Dagur - 09.11.1991, Page 8
8 - DAGUR - Laugardagur 9. nóvember 1991
Stjörnuspá
„Án ábyrgöar“,
21. mars - 19. apríl
Þaö verður allt á fullri ferö í dag og kvöld
hjá þér og æðislegt fjör. Á morgun lendir
þú svo í þrasi sem varir fram á þriðju-
dagskvöld, en miðvikudagur og fimmtu-
dagur verða góðir dagar. Ástamálin lenda
í flækju hjá þér núna fljótlega og leysast
ekki fyrr en í desember.
K^abbi
21. júní - 22. júli
Það verða óvæntir erfiðleikar í fjölskyld-
unni á morgun, mánudag og þriðjudag.
Þú kemst ekki almennilega aftur á strik
fyrr en um hádegi á föstudag. Á morgun
lýkur einnig ákveönu velsældartímabili í
samskiptum við þína nánustu, en við
tekur átakatími fram í desember.
7\)auf
20. apríl - 20. maí
Ákveðnum leyndarmálum er nú af þér létt,
svo að þú getur farið að anda léttar. Enn
eru þó plott í gangi á vinnustað og ennþá
er heilsan viðkvæm. Farðu varlega á
miövikudag og fimmtudag. Aðrir dagar
komandi viku verða þægilegir.
/"0
V V* 23. júlí - 22. ágúst
Dagurinn í dag og kvöldið í kvöld eru upp-
lögð fyrir hvers kyns mannfagnaði og þú
færð athygli og aðdáun hvar sem þú ferð.
Miðvikudagur og fimmtudagur verða erfið-
ir. Annars fara samskipti þín við annað
fólk ört batnandi þessa dagana. Enn eru
þó væringar á vinnustað, en heima fyrir
blómsrar ástin.
Tvíb urak1
21. maí - 20. júni
AAeyja
23. ágúst - 22. september
Sigfús E. Arnþórsson
vikuna 9. nóvember- 15. nóvember 1991
Vog
23. september - 22. október
Sfeiugeif
22. desember- 19.janúar
Það verður líf og fjör hjá þér í kvöld, en i
fyrramálið snýst allt á verri veg og þú verð-
ur í einhverju þrasi fram eftir vikunni. Á
þriðjudagskvöld lagast þetta og á miðviku-
dag og fimmtudag leikur lífið viö þig. Frá og
með nóttinni í nótt og fram í miðjan des-
ember má búast við óvæntum en jákvæð-
um breytingum í ástar- og vináttumálum.
Spo^ðcKeki
23. október-21. nóvember
Sunnudagur, mánudagur og þriðjudagur
eru góðir dagar hjá þér en farðu varlega á
miðvikudag og fimmtudaginn. Annars er
allt við sama heygarðshornið hjá þér. Þér
vegnar vel í vinnunni (skólanum), skapið
er gott og félagslífið er fjörugt. Listrænir
hæfileikar þínir njóta sín hvar sem þú
kemur. Ekki satt?
Dagurinn á morgun, sem og mánudagur
og þriðjudagur eru sérlega góðir dagar
fyrir steingeitur. í lífi steingeita eru breyt-
ingar yfirleitt snöggar. í ástamálunum hef-
ur allt leikið í lyndi undanfarnar vikur, en
frá og meö morgundeginum má búast við
snöggum sviptingum og óvæntum átök-
um við vini og ástvini. Þetta varir fram í
desember.
VattasBeH
20.janúar- 18. febrúar
Vatnsberar eru rómantískir hvað sem
hver segir. Undir vitsmunalegu og oft
kaldranalegu yfirborði vatnsberans í sinni
ævilöngu baráttu fyrir réttlæti slær róman-
tískt hjarta. Rómantíska hliðin mun koma
upp á yfirborðið á næstu vikum. Kvöldið í
kvöld verður skemmtilegt en miðvikudagur
og fimmtudagur bestu dagar vikunnar.
Bogmaður*
22. nóvember - 21. desember
Piskak*
19. febrúar-20. mars
Gættu sérlega vel að orðum þínum í dag
og kvöld. Ef þú þarft að tala, hafðu það þá
sem mest undir rós. Mundu að í fyrsta lagi
þarftu ekki að hafa skoðun á öllum hlutum
og í öðru lagi, að þótt þú hafir ákveðna
skoðun er til sá möguleiki að þegja um
hana. Ástin fer aö láta á sér kræla á næst-
unni. Miðvikudag og fimmtudag geturðu
talað að vild.
Það blása vindar úr öllum áttum um meyj-
una. Fyrr í þessari viku settir þú eitthvað í
gang sem mun halda fyrir þér vöku fram á
næsta ár. Eitthvert leynimakk eða sam-
særi, sem mun hindra þig í samskiptum
við annað fólk. Annars vegnar þér vel í
vinnunni (skólanum) og eftir erfiðan dag í
dag munt þú eiga sérlega góðan dag á
morgun sem og mánudag og þriðjudag.
Til klukkan átta í fyrramálið er tunglið í
bogmannsmerkinu, sem þýðir m.a. að
útstáelsi af öllu tagi í kvöld verður sérlega
vel heppnað. Þú verður í sviðsljósinu hvar
sem þú kemur. Ákveðin spenna hefur
verið ráðandi í samskiptum þínum við ást-
vini undanfarnar vikur. Því lýkur í nótt og
þú siglir inn í sælutíma á því sviði.
