Dagur - 19.12.1991, Page 13
Fimmtudagur 19. desember 1991 - DAGUR - B 13
Svala Hermannsdóttir:
Bamapíur í London
með möndlugraut og kerti
„Ég held að ég geti ekki svarað spurningunni um bestu
jólagjöfina, man ekki eftir neinni sérstakri sem sker sig
markvert úr, þó ég hafi fengið margar góðar gjafir um
dagana, “ sagði Svala Hermannsdóttir, hárgreiðslumeist-
ari, en hún skoraðist ekki undan því að segja frá eftir-
minnilegum jólum.
„ Já, ég man þeim mun betur eft-
ir fyrstu jólunum er ég var að
heiman. Það var árið 1964. Ég var í
vist hjá Þórunni og Vladimir
Ashkenazy í London. - Ég hafði
einnig útvegað vinkonu minni,
henni Helgu, vist hjá enskum
hjónum sem voru gyðingar og
mjög fastheldin á sína trúarsiði.
Foreldrar Þórunnar, Klara og
Jóhann Tryggvason, bjuggu einnig
í London og var Ashkenazy fjöl-
skyldunni boðið þangað á aðfanga-
dagskvöld ásamt systkinum Þór-
unnar, Nönnu heitinni Jakobsdótt-
ur fiðluleikara, mér og Helgu vin-
konu. - En viti menn, Helga fær
ekki frí þetta kvöld, hún þarf að
vera barnapía. Hennar fjölskylda
hélt ekki jólin hátíðleg. Það situr
enn fast í mér hvað mér fannst
þetta ómannleg framkoma gagn-
vart henni, sérstaklega af fólki
sem var svo formfast á sína helgi-
siði að aldrei mátti út af bera.
Aðfangadagskvöld rann samt
sem áður upp og ég ákvað að fara
til Helgu og vera þar um kvöldið.
Þangað kom ég með mína pakka
og kerti.
Við kveiktum á eins mörgum
kertum og við náðum til, en hissa
varð ég þegar Helga kom með
möndlugraut sem hún hafði útbú-
ið: „Svona til að hafa eitthvað eins
og heima," eins og hún sagði.
(Ekki höfðum við hangikjöt eða
laufabrauð.)
Þetta var í raun mjög notalegt
aðfangadagskvöld en einmana-
legt, ég saknaði fjölskyldunnar
heima. Við reyndum einu sinni um
kvöldið að syngja „Heims um ból"
en það var nú svona og svona með
þann söng. Röddin ekki alveg
styrk og aðeins votur augna-
hvarmur.
Ég sofnaði sátt þetta kvöld og
þakklát fyrir þann hátíðarblæ sem
okkur tókst þó að skapa.
Ég vona að allir finni sinn helgi-
frið þessi jól, hvort sem að þeir fá
rjúpu á diskinn sinn eða ekki.
Munum að það erum við sjálf,
okkar fjölskyldur og samferðafólk
sem skiptir máli, en ekki matur og
dauðir hlutir. Gleðileg jól! “ IM
Valgerður (jimnarsdóttir:
Fyrsta jólagjöfln frá kærastanum
„Mér er mjög eftirminnileg fyrsta jólagjöfin frá kærastan-
um mínum, sem núna er maðurinn minn, þetta var um
jólin 1976," sagði Valgerður Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi,
aðspurð um eftirminnilega jólagjöf.
„Eg var ákaflega spennt að sjá
hvað tilvonandi eiginmaður mundi
gefa mér í jólagjöf. Þegar ég opn-
aði pakkann á aðfangadagskvöld
var mig farið að gruna hvert inni-
haldið væri, vegna lagsins á
honum. Og þegar ég opnaði pakk-
ann var þetta hringur. Það er nátt-
úrlega draumur hverrar konu að
kærastinn gefi henni fallegan
hring, og þetta var mjög fallegur
hringur. Ég var mjög ánægð með
hringinn og þakkaði honum vel
fyrir. Nema hvað, að síðan kom í
ljós að móðir mín hafði valið hring-
inn fyrir kærastann, og það fannst
mér ekki nógu gott. Ég gerði auð-
vitað ekkert í þessu, en var svolítið
óhress með það að hann skyldi
ekki hafa farið sjálfur til að velja
hringinn.
Ég á þennan hring enn í dag,
ber hann oft og þykir vænt um
hann. í dag er hann mér tákn fyrir
tvær manneskur sem mér þykir
vænt um. Manninn sem gaf mér
hringinn, og móður mína sem
valdi hann. Hringurinn sýnir að
maðurinn minn hefur strax borið
mikið traust til móður minnar. En
síðan þetta var hefur hann alltaf
valið jólagjafirnar handa mér sjálf-
ur, og ég hef verið ánægð með
þær. “ IM
Gleðileg jól
Þökkum viðskiptin
á árinu sem er að líða
Óskum viðskiptavinum okkar
glébilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin.
Búimlmmmf.
Réttarhvammi 1 • Akureyri
Sími26776
GleSileg jól
og farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu
Kæliverk hf.
| Frostagötu 3b • Akureyri • Sími 96-24036
fjær
Oskum öllum Hríseyingum nær
glebilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Þökkum liðið ár.
Hreppsnefnd Hríseyjarhrepps