Dagur - 09.11.1991, Síða 4
4 - DAGUR - Laugardagur 9. nóvember 1991
Fréttir
Sj ávarútvegsráðuneytið:
Lög um landanir erlendra fiski
skipa á íslandi í endurskoðun
Lög, frá 1922, um landanir
erlendra fiskiskipa í íslenskum
höfnum eru til endurskoöunar
í sjávarútvegsráðuneytinu.
Þessari vinnu lýkur í næstu
viku og þá mun sjávarútvegs-
ráðherra taka ákvörðun um
hvort nýtt frumvarp verður
kynnt í ríkisstjórninni.
í gildi eru gömul lög sem
banna landanir erlendra fiski-
skipa í íslenskum höfnum. Lögin
eru afar ströng og leyfa aðeins
skipunum að leita hafnar í neyð-
artilfellum. Lögin voru sett til að
hindra athafnafrelsi útlendinga
við veiðar á íslandsmiðum. Á
þessum tíma var landhelgislínan
upp í harða landi.
„Nú eru breyttir tímar. Fisk-
veiðilandhelgin er önnur og við-
horf öll breytt það er lýtur að
þjónustu og alþjóðlegum sam-
skiptum. Nýir samningar koma
hér inn í. Því eru lögin í endur-
skoðun í sjávarútvegsráðuneyt-
inu. Við erum að færa þetta allt
til nútímans. Frumvarpsgerð Iýk-
ur trúlega í næstu viku og þá
Rússnesk rækjuskip hafa verið tíðir gestir á Akureyri á undanförnum árum.
kemur til ákvörðunar sjávar-
útvegsráðherra, hvort hann legg-
ur frumvarpið fram í ríkisstjórn
íslands,“ sagði Jón B. Jónasson,
skrifstofustjóri í sjávarútvegs-
ráðuneytinu.
Á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar í þessari viku spunnust
töluverðar umræður um landanir
erlendra skipa í íslenskum
höfnum. Tilefnið var tillaga sem
Einar Sveinn Ólafsson lagði fram
í hafnarstjórn 29. október sl. þar
sem hann lagði til að hafnarstjóra
yrði falið að kanna útgáfu upplýs-
ingarits um möguleika erlendra
fiskiskipa til að landa afla og
kaupa þjónustu á Akureyri. Jafn-
framt hafi hafnarstjóri samstarf
við þau fyrirtæki, sem tengist
fiskvinnslu og þjónustu auk
atvinnumálanefndar bæjarins.
Bæjarstjórn vísaði þessu máli
aftur til bæjarráðs til frekari
skoðunar og þar var það tekið
fyrir sl. fimmtudag og ákveðið að
fela hafnarstjóra og starfsmanni
atvinnumálanefndar að afla
ýmissa upplýsinga sem því
tengdist. ój/óþh
Lyfjamálið:
„Ummælin eru heilbrigðisráðherra ekki sæmandi“
- segir í fréttatilkynningu BSRB og ASÍ
BSRB og ASÍ hafa mótmælt
harðlega og lýst furðu sinni
á þeim ummælum Sighvats
Björgvinssonar, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, í kvöld-
fréttum Ríkisútvarpsins 5.11.
sl. að breytingar á lytjakostnaði
hafi almennt ekki komið illa
við aldraða og öryrkja, fyrir
utan þá sem „eru háðir ávana-
bindandi efnum og neyta mik-
ils magns af þeim.“ í sama
streng og stéttarfélögin tekur
Jóhann P. Sveinsson, lögmað-
ur og formaður Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra.
BSRB og ASÍ hafa lýst sig
ósammála því áliti heilbrigðisráð-
herra, að ekki sé ástæða til að
endurskoða reglugerð um þátt-
töku ríkisins í lyfjakostnaði, en
Sjálfsbjörg hefur sýnt fram á að
lyfjakostnaður aldraðra og öryrkja
hefur í einstökum tilfellum marg-
faldast frá því að reglugerðin tók
gildi.
„Ráðherra sagði að það væri
„umhugsunarvert, bæði fyrir
heilbrigðisyfirvöld og almenning,
hvort ríkisvaldið á að afhenda
ókeypis ávanabindandi fíkniefni
sem notuð eru í miklu mæli.“
Þessi ummæli og málatilbúningur
allur er heilbrigðisráðherra ekki
sæmandi,“ segir í tilkynningu
ASÍ og BSRB.
BSRB og ASÍ ítreka af þessu
tilefni áður fram komið álit sam-
takanna í þá átt að með breyttri
reglugerð um þátttöku ríkisins í
lyfjakostnaði hafi stærri hluti af
lyfjakostnaðinum verið fluttur
yfir á þjóðfélagshópa sem síst
skyldi; sjúklinga, öryrkja, aldraða
og barnafjölskyldur. Þá hafa
samtökin ítrekað bent á að nær
hefði verið að ná niður lyfja-
kostnaði með því að snúa sér að
rótum vandans, sem liggur fyrst
og fremst í dýru og úreltu inn-
flutnings- og dreifikerfi lyfja og
að ekki skuli vera neitt kostnað-
areftirlit með lyfjaávísunum
lækna,“ segir í fréttatilkynningu
stéttarfélaganna beggja. ój
Akureyri:
Vélfrysta
skautasvellið
opnað í
gærkvöld
í gærkvöld var vélfrysta skauta-
svellið í Innbænum á Akureyri
opnað. I vetur verður svellið
opið fyrir almenning helmingi
lengur dag hvern en undan-
farna vetur.
