Dagur - 23.12.1991, Blaðsíða 6
6 — DAGUR - Mánudagur 23. desember 1991
Oskum viðskiptavinum okkar
svo og öllum landsmönnum
glebilegra jóla og
farsæls komandi árs
Prentsmiðjan JUl! hf
Höföabakka 3-7 • Reykjavík • Sími 91-683366
óskar viðskiptavinum sínum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári
með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða
Opnunartími Súlnabergs og
veitingasala hótelsins yfir hátíðarnar
er sem hér segir:
23. des. opið til kl. 13.00, 25. des. lokað,
26. des. lokað, 27. des. opnað kl. 9.00,
31. des. opið til kl. 13.00, 1. jan. lokað,
2. jan. opnað kl. 9.00
1 Hótel KEA á
Fyrir vel heppnaða veislu
Auglýsendur
takið vel eftir!
Venjulegt helgarblað kemur út laugardaginn 28. desem-
ber. Auglýsingar í það blað þurfa að berast okkur sem fyrst
og í síðasta lagi fyrir kl. 10.00 föstudaginn 27. desember.
Ekki mó gleyma síðasta blaðinu okkar ó þessu dri, en það
kemur út mónudaginn 30. desember. Auglýsingar og til-
kynningar í það blað þurfa að berast okkur sem fyrst eins
og stundum fyrr og í síðasta lagi föstudaginn 27. desem-
ber kl. 16.00.
Fyrsta blað órið 1992 kemur út föstudaginn 3. janúar.
auglýsingadeild, sími 24222.
Björn G. Ólafsson:
Velferð einstaklinga á að
ráða - en ekki fyrirtækja
- athugasemd vegna greinar Áskels Einarssonar
í grein sem birtist í Degi 3. des-
ember síðastliðinn og heitir „Inn-
gangur að niðurlaginu“ vitnar
„höfundurinn Áskell Einarsson í
grein eftir mig sem birtist nýlega í
Fjármálatíðindum (1. hefti
1991). Ég er ekki alls kostar sátt-
ur við túlkun Áskells á efni grein-
arinnar. Hann segir að ég komist
að þeirri niðurstöðu að byggða-
stefna eigi að vera eins konar
fátækraframfærsla sem er ekki
rétt. Ég ætla þó ekki að ræða
nánar um þetta efni en minnast
nánar á eitt atriði sem hefur þýð-
ingu í umræðunni um byggða-
stefnu.
Efnahagslegar forsendur, svo
sem greiður aðgangur að náttúru-
auðlindum, hafa ráðið dreifingu
búsetu um landið. Hljóta þá ekki
efnahagslegar forsendur einnig
að ráða nokkru um hvort eða
hvenær búseta leggst af? í minni
grein er ekki reynt að sýna fram á
að einhverjar byggðir séu óhag-
kvæmar. Hins vegar er fjallað um
það hvaða grunnregla eigi að
gilda um aðgerðir samfélagsins ef
í ljós kemur að einhver byggð er
orðin óhagkvæm. Svar mitt er að
þá beri að aðstoða einstaklingana
fyrst og fremst en ekki fyrirtæki á
staðnum með það í huga að halda
byggðinni uppi hvað sem það
kostar. Ástæðan er sú að mis-
munun á milli fyrirtækja eða
atvinnugreina eftir öðru en arð-
semi, svo sem staðsetningu,
minnkar velferð í þjóðfélaginu.
Hingað til hefur byggðastefna
að verulegu leyti snúist um vel-
ferð fyrirtækja eða heilla atvinnu-
greina svo sem landbúnaðar.
Árangurinn hefur berlega komið
í ljós að undanförnu sem versn-
andi þjóðarhagur og skuldsetning
fyrirtækja sem hvort tveggja tak-
markar verulega svigrúm til
framfara á landsbyggðinni. Vel-
ferð einstaklinga á að ráða en
ekki fyrirtækja. Hafi Áskell aðra
skoðun á þessu atriði væri fróð-
legt að fá fram rökstuðning um
það efni.
Virðingarfyllst,
Björn G. Olafsson.
Höfundur er þjóðfélagsfræðingur og vinnur hjá
Byggðastofnun í Reykjavík.
Nemendatónleikar TónMstar-
skólans á Akureyri
Tónlistarskólinn á Akureyri
efndi til nemendatónleika þriðju-
daginn 17. desember og fimmtu-
daginn 19. desember. Á fyrri tón-
leikunum léku blásarasveitir
skólans, en á þeim síðari strengja-
hljómsveitir hans.
Blásarasveitir Tónlistarskólans
á Akureyri eru fjórar. Sveit byrj-
enda er nefnd Á-sveit, en síðan
koma B-, C- og D-sveitir.
A- og B-sveitirnar léku glað-
lega og hiklaust. Stjórnandi
þeirra, Jáóqueline F. Simm, virt-
ist í góðu sambandi við nemend-
urna og sló taktinn af ákveðni og
greinilega.
C-sveitin lék undir stjórn
Christophers A. Thorntons.
