Dagur - 14.03.1992, Blaðsíða 9
Laugardagur 14. mars 1992 - DAGUR - 9
UNGLINGASÍÐAN íris Guðmundsdóttir
Að flytja til Reykjovíkur
Iíalldóra (iunnlaugsdóttir og Hlynur
Konráösson byrjuðu að vera saman fyrir
3 árum. Eftir að þau luku 9. bekk
ákváðu foreldrar Hlyns að flytja til
Reykjavíkur. Hlynur var þá búinn að fá
inni í Iðnskóla Reykjavíkur í Tölvudeild
en Halldóra var ekki búin gera upp hug
sinn. Eftir miklar vangaveltur ákvað
Halldóra að flytja mcð fjölskyldu Hlyns
og um haustið árið 1990 fluttu þau í
Kópavog þar sem þau búa í dag.
En hvernig tilfinning var það fyrir Hall-
dóru að yfirgefa foreldrahús svona ung og
llytjast á brott frá heimabæ sínum.
„Það var mjög erfitt og ég kveið lengi
fyrir. En það hefur allt gengið mjög vel.
Eg sakna náttúrulega mömmu, pabba og
systkina minna en við reynum að fara eins
oft norður og við getum. Mér fannst líka
erfitt að yfirgefa vinkonur mínar en ég hitti
þær alltaf þegar ég er fyrir norðan. Erftðast
við að flytja var að ég þekkti fáa en nú er ég
búin að eignast margar góðar vinkonur og
það hefur breytt miklu. Eg er í Armúla-
skóla sem er einn af fáum skólum hér á höf-
uðborgarsvæðinu sem tekur inn krakka sem
eiga ekki lögheimili hér. Eg var svo heppin
að lenda í bekk með stelpu frá Akureyri
sem var í svipaöri aðstöðu og ég og við
náðum vel saman. Eg er á Uppeldisbraut
og lýk stúdentsprófi næsta vor. Eftir það
langar tnig í Fóstruskólann."
En hvernig leið Hlyni þegar búið var að
ákveða að flytja.
„Mér leið ágætlega. Mér fannst að vísu
skrítið að þurfa að kveðja alla vini rnína en
að öðru leyti hlakkaði ég til. Ég var löngu
búinn að ákveða að fara í Iðnskólann í
Reykjavík vegna þess að á Akureyri bjóða
skólarnir ekki upp á Tölvubraut. Mig hefur
alltaf dreymt um að verða tölvufræðingur
og langar til að fara í HI þegar ég er búinn
með stúdentsprófið næsta vor. Mér fannst
því skynsamlegast að að reyna að undirbúa
mig sem best þannig að ég væri með góðan
grunn fyrir Háskólann. Það var sennilega
ekki eins erfitt fyrir mig að flytja eins og
Halldóru vegna þess að ég var ekki að fara
frá fjölskyldunni."
Er líf wi'jlui'jii lii'i' i Rcykjavik Jní-
hntiiiVfl lifi unglinga ii Akiircyri.’
Halldóra: „Að mörgu leyti. Krakkar á
Akureyri skemmmta sér meira en krakkarn-
ir hér. Ástæðan gæti verið sú að vegalengd-
irnar eru svo miklar að það þarf að taka
strætó eða leigubíla til að komast á milli
staða og það er dýrt. Hér er lfka aldurstak-
mark á skemmtistöðum mun hærra en
heima þannig að við komumst ekki inn á
marga staði nema þegar við þekkjum ein-
hvern sem er að vinna og það er ekki oft."
Hlynur: „Hérna hittast krakkar meira í
heimahúsum og eru þar fram á nótt í staðinn
fyrir að hanga í bænum. Við förum ekki oft
út að skemmta okkur hér vegna þess að við
viljum spara okkur það þangað til við
komumst heim til Akureyrar. Þar er það
bæði þægilegra og skemmtilegra fyrir utan
það hvað það er ódýrara.
