Dagur - 27.07.1991, Qupperneq 18
18 - DAGUR - Laugardagur 27. júlí 1991
AKUREYRARRÆR
íbúðir
Kennara viö Tónlistarskóla, Lundarskóla og
Síðuskóla vantar 3-4 herb. íbúöir á komandi
vetri.
Vinsamlega hringið á skrifstofu skólafulltrúa og
komiö íbúðinni ykkar á framfæri.
Sími 27245 kl. 08-16 virka daga.
Skólafulltrúi.
Atvinna
Vantar duglegt og gott starfsfólk í pantanir og áfyll-
ingu.
Upplýsingar veitir Siguröur Hinrik á staönum, milli kl.
10.00 og 11.00, næstu daga. Ekki í síma.
HAGKAUP
íþróttakennari
íþróttakennara vantar við grunnskóla Raufarhafnar.
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 96-51225.
Viðskiptafræðingur
Viöskiptafræöingur með 10 ára starfsreynslu í fjár-
málastjórn, áætlanagerð, tölvumálum og stjórnun
starfsmanna, óskar eftir starfi.
Tilboö leggist inn á afgreiðslu Dags fyrir 3. ágúst
merkt „Viðskiptafræðingur“.
Atvinna í boði
Vantar áhugasaman og duglegan starfsmann, helst
vanan, í kjötborð okkar.
Upplýsingar veittar hjá Jóhanni Inga á staönum milli
kl. 10.00 og 11.00 næstu daga. Ekki í síma.
HAGKAUP
Bifhjólamenn
hafa enga heimild
til að aka hraðar
en aðrir!
IUMFERÐAR
RÁÐ
Af erlendum VETTVANGI
Hvað eru margar tegundir
dýra á jörðinni?
Samkvæmt upplýsingum World
Wildlife Fund eru til eitthvað í
kringum 30 milljónir dýrateg-
unda. Nákvæma tölu veit enginn.
Aðeins örlítill hluti þessarra
dýrategunda - eða eitthvað í
kringum milljón - hafa hlotið
nafn og verið skráð á bækur.
Fuglarnir eru sennilega sá
flokkur dýra, sem mestar upplýs-
ingar eru til um. Um það bil 9040
tegundum fugla hafa verið gefin
nöfn. Eigi að síður telja vísinda-
menn, að svo sem tvö hundruð
tegundir fugla séu enn nafnlausir
og óskráðir.
Þessar tölur benda til þess, að
menn þekki nú um það bil 98
prósent fugla á jörðinni. Af
spendýrum þekkja vísindamenn
um það bil 4000, og er talið að
það séu um 95 prósent af heild-
inni. Af þessum 4000 spendýrum
eru nagdýr ca 1500 tegundir og af
leðurblökum finnast um það bil
950.
Þekktar eru í kringum 19.000
mismunandi tegundir fiska, 6300
skriðdýr og 4200 láðs og lagar
dýr. Talið er að á milli 10 og 30
prósent af þessum dýrategundum
séu enn óþekkt.
Skordýrin eru sá dýraflokkur,
sem hvað minnst hefur verið
rannsakaður. Um það bil 750
þúsund tegundir hafa verið
skráðar, en giskað er á, að í heild
geti tala skordýrategunda verið
allt að 30 milljónum.
Vísindamenn reikna með að til
séu um 100 þúsund tegundir lin-
dýra (snigla, skelfiska o.s.frv.) og
helmingur þeirra sé þegar
þekktur. Loks má nefna 38 þús-
und tegundir krabbadýra, 900
tegundir holdýra (hveljur og kór-
Á plánetunni jörð er vitað um 38.000 krabbadýr. - Hér sést einn sjókrabb-
anna á gangi.
aldýr) og svo sem 40 þúsund teg-
undir svonefndra frumdýra,
þ.e.a.s. amöbur, skólpdýr o.fl. af
því tagi.
En hvað mikið ennþá er
óþekkt af krabbadýrum, hveljum
og ýmisskonar frumdýrum víðs-
vegar um jörðina, getur enginn
sagt um. Hugsanlega eru eins
mörg óþekkt ennþá og þau, sem
þekkt eru.
(Bengt Bengtsson í Fakta 12/90 -P.J.)
Nýtt megrunarlyf,
sem vekur vonir
Efni, sem meðal vísindamanna
gengur undir nafninu 2,5-anhy-
dro-D-mannitol og er unnið úr
skeljum krabbadýra, gæti orðið
það undralyf, sem losað mann-
fólkið við áhyggjur af líkams-
þyngdinni.
Peir amerísku vísindamenn,
sem lengst hafa unnið að rann-
sóknum á þessu efni, eru þó enn
ekki tilbúnir til að gefa þeim sem
þjást af offitu nein ákveðin fyrir-
heit.
Tilraunir hafa leitt í ljós, að
efnið veldur því, að þeir, sem eru
of léttir, þyngjast, en þeir, sem
eru of þungir, léttast. Efnið hefur
þannig tvíhliða áhrif og gæti því
farið svo, ef menn færu almennt
að neyta þess, næðu allir sinni
kjörþyngd - og héldu henni.
(Trúi þeir, sem vilja.)
Vísindamennirnir hafa ekki
komist að niðurstöðu um það,
hvernig á því stendur, að efnið
hefur þessi áhrif, en framundan
eru tilraunir á mönnum.
(Fakta 12/90. -Þ.J.)
Ainerískir vísindamenn halda, að sá
tími sé skammt undan, að konur
jafnt sem karlar geti sleppt öllum
áhyggjum af aukakílóum.
„ UMBOÐSAÐILI A NORÐURLANDI: BILAVAL hf.
(Q
'00
e
'■5
e
<D
3
o
Strandgötu 53 • Akureyri • Sími 96-21705
Sýningarsalur Bílavals
við Strandgötu er opinn alla virka
daga frá kl. 10.00-19.00 og
laugardaga kl. 10.00-18.00
<B
'00
BMW 320
Nýr og breyttur
RENAULT CLIO
Bíll ársins 1991
Gullna stýriö 1991
RENAULT 19
Glæsilegur fjölskyldubíll
RENAULT NEVADA
4x4 skutbíll
l!