Dagur - 23.12.1991, Side 10
10 - DAGUR - Mánudagur 23. desember 1991
Íþróttir
Stórskyttan Sigurður Sveinsson mun sýna listir sínar milli jóla og nýárs á
Akureyri og Húsavík.
Landsleikirnir við Rússa:
„Ég á von á mjög
erfiðum leikjum“
- segir Porbergur Aðalsteinsson
Leikur Þórs og Hauka í Úrvalsdeildinni flautaður af:
Þórsurum dæmdur 2:0 sigur
- Haukarnir komust ekki til Akureyrar
vegna seinkunar á flugi Flugleiða frá Keflavík
Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari í handknattleik,
segist lítið vita um rússneska
liöiö sem leikur þrjá leiki við
íslendinga, á Akureyri, Húsa-
vík og Selfossi, milli jóla og
nýárs. „Ég á ekki von á öðru
en að þetta lið sé gífurlega
sterkt. Það hefur verið hrein
unun að horfa á sovéskan
handknattleik síðustu ár, hvort
sem það hefur verið landsliðið
Landslið 16-18 ára
í handbolta:
Ingólfur valinn
tilæfinga
Ingólfur Guðmundsson,
markvörður 2. deildar liðs
Þórs í handbolta, hefur ver-
ið valinn til æfínga með
landsliði Islands, skipað
leikmönnum 16-18 ára. Lið-
ið undirbýr sig fyrir sterkt
mót um páskana.
Ingólfur á að baki 5 leiki
meö landsliði íslands skipað
leikmönnum 14-16 ára. Þjálf-
ari 16-18 ára liðsins er Geir
Hallsteinsson og hefur hann
náð mjög góðum árangri með
þennan aldursflokk.
Akureyrarmót
ífijálsum
íþróttum
Ungmennafélag Akureyrar
gengst fyrir Akureyrarmóti í
frjálsum íþróttum innanhúss
laugardaginn 28. desember
nk. í íþróttahöllinni.
Keppt verður í öllum ald-
ursflokkum. Skráning hefst á
staðnum kl. 12 en keppni hefst
kl. 13.
eða félagslið, og ég á von á
mjög erfíðum leikjum,“ sagði
Þorbergur.
Þorbergur segist vita að það
séu engir af gömlu jöxlunum úr
sovéska landsliðinu í liðinu sem
hingað kemur en veit um tvo
leikmenn sem voru að vinna sér
sæti í sovéska landsliðinu sem tók
þátt í móti á Spáni í sumar. Þar
mættust 8 bestu þjóðir í heimi.
„Við erum í undirbúningi fyrir
B-keppnina og reynum að stilla
upp sterkasta liði sem við eigum.
Því miður fáum við ekki heim
leikmennina sem spila í Þýska-
landi, nema Konráð Olavsson,
en við verðum bara að sjá hvað
gerist," sagði Þorbergur.
Landsliðsþjálfaranum líst vel á
að spila þessa tvo landsleiki fyrir
norðan. „Ég er ánægður með
þetta og myndi vilja spila fleiri
landsleiki úti á landi. Lands-
byggðarfólk hefur stutt okkur vel
og á rétt á að fá landsleiki heima
hjá sér eins og Reykvíkingar."
Fyrsti leikurinn af þremur fer
fram í íþróttahöllinni á Akureyri
á föstudagskvöldið kl. 20. Sá
næsti fer fram á Húsavík á laug-
ardaginn kl. 17 og sá þriðji og
síðasti á Selfossi á sunnudegin-
um.
Allt útlit er fyrir að 3. dcildar-
lið Tindastóls mæti með gjör-
breytt Iið til leiks í íslandsmót-
ið næsta sumar. Eftir áramót
kemur júgóslavneskur leik-
maður til landsins og æfír með
Tindastól í þrjár vikur og má
búast við að hann leiki með
liðinu ef Tindastólsmönnum
líst á hann. Þá eru sterkar líkur
á að fleiri leikmenn gangi til
liðs við Tindastól, m.a. Bjarki
Pétursson, bróðir Péturs Pét-
urssonar.
Ekkert varð af því að leikur
Þórs og Hauka í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik, sem fram
átti að fara í Iþróttahöllinni á
Akureyri sl. föstudagskvöld,
færi fram og var Þórsurum
dæmdur 2:0 sigur í leiknum.
