Dagur - 12.03.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 12. mars 1992
„Þessir Heimdallarstrákar skilja ekki
út á hvað lífsbarátta fólksins gengur“
-Matthías Bjarnason, alþingismaður, deilir hart á Sjálfstæðisflokkinn í viðtali í Heimsmynd
Mjög athyglisvert viðtal gefur
að líta í nýjasta hefti Heims-
myndar er Herdís Þorgeirs-
dóttir ritstýrir. Hér er um að
ræða ritsmíð ritstjórans þar
sem Matthías Bjarnason,
alþingismaður Sjálfstæðis-
flokks og „Vestfjarðagoði“ er í
brennidcpli. Matthías fer á
kostum sem hans er vandi,
enda einarður mjög. Heims-
mynd slær upp á síðum: Síðasti
móhíkaninn, elsti alþingismað-
urinn og ENFANTITERRIBLE
í þingflokki sjálfstæðismanna.
Lítum nú nánar á viðtaiið.
í upphafi segir Matthías:
„Þessir ungu menn í flokknum
segja okkur annað hvort sósíal-
ista eða framsóknarmenn og nota
það sem skammaryrði þar eð við
viljum verja hag lítilmagnans og
landsbyggðirnar. Mér finnst
þetta köld kveðja eftir áratuga
starf í flokknum.“
*
Eg trúði á þessa stefnu
Vissulega er svo því Matthías
hefur unnið að framgangi stefnu
Sjálfstæðisflokks í tugi ára. Hann
hefur gegnt tvívegis ráðherra-
embætti, fyrst í ríkisstjórn Geirs
Hallgrímssonar 1974 til 1978 og
síðan í ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar, 1983 til 1987.
Hann hefur þekkt alla formenn
Sjálfstæðisflokksins persónulega
að Jóni Þorlákssyni frátöldum og
um forustumennina segir hann að
hroki hafi ekki verið til í þeirra
fasi eins og honum finnist ein-
kenna ýmsa núverandi ráða-
menn.
í viðtalinu fer Matthías um
víðan völl allt frá uppvaxtarárun-
um á ísafirði og stjórnmálasaga
hans fær glögga umfjöllun.
Nú þegar Matthías horfir fram
á lok ferils síns í stjórnmálum er
þungt í honum hljóðið. „Ég varð
sjálfstæðismaður mjög ungur að
árum og trúði á þessa stefnu sem
virti cinkaframtakið og vildi
byggja þjóðfélagið upp á því en
sú sjálfstæðisstefna vildi líka
huga að þeim sem minna máttu
sín. Ég hef alltaf verið stuðnings-
maður almannatrygginga.“ Og
ritstjóri Heimsmyndar skrifar:
„Það skín næstum úr hverju hans
orði að honum finnist sá Sjálf-
stæðisflokkur sem hann gekk í
vera í ljósára fjarlægð frá þeim
flokki sem hann situr í nú.“ Og
Matthías segir: „Ég er leiðastur
yfir því hvað margir fá sitt á
þurru á kostnað annarra. Ég tel
að hér eigi að ríkja samkeppni en
ekki yfirdrottnun nokkurra
manna, eins og í Eimskipafélag-
inu. Það á ekki að líða það að
örfáir einstaklingar geti sölsað
undir sig auðæfi í skjóli laga í
trausti þess að þau væru góð. Það
er erfitt hlutskipti að vera for-
sætisráðherra í svona stöðu. Það
þarf að hreinsa svo mikið til í
þessu landi okkar.“
Landsbyggðin hefur verið
arðrænd áratugum saman
„Hér hefur orðið verulegur sam-
dráttur, horfurnar eru dökkar og
við getum orðið fyrir miklum
áföllum ennþá en það hefur líka
verið gripið til ráðstafana allt of
seint. Nú er talað um að auka
einkavæðinguna. Hins vegar þarf
að huga fram í tímann en ekki
eingöngu um líðandi stund og
ekki með þeim hætti að það hafi
veruleg áhrif á þá sem minnst
mega sín. Á það skortir í heil-
brigðis-, trygginga- og mennta-
málurn," segir Matthías og hann
bætir við: „Ég sé engan sparnað
hjá Seðlabankanum og bankarnir
í landinu virðast ekki á flæðiskeri
staddir eða fjárfestingalánasjóð-
irnir. Sjálfur tel ég ekkert til
fyrirstöðu að vextir lækki veru-
