Dagur - 19.12.1991, Blaðsíða 35

Dagur - 19.12.1991, Blaðsíða 35
Fimmtudagur 19. desember 1991 - DAGUR - B 35 L Ólaíur Ásgeirsson, aðstoðaryfrrlögregluþjónn á Aknreyri: Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Sex manns verða á vakt hjá lögreglunni um jól og áramót. Hvet fólk til að halda áfenginu frá jólunum Á lögreglustöðinni á Akureyri vinna 30 manns, þ.e. lögregluþjón- ar og yfirmenn þeirra, rannsóknar- lögreglumenn og fangaverðir. Hjá lögreglunni er unnið á 12 tíma vöktum og eru 6 menn á vakt hverju sinni. Vaktirnar standa frá kl. 6 að morgni og til kl. 18 og frá kl. 18 til kl. 6. Ólafur Ásgeirsson segir að um jól og áramót sé sami fjöldi á vakt og aðra daga. Eftir hádegi á aðfangadag er það venja að lögreglumenn keyri um bæinn og afhendi þeim börnum sem unn- ið hafa til verðlauna í umferðar- getrauninni viðurkenningar sínar og má segja að það sé hluti af jóla- stemmningunni. Menn fá að skjótast heim í mat á aðfangadagskvöld „Við höfum leyft það á aðfanga- dagskvöld að lögreglumenn á vakt fái að vera heima hjá sér í ein- hvern tíma, því allir vilja jú vera heima hjá sinni fjölskyldu á þess- um degi. Þá skiptast menn á að vera heima á vaktinni í 2-3 klst. í senn en eru i búningi og á lögreglu- bílum og eru tilbúnir að fara í út- kall ef þörf krefur. Það er gömul hefð fyrir þessu og hefur verið þannig allan þann tíma sem ég hef starfað í lögreglunni. Ég byrjaði í lögreglunni árið 1964 og gekk vaktir í 16 ár. Engu að síður þarf vaktin að vera full mönnuð því það er ekki gott að kalla til aukamenn á þessum dögum. Það má því segja að hér hjá okkur eins og reyndar fleirum, séu allir dagar jafnir," segir Ólafur. - En er mikið að gera hjá lög- reglunni þessa hátíðisdaga? „Nei sem betur fer er lítið um útköll en þó kemur það fyrir. Við höfum lent í brunaútköllum og ég man tvisvar eftir því er ég gekk vaktir, að við vorum kallaðir í heimahús á aðfangadagskvöld og í bæði skiptin vegna ölvunar. Það gekk töluvert á í bæði skiptin og þurftum við taka einn aðila í hvort skipti og setja í varðhald og það var frekar ömurleg uppákoma á þessum degi." Afskipti lögreglu vegna áfengisneyslu hafa minnkað í seinni tíð - Þú kemur þarna inn á áfengis- neyslu, heldur þú að fólk geri mik- ið af því að hafa áfengi um hönd um hátíðisdagana? „Ég held að þetta hafi breyst nokkuð með tilkomu bjórsins. Mitt mat er að það séu fleiri „í því" en í útköll utn liátíðisdatíana minna mæli í hvert sinn. Tilkoma bjórsins hefur gert það að verkum að fólk notar minna af sterkum drykkjum í staðinn. Mér finnst að afskipti lögreglunnar hafi minnkað nú seinni árin ef eitthvað er. Sterka vínið fer verr í menn heldur en t.d. bjórinn og létta vínið." - Er ekki mjög rólegt yfir bæn- um á jólunum? „Jú það er mjög dauft yfir bæn- um á aðfangadagskvöld. Hins veg- ar er töluvert leitað til okkar og við erum að hjálpa fólki á milli húsa. Það er mikið um það að fólk sé á ferðinni um jólin, að heimsækja vini og ættingja. Ef veður er slæmt, þá höfum við í nógu að snúast við að aðstoða fólk á faraldsfæti. Hér áður fyrr var oft liflegt í bænum á annan í jólum og þá fóru bæjarbú- ar út að skemmta sér en það hefur minnkað nú seinni árin. Það þarf alla vega að vera frídagur daginn eftir annan en það var ekki nauð- synlegt hér á árum áður.“ Fangaklefaniir íhllir allan ársins hring það er kannski ekki endilega fyrir það að það sé svo mikið að gera, því að reynsla undanfarinna ára hefur sýnt það að það er mjög rólegt á gamlárskvöld. Hins vegar ef eitthvað kemur uppá, þá höfum við enga til að kalla í og þvi er þessi fjölgun aðeins öryggisins vegna. Ég man oft eftir því að það hafi komið upp eldur á gamlárs- kvöld og í slíkum tilfellum er betra að hafa fleiri en færri á vakt og því erum við með nánast tvöfalda vakt frá kl. 22 á gamlárskvöld. Hér áður fyrr var oft líflegt í bænum á gaml- árskvöld og þá kom fjöldi manns saman til þess m.a. stríða okkur lögreglumönnunum en það er alveg búið í dag. Þar kemur margt til en sjónvarpið hefur þar mikil áhrif og heldur mörgum heima.