Dagur - 14.03.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 14. mars 1992
Fréttir
Fjárhagserfiðleikar ísno:
Málin virðast vera að
leysast á farsælan hátt
„Það virðist stefna í það á
þessari stundu að mál Isno séu
að leysast á farsællegan hátt,
þrátt fyrir ýmsar sögusagnir og
mjög erfiðan rekstur undan-
gengnar vikur og reyndar allt
þetta ár,“ sagði Friðrik Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri,
aðspurður um erfiðleika fyrir-
tækisins. Á fimmtudag var
fundur með fulltrúum stjórnar
Isnó og viðskiptabanka og á
mánudaginn verður Ijóst með
hvaða hætti fyrirgreiðslur til
Isno verða. „Eftir fundinn
virðist að fyrirtækið fái full-
nægjandi fyrirgreiðslu til að
geta gengið frá sínum málum
með einhverskonar skuldaskila-
samningum,“ sagði Friðrik.
Friðrik sagði að fyrirgreiðsla
bankans á þessu ári hefði ekki
verið með sama hætti og í fyrra,
en þá hefði verið hægt að greiða
áfallnar skuldir vegna rekstursins
en ekki hefði verið svigrúm til að
greiða niður gamlar skuldir.
JÚdÓ:
Akureyrarmót
yngri flokka
Akureyrarmót yngri flokka í
júdó fer fram í júdósalnum í
KA-húsinu á sunnudag og
hefst keppni kl. 13.00. Um 100
keppendur á aldrinum 4ja-12
ára taka þátt í mótinu.
Búast má við skemmtilegri
keppni og er allt áhugafólk hvatt
til þess að mæta í KA-húsið og
fylgjast með ungviðinu takast
hraustlega á.
I tenglsum við mótið stendur
júdódeild KA fyrir kaffihlað-
borði í KA-húsinu. -KK
Friðrik hefur starfað rúmt ár
sem framkvæmdastjóri ísnó, og
þetta ár hefur verið notað til að
skoða með hvaða hætti mætti fá
felldar niður skuldir að einhverju
leyti í frjálsum skuldaskilasamn-
ingum. „Það liggur fyrir áætlun i
dag, unnin af mér og lögfræðingi
fyrirtækisins. Hún hefur verið
kynnt öllum stærstu kröfuhöfum
og félagið hefur fengið mjög
jákvæð og góð viðbrögð við hug-
myndum sínum um skuldaskila-
samninga. Og miðað við hljóðið í
bankanum í gær eru menn mjög
bjartsýnir á að það takist að
vinna fyrirtækið út úr þeim erfið-
leikum sent það á við að etja um
þessar mundir," sagði Friðrik.
Um áramótin hætti ísno rekstri
stöðvar sinnar í Vestmannaeyj-
um en hefur haldið áfram rekstri
seiðaeldisstöðvarinnar að Öxna-
læk við Hveragerði og laxeldis-
stöðvarinnar í Lóni í Keldu-
hverfi. í Kelduhverfi starfa 7-8
manns við stöðina í fullri vinnu,
auk þeirra starfa nokkrar konur
við slátrunina á laxinum. Friðrik
sagði að miðað við að fyrirtækið
byggi við eðlilega fyrirgreiðslu
væri áætlað að slátra í hverri viku
ársins, að júlímánuði undanskild-
um. Stefnan er að koma á jafnri
vikulegri framleiðslu, í stað
þeirrar vertíðarstefnu við slátrun
sem áður viðgekkst. Slátrun var
hætt nú í febrúar vegna fjárhags-
örðugleikanna.
í upphafi ársins var rætt um
250-400 tonna ársframleiðslu,
eða metframleiðslu. Fyrirtækið
hefur framleitt 100-150 tonn á ári
í Lóni, en á síðasta ári voru fram-
leidd tæplega 250 tonn. „Það er
álit okkar að hægt sé að fram-
leiða 350-500 tonn á ári í Lóni og
ég held að menn hafi fyllst nokk-
urri bjartsýni eftir fundinn á
fimmtudaginn," sagði Friðrik.