Astæðan var sú að leikmenn
Hauka voru ekki mættir til
leiks 15 mín. eftir að leikurinn
átti að hefjast og fóru Þórsarar
því fram á að leikurinn yrði
flautaður af og þeim dæmdur
sigur, samkvæmt reglugerð
KKI. Dómarar leiksins, þeir
Kristinn Albertsson og Krist-
inn Oskarsson, urðu við þeirri
kröfu Þórsara og flautuðu leik-
inn af.
Fjölmargir áhorfendur biðu
þolinmóðir eftir því að Ieikurinn
hæfist og var ekki laust við að
óánægju gætti hjá þeim með lykt-
ir mála. Leikurinn átti upphaf-
lega að hefjast kl. 20.30 en að
beiðni Hauka, var honum seink-
að til kl. 21.00, vegna seinkunar á
þotuflugi frá Keflavík til Akur-
eyrar. Þórsarar féllust á það, án
þess þó að tilkynna það dómur-
um leiksins eða til KKÍ. Þar sem
vélinni seinkaði mun meira en
Haukarnir gerðu ráð fyrir, náðu
þeir ekki í hús á tilsettum tíma og
því var leikurinn flautaður af.
Þegar leikurinn var hins vegar
flautaður af, voru nokkrir leik-
menn Hauka komnir í Höllina og
aðrir á leiðinni frá flugvellinum á
Akureyri. Þegar lið Hauka hafði
skilað sér að fullu var klukkan
orðin hálf tíu.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
Haukamanna, fengu þeir ekkert
að gert og úrslitin því látin
standa. Það var því ekki um ann-
að að ræða fyrir þá en að skrifa
kæru og senda inn til KKÍ.
„Þórsarar að ná sér
í ódýr stig“
„Ég er fyrst og fremst hissa á því
að Þórsarar skyldu gera þetta,“
sagði Henning Henningsson,
fyrirliði Hauka í samtali við Dag.
„Þegar þessi lið mættust í Hafn-
arfirði fyrr í haust, komu Þórsar-
ar seint suður og þá seinkuðum
við leiknum um 20 mín. að þeirra
ósk, svo þeir fengju nægan tíma
til undirbúnings. Þessi seinkun á
fluginu nú var ekki á okkar valdi
og því höfum við kært þessi
úrslit. Ég sé ekki að ástæðan fyrir
þessari ákvörðun Þórsara, sé
önnur en að ná sér í ódýr stig, ja
Að sögn Ómars Braga Stefáns-
sonar, formanns knattspyrnu-
deildar Tindastóls, hafði þessi
Júgóslavi samband við Tindastól
og lýsti áhuga sínum á að koma.
„Okkur er sagt að þetta sé sterk-
ur sóknarmaður. Hann kemur
hingað á eigin vegum og ef okkur
líst vel á hann er líklegt að hann
verði áfram hjá okkur,“ sagði
Ómar Bragi.
Tindastóll hefur átt í viðræðum
við Bjarka Pétursson og Tryggva
hver getur hún verið önnur,“
sagði Henning ennfremur.
„Haukarnir komu hingað
til að skemmta sér“
Birgir Torfason, formaður körfu-
knattleiksdeildar Þórs, sagði að
það hafi verið ákvörðun þjálfara
og leikmanna Þórs að láta flauta
leikinn af. Einnig hafi fram-
kvæmdastjóri KKÍ gefið dómur-
unum þau fyrirmæli að flauta
leikinn af, væru Haukarnir ekki
tilbúnir kl. 21.15.
„Við samþykktum frestun á
leiknum til kl. 21.00 án samráðs
við dómara eða KKÍ. Haukarnir
Siglfírðingar, búsettir í Reykja-
vík, taka þátt í 2. deild íslands-
mótsins í körfuknattleik í
vetur. Þeir spila undir merkj-
um KS og er það í fyrsta sinn
sem félagið sendir lið til
keppni í körfuknattleik.
Siglfirðingar spiluðu nýlega í
fyrstu umferð 2. deildar og töp-
uðu þá 74:104 fyrir Skautafélagi
Reykjavíkur og 62:78 fyrir
Leikni en leik þeirra gegn Höfn-
um var frestað.
