhvassa skerpu rússneskra kóra. Aðferð Margrétar við að stjórna nálgast danshreyfingar. Hún er í eiginlegu tilliti tjáning með öllum líkamanum sem kallar fram - allt að því þvingar fram, hjá flytjendunum hverju sinni þá svörun sem óskað er eftir. Prátt fyrir yfirlýsta ást á eigin menningu á evrópsk söngtóniist einnig sinn fasta sess í söngskrá kórsins. Það sýndu þrír þættir úr „Stabat Mater“ eftir Giovanni Pergolesi og Mozarts „Ave verum“, (sem kórinn flutti, lík- lega eins og einni gráðu of hratt). Að öðru leyti var ausið af lind- um nýrrar íslenskrar tónlistar. Eftir að hafa sungið fimmunda- sönginn með því óframberanlega nafni „Gefðu að móðurmálið mitt“, svo hreint og jafnt að undrun sætti, flutti kórinn flokk nýrri þjóðlagaútsetninga aðallega úr penna Jóns Ásgeirssonar, sem er meðal hinna fremstu á því sviði. Ljóðin, - ný eða forn, fjalla aðallega um fegurð eða hörku náttúrunnar, trúrækni (Maríu- ljóð), ástarsælu og sorg. Eftirtektarvert er hversu kór- inn virðist eiga auðvelt með að umgangast nútímalegan hljóma- gang og einmg nversu ótrúlegt vald efstu og neðstu raddirnar hafa á mjög mikilli dýpt og hæð. Eini karlmaðurinn í hópnum var annars organistinn Björn Steinar Sólbergsson, sem stund- um greip í sembalóið, en lék ann- ars af snilld áhrifamikið dæmi um íslenska orgeltónlist samtíma- höfundar (Jón Nordal: Tokkata). Þetta voru eftirminnilegir tón- leikar, sem áheyrendur í Paulus- kirkjunni í Neustadt-Hambach gátu á sunnudaginn einnig notið. „Die Rheinpfalz“ 11.06.91. Gertie Pohlit. íslenskur kór í Pálskirkjunni Sungið innilega, kraft- mikið og af jafnvægi íslensk orð og íslenskir hljómar heyrðust á sunnudagskvöldið í Pálskirkju á Hambach hæð. Kvennakórinn „Lissý“, um sex- tíu söngkonur, var í heimsókn hjá kór kirkjunnar. Tengsl hafa verið á milli kóranna um nokkurt árabil með gagnkvæmum heim- sóknum, sem byggjast á vináttu stjórnenda kóranna, Margrétar Bóasdóttur og Carólu Bischoff. íslenski stjórnandinn nam við Tónlistarháskólann í Heidelberg- Mannheim og gat því sjálf gert grein fyrir innihaldi kórverkanna fyrir áheyrendur. Klæddar fögrum þjóðbúning- um heimalands síns, gengu kon- urnar inn í kirkjuna og sungu í upphafi íslenskan sálm. Eftirtektarvert var strax í þess- um nær eingöngu einradda söng hinn hlýi og tandurhreini tónn kórsins. í þeim andlegu Ijóðum sem á eftir fylgdu, ýmist undirleikslaust eða með orgelundirleik, hljóm- uðu fagrar raddsetningar verk- anna ljúflega en spennuþrungnar þrátt fyrir kyrrlátan grunn. Lögin sem flest bera keim þjóðlaga voru flutt af innri krafti, en tilgerðarlaust og án yfirdrif- innar fínpússningar. Margrét Bóasdóttir stjórnaði nákvæmt og kallaði eftir fjölbreytileika í mót- un hendinga og heilla þátta, sem konurnar íslensku brugðust við af smekklegri yfirvegun. Pessi túlkunaraðferð gerir flutning verkanna enn eftirminnilegri. Pannig hljómuðu Mozarts „Ave verum“ og fyrsti og tólfti þáttur með „Amen" lokaþættinum úr „Stabat Mater" eftir Pergolesi í einföldum innileika og algjörlega laus við yfirdrifna tilfinninga- semi. í þessum verkum báðum mátti einnig vel heyra hversu skýr framburður kórsins er. Lokahluti verksins, hröð fúga á hlaupandi nótum sem endar á einum tóni, var framúrskarandi sunginn. Organistinn Björn Steinar Sól- bergsson, sem strax vakti athygli fyrir úthugsað val radda orgelsins þegar hann lék undir með kórnum, spilaði „Ostinato og Fugetta" eftir íslenskt samtíma tónskáld lítríkt, og kom hinu dansandi stefi annars hluta verks- ins einnig í útfærslum þess vel til skila. Margrét Bóasdóttir song við undirleik organistans íslenskan sálm með tærri sópranrödd, og síðan söng hún ásamt Carolu Bischoff íslenskt „Ave María" í Ijúflegum víxlsöng og samhljóm þessara vel öguðu radda. Á eftir fylgdi flokkur íslenskra þjóðlaga og kórverka. Þau gáfu góða innsýn í ríkulegan sjóð sönglaga sem fæðst hafa á eynni, eins og líka í stíl íslenskra tón- skálda samtímans. Kórinn söng þessi gaman- og ástarkvæði áreynslulaust og blæ- brigðaríkt. Neustadter Rundschau 11.06.91. Gisela Foltz. Sumarkvöld í SjaJlaniini - Þorvaldur Halldórsson, verður meðal skemmtikrafta I kvöld, laugardagskvöldið 27. júlí, verður haldið sumar- kvöld í Sjallanum. Boðið verður upp á léttan kvöldverð, söng- skemmtun og tískusýningu. Meðal skemmtikrafta verða þær Guðrún Gunnarsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir, en síðustu vikur hafa þær æft upp söngatriði þar sem farið er yfir sögu frægra söngkvenna síðustu áratuga og lög sem þær gerðu fræg á sínum tíma. Níels Ragn- arsson leikur undir á píanó og Rokkbandið leikur einnig í nokkrum lögum. Pá mun tísku- sýningarfólk sýna undirfatnað frá versluninni Ámaró. Rúsínan í pylsuendanum verður svo Þor- valdur Halldórsson, sem mun syngja gömlu góðu Sjallalögin, en Porvaldur Halldórsson kom fram á opnunarkvöldi Sjallans og sýndi það og sannaði að hann hefur aldrei verið betri. Dans- leikur hefst svo að loknu borð- haldi og skemmtiatriðum og verður dansað til kl. 03.00 við Þorvaldur Halldórsson, mun koma fram á sumarkvöldinu annað kvöld. undirleik Rokkbandsins. Miða- verð fyrir kvöldverð, skemmti- atriði og dansleik er 1.900. Borðapantanir eru í síma 22770. (Fréttatilkynning)

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.