Dagur - 23.12.1991, Blaðsíða 1
74. árgangur Akureyri, mánudagur 23. desember 1991 245. tölublað
Sendum
viðsUi ptavi kvlakkv
ol<[<c\ e bes+la
J
'Ól CK'
O.
rvyarsoski^
'ÞöUUum viðsUiptin á liðm\ á>*i
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Útkall hjá slökkviliðinu á Akureyri:
Nýkeyptur reykskynjari
sannaði gildi sitt
- reykur frá bakarofni í mannlausri íbúð
Þau voru heppin, hjónin á
Akureyri, sem keyptu sér
reykskynjara á laugardaginn.
Hann sannaði gildi sitt strax
sama kvöld og óvíst hvernig
hefði farið ef skynjarinn hefði
ekki verið til staðar.
Þær upplýsingar fengust á
slökkvistöðinni á Akureyri að
slökkviliðið hefði verið kallað að
Melasíðu 2, sem er fjölbýlishús,
síðastliðið laugardagskvöld.
Reykskynjari vældi í íbúð og gaf
nágrönnunum til kynna að ekki
væri allt með felldu. Enginn kom
til dyra í íbúðinni, enda var hún
mannlaus, og hringdu nágrann-
arnir þá á slökkviliðið.
Að sögn starfsmann slökkvi-
liðsins hafði reykskynjarinn í
íbúðinni farið í gang vegna reyks
frá bakarofni. Smákökur í ofnin-
um voru farnar að brenna og
lagði frá þeim reyk.
Ekki var mikill reykur í íbúð-
inni og gekk greiðlega að loft-
ræsta hana og urðu engar teljandi
skemmdir af hans völdum. En
slökkviliðsmaðurinn sem Dagur
ræddi við lét það fylgja frásögn-
inni af útkallinu að húsráðendur
hefðu keypt sér reykskynjara
sama dag og hann hefði aðeins
verið í sambandi í nokkrar
klukkustundir þegar hann fór að
væla og vara fólk við reyknum.
SS
Flugsamgöngur:
Gleðileg jóll
Mynd: Golli
Röskim hjá Flugleiðwn
- flug gekk vel
Flugsamgöngur röskuðust í
gær, fyrst vegna hvassviðris
syðra en síðan fór veðrið að
versna fyrir norðan og von var
á snjókomu. Síðdegis í gær
höfðu Flugleiðir aðeins getað
farið eina ferð milli Akureyrar
og Reykjavíkur en von var á
annarri vél úr Reykjavík.
Flugleiðir áttu eftir að fara
þrjár ferðir í viðbót milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur í gær og
vonaðist starfsmaður á Akureyr-
arflugvelli eftir því að hægt yrði
að fara þær áður en veðrið versn-
Fjárlög fyrir 1992 samþykkt í fyrrinótt:
„Löggæsluskatti“ og fleiri erfiðum
málum frestað fram yflr áramót
Fjárlög fyrir árið 1992 voru
staðfest sem lög frá Alþingi
snemma í gærmorgun, eftir
mikið rciptog ríkisstjórnar-
flokkanna og stjórnarand-
stöðuilokkanna.
Lengi vel leit út fyrir að ekki
myndi takast að ljúka afgreiðslu
fjárlaganna fyrir jól, en sam-
komulag stjórnar og stjórnar-
andstöðu um að fresta lögfest-
ingu frumvarps um aðgerðir í
ríkisfjármálum, varð til þess að
höggva á hnútinn. í því frum-
varpi er m.a. „löggæsluskattur-
inn“ svokallaði og önnur umdeild
atriði. Þessi viðkvæmu mál munu
aftur koma til kasta þingsins þeg-
ar það kemur á ný saman eftir
jólaleyfi þann 6. janúar nk.
Harðar deilur hafa verið um
fyrirhugaða skerðingu sjómanna-
afsláttar. Niðurstaða Alþingis í
því máli varð sú að skerða sjó-
mannafsláttinn þannig að mið-
að sé við 245 daga á sjó, en ekki
260 daga eins og áður hafði verið
talað um. Talsmenn sjómanna
þrýstu mjög á að ná þessu fram
og fjármálaráðherra lét loks und-
an þrýstingnum. Þrátt fyrir þessa
breytingu metur ráðherra það
svo að ríkið spari um 180 milljón-
ir króna með breytingu á sjó-
mannaafslættinum. Gangi það
hins vegar ekki eftir er gert ráð
fyrir að breyta reglum um afslátt-
inn á árinu 1993.
