Dagur - 19.12.1991, Blaðsíða 25

Dagur - 19.12.1991, Blaðsíða 25
Fimmtudagur 19. desember 1991 - DAGUR - B 25 Ég held mest upp á heföbundnu ljódin - segir Sigurður Guðmundsson, yígslubiskup, sem á vel á þriðja þúsund ljóðbækur Ljóðabókasafn Sigurðar Guðmundssonar, vígslubiskups, er með ólíkindum. í því eru á þriðja þúsund ljóðabækur og margar þeirra eru ómetanlegar. En Sigurður á ekki aðeins ljóðabækur. Það er nánast sama hvert litið er í íbúð Sigurðar og Aðalbjargar Halldórsdóttur, konu hans, í Akurgerði á Akureyri; allsstaðar eru bækur. Og það fer ekkert á milli mála að vel er hugsað um þessi djásn. Bækurnar eru í góðu bandi og þeim er skipað í hillur eftir kúnstarinnar reglum. Sigrður Guðmundsson: „Þegar viðíórum frá Grenjaðarstað fylltu bækurnar um 400kassa. Égkom helmingiþeirra fyrir hérna í íbúðinni, sem við höfðum þá fest kaup á, en hinn helminginn fluttum við með okkur heim að Hólum. “ Mynd: Golli „Eg varð læs nokkuð snemma og lá alltaf í bókum," sagði Sigurð- ur þegar hann var fyrst spurður um ástæðu þess að hann byrjaði að safna bókum. „Eins og gengur og gerist fékk ég bækur í jólagjöf og því eignaðist ég snemma tölu- vert af bókum. En það var eigin- lega ekki fyrr en á háskólaárunum, sem ég byrjaði af alvöru að safna þeim. Þá komst ég í kynni við forn- bókasala og ég man t.d. eftir því að ég keypti „Hvíta hrafna“ Þór- bergs Þórðarsonar hjá einum þeirra fyrir 1.50 krónur. Þetta þótti dálítið mikill peningur, því að timakaupið var þá á bilinu 1.50 til 2 krónur," bætti hann við. Saftiað ljóðabókum í þrjátíu ár Að námi loknu fluttist hann norður í Aðaldal, nánar tiltekið að Grenj- aðarstað, og þá hófst söfnunar- áráttan fyrir alvöru. Sigurður tók fram að þeir feðgar Þórarinn Stef- ánsson, bóksali á Húsavík og Ingv- ar sonur hans hafi reynst honum sérstaklega vel við að útvega margar sjaldgæfar bækur og í gegnum árin hafi hann ekki átt jafn mikil viðskipti við nokkra aðra bókaverslun. I fyrstu sagðist Sigurður hafa verið alæta á bækur en fyrir um þrjátíu árum hafi hann ákveðið að leggja áherslu á söfnun ljóðabóka. „Ég hafði alltaf haft gaman af ljóð- um og sem krakki og unglingur lærði ég mikið af þeim. Ég var hrifnastur af ljóðum Jónasar Hall- grímssonar og jafnóðum og bækur Davíðs Stefánssonar komu út fékk ég þær, las spjaldanna á milli og lærði mörg kvæði hans. Steingrím Thorsteinsson las ég einnig mikið í æsku og sömuleiðis Tómas Guð- mundsson. Ég varð fyrst hrifinn af Tómasi í 1. bekk M.A. 'ór Þórarinn Björnsson, síðar skólameistari, las úr bókinni Fagra veröld, sem þá var nýútkomin. Hann las af mikilli tilfinningu eins og honum var lag- ið og hreif okkur vissulega." Tek mér oft ljóðabók í hönd í dag eru vel á þriðja þúsund ljóða- bækur í safni Sigurðar, sem líklega er eitt stærsta ljóðabókasafn í einkaeigu á íslandi. „Ég hef oft verið spurður um hvort ég hafi les- ið allar þessar bækur. Það hef ég ekki gert gaumgæfilega, en ég held að engin bók sé í safninu sem ég hef ekki lesið eitthvað í. Sumar bókannna hef ég oft lesið og það líða ekki margir dagar án þess að ég taki mér ljóðabók í hönd og lesi. Ég held mest upp á hefðbundnu ljóðin, þó að mér finnist einnig margt af órímuðum kveðskap ágætt. En það er nú samt svo að ég kemst aldrei í rétta stemmn- ingu við lestur órímaðra ljóða," sagði Sigurður. Fengið margar bækur í fombókaverslunum Stóran hluta af ljóðabókasafninu hefur Sigurður keypt í fornbóka- verslunum í Reykjavík. Nokkrir fornbókasalar vita af safni Sigurð- ar og þeim bókum sem hann vant- ar inn í það. Sem dæmi nefndi Sigurður að hann hafi átt viðskipti við Egil Bjarnason í Fornbóka- verslun Kristjáns