Dagur - 09.11.1991, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 9. nóvember 1991
Fréttir
Fjármögnun Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar rædd á fundi bæjarráðs Akureyrar sl. fimmtudag:
Málið verði tekið upp í stjóm Iðnþróunarfélagsins
Eins og fram kom í Degi í
vikunni urðu töluverðar
umræður í bæjarstjórn Akur-
eyrar um fjármögnun Iðn-
þróunarfélags Eyjafjarðar.
Umræðurnar spunnust út frá
bókun bæjarráðs frá 24. októ-
ber sl. þar sem samþykkt var
að leggja til að fjárframlag á
hvern bæjarbúa til Iðnþróun-
arfélagsins á þessu ári yrði
480 krónur. Jafnframt kom
fram í þeirri bókun að meiri-
hluti bæjarráðs teldi eðlilegt
að öll fjárframlög sveitar-
félaga til Iðnþróunarfélagsins
verði í formi hlutafjárfram-
laga og þeim mætti skipta í
flokka A og B þar sem aðeins
öðrum flokknum fylgdi
atkvæðisréttur.
í máli Björns Jósefs Arnvið-
arsonar (D) kom fram að hann
vildi ganga enn lengra og skil-
yrða að framlag Akureyrarbæj-
ar yrði í formi hlutafjár. Eftir
töluverðar umræður var málinu
vísað aftur til bæjarráðs og þar
var það tekið fyrir sl. fimmtu-
dag og ákveðið að leggja til að
stjórn Iðnþróunarfélagsins taki
þetta mál sérstaklega til
umfjöllunar.
Björn Jósef Arnviðarson
sagði í samtali við Dag að hann
væri mjög ánægður með að mál-
ið væri komið í þennan farveg
og vonandi gæti breyting í þessa
veru komist á vegna fjármögn-
unar félagsins fyrir árið 1992.
Hann tók fram að menn mættu
ekki túlka afstöðu sína í þessu
máli þannig að hann vildi draga
úr starfsemi Iðnþróunarfélags-
ins. Þvert á móti vildi hann veg
þess sem mestan.
„Rekstrarframlög til Iðnþró-
unarfélagsins eru skattskyld og
ef fyrirtæki eru með hagnað
þurfa þau að borga skatt af
honum. Það þykir mér óeðlilegt
í þessu tilviki. En vissulega
mætti segja á móti að ef félagið
skilaði hagnaði, þá væri hvorki
beðið um rekstrarframlag né
hlutafjárframlag til þess. Það
eru út af fyrir sig einnig rök.
En annað atriði er að með
þessu móti'er Akureyrarbær að
leggja fram fjármagn sem hugs-
anlega getur margfaldast og
orðið mjög verðmætt og fært þá
eignarhluti yfir til annarra sem
ekki hafa greitt sama framlag,"
segir Björn Jósef. óþh
I bígerð að bakarí taki til starfa á ný í Olafsfirði eftir um 30 ára hlé:
Finnst að bær eins og Ólafs-
fjörður eigx rétt á að fá bakarí
- segir Arnbjörn Arason, bakari á Blönduósi
Arnbjörn Arason, bakari á
Blönduósi, vinnur nú að stofn-
un bakarís í Ólafsflrði. Hann
hefur óskað eftir ábyrgð
bæjarsjóðs Ólafsfjarðar vegna
tækjakaupa og hyggst kaupa
bakarí í Reykjavík sem flutt
yrði til Ólafsfjarðar en Arn-
björn ætlar að flytja með fjöl-
skyldu sína til Ólafsfjaröar og
hetja rekstur þar um áramót.
Hann segir að þessi áform ráð-
ist af því hvort ábyrgð fæst frá
bæjarstjórn Ólafsfjarðar en
boðaður er bæjarstjórnarfund-
ur á þriðjudag þar sem þetta
mun væntanlega skýrast.
Arnbjörn segir að um 30 ár séu
liðin frá því bakarí var starfandi í
Ólafsfirði og því sé tímabært að
úr verði bætt. Hann segist hafa
orðið var við mikinn áhuga heima-
manna á þessu máli en þess má
geta að Arnbjörn á sjálfur ættir
að rekja til Ólafsfjarðar. Raunar
segir Arnbjörn að þessi hugmynd
hafi fyrst komið upp með þeim
hætti að fasteignasali í Reykjavík
hafi hringt í hann og spurt hvort
hann væri tilbúinn til að flytja til
Ólafsfjarðar og setja þar á stofn
bakarí því áhugi á málinu sé
mikill í Ólafsfirði sem merkja
megi af því að þar hafi verið
stofnað áhugamannafélag um
bakarí.
„Þetta kom algerlega flatt upp
á mig en ég fór að skoða þetta
nánar og láta reikna út hvort
bakarí gæti staðið undir sér. Svo
virðist vera. Ef maður lítur í
kringum sig þá eru bakarí á
Fyrsta tölublað nýs fréttablaðs
við Húnaflóa mun koma út um
miðjan mánuðinn. Átaksverk-
efni Vestur-Húnvetninga
stendur fyrir stofnun blaðsins,
en ritstjóri og ábyrgðarmaður
er Jón Daníelsson á Tanna-
stöðum.
