Dagur - 19.12.1991, Blaðsíða 33

Dagur - 19.12.1991, Blaðsíða 33
Fimmtudagur 19. desember 1991 - DAGUR - B 33 Þekkirðu húsið? Ef svo er skaltu skila inn svarí í blómaskálann Vín fyrír Þoríáksmessu. Myndir: Golli Piparkökuhúsasmiðir í Evj aíj arðarsveit: Fóru tfl Alviireynu’ tfl að sæltja sér iyrimiynd „Við vorum orðin uppiskroppa með hugmyndir að húsi þannig að við keyrðum til Akureyrar og leituðum að húsi sem væri möguleiki að búa til,“ segir Benedikt Grétars- son, matreiðslumaður á Sléttu í Eyjafjarðarsveit, en hann og Ragnheiður Hreiðarsdóttir, kona hans, eru höfundar að miklu og fínu piparkökuhúsi sem við rákumst á í Blómaskálanum Vín á dögunum. Þau hjón hafa síðustu árin gert kökuhús á jólaföstunni fyrir skálann en þar sem nú í ár var bakað hús eftir fyrirmynd þótti ástæða til að efna til getraunar um hvaða hús sé um að ræða. Þessi getraun á að standa í skálanum fram á Þorláksmessu. En okkur lá forvitni á að fræðast nánar um þá íþrótt að baka piparkökuhús. Benedikt segir að þegar þau hjón byrjuðu að búa fyrir 10 árum hafi þau bakað nokkur piparköku- hús sem gefin voru ættingjunum í jólagjöf. Fyrsta barn þeirra fæddist síðan á þrettándanum og upp frá því varð venja að búa til pipar- kökuhús fyrir heimilið, fylla það af sælgæti og leyfa börnunum að örjóta það í afmælisveislu dóttur- innar. „Þegar við fluttumst hingað norður úr Reykjavík þá fórum við að gera kökuhús fyrir blómaskál- ann líka. Það má segja að okkur þyki jólin byrja þegar við gerum piparkökuhúsið fyrir skálann um mánaðarmótin nóvember og des- ember en síðan bíðum við með húsið fyrir heimilið þangað til síð- ustu dagana fyrir jól. “ Benedikt segir að þrjú kvöld hafi farið í húsið sem við sjáum hér á myndinni en það er sérstaklega styrkt því húsið er límt saman með trélími. Annars er alltaf notaður bræddur sykur við að líma húsin saman. í húsið fóru þrjú kíló af deigi og sælgætið er ómissandi við skreytinguna. „Það fer mikill tími í að gera svona stórt hús og fólk verður að hafa þolinmæði til að baka pipar- kökuhús. En ef fólk gerir lítil hús þá tekur það mun styttri tíma. Ég veit ekki um neinn sem stendur í þessu og sumum finnst það hálf- gert brjálæði að eyða tímanum í þetta. En það er þess virði. Húsið stendur öll jólin á heimilinu og það er því skemmtilegra þar sem svona fáir gera þetta. Og börnin hafa líka gaman af þessu,“ sagði Benedikt. JÓH Benedikt Grétarsson með húsið sitt. w. . r Oskum öllum viðskiptavinum okkar glébilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu. ISPAN HF. Furuvöllum 15 ■ Símar 22333 & 22688 Gléðilegjól, farsælt komandi ár Mjólkursamlag K.Þ. Húsavík • Sími 96-41444 + l Gleðileg jól og farsælt komandi ár íf 11 il Kjœbavershm ,,, Siguröar GubnniruLmiarhf. , H/ HAFNARSTRÆTI96 SIMI96-24423 AKUREYRI Sendum öllum viðskiptavinum okkar óskir um glébileg jól og farsæld á komandi ári. cPeáíomyndir' Hafnarstræti 98 og Hofsbót 4

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.