Kristjánssonar í meira en 50 ár. „Þegar ég var staddur í Reykjavík í lok október sl. leit ég við hjá Agli og hann dró þá upp bók, sem hann sagðist hafa geymt sérstaklega fyrir mig, bók sem ekki væri einu sinni til á Landsbókasafninu. Þetta eru ljóð- mæli eftir Jónas Stefánsson frá Kaldbak í Suður-Þingeyjarsýslu. Jónas flutti ungur til Ameríku og þessi bók var gefin út þar vestra. Hann gaf út tvær bækur og þá seinni hafði ég áður eignast. Ég hugsaði með mér að þessi bók yrði dýr, en þá sagði Egill: „Ég gaf þér ekkert þegar þú varðst sjötugur, þannig að við lítum á bókina sem afmælisgjöf. “ Sigurður gat ekki orða bundist um bókaverslanir á Akureyri og sagði þær ekki leggja metnað í að hafa gott úrval ljóðabóka á boð- stólum. Allt annað hafi verið uppi á teningnum í bókaverslunum á Húsavík, þegar hann bjó á Grenj- aðarstað, og á Sauðárkróki, þegar hann gegndi vígslubiskupsemb- ættinu á Hólum í Hjaltadal. Leitað að frunnítgáiiini Það er óhætt að segja að kenni margra grasa í ljóðasafni Sigurðar og þar er margar ómetanlegar bækur að finna. En vissulega vant- ar þar nokkrar bækur, sem hann segist hafa lengi glímt við að eign- ast, en séu með öllu ófáanlegar. Hann nefnir í því sambandi frum- útgáfur af bókum Steins Steinars „Spor í sandi" og „Tíminn og vatnið". Sömuleiðis bækur Þór- bergs „Spaks manns spjarir" og „Hálfa skósóla". „Fyrir tveim árum vantaði mig „Næturljóð", fyrstu bók Vilhjálms frá Skálholti. Hún var til fyrir sunnan, en mér þótti hún of dýr. Ég hikaði því. Góður kunningi minn, Guðbrand- ur Magnússon, fyrrum kennari á Siglufirði, frétti af þessu og sendi mér bókina í fallegu og góðu bandi. Svona lagað er vinarbragð og rausnarlegt,'1 sagði Sigurður og lagði áherslu á orð sín. Margar ómetan- legar bækur í safni Sigurðar er fjöldinn allur af ljóðabókum frá síðustu öld. Meðal annars er þar að finna fyrstu bók- ina sem prentuð var á Akureyri; „Sálmar og bænakver" frá árinu 1853. „Ég fékk „Grýlu" eftir Jón Mýrdal í haust, en hún er frá 1873. Svo held ég að ég eigi allar útgáfur eftir Grím Thomsen og fleiri af 19. aldar skáldunum, t.d. Benedikt Gröndal. Þá þykir mér mikið varið í að eiga ljóðabækur og þýðingar sr. Jóns Þorlákssonar frá Bægis og ekki má gleyma Gullregni, úrvals- ljóðum góðskálda, en það eru 21 bók sem Prentsmiðjan Hólar gaf út 1955 til 1972 og gaf starfsmönnum og fleirum. Þær komu aldrei í bóka- verslanir og því var töluverð fyrir- höfn að ná þeim öllum," sagði Sigurður og bætti við að elsta ljóðabókin í safninu væri Grallar- inn (Graduale), 15. útgáfa prentuð á Hólum 1749. Þá gat Sigurður þess einnig að hann ætti um 20 Passíusálmaútgáfur og auk þess flestar Sálmabókarútgáfur allt frá 1801 er „Leirgerður" kom út. Að vísu vantar 2. og 3. útgáfu hennar og nokkrar seinni prentanir Sálma- bókar frá árinu 1886. Mikill fjöldi ljóðabóka kemur út á ári hverju, en Sigurður sagðist ekki bera sig eftir þeim öllum. Hann kaupi þá höfunda sem hann hafi mætur á og láti það gott heita. Las ljóð áður en lík- ræður voru sanidar Eins og að framan greinir eru Ijóð- mæli eyfirsku skáldanna Jónasar Hallgrímssonar og Davíðs Stefáns- sonar í miklu uppáhaldi hjá ljóða- bókasafnaranum og ekki vill hann gleyma Matthíasi Jochumssyni. Skyldu vera einhver önnur skáld sem honum þykir mikið til koma? „Já, ég var strax mjög hrifinn af skáldskap Snorra Hjartarsonar og Stephan G. Stephansson var ég lengi að „melta“, en því meira sem ég les eftir hann því betur kann ég að meta hann. Það sama gildir um skáldskap Einars Benediktsson- ar,“ svaraði Sigurður. En hvað segir hann um kveðskap núlifandi ljóðskálda? „Ég veit ekkihvað skal segja," sagði hann