„Við höfum aldrei spilað körfu-
bolta og það hefur sést á þessum
leikjum," sagði Mark Duffield,
Á laugardaginn var dregið um
það hvaða lið leika saman í 16
liða úrslitum í bikarkeppni
Körfuknattleikssambands Is-
lands. Drátturinn fór fram í
beinni útsendingu í Sjónvarp-
inu og það var landsliðsþjálfar-
inn, Torfi Magnússon, sem dró
liðin upp úr hattinum.
Úrvalsdeildarlið Tindastóls á
fyrir höndum erfiðan leik gegn
Val á Hlíðarenda en Þórsarar
voru heppnari og mæta annað
hvort Reyni frá Sandgerði eða
Hetti frá Egilsstöðum á útivelli.
Tryggvason, bróður Guðbjörns
Tryggvasonar sem þjálfar Tinda-
stól í sumar. Tryggvi er ungur
varnarmaður sem hefur leikið
með ÍA bæði í 1. og 2. deild og
Bjarki lék með KR-ingum í sum-
ar en hefur hug á að breyta til.
Ómar Bragi sagðist bjartsýnn á
að báðir þessir leikmenn yrðu
með Tindastólsliðinu næsta
sumar. Einnig hefur heyrst að
Sverrir Sverrisson, leikmaður
KA, hygðist snúa heim á nýjan
leik en Ómar Bragi sagði litlar
áttu að koma í leiguvél og með
dómurunum, til þess að halda
dómarakostnaði niðri. En þar
sem þeir komu hingað til þess að
skemmta sér, komu þeir í áætlun
með Flugleiðum og fóru heim
daginn eftir. Þetta þýddi að
kostnaðurinn við dómarana var
rúmar 70 þús. kr. og það er meira
en við ráðum við.
Þegar það var ljóst að leikur-
inn gæti ekki hafist fyrr en undir
kl. 22.00, tóku þjálfari og leik-
menn þá ákvörðun að Iáta flauta
hann af,“ sagði Birgir Torfason.
einn leikmanna KS-liðsins. „Við
erum þarna að spila við menn
sem margir hverjir eru rétt hættir
í úrvalsdeildinni þannig að okkar
möguleikar eru ekki miklir. Við
skorum mest úr hraðaupphlaup-
um. En við höfum ekki þungar
áhyggjur af ósigrunum enda fór-
um við út í þetta til að hafa gam-
an af,“sagði Mark.
Það kostar heilmikið að halda
úti körfuknattleiksliði og sagði
Mark að Rafbær á Siglufirði
hefði styrkt liðið myndarlega og
bæjarbúar auk þess verið hjálp-
legir.
Bæði Reynir og Höttur leika í 1.
deild en liðin eiga eftir að leika
innbyrðisleik um sæti í 16 liða
úrslitum.
Annars lítur bikardrátturinn
þannig út og eru liðin sem eiga
heimaleik talin upp á undan:
ÍA-Njarðvík
Haukar-Snæfell
ÍR-Grindavík
Skallagrímur-KR
Njarðvík-b-ÍBK
Víkverji-ÍS/UBK
Reynir/Höttur-Þór
Valur-Tindastóll
líkur á því. „Hann er auðvitað
alltaf velkominn en í dag er ekk-
ert sem bendir til þess að hann
muni skipta.“
En þar með er ekki allt upp
talið. Allar líkur eru á að Bjarni
Gaukur Sigurðsson skipti úr
Hvöt í Tindastól. Bjarni Gaukur
er mjög efnilegur sóknarmaður
og skoraði 17 mörk í 4. deildinni
í sumar, þá aðeins 17 ára gamall.
Þá er líklegt að Lýður Skarphéð-
insson skipti úr Einherja í Tinda-
stól.
Júgóslavneskur sóknarmaður til Tindastóls
- og fleiri leikmenn inni í myndinni, m.a. Bjarki Pétursson
-KK
Fyrsta körfuknattleikslið
Siglflrðinga með í 2. deild
16 liða úrslit bikarkeppni KKÍ:
Tindastóll sækir Val
heim að Hlíðarenda
- en Þórsarar Reyni eða Hött