Leikur hennar var yfirleitt örugg-
ur og áheyrilegur. Best tókst
flutningur á verkinu Christmas in
Concert. Það er nokkurs konar
syrpa jólalaga og gerir talsverðar
kröfur til flytjenda. Hljómsveitin
stóðst þær með prýði.
Næst sameinuðust C-sveit og
D-sveit og léku undir stjórn
Christophers A. Thorntons
Junior Variations eftir Henk van
Lijnschooten. Þetta er skemmti-
legt verk, sem naut sín allvel í
flutningi nemendanna í blásara-
sveitunum tveim. Stjórnandan-
um tókst vel að draga fram sér-
kenni hvers tilbrigðis og skapa
þannig ánægjulega fjölbreytni í
túlkun.
D-sveitin lék þrjú verk undir
stjórn Gordons G. Jacks. Hljóm-
sveitin stóð sig vel í flutningi
sínum. Hún lék af öryggi og
sýndi mjög skemmtilega getu.
Leikur hennar var jafnan blæ-
brigðaríkur og fallegur. Best
tókst flutningur á March úr
Second Suite í F eftir Gustav
Holst, sem D-sveitin lék af eftir-
tektarverðu öryggi og fjöri.
Tónleikum blásarasveitanna
lauk með sameiginlegum flutn-
ingi þeirra á Heims um ból.
Á tónleikum strengjasveita
Tónlistarskólans á Akureyri
komu fram þrjár hljómsveitir.
Fyrst á efnisskrá var leikur
Strengjasveitar II undir stjórn
Jóns Rafnssonar. Sveitin lék
fimm lög af öryggi og allskemmti-
lega. Lítið var um falska hljóma,
taktur var almennt góður og
hljómsveitarstjórn Jóns ákveðin
og greinileg.
Næst lék Strengjasveit I, sem
er sveit styst komnu nemend-
anna. Flutningur sveitarinnar var
hiklaus undir stjórn Mögnu
Guðmundsdóttur. Hið sama var
um flutning allra þriggja strengja-
sveitanna sameinaðra, en þær
léku eitt lag undir stjórn Mögnu.
Hápunktur tónleika strengja-
sveita Tónlistarskólans á Akur-
eyri var flutningur Strengjasveit-
ar III á Simple Symphony eftir
Benjamin Britten undir stjórn
Michaels J. Clarke. Þetta verk er
ekki einfalt, eins og ætla mætti af
heiti þess, heldur gerir það veru-
legar og fjölbreyttar kröfur til
hljóðfæraleikara og stjórnanda.
Strengjasveit III stóð sig að
langflestu leyti með prýði í flutn-
ingi sínum. Innkomur voru nær
ætíð góðar, tónmyndun einnig og
hið sama átti að jafnaði við um
túlkunarbrag. Falskir hljómar
heyrðust, en þeir voru fáir og
spilltu lítt, nema einna helst í
þriðja kafla. Stjórnandinn var
fjörlegur og vakandi og gaf
greinilega til kynna með fasi sínu
og bendingum brag verksins, inn-
komur og annað.
Nemendatónleikar eru ætíð
forvitnilegir og iðulega ánægju-
legir. Svo var um þá nemenda-
tónleika, sem hér hefur verið frá
sagt. Þeir bera því glöggt vitni,
að starf nemenda og kennara við
Tónlistarskólann á Akureyri skil-
ar góðum árangri.
Haukur Ágústsson.
Gigtarfélag íslands:
Besta
jolagjofin
Skíöahjálmar fyrir alla
frá kr. 2950.
Skíðaþjónustan
Fjölnisgötu 4 b • Sími 21713
Frosti F. Jóhannsson ráðinn
- til að annast verkefni vegna
norræns gigtarárs 1992
Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum verður á næsta ári, 1992,
efnt til norræns gigtarárs. Megin-
tilgangur þess er að bæta mögu-
leika gigtarsjúklinga til daglegs
lífs þannig að þeir geti lifað sem
eðlilegustu lífi þrátt fyrir sjúk-
dóm sinn.
Til að annast þau verkefni sem
vinna þarf vegna norræns gigtar-
árs 1992 hefur Gigtarfélag
íslands ráðið Frosta F. Jóhanns-
son þjóðháttafræðing í hálft starf
og hefur hann þegar tekið til
starfa.
Verkefni hans felst í því að
skipuleggja og stjórna þeim
framkvæmdum sem ráðist verður
í á gigtarárinu hérlendis. Megin-
áhersla verður lögð á að taka
saman sem víðtækastar upplýs-
ingar um gigt og gigtarsjúklinga
og koma á framfæri við hina
Frosti F. Jóhannsson.
ýmsu aðila. Jafnframt er ætlunin
að leggja áherslu á að fá aukin
fjárframlög frá hinu opinbera og
beint frá almenningi til að vinna
gegn gigtarsjúkdómum. Brýnasta
verkefnið í þeim efnum er efling
og stækkun Gigtlækningastöðvar
Gigtarfélags íslands.