hugsi. „Það er vissulega margt gott í kveðskap Matthíasar Johannessen og sama er að segja um Hannes Pétursson og Þórarin Eldjárn." Sigurður segist oft lesa yfir ljóð undir svefninn og hann eigi það til að setjast niður á daginn með ljóðabók og gleyma stund og stað. „Þegar ég var þjónandi prestur kom oft fyrir að ég las ljóð áður en ég hóf að skrifa líkræður. Þetta gerði ég til þess að komast í rétta stemmningu og þá gekk betur að semja ræðuna. Einnig vitnaði ég oft í ljóð í ræðum." Á yfir þúsirnd tækifærisvísur En skyldi Sigurður einnig safna tækifærisvísum? „Já, reyndar geri ég það,“ svaraði hann. „Þar hef ég bundið mig við presta. Líklega á ég yfir eitt þúsund tækifærisvísur um og eftir presta. Þeim hef ég safnað síðan ég var í háskóla og fjöldi þeirra hefur orðið til á prestastefnum og -fundum. Ég á til dæmis mikinn fjölda af vísum eftir sr. Helga heitinn Sveinsson, sem byrjaði prestskap sinn að Hálsi í Fnjóskadal og þjónaði síð- ast í Hveragerði, og einnig á ég mikið eftir sr. Hjálmar Jónsson á Sauðárkróki. Ég hef ekki komið því í verk að hreinskrifa þessar vísur, en þyrfti að fara að gera það." Sigurður og Aðalbjörg fluttu til Akureyrar á liðnu sumri frá Hólum í Hjaltadal. Lengst af bjuggu þau þó, eins og áður hefur komið fram, að Grenjaðarstað í Aðaldal. „Þeg- ar við fórum frá Grenjaðarstað fylltu bækurnar um 400 kassa. Ég kom helmingi þeirra fyrir hérna í íbúðinni, sem við höfðum þá fest kaup á, en hinn helminginn flutt- um við með okkur heim að Hólum. Ég átti geysilega mikið af tímarit- um, en mörg þeirra hef ég látið frá mér. Ég hafði einfaldlega ekki lengur pláss fyrir þau öll,“ sagði Sigurður. Safiiar cinnig myndum af kirkjum Sigurður safnar ekki aðeins ljóða- bókum. Hann á gott safn mynda af kirkjum á íslandi og einnig á hann töluvert af frímerkjum. „Kirkju- myndunum hef ég raðað eftir pró- fastsdæmum. Ég á orðið myndir af nánast öllum kirkjum á Austur- landi, sem kemur til af því að sumrin 1987 og 1988 var ég settur biskup íslands og vísiteraði Aust- urland. Ég kom því í hverja ein- ustu kirkju fyrir austan og notaði tækifærið og tók myndir af þeim. Á Norðurlandi á ég myndir af flest- um kirkjum, en vantar t.d. mynd af Ábæjarkirkju í Skagafirði. Eins á ég myndir af mörgum kirkjum í Borgarfirði, en vantar myndir af kirkjum á Suðurlandi," sagði Sigurður. Þá er ógetið um mikið safn leik- skráa og tónleika- og söngskráa. „Ég hef safnað leikskrám víða að af landinu og er það orðið mikið safn, einnig söng- og tónleikaskrár. Sumar eru frá fyrstu tugum þess- arar aldar. “ Sigurður gat þess að hann hafi skráð ljóðabókasafnið, safn leik- rita sem hann á, auk leikrita- og tónleikaskráasafnsins á tölvu. Lkki bara bækur - gott safii málverka Það er auðvelt að gleyma sér á fal- legu heimih þeirra Sigurðar og Aðalbjargar á Akureyri. Auk fjöl- margra bóka prýðir gott safn mál- verka veggi íbúðarinnar. Úr stofu- sófanum má m.a. líta myndir eftir Vigdísi Kristjánsdóttur, Hring Jóhannesson og Kristínu Jóns- dóttur. Yfir borðstofuskenknum hangir stór vatnslitamynd af Grenjaðarstað eftir Sigurð Hall- marsson. En hratt flýgur stund og gestir knýja dyra. Að lokum var Sigurður beðinn um að lauma einni visu að blaða- manni. Hann var fljótur til og valdi eftirfarandi vísu eftir sr. Hjálmar Jónsson, sóknarprest Sauðkræk- inga og prófast Skagfirðinga, sem varð til á prófastafundi árið 1985 er Hagstofustjóri var að ræða um skil presta á skýrslum og þótti sumir prestar vera nokkuð seinlát- ir. Ef þau herða skýrsluskil skelfing verður nokkur. Hér eftir sem hingað til hjálpi Drottinn okkur. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.