Dagur - 09.11.1991, Síða 22
22 - DAGUR - Laugardagur 9. nóvember 1991
BUNAÐARBANKINN
- Traustur banki
Gísli Sigurgeirsson, fréttamaður.
Nýr dagskrárliður í svæðisútvarpi:
Summdagsblanda
Gísla Sigurgeirssonar
Nýr þáttur um norðlensk málefni
hefur göngu sína í Útvarpi
Norðurlands 10. nóvember. Þátt-
urinn verður á dagskrá í vetur á
sunnudögum. Hann hefst klukk-
an 11 árdegis og stendur fram að
fréttum. Umsjónarmaður Sunnu-
dagsblöndu er Gísli Sigurgeirs-
son fréttamaður.
„Reynt verður að hafa blönd-
una hæfilega sterka; gestir koma
í hljóðstofu, pistlahöfundar
leggja orð í belg, málefni líðandi
stundar verða reifuð og tónlist
leikin á milli atriða. Þátturinn
verður því sýnishorn af því sem
er að gerast í mannlífi norðan-
lands,“ segir í frétt frá Ríkisút-
varpinu.
Glerárskóli:
Aðalfundur
Foreldra-
félagsins
Aðalfundur Foreldrafélags Gler-
árskóla verður haldinn í skólan-
um þriðjudagskvöldið 12.
nóvember næstkomandi kl. 20.
Til umræðu á fundinum verða
mörg mál er varða dvöl barnanna
í skólanum, en þar má nefna
mikinn skort á aðstöðu til að
borða nesti, félagsaðstöðu
nemenda, umferðarmál og fleira.
Að loknum venjulegum aðal-
fundarstörfum mun Auður Sig-
urðardóttir skólahjúkrunar-
fræðingur flytja erindi um matar-
venjur barna og unglinga, svefn-
þörf, útivistartíma og fleira.
Ný tegund af hvítlauks-
hylkjum á markaðínn
Nýlega var kynnt á markaði holl-
ustuafurða í Bandríkjunum, ný
tegund af hvítlaukshylkjum sem
nefnist Garlic Time og strax hef-
ur náð mikilli útbreiðslu þai
vestra. Það sem gerir þessa hvít-
lauksafurð frábrugðna öðrum
gerðum er hið mikla magn af
hreinu dufti, sem jafngildir 1800
mg af heilu hvítlaukslaufi. Ein
tafla jafngildir 6 kwai skömmtum
sem ráðlagur er daglegur
skammtur.
Hinn kröftugi dagskammtur af
Garlic Time gefur hina náttúr-
legu uppistöðu og tryggir öruggt
og áhrifaríkt magn af allisín-rík-
um hvítlauk. Þessi einstæða
uppskrift, sem gerir ráð fyrir viss-
um upplausnartíma, felur ekki í
sér neina sykurskurn eða iðra-
húðun.
í afurðinni er enginn sykur,
sódi, sterkja, ger, rotvarnarefni,
gerfilitir eða bragðefni. Vísinda-
legar rannsóknir staðfesta að
illisín kemur í veg fyrir bakteríu-
myndun og hefur engin eitur-
áhrif. (Úr fréttatilkynningu).
Nómsmenn hafa alla tíS verið vakandi yfir hags-
munum sínum og réttindum. Stöðugt hafa þeir bent
á leiSir til aS bæta skólakerfiS og skilyrSi til náms.
Námsmannalína Búnaðarbankans kemur til móts við
þörf námsmanna fyrir fjárhagslegt öryggi. Allir
nemendur 18 ára og eldri eiga kost á að skrá sig
í Námsmannalínuna.
Námsmannalína Búna&arbankans:
• Framfærslulán til fyrsta árs nema fram að
fyrstu lánveitingu frá LIN
• Yfirdráttarheimild
• Námsstyrkir til námsmanna í framhaldsnámi
• 750 þúsund króna námslokalán
til húsnæðiskaupa
• Gullreikningur • Greiöslukort
• Fjármálaráögjöf • Gjaldeyrisþjónusta
• Lán vegna búslóðaflutninga
• Millifærslukerfi vegna endurgreiðslu námslána
• Viðskiptayfirlit • Vegleg skipulagsbók
Kynntu þér málið nánar!
NAMS
>
LÍNAN A
DAGIIR
AkurejTi
0 96-24222
Norðlcnskt dagblað
Akureyri:
Dömukvöld Þórs
um aðra helgi
Dömukvöld Þórs verður haldið í
Hamri laugardaginn 16. nóvem-
ber nk. Tekið verður á móti gest-
um með hænustéli kl. 19.00 en
samkoman hefst kl. 20.00.
Auk þess sem boðið verður
upp á gómsætan mat, verða
skemmtiatriði, tískusýning og
happdrætti á meðal dagskrárliða.
Miðaverð er kr. 2000,- en miða-
sala fer fram í Hamri alla næstu
viku frá kl. 16.00 og er hafið nýtt
kortatímabil.
Allar dömur á aldrinum 18 til
100 ára eru velkomnar.
Akureyri:
Kynningá
umhverfisvænum
heimilisvörum
í dag, laugardaginn 9. nóvember,
verður kynning á Golden-vörum,
sem eru umhverfisvænar allhliða
heimilisvörur, eins og hreingern-
ingarlögur, húðvörur og bætiefni.
Um tvö ár eru síðan þessar vörur
komu á markað hér á landi.
Kynningin fer fram á Hótel
Norðurlandi og hefst kl. 15.00.
Boðið verður upp á kaffi og þá
verður happdrætti í gangi. Öllum
heimill aðgangur.