Dagur - 14.03.1992, Side 3
Laugardagur 14. mars 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Aukning á öllum sviðum hjá Akureyrarhöfti
Samkvæmt ársskýrslu hafnar-
stjórans á Akureyri, Guðmund-
ar Sigurbjörnssonar, komu til
hafnar á Akureyri 872 skip
árið 1991 og er það fjölgun um
5,7%. Heildarstærð skipanna
var 1.221.400 brúttólestir og er
það 20% stækkun frá árinu
áður.
Ennfremur kemur fram að á
árinu bættist eitt skip við flota
Útgerðarfélags Akureyringa hf. í
árslok voru gerðir út frá Akur-
eyri 12 togarar og 2 loðnuskip.
Einn togari ÚA var í breytingum
hjá Slippstöðinni og sex skip voru
bundin við bryggju, annað hvort
til sölu eða biðu úreldingar.
Mikil aukning var í löndun afla
á Akureyri á árinu eins og fram
kemur hér að neðan:
1991 1990
tonn tonn
Bolfiskur 17.029 17.489
Frystur fiskur 9.827 6.890
Rækja 2.910 2.050
Loðna 9.077 1,272
38.843 27.701
Vöruflutningar um höfnina
voru 168 þúsund tonn og er það
um það bil 14% aukning á milli
ára. Heildartekjur ársins urðu
76,5 m. kr. og eru það 23,5%
hærri tekjur en árið 1990 og vó
þar lang þyngst aukið aflaverð-
mæti.
Alls var unnið að styrkhæfum
framkvæmdum fyrir 16,7 milljón-
ir króna og voru stærstu verkefn-
in endurbygging hluta gömlu
löndunarbryggju ÚA að upphæð
9 m.kr., dýpkun Fiskihafnarinnar
og snjóbræðslukerfi á Austur-
bakka að upphæð 6,7 m.kr. Gerð
var uppfylling við Strandgötu
undir hús slysavarnadeildanna á
Akureyri og er það liður í fram-
tíðaruppbyggingu við Torfunef.
Talsvert var unnið að viðhaldi
hafnarmannvirkja á árinu og
voru framkvæmdir á Togara-
bryggju og Oddeyrarbryggju
stærstar um 7 m.kr.
„Af öðru er ber að nefna þá
sigldi erlent flutningaskip á
bryggjuna í Krossanesi og olli
verulegu tjóni. Viðgerðarkostn-
aður nam 3,8 m.kr. og fékkst
hann greiddur af tryggingafélagi
skipsins. Vegna gildistöku nýrrar
reglugerðar um vigtun sjávarafla
voru keyptar tvær nýjar vogir.
Önnur er krókvog staðsett í
Sandgerðisbót vegna vigtunar
upp úr trillum, en hin er færanleg
pallvog vegna vigtunar úr frysti-
skipum.
Ársfundur Hafnasambands
sveitarfélaga var haldinn á Akur-
eyri í haust og sá Akureyrarhöfn
um framkvæmd hans. Gefinn var
út kynningarbæklingur um höfn-
ina og var bæði um íslenska og
enska útgáfu að ræða.
í haust varð alvarlegt vinnuslys
við höfnina er báðir hafnarverð-
irnir slösuðust mikið þegar
springur slitnaði er hafnarverðir
voru að taka á móti skipi. Um
miðjan desember lést Baldvin
Forsteinsson, hafnarvörður, og
er hans minnst með þökk og virð-
ingu fyrir dygga þjónustu við
höfnina um 14 ára skeið,“ sagði
Guðmundur Sigurbjörnsson. ój
Heilsugæslustöðin á Akureyri:
Flensa á kreiki
í febrúarmánuði
Inflúensa herjaði á Akureyr-
inga í febrúarmánuði. Sam-
kvæmt skýrslu Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri um
smitsjúkdóma í mánuðinum
greindust 263 með inflúensu og
líklegt er að fleiri hafi lagst í
flensu þótt þeir flokkist ekki
undir bókfærð tilfelli.
Alls kyns hroði af öðru tagi
hrjáði bæjarbúa í febrúar. Alls
greindust 29 með lungnabólgu,
435 með kvef, hálsbólgu, bronkítis
og hliðstæða kvilla, 14 nældu sér í
streptókokka-hálsbólgu og 2
voru með einkirningasótt.
Þá greindust 3 með hlaupa-
bólu, 75 með magakveisu og 2
með kláðamaur. SS
HÉR ERU ÞÆR ALLAR MEÐ TÖLU
35 Taflan, hér að neðan, sýnir hve oft hver tala hefur komið upp frá 10. september 1988 (þegar Bónustalan bættist í hópinn) til 7. mars 19
34
33
32
31
30
29
28
27
26
25
24
23
22
21
20
19
18
17
16
15
14
13
12
11 1
10
9
8 -
7
6
5
4
3
2
1
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38
□ LOTTÓTÖLUR □ BÓNUSTALA
Tilviljun ræöur öllu um hvaða tölur koma upp í
lottóútdrætti hverju sinni.
Fólk hefur misjafna trú á einstökum tölum og eru
margvíslegar aðferðir notaðar við val talna.
Það er gaman að skoða hve oft hver lottótala hefur
komið upp og hver veit nema einhver
talnaspekingurinn geti fundið hinar einu sönnu
lukkutölur.
Vertu með
■ draumurinn gæti orðið að veruleika!
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000
MERKISMENN HF.