Að sögn talsmanns Skautafé-
lags Akureyrar þótti nauðsynlegt
að lengja þann tíma er svellið er
opið almenningi. Þá er fyrst og
fremst hugsað til yngri barna sem
ekki geta stundað skautaíþrótt-
ina á kvöldin. Aðgangseyri er í
hóf stillt. Gjald fyrir fullorðna er
170 krónur og fyrir börn yngri en
12 ára krónur 70. Einnig geta
fullorðnir sem börn keypt
aðgangskort á niðursettu verði er
gilda í skemmri sem lengri tíma.
Skautasvellið verður opið sem
hér greinir:
Sunnudaga kl. 13-16; 20-22.
Mánudaga kl. 13-16,30; 20-22.
Þriðjudaga kl. 13-17,30; 19-21.
Miðvikudaga kl. 13-15,30; 20-22.
Fimmtudaga kl. 13-16,30; 19-21.
Föstudaga kl. 13-16,30; 20-22.
Laugardaga kl. 13-16; 20-22. ój
Forstöðumaður heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri:
Hjúknmarfræðingamir hafa skilað sér á sjúkrahúsin
Sigríður Halldórsdóttir, for-
stöðumaður heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri, segir
það rangt sem haft var eftir
Bjarna Arthurssyni, fram-
Fimmtudaginn 14. nóvember
hefst í Kjallaranum undan-
keppni fyrir íslandsmeistara-
keppni í Karaoke.
Að keppninni standa
Sjallinn, Ölver í Glæsibæ, Viö
félagarnir í Vestmannaeyjum
og Bylgjan. Undankeppnin
verbur haldin öll
fimmtudagskvöld fram ab
óramótum og verður úrslita-
keppnin laugardaginn 4. jan-
úar 1992. Þar verða valdir
tveir söngvarar sem keppa
sem fulltrúar Norburlands
um íslandsraeistaratitilinn í
Ölveri í Glæsibæ föstudaginn
10. janúar.
Karaokemeistarinn og þeir
sem nœstir verda hljóta
vegleg verölaun sem kynnt
verða síðar.
Öllum er heimil þátttaka
(aldurstakmark 18 ár)
Upplýsingar um keppnina og
skráning er í síma 22770
eftir kl. 13.00 alla daga.
Bjami Dagur jónsson fjallar
um keppninaá Bylgjunni í
þcetti sínum milli kl. 09.00-
12.00 virka daga.
SJALLINN
kvæmdastjóra Kristnesspítala,
í vikunni að þeir hjúkrunar-
fræðingar sem útskrifuðust úr
skólanum hafi ekki skilað sér
sem skildi út í heilbrigðisstofn-
anirnar. Sigríður segir að af 11
hjúkrunarfræðingum séu 10 nú
í starfi á heilbrigðisstofnunum.
Sigríður segir að af þessum
hjúkrunarfræðingum starfi 4 á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri, 4 á sjúkrahúsum í Reykja-
vík, einn á Heilsugæslustöðinni á
Forstöðumaður heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri segir það
rangt sem haft var eftir Bjarna
Arthurssyni í Degi sl. fimmtudag að
hjúkrunarfræðingar útskrifaðir frá
skólanum hafi skilað sér illa út í
heilbrigðisstofnanirnar.
Akureyri og einn á sjúkrahúsinu
á Sauðárkróki. Þá sé einn hjúkr-
unarfræðingur ótalinn, en hann
er heimavinnandi húsmóðir sem
stendur.
Sigríður lagði áherslu á að ekki
einungis njóti sjúkrahúsin þess
að fá útskrifaða hjúkrunarfræð-
inga frá Háskólanum á Akureyri
í framtíðinni heldur sé það einnig
mikil breyting að fá nemendur úr
skólanum í starfsþjálfun á
sumrin. Þetta atriði skipti einnig
verulegu máli. JÓH
Húsavík:
Ekkert riðutilfelli fannst við slátrun
„Það var allt stálslegið, ég
sendi helling af sýnum suður
en hef ekki fengið neinar
athugasemdir um að ekki væri
allt í lagi með þau,“ sagði
Bárður Guðmundsson, dýra-
læknir á Húsavík, aðspurður
um heilsufar fjár í haust og
hvort nokkur ný riðutilfelli
hefðu fundist við sauðfjárslátr-
unina.
„Það er of snemmt að segja til
um hvort það er að nást fyrir
þetta. Það var allsherjar niður-
skurður hér fyrir fimm árum og
síðan hafa verið að tínast til
nokkur tilfelli á ári. í vor komu
upp tvö tilfelli, annað á Húsavík
en hitt að Lóni í Kelduhverfi. En
við vonum það besta. Það getur
tekið nokkur ár í viðbót að kom-
ast fyrir þetta, en það er allavega
komið niður á það plan að það er
viðráðanlegt, hvort sem okkur
tekst að útrýma veikinni eða
ekki,“ sagði Bárður, aðspurður
um vonir sínar varðandi útrým-
ingu riðunnar.
Um heilsufar fjársins að öðru
leyti sagði Bárður að það væri
mjög gott í haust. IM