“ - Er þér eitthvað sérstaklega minnistætt frá þessum dögum? „Nei ég get ekki sagt að ég muni eftir slíku. Við reynum eftir fremsta megni að hjálpa fólki sem til okkar leitar og eins höfum við þurft að taka fólk í heimahúsum og okkur finnst ömurlegt að þurfa að gera það og finnst miklu skemmtilegra að geta rétt fólki hjálparhönd." þær eru meðhöndlaðar. Flest þau slys sem verða við meðferð flug- elda eru vegna gáleysislegrar meðferðar og ræður enginn við það nema fólkið sjálft." Áróðurinn licíur skilað sér - Nú hefur alls kyns áróður aukist til muna í seinni tíð, hefur það skil- að sér að þínu mati? „Já það er ekki spurning að sá áróður hefur skilað sér upp að vissu marki en engu að siður má alltaf gera betur í þessu sem öðru.“ - Áhugi fyrir áramótabrennum virðist hafa farið minnkandi nú seinni árin, hefur verið beðið um leyfi fyrir mörgum brennum á Akureyri í ár? „Já það er rétt að brennum fer fækkandi. Ekki veit ég nákvæm- lega af hverju en tíðarandinn hef- ur breyst og börnin hafa í dag um margt annað að hugsa en brennur. Hér áður fyrr byrjuðu krakkarnir að safna í brennur í byrjun des- ember. I dag veit ég aðeins um eina brennu hér nú, þ.e. upp við Rangárvelli á sama stað og í fyrra. Eftir að byggð fór bæði að þenjast út og þéttast hefur reynst erfiðara að finna staði fyrir brennur. Þegar við gefum leyfi fyrir brennu, þurf- um við að gæta hagsmuna beggja, bæði þeirra sem vilja halda brennu og eins þeirra sem búa í næsta nágrenni við þann stað sem brennan er á.“ KK Þrírmenn eru á hverri vakt á slökkvistöðinni á Akureyri, en slökkviliðsstjóri og starfsmaður eldvarnareftirlits vinna dag- vinnu. Alls hefur slökkviliðið yfir 40 manns að ráða í útköllum. - Er ekki reynt að ná upp jóla- stemmningu á stöðinni eins og annars staðar? „Jú við reynum að gera eitthvað fyrir þá sem þurfa að vinna vaktir þessa daga. Við skreytum setu- stofuna með jólatré og setjum upp jólaljós. Hér er mötuneyti en eins og ég sagði áðan, vilja menn helst borða heima hjá sér á aðfanga- dagskvöld og þeir menn sem koma á vakt kl. 18 á aðfangadag eru þá rétt búnir að borða eða fara heim á vaktinni og borða þar. Það er því aðeins eldað fyrir þá fanga sem hér sitja inni á aðfangadag. Fangarnir fá því jólamat og fá að neyta hans við eins góð skilyrði og hægt er en auðvitað þurfum við að fara eftir reglum varðandi fanga.“ - Eru alltaf einhverjir fangar hér um hátíðisdagana? „Já hér er alltaf fullt. Ef einn fangi losnar að morgni, er kominn annar að kvöldi. Það eru öll fang- elsi á Islandi full og sérstaklega okkar. Það gildir ekki sama regla varðandi fangelsin og t.d. sjúkra- húsin, þar sem reynt er að koma sem flestum heim um jól og ára- mót. Það er nú þannig að margir sem eiga óafplánaða dóma, reyna að nota þessa daga til þess að sitja þá af sér.“ Fleiri á vakt á gamlárskvöld - Hvemig eru vinnufyrirkomulag- inu háttað um áramótin? „Á gamlársdag þurfum við að fjölga lögreglumönnum á vakt en Fngar fréttir frá lögreglu eru góðar fréttir - Vitið þið til þess að hér á Akur- eyri sé fólk sem ekki eigi í nein hús að venda og sé því hálf utangátta um hátíðarnar? „Hér á Akureyri eru ekki heim- ilislausir utangarðsmenn. Þó svo að menn sem við myndum kalla hálfgerða utangarðsmenn séu til, þá eiga þeir allir í hús að venda og við þurfum ekki að hafa af þeim nein afskipti. Ég veit heldur ekki um neinn aðila sem hírist einn heima kannski allslaus. Ef svo væri myndum við koma þeim aðila til hjálpar en sem betur fer er ekki um slíkt að ræða mér vitanlega. “ - Að lokum Ólafur, ertu með einhver skilaboð til bæjarbúa? „Ég vil fyrst og fremst hvetja fólk til þess að halda áfenginu frá jólunum og að foreldrar leggi sig fram um það að gera jólin skemmtileg og eftirminnileg fyrir börnin sín. Þetta er hátíð Ijóssins og ekki síður hátíð barnanna og það hefur gefið mér mikið að geta glatt börnin mín á jólunum. Eins vil ég biðja fólk að fara að öllu með gát bæði um jól og áramót. Það er almenna reglan, að þegar rólegt er hjá okkur lögreglumönnunum er þjóðfélagið gott og eftir þvi sem meira er að gera hjá okkur, því verra ástand er almennt í þjóðfé- laginu. - Og engar fréttir frá lög- | reglu er góðar fréttir. “ KK

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.