Hinu nýja fréttablaði er ætlað
að þjóna Húnavatnssýslum og
Strandasýslu, eða þeim byggðum
sem eru við Húnaflóa og flytja
fréttir af því svæði. í ritnefnd
mörgum svipuðum stöðum og ég
held að ef slíku fyrirtæki er hald-
ið í lágmarki í stærð þá eigi þetta
að ganga. Mér finnst bær eins og
Ólafsfjörður sem er með 1250
manns og mikla útgerð eigi rétt á
að fá bakarí,“ sagði Arnbjörn.
JÓH
fyrsta tölublaðsins eru Steingrím-
ur Steinþórsson, Sveinn Tumi
Arnorsson og Karl Sigurgeirsson
og verður því blaði dreift til
kynningar inn á öll heimili við
Húnaflóa.
„Við höfum ákveðið að gefa út
ein 2-3 blöð til að byrja með og
sjá viðbrögðin. Aftur á móti
erum við ekki enn búnir að
ákveða nafn á blaðið,“ segir Karl
Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri
Átaksverkefnis V-Hún sem og á
sæti í ritnefnd fyrsta tölublaðs.
Að sögn Karls reikna þeir með
að fá styrki frá héraðsnefndum
og stærri sveitarfélögum til að
fjármagna blaðaútgáfuna, en
Örðtak á Hvammstanga mun sjá
um umbrot blaðsins, en Húna-
prent á Laugarbakka um prentun
þess. SBG
pl/IN i/ió HRRFNRGIItá
í Vín
Vestur-Húnavatnssýsla:
Fréttablaði
hleypt af stokkunum
- fyrsta tölublaðið í vinnslu
Örtröð við Levi’s búð
Mikil örtröð var við Strandgötu 6
á Akureyri snemma í gærmorg-
un. Ástæðuna mátti rekja til þess
að verið var að opna Levi’s búð
og höfðu forsvarsmenn verslun-
arinnar auglýst að tíu fyrstu við-
skiptavinirnir myndu fá bæði
buxur og bol frá Levi’s fyrir lítið
verð. Verslunin var opnuð kl. 10
og höfðu þá safnast um 30 manns
, við dyrnar, mest unglingar en ,
einnig nokkrir fullorðnir. Þegar
dyrnar voru opnaðar ruddist hóp-
urinn inn með látum en dyra-
vörður reyndi að sjá til þess að
þeir sem höfðu mætt fyrstir nytu
vildarkjaranna, en áköfustu ungl-
ingarnir höfðu mætt upp úr kl. 5
um morguninn. Þrátt fyrir
örtröðina fór allt vel að lokum.
SS/Mynd: Golli
Glæsilegt
kaffihlaðborð
um helgina
Nýkomin pottablóm á
ótrúlega góðu verði
Sigluflörður:
Litlar sveiflur í atvinnulífinu
- beðið eftir blessaðri loðnunni
Þokkalegt atvinnuástand er á
Siglufírði og í rauninni hefur
það haldist stöðugt undanfarna
niánuði. Að sögn Hafþórs
Rósmundssonar, formanns
Verkalýðsfélagsins Vöku, eru
um 30 manns á atvinnuleysis-
skrá og hafa litlar sveiflur verið
merkjanlegar á skránni í nokk-
urn tíma. Líflð gengur því sinn
vanagang.
„Það bíða náttúrlega allir eftir
blessaðri loðnunni því hún er
vítamínsprauta fyrir byggðarlag
eins og Siglufjörð. Ég held að
það hafi strax hýrnað yfir fólki
þegar loðnuskipin voru komin
hér að bryggjunum, þótt þau liggi
enn tóm,“ sagði Hafþór.
Hann sagði að verksmiðjan
hefði verið rekin með lágmarks-
afköstum allt þetta ár, eða síðan
starfsmönnum Síldarverksmiðja
ríkisins var sagt upp á sínum
tíma. Þá var lágmarksmannskap-
ur endurráðinn til að halda verk-
smiðjunni gangandi. Hann sagði
að starfsmönnum yrði fjölgað
töluvert þegar loðnan kæmi, ekki
síst ef keyrt yrði á vöktum, því
vaktavinnan kallaði á 35 manns.
Aðspurður sagði Hafþór áhöld
um það hvort nægur mannskapur
væri fyrir hendi ef starfsemi færi á
fullt í verksmiðjunni, en hann
nefndi að trillukarlar, sem nokkr-
ir eru á atvinnuleysisskrá vegna
ömurlegra gæfta að undanförnu,
myndu ráða sig til verksmiðjunn-
ar og einnig hefðu brottfluttir
Siglfirðingar sýnt áhuga á að taka
þátt í loðnubræðslu.
„Annars er þetta allt fastmótað
hér. Þormóður ramnri er með sín
skip í fastri rútu og aflinn af þeim
er unninn hér heima. Ingimundur
er með báta á rækjuveiðum og
það hefur gengið vel hjá þeim,“
sagði Hafþór. SS