lega. Maður verður bara að vona
að erlendir bankar hasli sér völl
hér sem fyrst. Það fer í taugarnar
á mér hvað gert er lítið í því að
skynja stöðu útflutningsatvinnu-
veganna. Fjármagnskostnaður-
inn er að drepa þá. f öðru lagi er
ekki staðið nógu vel að því að
tryggja hag þeirra sem eru í
atvinnurekstri sem og fjölskyldn-
anna í landinu. Okkur hefur orð-
ið á og ég er óánægður með
„Margir eru fljótir að gleyma uppruna
„Ég dauðsé eftir því að hafa farið í
framboð síðast.“ Matthías fyrir utan
Alþingishúsið nýlega. „Það gerist æ
oftar að ég er mjög óánægður með
samþykktir þingflokksins.“
margt en ég vil ekki taka þátt í
þeim leik að auka völd örfárra
manna í þjóðfélaginu á kostnað
almenningsheilla. Þróunin er of
mikil í þá átt að styrkja þá sem
þegar eiga mest fjármagnið. Nú
skilurðu kannski af hverju Einar
Oddur Kristjánsson kallar mig
síðasta kommann. Pabbadreng-
irnir kalla mig á sama hátt fram-
sóknarmann."
í viðtalinu kemur fram að þing-
maðurinn sér eftir að hafa farið
fram í síðustu kostningum og
hann ræðir um sviptingar síðustu
ára í Sjálfstæðisflokknum sem og
þá menn er leitt hafa flokkinn.
Fram kemur að Matthíasi hryllir
við frjálshyggjuliðinu sem kom
inn með Þorsteini Pálssyni, því
liði sem hefur náð sterkum ítök-
um í flokknum. „Ég vil engum
gera það til geðs að nefna hann á
nafn en þetta afl hefur skemmt
flokkinn og gert hann miklu
þrengri. Þessir Heimdallarstrák-
ar sem skilja ekki út á hvað lífs-
barátta fólksins í landinu gengur.
Við sem erum búnir að fara gegn-
um þykkt og þunnt, kynnst kjör-
um þjóðarinnar teljum okkur
vita töluvert. Þessir aðilar álasa
sínum þegar þeir komast til valda.“
mönnum eins og mér fyrir að
standa vörð um mína kjósendur,
kalla mig kjördæmapotara eða
fyrirgreiðslupólitíkus. Ef við
landsbyggðarmennirnir erum að
hugsa of mikið um okkar byggð-
arlög á kostnað heildarinnar
hvernig stendur þá á því að allt
fólkið er að flýja til höfuðborgar-
svæðisins? Landsbyggðin hefur
verið arðrænd áratugum saman
og á töluverða sök á því sjálf með
því að geta aldrei staðið saman.“
Sumir eru æði fljótir að
gleyma uppruna sínum
Sem alþjóð veit studdi Matthías
Þorstein Pálsson í formanns-
slagnum í Sjálfstæðisflokknum
og Matthías segir í viðtalinu við
Herdísi: „Á fundum Davíðs um
landið eftir að hann var kjörinn
formaður lýsti hann ýmsum við-
horfum sem ég var sammála. Eft-
ir að hann myndaði ríkisstjórn
fór ýmislegt á annan veg en ég
hugði. Mér finnst margt benda til
þess að við þingmenn Sjálfstæðis-
flokks höfum verið einum of
fljótir að ganga til samninga við
krata. Ég hef orðið fyrir von-
brigðum með ráðherra Alþýðu-
flokks og finnst einstaka menn úr
þeirra röðum hafa sent okkur
kaldar kveðjur.“ Og þegar rit-
stjórinn spyr Matthías hvort
hann telji að þessir menn sem nú
sitji í ráðherrastólum séu fram-
tíðarmenn, kveður alþingismað-
urinn nei við. Er ritstjórinn spyr
hvort hroka sé um að kenna segir
Matthías: „Það er hroki fólginn í
því að ráðast í allan þennan
niðurskurð á kostnað almennings
og ráða á sama tíma um sig hirð
misviturra aðstoðarmanna. Þegar
Jón Baldvin Hannibalsson varð
ráðherra vildi hann vera alþýð-
legur og keyra um á bragga. Nú
þeysir hann um allt á ráðherrabíl
með bílstjóra og hefur lítið spar-
að í ferðalögum. Það er margt
gott í honum Jóni en helvítis
hrokinn er að fara með hann.