- Hvemig er með peninga, ernð þi<5
styrkl afforeldrnm ykkar?
Halldóra: „Ekki beinlínis. Við erum í
fríu fæði og húsnæði og það munar miklu.
Það kemur fyrir að við fáum peninga frá
foreldrum okkar en við reynum að bjarga
okkur sjálf. Ég vinn um helgar í Múlakafft
og er með ágæt laun sem hafa dugað okkur
fram að þessu. Ég er heppin að hafa vinnu
eins og atvinnuástandið er og ætla að reyna
að halda í þessa vinnu eins lengi og ég get
þó ég hafi ekkert sérstaklega gaman af
henni. Ég er að vonast til að fá fullt starf í
sumar en ef ekki þá ætla ég að halda helgar-
vinnunni því þá hef ég a.m.k. vinnu næsta
vetur. Mér finnst ágætt að vinna með skól-
anum en þetta má ekki vera meira því ann-
ars kemur það niður á náminu."
Hlynur: Ég hef unnið með skólanum
hjá Blikksmiðjunni en eftir áramót lengdist
stundataflan mín þannig að ég hef ekki get-
að unnið upp á síökastið. Ég er búinn að fá
vinnu þar í sumar."
- Hafið þit5 gert framtíðaráœtun?
Halldóra: „Já a.m.k. í sambandi við
námið en eftir það vitum við ekki hvað við
gerum. Það fer allt eftir því hvar Hlynur
fær vinnu því ég get unnið hvar sem er.
Helst mundi ég vilja fytja aftur til Akureyr-
ar en það verður að ráðast hvar við endum."
Hlynur: „Ég er sammála Halldóru uin
að fara aftur norður en mér finnst erfitt að
ákveða svo langt fram í tímann."
Eins og áður segir eru Halldóra og Hlyn-
ur búin að vera saman í 3 ár og þau segjast
enn vera jafn ástfangin og mjög sátt við
hvort annað. Þau ætla ekki að fara að búa
út af fyrir sig strax, segja að það sé nægur
tími en þau eru ákveðin í því að eyða fram-
tíðinni saman.
- Er eitthvað a<5 lokum?
„Já, við biðjum að heilsa öllum. sjáumst
eftir próf!!“
Sigríður Örvarsdóttir og Karl Freyr
Karlsson eru 19 ára og eru búin að vera
saman í að verða 5 ár. í ágúst árið 1990
fluttu þau til Rekjavíkur, nánar tiltekið í
Fossvoginn þar sem þau fengu leigða litla
kjallaraíbúð. Hjá þeim búa kettirnir
þeirra tveir, Salka og Trína.
- Hvernig stóð á því a<5 þit5 fluttuð lil
Reykjavíkur?
Kalli: „Það voru margar ástæður fyrir
því. Ég byrjaði í MA en náði ekki stærð-
fræði sem þýddi það að ég þurfti að sitja
aftur í 1. bekk og ég hafði ekki áhuga á því.
Á þeim tíma spilaði ég með KA og var boð-
ið að spila með Fram og ég ákvað að taka
því. Frá upphafi hafði ég félagsskap af
strákunum í boltanum þannig að ég varð
aldrei einmana eins og Sirrý varð. Ég hef
líka búið hér áður og þekkti krakka síðan
þá."
Sirrý: „Eg hef alltaf verið spennt fyrir
að flytja hingað og þar sem ég var ekki
byrjuð í námi var ég til í að prófa. Þetta var
erfitt til að byrja með og þá sérstaklega það
að vinkonur mína bjuggu allar fyrir norðan
og ég varð oft einmana. Ég er líka þannig
gerð að ég þarf að hafa marga í kringum
mig og er vön að þekkja mikið af fólki
þannig að þetta voru mikil viðbrigði. Núna
eru nokkrar vinkonur mínar að norðan flutt-
ar hingað og ég er búin að eignast nýjar vin-
konur þannig að ég get ekki sagt annað en
að mér líkar mjög vel. “
- Hvað eruð þið að gera núiia ?
