Dagur - 23.12.1991, Síða 20
Kodak
Express
Gæóaframköllun
★ Tryggðu f ilmunni þinni
cPe<k6myndir~’
SÍN Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
.............................................................................................
Mjólkurfræðingafélag íslands:
Boðar viku verkfaJl
Sanminganefnd mjólkurfræð-
inga gekk á fund ríkissátta-
semjara, Guðlaugs Þorvalds-
sonar, síðdegis á föstudag að
afloknum fundi með trúnaðar-
mannaráði Mjólkurfræðinga-
félags íslands. Á fundinum
með sáttasemjara var boðað
nýtt verkfall er kemur til fram-
kvæmda á miðnætti föstudags-
kvöldið 27. desember.
„Verkfallið er boðað til fimmtu-
dagskvöldsins 2. janúar. Ég hef
nú þegar ákveðið að boða samn-
inganefndir deiluaðila til mín eft-
ir hádegi á föstudag milli jóla og
nýárs áður en verkfallið skellur á.
Annað er ekki hægt að segja um
stöðu mála,“ sagði Guðlaugur
Þorvaldsson. ój
Verkfall mjólkurfræðinga:
Ekki sú leið sem
þeir eiga að fara
- segir Guðmundur Lárusson, formaður
Landssambands kúabænda
„Mjólkuriðnaðurinn stendur
nú frammi fyrir breyttu
umhverfi og augljóst að verk-
fall mjólkurfræðinga, sem
boðað hefur verið til, verður
greininni ekki til framdráttar.
Eg held að menn ættu að draga
lærdóm af því sem gerðist með
undirmenn í mjólkuriðnaðin-
um á dögunum þar sem kjara-
málin voru leyst á skynsamleg-
um nótum. Undirmennirnir
eru tekjulægri stétt heldur en
mjólkurfræðingar þannig að ég
tel að framleiðendur standi
ekki að baki þeim í þessari
deilu,“ sagði Guðmundur Lár-
usson, formaður Landssam-
bands kúabænda, í samtali við
Dag.
Guðmundur sagði að verkfall-
ið væri mjög vanhugsuð aðgerð
og engan veginn í takt við þær
staðreyndir sem menn væru að
horfast í augu við. Guðmundur
er í þeim hópi sem fjallar um
breytingar í mjólkuriðnaði á veg-
um sjömannanefndarinnar.
Hann sagði að ákveðnar tillögur
væru að fæðast þar og komnar
nokkuð langt á veg. Auk þess
væru menn að heyra á hverjum
degi nánari fréttir af þeim inn-
flutningi, sem er fyrirsjáanlegur
og þá gífurlegu verðsamkeppni
sem framundan er. Verkfall
mjólkurfræðinga muni ekki
draga okkur langt í þeirri bar-
áttu. Guðmundur sagði að menn
ættu fremur að skoða hvernig
verkföll hefðu nærri verið búin
að koma breska samveldinu á
kné á meðan aðrar þjóðir hefðu
farið aðrar leiðir í sinni kjarabar-
áttu. Hann kvaðst álíta að í
nútíma þjóðfélagi þá skiluðu
verkföll engu nema tapi þar sem
bæði atvinnurekendur og
launþegar yrðu fyrir tjóni. Guð-
mundur benti á að mjólkurfræð-
ingar hefðu alltaf verið svolítið
sér á báti í allri kjarabaráttu og
virtust ætla sér að vera það
áfram. Hann sagði að hið breytta
umhverfi sem framundan væri
neyddi okkur til að endurskoða
alla starfshætti í mjólkuriðnaði
og fækkun mjólkursamlaga væri
fyrirsjáanleg og þar með fækkun
starfa fyrir mjólkurfræðinga.
Með hliðsjón af því væru
verkfallsaðgerðir ekki sú leið sem
þeir ættu að fara. ÞI
Þrotabú Serkja hf:
Tveir aðflar að skoða
- ólíklegt að verksmiðjan verði áfram
á Blönduósi
„Ég fékk bréfíð frá Blönduósbæ
um miðjan mánuðinn þar sem
skýrf var frá að þeir væru hætt-
Idagur
til jóla
ir að hugsa um málið. Sama
dag skrifaði ég Iðnþróunarfé-
lagi Eyjafjarðar og nú bíð ég
eftir því hvað gerist hjá þeim,“
segir Þorsteinn Hjaltason,
bústjóri þrotabús pappírspoka-
verksmiðjunnar Serkja hf.
Þorsteinn segir að mjög líklegt
sé orðið að verksmiðjan verði
ekki áfram á Blönduósi. Þó segir
hann aðila, sem kæmi til með að
starfrækja verksmiðjuna á
Blönduósi, vera að skoða málin
samhliða Iðnþróunarfélaginu og
því geti allt gerst ennþá.