IM
Sigurlið Mcnntaskólans á Akureyri
Magnús Teitsson.
i keppninni á Sauðárkróki. Frá vinstri: Pálmi Oskarsson, Finnur Friðriksson og
Mynd: SBG
Spurningakeppni framhaldsskólanna:
MA-ingar unnu öruggan sigur
- á liði Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Lið Menntaskólans á Akureyri
og lið Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra áttust við í spurn-
ingakeppni framhaldsskólanna,
Gettu betur, sl. fimmtudag en
viðureignin var sýnd í Sjón-
varpinu í gærkvöld. Þátturinn
var tekinn upp í íþróttahúsinu
á Sauðárkróki og báru MA-
ingar sigur úr býtum.
Á þriðja tug manna frá Sjón-
varpinu vann að því að gera
íþróttahúsið á Sauðárkróki klárt
fyrir upptöku á þættinum í eina
tvo daga. Nemendur og kennarar
beggja skóla fjölmenntu síðan í
salinn og þar ríkti mikil
stemmning.
Lið MA, sem sigraði í keppn-
inni í fyrra, náði fljótlega forystu
og þrátt fyrir tilraunir liðs FNV
til að ná þeim, tókst það eigi.
Þegar svarið við síðustu spurn-
ingunni var komið stóðu leikar
Reynsla varaþingmanns af störfum Alþingis:
Þingmenn starfssamir en
nokkurt agaleysi ríkjandi
- segir Guðmundur Stefánsson eftir hálfs mánaðar þingsetu
Guðmundur Stefánsson, vara-
þingmaður Framsóknarflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi
eystra, fékk sína fyrstu reynslu
af þingstörfum á dögunum.
Hann tók sæti á Alþingi dag-
ana 27. febrúar til 11. mars fyr-
ir Guðmund Bjarnason. Strax
fyrsta daginn tók hann þátt í
hinni frægu atkvæðagreiðslu
sem kom Matthíasi Bjarnasyni
og Árna Johnsen í sviðsljósið
en við spurðum Guðmund um
reynsluna af þingsetunni.
„Þetta bar mjög brátt að og
það var enginn tími til undirbún-
ings. Atkvæðagreiðslumálið kom
upp þarna fyrsta daginn en það
gefur náttúrlega ekki rétta mynd
af störfum Alþingis. Samt sem
áður kom mér á óvart að nokkurt
agaleysi virðist ríkjandi. Þegar
atkvæðagreiðslur hófust aftur var
ekki hægt að ljúka þeim fyrr en
forseti og einstakir þingmenn
voru búnir að byrsta sig. Þarna
voru 58 þingmenn en örfáa þeirra
tókst ekki að hemja. Þeir voru að
stökkva inn og út í atkvæða-
greiðslunni sjálfri og því erfitt að
láta tölurnar stemma um fjölda
þingmanna og fjölda atkvæða.
Manni finnst að þingmenn ættu
að geta setið kyrrir rétt á meðan
atkvæðagreiðsla fer fram,“ sagði
Guðmundur.
Hann sagði að þingsetan hefði
verið mjög lærdómsrík og hann
hefði kynnst því að störf þing-
manna væru oft önnur og mun
meiri en fólk gerði sér grein fyrir.
Þótt sjónvarpsvélarnir sýndu oft
fáa þingmenn í salnum þá væru
þeir stöðugt uppteknir á þing-
fundum, þingflokksfundum og
við vinnu í ýmsum málum.
„Auðvitað kynntist ég mest
vinnubrögðunum í þingflokki
Framsóknarflokksins og ég gat
ekki annað en dáðst að því hvað
margir þingmenn voru vel inni í
hinum og þessum málum. Þeir
tóku mjög virkan þátt í störfum
Alþingis og almennt fannst mér
fólkið mjög starfssamt,“ sagði
Guðmundur.
Hann sagði að innkoma vara-
þingmanns snerist að mestu leyti
um að kynnast störfum þingsins
og setja sig inn í mál. Sjálfur
lagði hann fram þrjár fyrirspurnir
sem ekki gafst tóm til að svara en
hann vonast eftir því að fá skrif-
leg svör innan tíðar.
„Ein var um fríverslunarsamn-
ing við Færeyinga og önnur um
gjaldþrot einstaklinga og stöðu
ábyrgðarmanna. Sú þriðja var
um raforkuframleiðslu og verð-
lagningu á ýmsum stöðum og
áform um jöfnun raforkukostn-
aðar,“ sagði varaþingmaðurinn
að lokum. SS
því þannig að MA hafði hlotið 32
stig, en FNV 13 stig.