Kalli: „Við erum í Ármúlaskóla. Eg er
á Náttúrufræðibraut og klára stúdent í vor.
Næsta vetur stefni ég á að fara í HI á Lít-
fræðibraut. Mig langar til að verða dýra-
læknir en til að læra það þarf ég að (ara er-
lendis."
Sirrý: „Ég er á Félagsfræðibraut og
klára stúdentspróf næsta vor. Ég er ekki
enn búin að gera upp hug minn um fram-
haldsnám. Það er mjög margt sem hetllar
mig en ég á erfitt með að taka ákvörðun.
Draumurinn er fara út eftir nokkur ár og búa
þar í einhvern tfma."
- Hvernigfannst ykkur að hyrja að húa?
Kalli: „Mér fannst það yndislegt. Það er
óli'kt þægilegra að geta verið út af fyrir sig.
Við höfum þroskast mikið si'ðan við fluttum
og sambandið er orðið miklu tryggara en
það var."
Sirrý: „Ég er sammála Kalla. Það er að
vísu rosalega dýrt að lifa en okkur hefur
tekist ágætlega að fjármagna heimilið. Við
lifum á sumarpeningunum og þegar í harð-
bakka slær höfum við fengið styrk frá for-
eldrum okkar. Það er ekkert mál að lifa
spart en þegar okkur langar til að veita okk-
ur eitthvað vandast málið."
Kalli: „Við pössum misþroska barn einn
dag í viku og fáum laun fyrir það."
- Hvernig er með vinnu í swnar?
Sirrý: „Við sóttum um starf fyrir löngu
síðan og vorum að fá jákvætt svar. Við
verðum skálaverðir í Þórsmörk á móti öðru
pari og það er óhætt að segja það að þetta er
draumastarfið okkar."
Kalli: „Starfið felst í því að halda svæð-
inu hreinu, taka á móti rútum, benda fóki á
gönguleiðir og margt fleira. Við verðum
með frítt fæði og húsnæði og fáum mjög
góð laun. Þegar rólegt er á svæðinu þá get-
um við haft það gott, grillað, farið í göngu-
ferðir og gert okkur glaðan dag."
- Hvað gerið þið ífrfstundum?
Sirrý: „Ég er í saumaklúbb og svo er ég
mjög dugleg að fara í heimsókn til vina
minna. Ég læri og hugsa um kettina mína.
Við áttum þrjá ketti en einn þeirra dó og
það var mikil sorg en ég hef Sölku og Trínu
til að hugsa um og gæti ekki hugsað mér að
vera án þeirra."
Kalli: „Ég æft 5-6 sinnum í viku og það
nægir mér. Þegar við eigum frí saman
reynum við að fara í leikhús, heimsóknir
Signður Örvorsdórtir og Korl
Freyr Korlsson með kettino
Sölku og Trínu.
eða gera eitthvað annað skemmtilegt. Við
förum ekki oft heitn til Akureyrar, eiginlega
allt of sjaldan. Við förum lítið út að
skemmta okkur vegna þess að okkur finnst
satt að segja leiðinlegt að skemmta okkur
hér. Það er svo mikil „gleðimenning" á
skemmtistöðunum sem er óþolandi þannig
að okkur finnst miklu skemmtilegra að fara
eithvað í heimsókn."
- Haldið þið að þið komið til með að húa
á Akureyri íframtíðinni?
Sirrý: „Ég veit það ekki. Akureyri er
minn heimabær og ég kem alltaf til með að
eiga sterkar rætur þar. Ef ég kem ekki til
með að búa þar veit ég að ég mun samt
alltaf li'ta á bæinn sem mitt annað heimili."
Kalli: „Ég tek undir þetta. Mér leið alltaf
vel heima en núna lít ég á Reykjavík sem
mitt heimili."