Að sögn Þorsteins ætlar hann
ekki að setja óþarfa tímapressu á
þá tvo aðila sem eru að skoða
Serkjamálið núna, en segir að
menn verði þó að vanda sig sök-
um þess að þarna sé um mikil
verðmæti að ræða. SBG
Gunnar Skjóldal, fisksali á Akureyri, glaðbeittur með jólamatinn, skötuna og rjúpuna. Mynd: Goiii
Skötulyktin tekur öll völd
í hugum margra er skatan
jafn ómissandi matur á borð-
um landsmanna í dag, Þor-
láksmessu, og sumir geta ekki
hugsað sér jólahátíðina án
rjúpna. En ekki eru allir jafn
hrifnir af þessum sérstæða
físki og sumir segja að í dag
lækki íbúðarhúsnæði í land-
inu í verði um tugi prósenta
vegna ólyktar af honum.
Að sögn talsmanna þeirra
verslana á Norðurlandi, sem
Dagur ræddi við, byrjaði skötu-
salan af fullum krafti fyrir helg-
ina, en gert_er ráð fyrir mestri
sölu í dag. Skötuna er hægt að
fá í öllum stærðum og gerðum.
Þrjár tegundir eru algengastar;
smáskata, hin svokallaða kæsta
skata og söltuð skata.
En hvað kostar svo dýrindið?
Því er til að svara að óformleg
verðkönnun leiddi í ljós að
verðið er mjög mismunandi.
Hringt var af handahófi í fjórar
verslanir á Akureyri og reyndist
kílóverðið vera á bilinu 460 kr.
til 549 kr. Á Dalvík kostar
kílóið af skötunni hins vegar
410 kr. og 400 kr. á Sauðár-
króki. óþh
Niðurskurður launa- og rekstrarliða ríkisstofnana á næsta ári:
FSA skeri niður um 56 mflljónir
- ekki prveiting til kennaradeildar Háskólans í gárlögum
Niðurskuröur á launa- og rekstr-
arliðum í ríkisrekstrinum á
næsta ári mun koma mjög
harkalega niður á einstaka
stofnunum. Sem dæmi er Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
gert að skera niður um 56 millj-
ónir króna á næsta ári miðað
við áður komnar tillögur í frum-
varpi til fjárlaga.
í fjárlagafrumvarpinu var
launaliður FSA upp á 765 millj-
ónir króna. Gert er ráð fyrir að
skerða hann um 6,7%, eða 51,2
milljónir króna. Rekstrarliðurinn
var 371 milljón, en hann skerðist
um 1,3%, eða 4,8 milljónir
króna. Af þessum 56 milljónum
skal FSA skila 22,4 milljónum
króna til heilbrigðisráðuneytis-
ins, sem síðan ráðstafar þeim aft-
ur til heilbrigðisstofnana um allt
land. Hluti af þessum peningum
kann að renna aftur til FSA, en
það er þó engan veginn gefið.
Vonir hafa verið bundnar við
að kennsla við nýja kennaradeild
Háskólans á Akureyri geti hafist
næsta haust. Það hefur þó verið
bundið því að fjárveiting fengist
við afgreiðslu fjárlaga. Fjárveit-
ing fékkst ekki og því er mjög
ólíklegt að hægt verði að hefja
kennaranám við Háskólann í
haust. Samkvæmt heimildum
Dags hafa þingmenn Norður-
lands eystra orð menntamálaráð-
herra fyrir því að vilji hans standi
til þess að verulegri hreyfingu
verði komið á þetta mál á næsta
ári. Hvort það þýðir að kennara-
deild verði fundinn staður í fjár-
lögum fyrir 1993 sker tíminn úr
um.
Rjúpnaveiðinni lauk í gær. Að
sögn þeirra skotveiðimanna
sem blaðið hafði samband við
var veiðin nokkuð góð og
fremur meira um rjúpu heldur
en á síðasta ári.
Heiðar Ingi Ágústsson, skot-
veiðimaður á Akureyri, sagði að
rjúpnaveiðin hefði gengið vel
í haust. Sér virtist að meira væri
af rjúpu en á sama tíma í fyrra en
erfitt hefði verið að ná henni um
tíma eftir að lausasnjór féll og
verra að fara um kjarrlendi.
Heiðar Ingi sagði að minna hefði
verið um rjúpu á Öxnadalsheiði
og vestur um en á undanförnum
árum en vel hefði veiðst austur-
undan, bæði í Fnjóskadal og í
Bárðardal. Fuglinn virtist flytja
sig til eftir árum. Hann kvaðst
Verkmenntaskólinn á Akur-
eyri fær 35 milljónir króna í fram-
kvæmdafé á næsta ári, samkvæmt
fjárlögunum, en sótti um 45
milljónir, og Framhaldsskólinn á
Húsavík 10 milljónir, en sótti um
22 milljónir króna. óþh
hafa fregnir af veiðimönnum
austur á Seyðisfirði sem veitt
hefðu 600 fugla á fjórum dögum.
Hann kvað þá skotveiðimenn
er hann hefði heyrt í nokkuð
ánægða með vertíðina og kvaðst
sjálfur hafa náð um 100 rjúpum í
sjö ferðum.
Næsta blað kemur út laugar-
daginn 28. desember. Auglýs-
endur sem vilja koma auglýs-
ingum í það blað eru vinsam-
legast beðnir að skila inn
handritum í síðasta lagi fyrir
kl. 10.00 föstudaginn 27. des-
ember.
Rjúpnaveiðitímabilinu lokið:
Góð veiði á Norðurlandi