Það eru umhleypingar hjá fiskunum
þessa dagana. Það eru erfiðleikar í fjöl-
skyldunni í dag og í kvöld, en á morgun
leikur allt í lyndi. Þá verða mánudagur og
þriðjudagur einnig sérlega skemmtilegir
og þú færð hrós í vinnunni (skólanum). Þá
er þess að geta að í fyrramálið lýkur
ákveðnu erfiðleikatímabili í ástamálunum,
sem varað hefur síðan í byrjun október.
Lj óð
Viðejjar „viðreisnar“ skjalið
Viðeyjar „viðreisnar“ skjalið,
virðast hér fáir skilja.
Áður var ekki talið,
eitthvað þyrfti að dylja.
Heiður ber heiðursmönnum
halli þeir ekki máli.
Viðeyjarklúðrið könnum
þó kratar fyrir því skáli.
Davíð í dýrðarljóma
deilir völdum með Jóni.
Hver verður hverjum til sóma?
Hvor ætli hinum þjóni?
Frelsið er fjöregg okkar,
fer það til EB landa?
Eru hér frómir flokkar
frjálsir í lappir standa ?
Hvað sagði Oddur Einar
öllum sem landinu stjórna?
Úrbætur ekki neinar
alþýðan skal nú fórna.
Loforðin verða að liggja
læst í geymslu inni,
á þeim má ekkert byggja
ykkur það hér með kynni.
Bjargvættur Oddur Einar
íhaldsstefnuna kynnir.
ViII fara brautirnar beinar
á boðorð fjármagnsins minnir.
Kaupmáttinn vill hann „verja“
vextina til þess hækka,
gegn öðrum hækkunum herja
helst þurfi kaupið að lækka.
Hörmungar húsnæðismála
hrunadansi er líkur.
Á nú öllum að kála
öðrum en þeim sem er ríkur?
Húsbréf og háir vextir
heimilum valdsmenn fórna.
Eru að manngildi mestir
menn sem að okrinu stjórna?
Kratarnir úti að aka,
ójöfnuð sýna í verki.
Áf fátækum fjármuni taka
frjálshyggju bera þeir merki.
Leggja á skuldir skatta
skilyrði frá þeim ríku.
Seint ætlar fjöldinn að fatta
fantaskap ráðandi klíku.
Okrið er alls ráðandi
óskilamaðurinn sekur.
Fjöldi flytur úr landi
fésýslan eigur þess tekur.
Ríkir ríkari verða,
reyta fjöldann að skinni,
tillitslaust tökin herða
traðka á hinum minni.
Fjármagnið deilir og drottnar
Davíð og Jónar stjórna.
Velferð ríkisins rotnar
réttlætinu þeir fórna.
Veislu- og valdaþyrstir
vinna því fyrir þá ríku.
Álbræðslum fagna fyrstir
fyrirmynd ráðandi klíku.
Viðeyjar „viðreisnar“ skjalið
varð til um miðja góu.
Annað var áður talið,
íhald að kommunum hlógu.
Fjármagnið frelsinu heldur,
fjöldinn í skuidadíki.
Gjaldþrotum valdhafinn veldur,
velferðin maðksmogið ríki.
Dofnar nú dýrðarljómi
Davíðs með viku hverri.
Porsteinn er þeirra sómi
þess vegna talinn verri.
Eimreiðar klfkan kunni
klæki og formann valdi.
Einræði í margra munni
meinhornið skárstan taldi.
Ráðherra virðist ríkur
á ráðstefnum og á fundum.
Fjármagn ríkisins fýkur
farangur týnist stundum.
Konur kunna að plokka
karl sem reynist hálfur.
Trúðar í forustu flokka
fljúga um lönd og álfur.
Framsókn er með og á móti
málum sem deilum valda.
Það er nú leikurinn ljóti
loforðin sjaldan halda.
Hugsjónir eru horfnar
Hermannsson þótt gapi.
Sveitirnar eru orðnar
Alþýðuflokknum að skapi.
Ráðlausir rugludallar
ráðhús og perlu byggðu.
Augljósir innri gallar
ágóða mikinn tryggðu.
Abyrgðarmaður enginn
íhaldið þekkir sína.
Davíð frá garði er genginn
og gengur í pyngjuna þína.
*☆*
Misréttið er að margfaldast,
margir í sárustu neyð.
Okrarar ganga að fólki fast
fjárnáms- og gjaldþrotaleið.
Kratar lögðu á skuldirnar skatt,
á skólanám, hjúkrunarvist.
Á Viðeyjarskjalinu fara þeir flatt,
frelsi til jöfnunar misst.
Sighvatur karlinn segir margt
að sjálfsögðu meira en nóg.
Umhverfi hans var aldrei bjart,
öreigum legstað bjó.
Peir sem að sjálfir geta greitt
gjald fyrir sjúkrahúsvist
meðul og læknishjálp verður veitt
og vistaðir manna fyrst.
*■&*
Pjóðin valdi sér vanhæfa stjórn
en vildu þó flestir annað.
Strjálbýlið Iátið færa enn fórn
og fátækir, það hef ég sannað.
Borgaraflokkinn brást að vista
þeir báðu um styrk, ekki ráð.
Hvað er að frétta af kvennalista?
Kommarnir, hafa þeir áttum náð?
Peir sem misnota veraldlegt vald,
vonandi dregnir til saka.
Verða látnir greiða það gjald
glæstri stöðu og valdi tapa.
Stjórnmálaflokkanna bresta þá bönd,
bjóðum fram undir jafnréttis merki.
Tökum af einurð hönd í hönd
hugsjónir okkar sýnum í verki.
Stefán Valgeirsson.