Þeir eru nokkrir sem hafa ekki
þolað að verða ráðherrar eða
hljóta aðrar vegtyllur innan
þingsins. Sumir eru æði fljótir að
gleyma uppruna sínum. Mennta-
hroki er einnig áberandi í fari
sumra langskólagenginna þing-
manna og það er hroki í fari
Davíðs Oddssonar." Matthías
segir að hroka gæti víðar í þjóð-
félaginu. Hann nefnir Moggann.
„Það er hroki í Mogganum að
taka undir allan þennan böl-
móðsáróður með fullar hendur
fjár. Af hverju veitir blaðið ekki
betri þjónustu, lækkar auglýs-
ingaverð og kemur oftar út, á
mánudögum, skírdag og á öðrum
tyllidögum eins og erlend
stórblöð? Og ekkert hamlar því
að kolkrabbinn vaði uppi. Fjöl-
miðlar, og stórveldi eins og
Mogginn, hefðu getað tekið á
kolkrabbanum mun fyrr.“ í
niðurlagi viðtalsins segir Matthí-
as: „Prófkjörin hafa gert það að
verkum að hæfasta fólkið fer ekki
í pólitík. Og það eru ekki endi-
lega þeir hæfustu sem nú ber
mest á.“ Ritstjórinn spyr.
„Hverjir eru að þínu mati hæfast-
ir af stjórnmálamönnunum núna
til að leiða þjóðina út úr þeim
ógöngum sem hún er í?“ „I hjart-
ans einlægni. Það sorglega er að
ég sé þá ekki,“ segir Matthías
Bjarnason og þar lýkur viðtalinu.
ój
SJALUNN
Föstudagur:
/
Urslit í f yrirtækj akeppni í karaoke
Fulltrúar eftirtalinna fyrirtækja keppa:
Dags, Sólborgar, Islandsbanka, Sparisjóðs Svarfdæla, Þórshamars,
Fiskvinnsluslöðvar Flateyrar, Notaðs innbús, Pósts og síma,
Sæluhússins Dalvík, KEA-Nettós, Dropans, Sjálfsbjargar, Flugleiða.
Óttar Óttarsson íslandsmeistari í karaoke 1992 syngur
Kynning frá Viking Brugg
Húsið opnað kl. 21.00 • Keppnin hefst kl. 22.00 stundvíslega
Hljómsveitin Vinir og synir
leikur fyrir dansi til kl. 03.00
Laugardagur:
Stórsýningin
MÞ £<) M
íaqtí tueitaUlu
Matseðill:
Skelfiskkæfa með jógúrtsósu og ristuðu brauði
Heilsteiktur svínahryggur með piparknjddaðri koníakssósu
og bakaðri kartöflu
Eplabaka með rjómatoppi
Hljómsveitin Vinir og synir
leikur fyrir dansi til kl. 03.00
Kvöldverður, skemmtun og dansleikur kr. 4.300 • Húsið opnað kl. 19.00
Kjallarinn:
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson á anddyrisbarnum
fimmtudag, föstudag og laugardag
Karaoke alla heleina. S
F.M^HÍTi'.MlO-É
AÐALSTÖÐIN