Þeir Finnur Friðriksson, Jón
Pálmi Óskarsson og Magnús
Teitsson sem skipa lið MA eru
því komnir áfram í fjögurra liða
úrslit, en lið FNV sem í eru
Ragnar Lundberg, Fjölnir Ás-
björnsson og Páll Ingi Jóhannes-
son, dottið út.
Þess má geta að lið VMA
tryggði sér á dögunum sæti í
fjögurra liða úrslitunum svo stór-
ar líkur eru á að Akureyrar-
skólarnir tveir mætist í Gettu
betur. SBG
Ekki ásættaulegt a5 ekki
megi taka upp vaktavmnu
- segir Einar Svansson framkvæmdastjóri FISK
„Ég tel að miðað við þær
aðstæður sem við búum við í
frystihúsi Fiskiðjunnar, þá sé
ekki spurning að með betri
nýtingu getum við náð svipuð-
um árangri í heildina og með
sjófrystingu. Það gerist hins
vegar ekki nema tekin verði
upp vaktavinna í fiskvinnsl-
unni,“ segir Einar Svansson,
framkvæmdastjóri Fiskiðjunn-
ar-Skagfírðings hf.
Einar tel að ef þróun mála í
sjávarútvegi verði á þá leið sem
útlit er fyrir í dag, þá eigi sjávar-
útvegsfyrirtæki aðeins þrjá val-
kosti. I fyrsta lagi að vinna fisk-
inn í landi, í öðru lagi að sigla
með hann erlendis og selja hann
ferskan og í þriðja lagi að sjó-
frysta hann. „Ef fyrirtækjum í
sjávarútvegi fækkar og menn
vilja ekki að vinnustundum í
landi fækki líka, þá verður að
vinna fleiri vinnustundir í þeim
fyrirtækjum sem eftir standa. Það
gerum við ekki nema með vakta-
vinnu. Og ef verkalýðshreyfingin
gerir þann kost meira aðlaðandi
fyrir stóru fyrirtækin að vinna
fiskinn í landi, þá aukast líkurnar
á að vinnan verði í landi en ekki
úti á sjó,“ segir Einar.
Að sögn Einars er það mikill
misskilningur ef menn halda að í
framtíðinni verði fiskvinnslufyrir-
tækjum skapaður rekstrargrund-
völlur sem dugi til að menn vinni
einungis átta tíma á dag. Hann
segir því ekki ásættanlegt að ekki
megi taka upp vaktavinnu þegar
menn séu komnir út í framleiðslu
sem skili hvað mestu fyrir þjóðar-
búið.
„Umræða um þetta mál er að
opnast og m.a. er búið að taka
þetta vaktavinnumál upp á borð-
ið í rammasamningsviðræðum
fyrir sunnan. Enn sem komið er
hefur þetta samt lítið verið rætt
hér heima fyrir og því hef ég lítið
annað en mínar persónulegu
skoðanir til að tjá mig um. Samt
sem áður held ég að megi full-
yrða að ef þetta er ein af þeim
aðgerðum sem er nauðsynleg til
að færa vinnslu á fiski utan af sjó
í land, þá hljóti verkalýðshreyf-
ingin að vera jákvæð í þessum
efnum og tilbúin að leita leiða til
að þetta geti orðið,“ sagði Jón
Karlsson, formaður Verka-
mannafélagsins Fram á Sauðár-
króki og varaformaður VMSÍ,
þegar blaðið innti hann álits á
hugmyndum Einars. SBG
HlíðarQall:
Lyftur í gangi
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli
veröur opið um helgina og að
sögn Ivars Sigmundssonar,
forstööumanns Skíðastaða,
eru aðstæður mun skárri en
um síðustu helgi án þess þó að
vera lullnægjandi. Að minnsta
kosti tvær lyftur verða í gangi
Irá kl. 10-17 á laugardag og
sunnudag.
„Það er öruggt að stólalyftan
og stromplyftan verða í gangi ef
veöur verður ekki vitlaust og ef
snjóar meira er hugsanlegt að við
komum barnalyftunni í gang
líka,“ sagði ívar í samtali við Dag
í gærmorgun.
ívar sagði að aðstæður hefðu
batnað mjög við stromplyftuna,
þar hefði snjóað töluvert. Hann
taldi ljóst að aðstæður ættu eftir
að batna frekar en hitt því spáð
væri frosti og einhverri úrkomu
og snjórinn færi ekki á meðan.
SS