Stjórnarandstaðan var ekki
sátt við þessa niðurstöðu og í
máli Stefáns Guðmundssonar (B-
Nl.v) kom fram sú skoðun að það
væri sjómanna sjálfra að semja
um kjör sín. Óeðlilegt væri að
ráðherrar og þingmenn gripu inn
í þau mál með þessum hætti.
Tekjutenging barnabóta, ann-
að mjög umdeilt mál, varð að
lögum í fyrrinótt. Með þessari
breytingu munu barnabætur fólks
með mjög lágar tekjur hækka
lítillega, en barnabætur hjá þorra
foreldra skerðast á næsta ári.
Þriðja málið, sem mikið reip-
tog varð útaf í þinginu, er stjórn-
arfrumvarp um að framlengja
jöfnunargjald á innfluttar iðnað-
arvörur. Upphaflega var gert ráð
fyrir að innheimta þetta gjald
fram á mitt næsta ár, en tveir
stjórnarþingmanna, Vilhjálmur
Egilsson (D-Nl.v) og Ingi Björn
Albertsson (D-Rvík) vildu
leggja gjaldið af frá og með næstu
áramótum. Stjórnarandstaðan
taldi hins vegar rétt að innheimta
jöfnunargjaldið allt næsta ár. Eft-
ir mikið stapp náðist sú lending í
málinu að umrætt jöfnunargjald
verður innheimt til loka septem-
ber á næsta ári. óþh
hjá FN í gær
aði, en spáin var slæm.
í dag, á Þorláksmessu, eru
fimm ferðir milli Akureyrar og
Reykjavíkur á dagskrá hjá Flug-
leiðum og tvær á aðfangadag.
Vélar Flugfélags Norðurlands
komust allra sinna ferða í gær,
austur og vestur og suður til
Reykjavíkur og Keflavíkur. SS
Harður árekstur
á Hlíðarbraut
Harður árekstur varð á Hlíð-
arbraut á Akureyri síðastliðinn
föstudag og skemmdist einn
bíll mikið en ekki urðu slys á
fólki. Helgin var að mestu
óhappalaus, að sögn varð-
stjóra hjá lögreglunni.
„Þetta var bara venjulegt
hnoð. Einn og einn fékk sér í glas
en það urðu engin tiltakanleg
vandræði. Ég held að ég megi
segja með góðri samvisku að
helgin hafi verið óhappalaus, og
þá á ég við að engin meiðsl urðu
á fólki, sagði varðstjórinn.
Þótt föstudagur og laugardagur
liafi verið langir verslunardagar
rétt fyrir jól voru ekki ýkja marg-
ir á ferli í miðbæ Akureyrar enda
brunagaddur, en búast má við að
erill verði í verslunum í dag og
kvöld. SS
Jólaveðrið stillt og gott
- eftir norðan hvell á Þorláksmessu
I nótt átti norðan hvellur að
skella á Norðurlandi með stór-
hríð fram undir hádegi í dag og
hafi spá Veðurstofu íslands
gengið eftir geta fyrstu lesend-
ur blaðisins séð bálið með eig-
in augum.
Veðurfræðingur sem var á vakt
í gær lofaði því að þessi norðan-
garri með tilheyrandi snjókomu
og síðar éljagangi myndi æða yfir
á skömmum tíma og hverfa í
kvöld og mun betra veður taka
við.
Aðfaranótt þriðjudags, að-
fangadags jóla, verður komin
suðvestan átt og bjart veður.
Vindur verður hægur og frostið í
kringum 5-7 stig á Norðurlandi,
sem þykir ekki mikið miðað við
20 stiga gaddinn sl. laugardag.
Á miðvikudaginn er líka gert
ráð fyrir ágætu veðri. Þá verður
komin suðaustan átt en hún mun
varla hafa mikil áhrif á Noröur-
landi fyrr en undir kvöldið. Jóla-
veðrið ætti því að verða gott um
allt norðanvert landið. SS